Pressan - 06.08.1992, Blaðsíða 23

Pressan - 06.08.1992, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR PKMSSAN 6.ÁGÚST 1992 23 Bresk vínrækt blómstrar Bretar hafa hingað til verið þekktir fyrir margt annað en vínrækt en verið getur að það fari nú að breytast. Fyrir 25 árum voru um 30 manns á Englandi sem rækt- uðu vín, meira í gamni en alvöru. Nú eru vínræktarbændur orðnir um 400 talsins og margir umsvifamiklir. Síðustu þrjú sumur hefúr hitastigið á Bretlandi verið nokkuð hærra en landsmenn hafa átt að venjast með þeim afleiðingum að nú blómstrar þar vínrækt. Ekki hafa allir trú á þessari nýju atvinnugrein í Bretlandi og ýmsum þarlendum háðfuglum þykir bresk vínrækt álíka vonlaus og þýsk kímnigáfa. En bændur eru bjartsýnir og sannfærðir um að í kjölfar loftslagsbreyt- inga eigi England og Wales efdr að öðlast rrúkilvægi í vínffamleiðslu. Ekki er það til að draga úr vonum manna að Elísabet Bretadrottning notar nú hvert tækifæri til að vekja athygli á hinni ört vaxandi at- vinnugrein. I opinberri heimsókn drottn- ingarinnar til Parísar í júní síðastliðnum var enskt hvítvín til dæmis borið á borð fyrir gesti, auk franskra vína auðvitað, og þótti það söguleg stund. Útsala á flugi Það er víðar en á fslandi sem vandi steðjar að f ferðaiðnaði. f Þýskalandi höfðu menn búið sig undir „ferðaárið mikla“ 1992, en annað átti þó eftir að koma í ljós. Miklu færri bókuðu flugferðir til sólarlanda í vor og sumar en áædað hafi verið, með þeim afleiðingum að al- gjört offramboð varð á flugferðum og eru þær nú nánast seldar á útsöluverði. í Þýskalandi reiknuðu menn í ferðaiðnaði með aukinni ásókn í flugferðir í sumar, eftir dræmt ferðaár í fyrra vegna Persa- flóastríðsins, og bókuðu langtum fleiri flugferðir til sólarlanda en fyrri ár. En Þjóðverjar virtust ekki vera eins sólsveltir og menn höfðu ætlað því „ferðaspreng- ingjn" lét ekki á sér kræla. Og til að sitja ekki uppi með feiknin öll af óseldum flug- miðum og hálftómar vélar var gripið til þess ráðs að selja hoppfargjöld á gjafverði. Aldrei fyrr hefúr verið jafn ódýrt að fljúga til sólarlanda og margir hafa orðið til að notfæra sér þetta óvænta tækifæri. Og svo sem engin furða, flug til Mallorca fæst til dæmis fyrir litlar tíu þúsund krónur og þeir sem áhuga hafa á að skella sér til Mi- ami þurfa aðeins að reiða fram um 20 þúsundkrónur. DÁLEIÐSLA Þú getur hætt að reykja, losnað við ótta og hræðslu, aukið sjáifstraust, losnað við matarfíkn o.m.fl. með hjálp dáleiðslu. Einkatímar í dáleiðslu hjá viðurkenndum alþjóðlegum dáleiðara. Friðrik Páll Ágústsson R.P.H., C.Ht. Vesturgata 16, Sími 91-625717 Rafmagnsgftarar kr. 12.900,- GítléliHnnVf’5: hljóðfæraverslun, Laugavegi 45 - siml 22125 - fax 79376 Gitarar frá kr. 6.900,-X, Trommusett kr. 33.900,- D’Addario strengir Deam Markley magnarar Gitarpokar kr. 2.995,- Gitartöskur kr. 6.900,- EITTHVAÐ FYRIR ÞIG ? VVVVVvVV V Snæfell kynnir: Saumaklúbbinn 'MlbMOl sem er eitthvað fyrir þig. Hvað kostar svo að ganga í klúbbinn ? Aðeinskr. 1.680. -fyrsta árið,við inngöngu fáið þið send fjögurlOOO metra hvít tvinnakefli, ásamt vönduðu faldamáli (að verðmœti kr. 1.680.-). Auk tvinnans og faldamálsins fáið þið sent þann l.okt. klúbbfréttir ásamt vörupöntunarlista,og síöan á tveggja mánaða fresti klúbbblaðið Allirmeð tölu. Persónulegur klúbbur ípóstverslunarformi, fyrirþá sem vilja fylgjast meö því nýjasta sem tengist saumaskap og gera góð kaup. ALLIRMEÐ TÖLU Langholtsvegi 109 Pósthólf4046, 124 Reykjavík Skráningarsími (91) 68 33 44 Við prentum ó boli og hófor Eigum úrval af bolum m.a. frá Screen Stars Vönduð vinna og gæði í prentun. Langar og stuttar ermar, margir litir. Húfur í mörgum litum. Filmuvinnum myndir. Gerum tilboð í stærri verk. Nýtt! Nýtt! Nýtt! Nýtt! Nýtt! Komdu meö Ijósmynd eöa teikningu og viö Ijósritum myndina á bol eöa húfu fyrir þig. Smiðjuvegur 10 • 200 Kópavogur Sími 79190 • Fax 79788 • Box 367 Vöruhús Vestu Borgarnesi sími 93-71 í VÖRUHÚSIVESTURLANDS er komið sumar og allar deildimar bjóða ykkur velkomna. OMATVÖRUDEILD O VEFNAÐARV ÖRUDEILD O G JAFAV ÖRUDEILD O RAFTÆKJA- OG SPORTVÖRUDEILD O BYGGINGAVÖRUDEILD O KB BÓNUS Komið við hjá okkur í sumar VÖRUHÚS VESTURLANDS Birgðamiðstöðin ykkar KBBÓNUS Sól og sumar hjá okkur

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.