Pressan - 06.08.1992, Blaðsíða 34

Pressan - 06.08.1992, Blaðsíða 34
I 34 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGUST 1992 Poppið • Torfi og Einar heita tveir menn sem ætla að eyða kvöldinu á Café Amsterdam. Þeir bjóða fólki að koma og hlusta á þá spila en Torfi og Einar hafa spilað dálítið með Bjarna Ara og stundum kemur hann og syngur pínu með þeim. Bara gott hjá þeim. • Loðin Rotta er oftar en ekki á Gauknum og í kvöld er semsagt oftar en ekki ekki. Við heyrðum það í út- varpinu um verslunarmannahelgina að Rottan var á Akureyri og Richie var með þeim. En hvort hann verður á Gauknum í kvöld skal ósagt látið. • Exizt er í óða önn að meika það. Það var búinn til sérstakur þáttur um Gulla Falk og félaga í Kanaútvarpinu og hann þótti svo góður að það er búið að senda hann í rokkþátta- keppni sem amerískar herstöðvar standa að. Þyki þátturinn boðlegur þar verður hann spilaður í hverri ein- ustu herstöð Bandaríkjahers í veröld- inni. Engin smá kynning það. En í kvöld er Exizt á Púlsinum og þá geta menn bara dæmt um það sjálfir hvort þeim takist að slá í gegn eður ei • Guðmundur Rúnar er sennilega eini núlifandi maðurinn sem hefur verið útskýrður sérstaklega í fjölmiðli. Guðmundur Rúnar er flókinn maður með flókinn útbúnað og því tók PRESSAN sig til um daginn og út- skýrði manninn. Með góðfúslegu leyfi hans auðvitað. Þeir sem fara á Fóqetann í kvöld ættu kannski að hafa með sér þessa skýringarmynd svona til að gera sér betur grein fýrir manninum. En tónlistin hans er fín.. ■i.Hinmia • Júpíters, sú stórfenga stórsveit, spilar lögin af geislaplötunni sinni og mörg mörg fleiri á Hressó í kvöld. Þeir eru búnir að spila töluvert þar undan- farið og ávallt gert stormandi lukku. Varla verður brugðið út af þvi I kvöld. Dillum okkur. • Fire er að okkur skilst einhvers konar samtök unglingahljómsveita. Við föttum að vísu ekki af hverju þessi samtök heita útlensku nafni. Kannski þau séu ætluð til útfluttnings. En þau eru engu að slður með tónleika í kjallara Hlaðvarpans í kvöld og þar koma fram einar sjö hljómsveitir. Þar verður Kolrassa krókríðandi, Púff, Still- uppsteypa, Curver og Steinolía til dæmis. Aðgangseyri verður víst mjög stillt i hóf og þetta ætti því ekki að verða neinum ofviða þótt hann hafi kannski aðeins farið fram úr eyðslu- áætluninni um síðustu helgi. • Sniglabandið þeysir á svið á Tveimur vinum í kvöld. Þeim hefur bæst liðsauki sem er Pálmi Sigurhjart- arson, sá eðal drengur. Nú hlýtur Einar að Ijóstra þvl upp sem gerðist (Húsa- felli undir Hægðatregðublúsnum. • Exizt er ekki á Púlsinum ( kvöld heldur I Grjótinu. Bráðum kemur naut I Grjótið. Svona naut eins og var í kvikmyndinni Urban Cowboy. Vél- naut. Þá verður hægt að riða því und- ir dúndrandi rokktónlist. Gaman gaman. Við gerum það að tillögu okkar að Haukur Halldórsson formað- ur Stéttarsambands bænda og Hall- dór Blöndal landbúnaðarráðherra verði fengnir til að vígja nautið. Þá er hægt að sjá hvor er betri í ródeói. • Smá djók á Apríl. Ekki fyrsta apríl. Heldur á skemmtistaðnum Aprll. Smá djók er sko hljómsveit. Okkur minnir að hún komi úr Hafnarfirði en það má meira en vera að það sé alls ekki rétt. Þá verður bara að hafa það. • Guðmundur Rúnar er útspekul- eraður maður og er enn í höndum Fógetans. • Einar og Torfi spila aftur á Café Amsterdam. Mjöður rennur Ijúft und- ir tónlist þeirra kumpána. • Crossroads er blúshljómsveit sem flestir ættu að kánnast við. Hún er búinn að stilla upp niður á Gauk og ætlar að blúsa þar í kvöld. Þeir kunna líka að rokka er okkur tjáð og eru sagðir gera það með prýði. Ekki galið. • Sniglabandið brunar á svið á Tveimur vinum í Kvöld rétt eins og í gær. Ætli Einar sé búinn að segja frá þessu sem gerðist í Húsafelli? • Exizt verður aftur ( Grjótinu ( kvöld og tryllir lýðinn. • Smá djók það er ennþá djókað á Apríl og er það vel. • Hermann Ingi er úr Eyjum og hefur sjálfsagt verið á þjóðhátíð. Ekki vitum við hvort hann hefur hagað sér eitthvað ósæmilega þar en hitt er víst að ástæða þótti til að setja hann í vörslu Fógetans í kvöld. • Torfi og Einar eru ekkert á þeim buxunum að fara að flytja sig af Café Amsterdam enda sjálfsagt engin ástæða til. • Crossroads enn á Gauknum. Ekki vegvilltir strákarnir en hafa þó séð sér þann kost vænstan að færa sig ekki um set að sinni. SUNNUDAGUR • Cadenca er víst mjög forvitnileg hljómsveit sem spilar á Café Amsterdam. Þetta er dúó sem sam- anstendur af breskum manni sem heitir Eric og á hljóðver í Bretlandi og íslendingi sem á ekki hljóðver í Bret- landi. Fyrir íslenska tónlistarmenn hlýtur að vera mikið meira vit í kynn- ast Bretanum. Þó sá íslenski sé sjálf- sagt ágætur líka. En músíkin er víst skemmtileg. • Sniglabandið er komið á Gauk- inn og Ploderinn og félagar hans halda góðum dampi eitthvað fram á mánudaginn. • Hermann Ingi er enn í höndum Fógetans Þórðar og skemmtir sér og öðrum konunglega. Sveitaböll ■atii'u.H'ie • Þotan Keflavfk kannski ekki beint sveita- ball en Sálin hans Jóns míns leikur. • Njálsbúð Vestur Landeyjum Sálin hans Jóns míns. Barir • Drykkjumaður PRESS- UNNAR þreytist ekki á að vanda um fyrir ís- lenskum barþjónum, sem virðast ekki geta lært þá einföldu íþrótt að buna bjór úr krana í glas. í almennileg- um bjórdrykkjulöndum fengi öll stéttin falleinkunn og líklega yrði atvinnuleysi landlægt meðal hennar. Bjórinn á ekki bara að frussast í könnuna, heldur renna Ijúflega í nokkrum áföngum, fá að sjatna áður en meira er hellt í glasið. Að endingu á að myndast þétt froða sem sest Ijúflega eins og skegghýjungur á efri vörina. í þessu efni er sú annars ágæti staður Bíóbarinn undir sömu sök seldur og aðrar krár. Þar er drukkið mikið af bjór — meira en víðast hvar annars staðar - - en undir þessum vitlausu formerkj- um. Líklega bera barþjónarnir því við að svo mikið sé að gera að þeir megi ekki vera að því að vanda sig, og vissulega er þarna oftast nær örtröð af blaðamönn- um, menningarvitum, listaspír- um og áhangendum svoleiðis fólks seinni part kvölds, en fjöl- mennt af smákrimmum fyrri part kvölds. En þá er vart annað til ráða en að senda barþjónana til útlanda í starfskynningu, til að mynda til Þýskalands eða írlands þar sem kollegar þeirra buna heilu brugghúsunum kórrétt of- an í könnur hvert kvöld. Einn Ijóður er líka á þessum bar sem annars er einn sá skásti í Reykja- vík: Þjónarnir eiga það til að verða óþarflega önugir bak við barborðið. ★★★ SÝNINGAR • Það var svo geggjað. Árbæ- jarsafn er löngu hætt að snúast bara um moldarkofa og gömul hús, hel- dur líka um fólk, sumt í ekki alltof fjar- lægri fortíð. Tildæmis hippasýningin sem ber með sér andblæ áranna 1968 til 1972, þegar herbergi unglin- ga önguðu af reykelsi, allir gengu í útvíðum buxum og karlmenn voru hæstánægðir með að skvetta á sig Old Spice- rakspíra. Opiökl. 10-18. • Húsavernd á íslandi. Aðalstræti er sorglegt dæmi um þegar menn vilja hvort tveggja halda og sleppa, vernda og rífa. Vissir hlutar Akureyrar eru á hinn bóginn fagurt dæmi um skynsamlega húsavernd. í Bogasal Þjóðminjasafns stendur yfir sýning þar sem er rakin saga húsaverndar á Islandi. Op/'ð ★/. 11-16. • Höfnin í Reykjavík er mikið man- nvirki og það voru stórhuga menn sem réðust í að byggja hana í kringum 1915. Nefnum Jón Þorláks- son. Sýning í Hafnarhúsinu rekur sögu hafnarinnar, í tilefni af 75 ára afmæli hennar. Opiökl. 11-17. • Höndlað í höfuðstað er sýning á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur og Borgarskjalasafns. Þar eru raktir þættir úr sögu verslunar í Reykjavík. Hún var einna blómlegust um aldamótin, eða þá voru að minnsta kosti mjög flottar búðir. Voða „Ég er svona ósköp venjuleg stelpa, nýbúin með stúdentspróf og algjörlega óráðin varðandi framtíðina". Það er Sóley Elías- dóttir, 25 ára leikkona, sem hefiir orðið. Hún er þó ekki að lýsa sjálfri sér hér, heldur Unni sem hún leikur í kvikmynd Óskars Jónassonar, Sódómu Reykjavík sem áætlað er að frumsýna í lok september. „Unnur á vini sem eru óttalegir sukkarar og bróður sem er bruggsali. Hún tekur að sér að hafa milligöngu um sölu áfengis- ins á skemmtistaðnum Sódómu og lendir þar í ýmsu“. En Sóley sjálf, er hún nokkuð í sprúttinu? „Nei, sjálf hef ég nú að- allega verið upptekin við barn- eignir síðustu tvö árin og á nú tvær dætur, sautján og þriggja mánaða gamlar.“ Sóley lauk leik- listarnámi frá Englandi 1989 og lék eftir það einn vetur með Leik- félagi Akureyrar. Síðan hafa börn- in átt hugann allan. Nú hefur hún snúið sér aftur að leiklistinni og fer með aðalkvenhlutverkið í Sód- ómu Reykjavík. Sóley Elíasdóttir með dæturnar Gígju 17 mánaða og Eygló þriggja mánaða. Og hvað tekur svo við, fleiri kvikmyndir? „Nei, nú ætla ég að snúa mér að leikhúsinu á ný. Ég og sambýlismaður minn, Hilmar Jónsson, ætlum að setja upp leik- verk í Lindarbæ í vetur sem heitir Brennist og er eftir Bandaríkja- manninn Lanford Wilson. Búið er að fmna leikara og við reiknum með að byrja að æfa í haust“. Reykjawkin min „Uppáhaldsafdrep mitt í Reykjavik er Birkimelur 8a, en þar býr hún Sigrún systir mín. Hún býr til alveg svakalega góðan mat og afþví að ég er gjörsamlega vanhæfur kokkur býður hún mér oft í mat til sín. Svo finnst mér mjög gaman að keyra um úthverfi borgarinnar að næturlagi og þá helst um iðnaðarhverfin, Sundahöfn og Örfirisey. Mannlausar götur eru skemmtilegar og á næt- urnar fæ ég oft svo ansi góðar hugmyndir. Þó að ég sé nú ekkert rosalega duglegur við Óskar Jónasson kvik- myndagerðarmaður skemmtanalífið finnst mér alltafnotalegt að fara á Bíó- barinn og kannski áN-1 á eft- ir. Svo má ekki gleyma Ölveri í Glæsibæ. Ég dreifmig upp á svið þar um síðustu helgi og söng „It's now or never", næst- um eins flott og Elvis Presley. Ölverið er góður staður og það er miklu meira spennó að fara þar upp á svið en að hoppa I teygju. Efég á stefnumót við einhvern verðurgamla góða Mokka alltaffyrir valinu. Ann- ars er endalaust hægt að finna nýjar hliðar á Reykjavík, þetta ersvo fínn bær". Hægt að kaupa kaffi, árar, snjóskóflu og gos. KRÚTTLEG KRAMBÚÐ OC KAFFI5TOFA „Veistu hvar skósmiðurinn er?“ spyr ljóshærð dama konuna á bak við búðarborðið. „Á Hverfisgötu, ha? Kannski maður geti náð í skóna sína þar.“ Svo lauk erindi hennar til skósmiðsins í Lækjar- götunni en þar er nú búið að opna litla, krúttlega krambúð og kaffi- stofu. Auk þess að geta fengið varning á borð við heimalagað bakkelsi og kaffi með því, nammi í kramarhúsi, nál og tvinna, gos- drykki á flöskum er líka hægt að kaupa árar, kerti, tv-sokka, snjó- skóflu, pundara og exi. „Við ætlum að hafa þetta breytilegt og viljum hafa nógu mikla fjölbreytni. Núna erum við að sanka að okkur vörum,“ segir Kristín Axelsdóttir, sem ásamt manni sínum Einari G. Guðjóns- syni, hefur opnað krambúðina og kaffihúsið Lækjarkot í Lækjargöt- unni. „Hér í húsinu bjó mjög skemmtileg kona í 95 ár en pabbi hennar byggði húsið. I kjallaran- um hefur verið margs konar starf- semi. Hér var upphaflega járn- smiður og mér er sagt að hér hafi gosdrykkjaverksmiðjan Sana haf- ið starsemi sína. Skósmiðurinn var hér lengi og hann virðist hafa verið mjög vinsæll því það koma margir að spyija eftir honum.“ En nú hefur kjallarinn sem sagt fengið annað hlutverk og tíminn einn mun leiða í ljós hvort hús- freyjan endist í 95 ár eins og fyrri eigandi. Hvernig eyddirðu verslunar- manna- helginni? Steinn Ármann Magnússon leikari var að skemmta í Galtalæk um helgina „Það var fint hjá mér um helg- ina nema hvað veðrið hefði mátt vera betra. Það rigndi svolítið." Gunnar Þorsteinsson í Krossinum fór víða um Verslunar- mannahelgina „Á laugardeginum naut ég kyrrðar í bænum á meðan þeir sem illt stunda fóru út úr bæn- um að svala fýsnum sínum. Um kvöldið fór ég á samkomu hjá Krossinum. A sunnudag- inn fór ég hins vegar í Kirkju- lækjarkot á samkomu hjá Hvítasunnumönnum en mánudeginum eyddi ég á Pat- reksfirði.“ Guðrún G. Bergmann framkvæmdarstjóri Betra lífs var á Hellnum á Snæfellsnesi um helgina „Það var í einu orði sagt yndis- legt um helgina. Við vorum einstaklega heppin með veður þótt það hafi ekki verið sól á hverjum degi. Hátíðin var frið- söm án vímuefna og mikil gleði og ánægja ríkti alla helg- ina.“ Séra Auður Eir Vilhjálms- dóttir eyddi helginni með fjölskyldu sinni á ferðalögum um Suðurlandið „Við fjölskyldan förum saman í ferðalög þegar andinn blæs okkur í bijóst og það er ekki endilega bundið við Verslun- armannahelgina. Við eyddum að þessu sinni saman helginni á Suðurlandi og ferðuðumst víða og komum meðal annars við á heimili mínu í Þykkvabæ. Við áttum góða helgi saman.“ BRENG L A N IR Þýðingarbrenglanir á orðum eru að verða þjóðaríþrótt margra ungra fslendinga, að ekki sé talað um þegar þeir eru að reyna út- skýra eitthvað fýrir saklausum út- lendingum. Hér koma nokkur dæmi um það: Það liggur í augum uppi = It lies in the eyes upstairs. Enginn verður óbarinn biskup = Nobody vill be unbeaten bishup. Gullkorn = Golden Corn. Trúbort = Faith break. Ekki eru síður skondnar annars konar brenglanir, eins og til dæm- is brenglunin á nafni hins vinsæla skemmtistaðar Café Romance. Miðað við aðfarir íslendinga við að næla sér í maka fannst ein- hverjum meira viðeigandi að nota orðið Graða Fromas. Einhver rulgaðist hjá pylsusalanum og bað um eina pussu með öllu nema hárum, í stað einnar pylsu með öllu néma hráum. Þetta er auðvit- að hið mesta grín.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.