Pressan - 06.08.1992, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6.ÁGÚST1992
17
Anna Ólafsdóttir Björnsson,
þinkona Kvennalista.
Viðkvæm
spurning
Anna Ólafsdóttir Björnsson,
þingkona Kvennalista, kveðst
nokkuð undrandi á því nei-
kvæða viðhorfi til fóstureyð-
inga er fram kemur í könnun-
inni, en 25 prósent þeirra er af-
stöðu taka lýsa sig algerlega
andsnúna þeim. „Þetta er
hærra hlutfall en ég hafði
reiknað með og er því dálítið
hissa á þessum niðurstöðum.
Hugsanlega er ástæðan sú að
hér er um viðkvæma siðferðis-
lega spurningu að ræða sem
erfitt getur reynst að svara.
Að sjálfsögðu fagna ég þó
því jákvæða viðhorfi til fóstur-
eyðinga sem fram kemur í
könnun SKÁÍS, þar sem um 64
prósent þeirra er afstöðu tóku
lýsa sig fylgjandi þeim. Þessi
niðurstaða er gleðiefni, en hún
sýnir að meirihluti Islendinga
lítur á fóstureyðingar fyrst og
fremst sem mál konunnar.
Réttur konunnar til að ráða yfir
eigin líkama er virtur af stórum
hluta þeirra er spurðir voru og
greinilegt er að henni er treyst
til að taka rétta ákvörðun í
þessu máli. Ég held að niður-
stöður könnunarinnar séu
mjög raunhæfar".
því að gefa henni núll. Viðhorf
þeirra til samkynhneigðar var
mjög neikvætt. Því til viðbótar
gáfu 12 prósent viðhorfi sínu
mjög lága einkunn eða sögðust
hafa frekar neikvætt viðhorf til
samkynhneigðarinnar. Samtals
eru þetta 48 prósent sem hafa
annað hvort mjög neikvætt eða
frekar neikvætt viðhorf til sam-
kynhneigðar.
Á hinn bóginn sögðust 13 pró-
sent hafa mjög jákvætt viðhorf til
samkynhneigðar. Og þvf til við-
bótar sögðust 7 prósent hafa ffek-
ar jákvæða afstöðu. Samanlagt
voru því rétt 20 prósent sem lýstu
viðhorfi sfnu til samkynhneigðar
sem ffekar jákvæðu eða mjög já-
kvæðu. Það er meira en helmingi
minni hópur en sá sem var ffekar
eða mjög andvígur samkyn-
hneigð.
33 prósent, eða þriðjungur,
lýstu sínu viðhorfi sem þarna mitt
á milli og voru heldur fleiri sem
sögðust hafa ffemur jákvætt við-
horf en hinir. Eftir sem áður er
meðaltalseinkunnin lág eða 4,0.
Almennt hefur fólk því mjög nei-
kvætt viðhorf til samkynheigðar.
AÐ HÖMLUM VERÐILÉTT
Á SÖLU KLÁMEFNIS
Afstaða fólks til þess hvort rétt
væri að létta hömlum á sölu klám-
efnis var enn skýrari. 75 prósent
voru því algjörlega andvígir. Og 8
prósent til viðbótar lýstu viðhorfi
sínu sem frekar neikvæðu. Sam-
anlagt eru þetta því 83 prósent
sem hafa frekar eða mjög nei-
kvæða afstöðu til þess að hömlum
• Fjórðungurinn er algjörlega andvígur fóstureyðingum en
þriðjungurinn mjög hlynntur þeim.
• Aðeins 2 prósent hafa jákvætt viðhorf til framhjáhalds.
• Fólk hefur almennt mjög jákvætt viðhorf til kynlífs fyrir hjónaband og
þess að getnaðarvörnum sé haldið að unglingum.
verði létt af sölu klámefnis.
7 prósent þáttakenda voru hins
vegar algjörlega fylgjandi því að
hömlum yrði létt af. Og önnur 2
prósent voru frekar hlynnt því.
Samtals voru því 9 prósent ffekar
eða mjög meðmælt því að létta
hömlum af sölu klámefnis. Þessi
hópur er rúmlega níu sinnum
minni en hinn sem var andsnúinn
því að létta hömlunum.
Þama á milli voru síðan 8 pró-
sent þáttakenda. Meðaleinkunnin
er 1,4 sem er öruggt fall. Fólk
hafði aðeins neikvæðari afstöðu til
ff amhjáhalds í þessari könnun.
sögðust vera því algjöriega fylgj-
andi að skylda fólk til að mæta í
eyðnipróf. 13 prósent sögðust síð-
an vera því ffekar sammála. Sam-
anlagt voru því 73 prósent því ým-
ist algjörlega eða frekar sammála
að skylda fólk til að mæta í eyðni-
próf.
18 prósent þátttakenda voru
því hins vegar algjörlega andvígir.
Og 5 prósent til viðbótar voru
ffekar á móti því. Samanlagt var
því tæpur fjórðungur, eða 23 pró-
sent, frekar eða algjörlega andvíg-
ur slíku.
Aðeins 4 prósent voru beggja
blands. Þrátt fyrir tiltölulega stór-
an hóp sem var andvígur því að
skylda fólk í eyðnipróf er meða-
leinkunin 7,5. Fólk er því almennt
fylgjandi ef aðeins er litið til með-
altalsins.
AÐ EYÐNISJÚKLINGAR
VERÐISETTIR í SÓTTKVÍ
TIL AÐ FYRIRBYGGJA AÐ
ÞEIR SMITIAÐRA
Loks var fólk spurt að því hvort
rétt væri að eyðnisjúklingar yrðu
settir í sóttkví til að fyrirbyggja að
þeir smiti aðra. 9 prósent þátttak-
enda voru mjög hlynntir slíkum
Góð tfðindi
Haraldur Briem, smitsjúk-
dómalæknir á Borgarspítalan-
um, kveðst fagna því að stærstur
hluti þeirra er afstöðu tóku í
könnuninni skuli vera andvígur
því að alnæmissjúklingar séu
hafðir í sóttkví til að fyrirbyggja
að þeir smiti aðra. „Ég tel að nið-
urstöður könnunarinnar beri
vott um að Islendingar séu al-
mennt vel upplýstir um alnæmi,
um eðli sjúkdómsins og smit-
leiðir. f allri fræðslu er einmitt
lögð rík áhersla á að alnæmi er
ekki bráðsmitandi sjúkdómur
og því engin þörf á að sýktir séu
hafðir í sóttkví. Á þessu hefur
fólk greinilega skilning“.
Haraldur segist aftur á móti
vera nokkuð undrandi á því við-
horfi til alnæmisprófs er fram
komi í könnuninni. „Vissulega
er það á sinn hátt jákvætt að 75,5
prósent aðspurðra séu þeirrar
skoðunar að skylda skuli lands-
menn í alnæmispróf og séu
þannig hlynntir fyrirbyggjandi
aðgerðum í þessum efnum. Hins
vegar virðast margir ekki gera
sér grein fyrir því að slíkt al-
Haraldur Briem, smitsjúk-
dómalæknir.
næmispróf er óframkvæman-
legt, bæði hvað varðar umfang
og kostnað, auk þess sem það
teldist brot á mannréttindum að
skylda alla í alnæmispróf. Þótt
hefur ákjósanlegra að menn
þekktu smitleiðir sjúkdómsins
og því er rík áhersla lögð á það í
öllu fræðslustarfi".
aðgerðum. 3 prósent til viðbótar
sögðust vera frekar hlynntir þeim.
Samtals sögðust því 12 prósent
fólks vera frekar eða mjög hlynnt
því að sjúklingarnir yrðu skikkað-
ir í sóttkví.
Andstaðan við þessari hug-
mynd var mun öflugri. 70 prósent
sögðust vera því algjörlega and-
snúinn að setja eyðnisjúklinga í
sóttkví. 7 prósent til viðbótar voru
því frekar mótfallin. Samtals voru
því 77 prósent ýmist frekar eða
mjög á móti því að grípa til slíks.
11 prósent höfðu afstöðu sem
setja má þarna mitt á milli. Og
þessi hugmynd fékk 1,9 í meða-
leinkunn og telst því fallin. Fólk
hafði aðeins neikvæðari afstöðu til
ffamhjáhalds og til þess að höml-
um yrði létt af sölu Idámefhis.
Bergljót Friðriksdóttir
og Gunnar Smári Egilsson
• Tæpur helmingur
hefur mjög eða frekar
neikvætt viðhorf til
samkynhneigðra.
• Mjög fáir eru
hlynntir því að höml-
um verði létt af sölu á
klámi.
• Mikill meirihluti
vill skylda fólk til að
mæta í eyðnipróf.
• Fólk hafnar hug-
myndum um að
skikka eyðnisjúklinga
í sóttkví til að forða
því að þeir smiti aðra.
Hjónabandið þýðingarmikið
þó komi það sér ekki á óvart.
AÐ FÓLK VERÐISKYLDAÐ
TIL AÐ MÆTA í EYÐNIPRÓF
Hér kemur önnur spurning
sem fólk hafði tiltölulega skýra
skoðun á. 60 prósent þátttakenda
Séra Pálmi Matthíasson, sókn-
arprestur í Bústaðaprestakalli,
segir það viðhorf til kynlífs fýrir
hjónaband er fram komi í könn-
unni ekki koma sér á óvart, en um
83 prósent þeirra er afstöðu tóku
virðast líta á slíkt sem sjálfsagðan
hlut. „Við vitum auðvitað að kyn-
líf er iðkað fyrir hjónaband en
hversu æskilegt það telst er deilu-
efni. Víst er þó að þessu er ekki
auðvelt að breyta.
Að mínu mati þurfa menn fyrst
og ffernst að læra að bera ábyrgð á
gjörðum sínum og líta á kynlíf
sem helga athöfh í ástarsambandi
fólks. Ungt fólk nú á tímum fer
allt of geyst í þessum efrtum og fer
að lifa hjónalífi um leið og það
byrjar á föstu. Að mörgu leyti er
okkur foreldrunum um að kenna
þar sem við hleypum börnum
okkar mörg hver allt of langt".
Pálmi telur viðhorfið til kynlífs
fyrir hjónband sem hér kemur
fram, endurspegla viðhorf þjóðfé-
lagsins til þessa máls. „Það er þó
ekki þar með sagt að ég sé sáttur
við það. Ég er þeirrar skoðunar að
íslendingar byrji allt of snemma
að stunda sitt kynlíf. Fólki hér
finnst sjálfsagt að fara strax alia
leið; það gefur sér engan tíma til
að kynnast og vill off gleyma allri
rómantík".
Pálmi segir neikvætt viðhorf til
ffamhjálds er ffam komi í könnun
SKÁÍS vera mjög ánægjulegt en
„Hjónabandið hefur mikla þýð-
ingu fýrir íslendinga en með því
er fólk að gera sáttmála frammi
fyrir Guði og mönnum. Ég hef
orðið mjög mikið var við það í
mínu starfi að hjónabandið er
mjög öflugt og ungt fólk lítur á
giftingu sem stórt og þýðingar-
mikið skref. Það velur því gjarnan
þá leið, jafnvel þótt að í okkar
þjóðfélagi sé það hagstæðara fýrir
fólk að vera ógift. Ég hef alltaf haft
trú á þessari þjóð og þetta já-
kvæða viðhorf til hjónabandsins
sýnir okkur að þjóðarsálin er ekki
eins afvegaleidd og margir vilja
vera láta“.
Séra Pálmi Matthíasson, sóknar-
prestur í Bústaðaprestakalli.