Pressan - 06.08.1992, Blaðsíða 20

Pressan - 06.08.1992, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGÚST 1992 E R L E N T ^VÍaður vikunnar Erich Honecker Það er lengi von á einum. Þeg- ar allir héldu að búið væri að svínbeyja þann gamla og fula komma, Erich Honecker, fyrr- um leiðtoga Austur-Þýska- lands, fékk hann annarlega uppreisn æru. Afgamla mann- inum var tekin fféttamynd (sem hlýtur að fara langleiðina með að verða fféttamynd árs- ins), þar sem hann er leiddur út úr sendiráði Chile í Moskvu og steytir hnefann ögrandi, næstum sigri hrósandi, framan í myndavélar fjölmiðlafólks. Á svipstundu var eins og leiðtog- inn fallni, sem fáir verða til að mæla bót, öðlaðist einhverja sérkennilega og þrákelknislega reisn. Og þegar hann var flutt- ur aft ur í Moabit fangelsið í Berlín var eins og sagan biti í skottið á sér með hætti sem hefur yfir sér þó nokkum vott af glæsileika. Þarna, í Moabit, sat hann tukthúslimur á tíma Hitlers, svo var hann í næstum fimmtíu ár höfðingi í heims- veldi, nú er það fallið og hann situr aftur á sama stað. Heim- koma Honeckers varð semsagt strax miklu vandræðalegri fyrir stjórnina í Bonn en fyrir gamla kommúnistaforingjann; þær era rifjaðar upp skálaræðurnar sem voru haldnar yfir honum þegar honum var hampað í op- inberri heimsókn í Vestur- Þýskalandi fýrir ekki svo ýkja löngu. Eins var líkt og það yrði skyndilega augljóst að það yrði ekki svo auðvelt að sanna á hann fyrir dómstólum glæpi sem ffamdir voru í nafni Þýska alþýðulýðveldisins, að hans undirlagi. Fjölskylda sem fitnar á athygli fjölmiðla Frá því Rainer fursti af Mónakó giftist Grace Kelly hefur hann not- fært sér þá athygli sem beinst hef- ur að furstadæmi hans til að afla fjár í kassann. Hann seldi ffanska tímaritinu Paris-Match einkarétt- inn að myndbirtingu af Grace með Karólínu nýfædda. Tímaritið hef- ur haldið þessum einkarétti og birti í vor myndir af maganum á Stefaníu sem fer sístækkandi líkt og sjóðir furstadæmisins. Rainer hefur kunnað að gera peninga úr harm- og gleðiatburðum fjöl- skyldunnar og dætur hans hafa ekki svikið hann um að láta press- una hafa úr nógu að moða. En prinssesur eru ekki það eina sem manni dettur í hug þegar minnst er á Mónakó. Spilavítin eru nátengd ímynd landsins. Eða voru það öllu heldur. Effir opnun spUavítanna um miðja síðustu öld flykktust þangað aðalsmenn og iðjuhöldar. Þá voru spilavítin helsta tekjulind furstadæmisins. Eftir síðari heimsstyrjöldina var landið opnað fyrir erlendu fjár- magni sem streymdi inn í landið. Furstadæmið tapaði þar með stór- um eignarhlutum í hendurnar á hinum gríska skipakóngi, Onassis. Og þar með einnig stjórn landsins, þó svo furstinn ríkti yfir því. Rainer III var að sjálfsögðu lítið hrifinn af ítökum erlendra aðUa og að hann sjálfur skyldi ekki hafa meiri völd. Það var uppgangur á fasteignamarkaðnum upp úr 1950 og þar eygði hann möguleika. Fyrsta skrefið í átt til algerra yfirráða steig hann 12. apríl 1956, þegar hann gekk að eiga Grace Kelly að viðstöddum 1800 blaða- mönnum. Hún var dularfulla kvikmyndastjarnan. Fögur og ósnertanleg. En hún var líka dóttir bandarísks milljónamærings, sem var tilbúinn tU að borga háar fjár- hæðir fyrir titU handa dóttur sinni. Eftir giftinguna hófst Rainer handa við að bola Onassis burt úr furstadæminu. Með aðstoð blað- anna og ljósmynda af sér og Grace, tókst honum að styrkja ímyndina um hamingjusama og friðsæla fjölskyldu. Hugmyndin var stórkostleg: Hann seldi kon- una sína rétt eins og Bongo seldi bensínið sitt, Mobutu demantana og Lesotho atkvæði sitt hjá Sam- einuðu þjóðunum. Það var ekki nóg að ná völdum heima fyrir. Það hratt ekki í burtu nálægri ógn, sem vofað hafði yfir Grimaldi fjölskyldunni frá upp- ^Onðdíngton |o0t Hægfara efnahagsbati Þó að samkvæmt hagtölum hafi sú kreppa sem verið hefur í banda- rísku efnahagslífi tekið enda fyrir allt að þremur árum er efnahagslífið þar í landi enn fremur bágborið samanborið við mörg fyrri ár. í síðustu viku birti bandaríska viðskiptaráðuneytið tölur er sýna að sá efnahags- bati, sem menn væntu, er töluvert hægari en búist var við. Að vísu hefur þjóðarframleiðsla aukist nokkuð þau tæplega fjögur ár sem George Bush hefur setið á forsetastóli, en vegna mikillar fólksfjölgunar er hún mun minni á hvert mannsbarn nú en hún var snemma árs 1989, er Bush tók við forsetaembættinu. Nútíma hagkerfi dafna ekki án stöðugra fjárfest- inga og fjármagnsstreymis en um þessar mundir hugsa bankar og fyrir- tæki meira um að greiða uppsafnaðar skuldir en að leggja út í nýjar fjar- festingar. Sömu sögu er að segja um bandarískan almenning. Fólk virðist nú leggja meira af launum sínum fyrir en áður í stað þess að auka neysl- una um leið og efnahagurinn réttir úr kútnum. Þó að þessi viðhorfs- breyting þyki til góðs vestanhafs er ljóst að síaukinn rekstrarhalli ein- stakra fylkja og sú skattbyrði sem honum fylgir sé of rnikið álag fyrir bandaríska hagkerfið. hafi. Að smáríkið yrði einn góðan veðurdag gleypt af risavöxnum nágranna sínum, Frakklandi. Árið 1962 varð Rainer dauðskelkaður, þegar de Gaulle varð gersamlega óður yfir því að ffanskir braskarar gátu komist hjá því að greiða skatta, með því að koma fjármun- um sínum fyrir í Mónakó, sem var skattaparadís. Til að ná sáttum, gerði Rainer samning við frönsk stjórnvöld. Franskir kaupsýslu- menn og braskarar yrðu skatt- lagðir og í staðinn myndu Frakkar hdda vemdarhendi yfir Mónakó. ENGIN FÁTÆKT, ENGIR GLÆP- IR Upp frá þessu byrjuðu Rainer og Mónakó að þéna gífurlegar fjárhæðir. Furstinn stofnaði fjöl- þjóða fasteignafyrirtæki með að- stoð milljarðamæringsins Gildo Pastor. Sá náði að stækka land- svæði furstadæmisins með ný- byggingum. Verð á húsnæði rauk upp. Furstinn af Mónakó er því ekki lengur aðeins tákn, eins og Englandsdrottning. Hann ríkir yfir fjármálaveldi. Og allir íbúar Mó- nakó eru ríkir og ánægðir. Það er enginn fátækur í Mónakó og þar eru heldur engir stjómmálaflokk- ar. Aðeins mónakóska verkalýðs- félagið, sem stjórnað er af .... kommúnistum.... Það er passað vel upp á ríku íbúana. Það eru myndbandsupp- tökuvélar út um allt. Það eru 400 lögreglumenn í landi sem hefur aðeins 28.000 íbúa. Þá eru herlög- reglumennirnir ekki meðtaldir. Mónakó er tvímælalaust ein lög- regluvæddasta borg í heimi. Kon- urnar eru ekki í neinni hættu þótt þær fari út með demanta sína í nýja Benzinum um hánótt. Og ef einhver gerir tilraun til ráns, þá er enginn hætta á að hann komist undan. Það er hægt að sitja fyrir ránsmönnunum á öllum landa- mærastöðvum, þökk sé vidóupp- tökuvélunum. Árið 1989 voru framin þrjú vopnuð rán í Mónakó. Prinsinn rak alla sem voru ábyrgir og hét því að slíkt skyldi aldrei koma fyrir aftur. Það hefur ekki gerst. Glæpir eru svo fátíðir að blöðin verða að láta sér nægja frásagnir af um- ferðaróhöppum. EITURLYFJAPENINGAR? f sjálfri höllinni. Þar þurfa prinsessurnar að borga fyrir gleði sína og sorgir með persónu sinni. En engum er leyfilegt að segja hvað sem er um fjölskylduna. Grace getur dáið, en um sorg fjöl- skyldunnar er samið við fjölmiðla, sem dreifa fallegum myndum af syrgjandi furstanum. Ef einhver fjölmiðlamaður gerir athugasemd er honum umsvifalaust bent á dyrnar. Fyrir utan þetta gerist akkúrat ekkert í Mónakó. Þetta er róleg- asta borg í heimi. Ef einhverjum dettur í hug að syngja á götum úti má hann eiga það á hættu að vera stoppaður. Og börnum er ekki lið- ið að trufla ró almennings. Það stendurílögum. Það er reyndar eitthvað effir af geggjuðu næturlífi spilavítanna, með sína leiki. Spilavélar, black jack, rúllettur, baccara, þótt ekki sé það líkt því eins krassandi og áður. Enda þénar ríkið ekki nema 4 prósent af tekjum sínum með fjárhættuspilunum. Það græðir mest á sköttunum. Um það var samið árið 1962. Á hverju ári skrif- ar franska ríkið stóra ávísun stfl- aða á Mónakó. Það ætti því ekki að koma á óvart að í landinu eru 40 bankar sem sjá 1600 manns fyrir vinnu. Og á tíu árum hafa innlagnir hækkað úr 11 milljörðum franka í yfir 50 milljarða (550 milljarða ÍKR). En bankaviðskiptin hafa líka valdið hallarbúum áhyggjum. Það er erfitt að koma í veg fyrir orð- róm um að í gegnum bankana streymi skítugir peningar, sem þar séu þvegnir í þágu eiturlyfjasala. Annars skiptir svona orðrómur kannski ekki öllu máli. Blaða- menn sem heimsækja furstadæm- ið hafa áhuga á að vita allt um Stefaníu og Karólínu. Sýningin er að sjálfsögðu ekki eins góð og þeg- ar Grace gekk fyrst inn á sviðið fýrir 36 árum. En prinsessurnar standa sig ágætlega. Karólína með sitt mis- heppnaða hjónaband að baki, skilnaðinn, giftinguna sem páfi vildi ekki viðurkenna, barneign- irnar og síðast missi eiginmanns- ins. Stefanía með alla kærastana og tilraunirnar til að fóta sig í skemmtanabransanum og tísku- heiminum. Rainer getur ekki kvartað, þótt fjölskyldan prýði ekki jafn oft forsíður franskra glanstímarita nú og hér áður fýrr. Furstinn hefur raunverulegri áhyggjur en þær. Hann er hrædd- ur um að fasteignaviðskiptin eigi ekki framtíð fýrir sér og við kaup- hallarhrun. Þá eru það kröfur um stærri og meiri ffamkvæmdir. Ra- iner þarf að bregðast við þeirri áskorun áður en það verður um seinan. Því flestir efast um að Al- bert prins sé til einhvers nýtur þótt sumir segi hann hafa áhuga á við- skiptum. Og það er eins gott að það sé satt. Grimaldi fjölskyldan fær prósentur af öllu því sem selt er innan furstadæmisins. Eins og aðgöngumiðaverðinu inn í sæ- dýrasafhið. Hún hefur þegar mis- notað þá aðstöðu, með því að koma upp tvöfaldri miðasölu. Rétt eins og óprúttnir framkvæmda- stjórar fótboltavallar. Ekki beinlín- is gott afspurnar fyrir furstafjöl- skyldu og því kannski vissara fýrir hana að fara að leita nýrra leiða til að koma í veg fyrir að pyngjan léttist of mikið. Frambjóðandi á ferð og ftuqi 1988 1991 1992

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.