Pressan - 06.08.1992, Síða 21

Pressan - 06.08.1992, Síða 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGÚST 1992 21 E R L E N T Harvard-prófessorinn Alan Dershowitz Besti vinur saxneska mótmælendatrúarmenn. skurkanns Hnefaleikakappinn Mike Tyson vissi hvað hann var að gera þegar hann réð lögfræðinginn Alan Dershowitz til að áfrýja fyrir sig nauðgunardómnum sem kveðinn var upp yfir honum í Indiana í vor. Dershowitz hefur nefni- lega reynst jafnbesti bandamaður fiestra ffægustu skúrka Bandaríkj- anna og bætir upp með leikrænum til- þrifum það sem stundum skortir á lagarök fyrir dómstólum. Þótt skjól- stæðingar hans sleppi sjaldnast við refsingu geta þeir treyst því að fá alla vega betri pressu og jákvæðara al- menningsálit en venjulegur lögfræð- ingur hefði getað útvegað. 1 krossferð gegn vespunum. Gyðingurinn Dershowitz veit fátt verra en hrokafulla engil- Misskilning- ur Michaels Jackson Það lítur út fyrir að Michael Jackson sé alveg hættur að sjá muninn á hvítu fólki og svörtu. ABC sjónvarps- stöðin bandaríska hefur á prjón- unurn að framleiða þáttaröð und- ir heitinu „The Jacksons: An Am- erican Dream“ og fjallar hún um Michael og bræður hans, sem skipuðu sönghópinn Jackson 5. Forráðamenn sjónvarpsstöðvar- innar fengu skilaboð írá Michael Jackson um að hann hefði fundið ungan dreng sem væri tilvalinn til að fara með hlutverk hans þegar hann var fimm ára. Þegar dreng- staulinn kom í viðtal ráku sjón- varpsmennirnir upp stór augu: Hann var hvítur. 30 ár frá dauða Mari- lyn Monroe Dershowitz er einhver dáðasti og um leið umdeildasti lögmaður Bandaríkjanna og er þá langt til jafnað. Hann er reyndar prófessor í lögrnn við Harvard að aðalstarfi, en hefur líka tekið að sér að veija hötuðustu og umtöluðustu af- brotamenn landsins. fslenskir bíógestir muna líklega eftir hon- um úr myndinni Reversal of Fort- une þar sem honum tókst að fá Claus von Búlow sýknaðan af morðákæru, en bæði í myndinni og samnefndri bók er gefið sterk- lega í skyn að Bulow hafi verið sekur um morðið á eiginkonu sinni. Klókindi Dershowitz björg- uðu honum — og færðu Dersho- witz sjálfum þá frægð og frama sem hann nýtur í dag. En Dershowitz er annað og meira en frægur og góður lög- maður. Uppreisn hans gegn við- teknum viðhorfum og vörn hans fyrir hið fyrirlitlega verður ekki skilin nema í ljósi þess að hann er strangtrúaður gyðingur í stríði við hina hvítu, kristnu yfirstétt sem hefur ráðið Iögum og lofum í bandarískri akademíu og við- skiptalífi. Þrælslund gyðingsins Baráttan gegn hvítu mómæl- endunum eða „vespunum" (Wasp = White Anglo-Saxon Protestant) hófst fyrir alvöru þeg- ar Dershowitz fékk inngöngu í lagadeild Yale-háskóla. Hann fann fljótlega fyrir fordómum þegar stærstu lagafirmin létu vespurnar ganga fyrir sumarvinnu þótt hann hefði hæstu hugsanlegar einkunn- ir. í staðinn jarðaði hann skólafé- laga sína með mælskusnilld, rit- stýrði fræðiriti skólans, útskrifað- ist efstur í árganginum og fékk eft- irsótt starf hjá hæstaréttardómar- anum Arthur Goldberg. Tuttugu og fimm ára var hann orðinn aðstoðarprófessor við Har- vard og í byrjun áttunda áratugar- ins tók hann að sér fyrstu málin sem aðrir lögmenn vildu ekki snerta. Skjólstæðingarnir voru oftast yfirlýstir glæpamenn, en Dershowitz tók að sér að veija þá með vísan í borgaraleg réttindi sem allir yrðu að njóta jafht, burt- séð ffá sekt eða sakleysi. Æ síðan hefur hann setið undir gagnrýni fyrir að notfæra sér fjölmiðla til að vinna fólki samúð sem á ekkert skilið nema fyrirlitningu. Dershowitz svaraði gagnrýn- endum sínum í fyrra í bókinni Chutzpah. Orðið kemur úr jid- dísku og merkir óskammfeilni eða ófyrirleitni og lýsir Dershowitz býsna vel. Þegar aðrir kalla ffam- ferði hans óþolandi frekju og blyðgunarlausan fíflaskap í fjöl- miðlum segir hann það einmitt lýsa minnimáttarkenndinni sem gyðingar þjáist af. Hann segir gyð- inga líta á sjálfa sig sem gestkom- andi í Bandaríkjunum sem annars staðar og óttast að móðga gjafana“. ,gest- Af því að gyðingar hafa mátt þola „brottrekstur, fjöldamorð, krossferðir, rannsóknarrétt, heil- ög stríð og útrýmingarbúðir í löndum sem við áttum þátt í að byggja upp, virðumst við óttast hið versta ef við þóknumst ekki gestgjöfum okkar.“ Bókin olli úlfaþyt meðal bandarískra gyð- inga þegar hún kom út, ekki síst vegna þess hversu slæma stöðu Dershowitz telur gyðinga hafa bú- ið sjálfum sér í Bandaríkjunum. Aðrir bentu á að þrátt fyrir tölu- vert gyðingahatur hefði gyðingum hvergi vegnað eins vel og einmitt þar. En það svar er í augum Ders- howitz staðfesting á kenningu hans: að gyðingar skirrist við að sækjast eftir jafnrétti á við aðra, en láti sér nægja það besta sem býðst án mikilla átaka. Samsæri vespanna Sjálfur fær hann uppreisn æru með því að ganga gegn viðteknum hugmyndum hvar sem hann finn- ur þær og skapa sér óttablandna virðingu vespnanna í leiðinni. Það standast honum fáir snúning hvað mælsku snertir og hann á sér marga fylgjendur vegna skoðana sinna, en fæstir fylgja honum op- inberlega í málflutningi fyrir vonda skjólstæðinga. Þar fer hann oft yfir strikið, jafnvel að mati vel- viljaðra. Þegar flett var ofan af verð- bréfasalanum Michael Milken í bókinni Den of Thieves sagði Dershowitz það enn eitt dæmið um gyðingahatur (Milken er gyð- ingur) þeirra sem öllu ráða, í því tilfelli blaðamanns á Wall Street Journal og heimildarmanna hans á skrifstofu saksóknara í New York. Öðrum gyðingi, Leon Wie- seltier, varð að orði í tímaritinu The New Republic: „Slappaðu af, Alan. Það voru feður okkar sem voru ofsóttir. Þetta eru engir nas- istar, þetta eru bara vespugrey." Karl Th. Birgisson Ritstjórum blaða og tímarita þykir alls ekki verra að fá tækifæri til að birta myndir af kynbom- bunni Marilyn Monroe og oftar en ekki eru þær reyndar birtar all- sendis að tilefnislausu. En tilefnið hefur öldungis ekki vantað síð- ustu mánuðina og sérstaklega þessa vikuna, því í gær, 5. ágúst, voru liðin nákvæmlega þrjátíu ár frá því hún fannst látin, hafði svipt sig lífi. Og það gengur á með endurútgáfum kvikmyndanna sem Marylin lék í, þær eru nú all- ar fáanlegar á myndbandi, meira að segja í vandaðri gjafaöskju. Það eru skrifaðar ótal greinar í tímarit og gefnar út enn fleiri bækur um goðsögnina. Því líklega var það ekki svo fjarri sanni þegar leik- stjórinn frægi og góðvinur Mari- lyn, Billy Wilder, sagði: „Það eru til fleiri bækur um líf Marilyn Monroe en síðari heimstyrjöld- ina. Þarna er líka ákveðinn skyld- leiki. Hvort tveggja var helvíti á jörðu, en var samt ekki til einsk- is.“ Axl Rose ekki viðbjargandi Um þessar mundir virðist fáum betur lag- ið að hneyksla Bandaríkjamenn en Axl Rose, söngvara hljómsveitarinnar Guns N' Roses. Plötur hljómsveitarinnar seljast í milljóna- upplögum, en sjálfur er Axl mátulega vin- sæll. Það á kannski sínar skýringar: Að sjá virðist hann alltaf vera í öðrum heimi af drykkju (og kannski dópi?), hann hegðar sér eins og brjálæðingur hvort sem er utan sviðs eða á sviði og lögregla er einatt að handtaka hann fyrir að æsa til óláta meðal áhorfenda. Textar hans þykja heldur ekki alltaf failegir og segja margirað þarfái útrás argasta karlremba. Þegar svo birtist í út- breiddu tímariti um daginn þessi mynd af Axl Rose, þar sem hann er rétt nýbúinn að setja eiginhandaráritun sína á bossann á einlægum aðdáenda, þótti mörgum Banda- ríkjamanninum hann fá staðfestingu á því sem hann hafði grunað — að Axl Rose væri ekki viðbjargandi...

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.