Pressan - 06.08.1992, Page 36
36
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGÚST 1992
LÍFIÐ EFTIR VINNU
KLASSÍKIN
• Tlticaca. Klassík? Kannski
ekki alveg, en líklega þó að
vissu leyti í upprunaland-
inu, Perú. Því þessi hljóm-
sveit spilar þjóðlega músík
úr Andesfjöllum á bambusflautur,
panflautur og charango, sem er lítið
strengjahljóðfæri. Sumt af því sem Tit-
icaca spila er ekki talið ólíkt því sem
indfánar spiluðu áður en Spánverjar
lögðu undir sig Suður-Ameríku.
Hljómsveitina skipa hljóðfæraleikarar
frá Suður-Ameríku sem allir eru bú-
settir i Kaupmannahöfn og á tónleik-
um í Norræna húsinu sýna þeir líka lit-
skyggnur frá heimaslóðunum. Nor-
rænahúsiðkl. 19.
i nnj ii ’Ji.m-a'Jri
• Sumartónleikar f Skálholti
Næstsíðasta helgi sumartónleikanna
rennur upp með barokktónlist og
varla í önnur hús að venda en Skál-
holtskirkju ef menn ætla að heyra há-
fleyga tónlist flutta þessa helgina. Ekki
sakar heldur að aðgangurinn á sumar-
tónleikana er ókeypis, meðan húsrúm
leyfir, þótt ekki sé illa þegið að menn
láti eitthvað smávegis í samskotabauk.
En þarna hefja hljóðfæraslátt og söng
þau Guðrún Óskarsdóttir semballeik-
ari, Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og
Rannveiq Sif Sigurðardóttir sópran og
flytja franska barokktónlist eftir
D'Anglebert, Hotteterre, Leclair og
Boismortier. Skálholtskirkja kl. 15.
• Sumartónleikar í Skálholti. Dan
Laurin heitir blokkflautuleikari sem
dvelur með músíköntum í tónlistar-
búðunum í Skálholti. Hann blæs í
flautuna sína gömul og ný einleiks-
verk eftir Eyck, Marais, Hirose og Ma-
sumoto. Auk þess frumflytur hann
verk eftir M. Zahnhausen. Skálholts-
kirkja kl. 17.
SUNNUDAGUR
• Sumartónleikar í Skálholti
Einleiksverk fyrir blokkflautu. Dan
Laurin leikur gömul og ný einleiksverk
eftir Eyck, Marais, Hirose, Masumoto
og Zahnhausen. Ekki eru það nöfn
sem heyrast oft á öldum Ijósvakans.
Ókeypis inn, meðan húsrúm leyfir.
Skálholtskirkja kl. 15.
• Sumartónleikar í Skálholti
Messa með tónlistarívafi. Skálholts-
kirkjakl. 17.
ÓKEYPIS
• Tjörnin er einhvern
veginn orðin miklu við-
kunnanlegri staður síð-
an Ráðhúsið reis. Alveg burtséð
frá því hvort byggingin er falleg
eða ekki. En hún hefur laðað fólk
þangað niðureftir og einhvern
veginn eru Tjarnarbakkarnir
miklu skemmtilegri þegar er fullt
af fólki að spásséra á þeim frá
suðurendans til norðurendans.
Slíkur er fólksfjöldinn að sá blanki
(sem á varla fyrir kaffi) þarf ekkert
að skammast sín fyrir að bjóða
ástinni sinni niður á Tjörn, ganga
einn tvo hringi, virða fyrir sér
endurnar og setjast í makindum á
bekk. Góð lausn í ágústblíðunni.
• Enginn veit af hverju eða til
hvers, en að hætti gamalla ein-
valdskonunga hafa bankastjórar
Seðlabankans talið nauðsynlegt
að koma upp safni af málverkum,
bókum og alls kyns dýrgripum.
Yfirleitt er þetta vandlega geymt
leyndarmál og það er raunar líka
myntsafn bankans í Einholti 4. Þó
er það reyndar opið í tvo tíma
hvern sunnudag, frá klukkan 14
til 16. Þangað getur sá blanki far-
ið og látið sig dreyma um gull og
græna skóga.
• Cheo Cruz er búinn að hengja
upp eftir sig olíumálverk í Galleríi Úm-
bru við Amtmannsstíg. Sumar minna
á endurreisnarmálara. Opiðkl. 12-18.
• fslensk málverk hanga uppi í
Listasafni fslands, úr eigu safnsins. Á
kannski betur við þennan túristamán-
uð en jórdönsku kjólarnir. Opið kl.
12-18.
• Fjórir Hollendingar slá saman og
koma til fslands en (staðinn fara fjórir
(slendingar bráðum til Hollands. Verk
Hollendinganna hafa verið sett upp í
Nýlistasafninu og eru af ýmsu tagi, en
listamennirnir heita Peter Terhorst,
Marcel Zalme, Eveline van Duyl og
Willem Speekenbrink. Opiðkl. 14-18.
• Anima Nordica er yfirskrift sem
fjórir norrænir listamenn hafa valið
sér, en öll stunduðu þau nám við Va-
land listaskólann í Gautaborg. Þetta
eru þau Steinunn Helgadóttir, Anna
Makela frá Finnlandi og Lena Hopsch
og Michael Hopsch frá Svíþjóð. í sam-
einingu sýna þau í Hafnarborg í Hafn-
arfirði málvrk, teikningar, skúlptúra og
vídeóverk .Opiðkl. 12-18.
• Miklos Tibor Vaczi er Ungverji
sem býr og starfar (Hollandi og hefur
þar kynnst íslensku listafólki — með
þeim afleiðingum að nú er hann kom-
inn vestur á Isafjörð og sýnir þar þrett-
án Ijósmyndaverk undir yfirskriftinni
Karneval.
• Nobuyasu Yamagata er japansk-
ur myndlistarmaður sem hefur verið
búsettur á (slandi allar götur síðan
1973. Hann lærði í málaradeildinni í
myndlsitarskólanum hér heima og
hefur tekið þátt í sýningum (Japan.
Einkasýningu heldur hann í Galleríi 11
við Skólavörðustfg og sýnir þar olíu-
málverk. Búið á fimmtudag. Opið kl.
13- 18.
• Haraldur Jónsson er heimsborgari
og fjölmenntaður kúnstner frá Frakk-
landi og Þýskalandi. Hann sýnir teikn-
ingar unnar á pappír á Mokkakaffi. Op-
iðkl. 9.30-24.30.
• Ljósmyndahátíð mikil og sannan-
lega samnorræn stendur yfir í Perl-
unni, á Kjarvalsstöðum, f Ráðhúsinu
og Kringlunni. Ef vel er talið má ætla
að þetta séu í raun átta sjálfstæðar
sýningar, en Ijósmyndararnir koma frá
öllum Norðurlöndunum, að (slandi
meðtöldu. Þarna má til dæmis sjá í
Ráðhúsinu myndir eftir 49 liósmynd-
ara, þar af fjóra fslendinga. I Perlunni
eru myndir af norðurljósum eftir Sví-
ann Torbjörn Lövegren, sem telur ekki
eftir sér að vera úti á köldum nóttum
að taka myndir af þessu fyrirbæri. Þar
eru líka tfskuljósmyndir eftir Torkil
Gudnason tískuljósmyndara, en á Kjar-
valsstöðum sýna tveir Svíar, Kenneth
Sundh og Bent Waselius.
• Daði, Helgi Þorgils & Tumi. Á
sumarsýningu Norræna hússins
leggja þeir til málverk Daði Guð-
björnsson, Helgi Þorgils Friðjónsson
og Tumi Magnússon. Allir eru þeir
ágætir húmoristar og mála myndir
sem eru fullar af skemmtilegum hug-
myndum og uppátækjum — og oft
svolítið sumarlegri birtu. Opið kl.
14- 19.
• Sumarsýning í Hulduhólum sem
standa við Vesturlandsveginn, á vinstri
hönd þegar keyrt er norður, kippkorn
frá Mosfellssveitinni. Þar er til húsa
Steinunn Marteinsdóttir leirlistakona
sem stendur fyrir sumarsýningu
heima hjá sér. Þarna sýna Sveinn
Björnsson og Inga Hllf Ásgeirsdóttir
málverk, Steinunn leirmuni og Sverrir
Ólafsson skúlptúr. Opið lau. & sun. kl.
14-19, fim.&fös.kl 19-22.
MYNDLIST
> Gunnlaugur Scheving
Imálaði fyrirferðarmikil verk
mörg minna á lífsbar-
láttu sjómanna. Svoleiðis
hlemmar hljóta að fara vel á hráum
veggjunum í nýja galleríinu niður f
Hafnarhúsi. Þar opnar á laugardag
Scheving-sýning, svona f tengslum
við mikla Reykjavfkurhafnarhátíð sem
er f uppsíglingu. Opiðkl. 14-18.
• Æskuteikningar Sigurjóns
minna okkur á að enginn er fæddur
listamaður, þótt sumir hafi jú meiri
hæfileika en aðrir. Elstu myndirnar á
sýningunni f Safni Sigurjóns Ólafsson-
ar eru frá æskuárum hans á Eyrar-
bakka, en flestar frá árunum 1924 til
1927 þegar hann stundaði nám (Iðn-
skólanum. Skemmtileg sýning og svo
er alltaf gaman að koma í safnið á fal-
lega staðnum f Laugarnesinu, úti við
Sundin blá. Opiökl. 14-17.
• Kristrún Gunnarsdóttir er ung
myndlistarkona og upprennandi sem
hefur að undanförnu stundað nám í
Kaliforníu. Á laugardaginn opnar hún
sýningu á skúlptúrum í vesturforsal
Kjarvalsstaða .Opiðkl. 10-19.
• Myndlistarkonur frá Þórshöfn i
Færeyjum koma hingað til að færa
okkur heim sanninn um að þar sé líka
list. Þær heita Astrid Andreasen, Guðr-
ið Poulsen og Tita Vinther og sýna
textilverk og keramik í í Hafnarborg f
Hafnarfirði frá og með laugardegi. Op-
iðkl. 12-18.
• Katrín Elvarsdóttir er ungur Ijós-
myndari sem undanfarið hefur stund-
að nám f Amerfku. Hún heldur einka-
sýningu (Gallerí 15 á Skólavörðustfg.
Opið á verslunartfma.
• Hótel Búðir eru paradís á jörð (
augum margra. Þar heldur Örn Karls-
son, einn heimamanna, sýningu f
sumar, f gamla þvottahúsinu sem hef-
ur verið breytt í gallerf. Hann sýnir
klippimyndir og vatnslitamyndir. Hall-
dór Ásgeirsson myndlistarmaður er
Ifka með sýningu á Búðum, verk sem
hann vinnur úr efni sem hann hefur
viðað að sér f nánasta umhverfi hót-
elsins. Spurningin er bara hvort verkin
hans Halldórs standa enn eftir ágang
drykkjubolta undanfarnar helgar.
• Jón K.B. og Kristmundur eru Sig-
fússon og Gfslason og sýna myndverk
austur á Laugarvatni, f Húsmæðraskól-
anum og Menntaskólanum, þar sem
eru rekin Edduhótel á sumrin. Krist-
mundur sýnir akrýlmyndir, en Jón
náttúrumyndir sem hann hefur gert
með pastellitum, bleki og tússi.
Hljómsveitin hans Gulla Falk, Exizt, heldur útgáfutónleika á Púlsinum í kvöld. Rokkunnendur ættu svo sem að vera farnir að vita hverjir eru með
Gulla í sveitinni, en við ætlum nú að segja það samt. Eiður Örn Eiðsson syngur, Jón Guðjónsson leikur á bassa, Sigurður Reynisson trommar og nýj-
asti meðlimurinn er gítarleikarinn Eiríkur Sigurðsson sem áður var í Vírus.
EXIZT Á PÚLSINUM
Geislaplatan After Midnight
kom út í júlí og heftir fengið ágæt-
ustu viðtökur. Og þá kannski sér-
staklega á Keflavíkurflugvelli en
þar eiga þeir félagar að spila í sept-
ember. I kvöld verða á tónleikun-
um forkólfar helstu klúbbanna og
útvarpsstöðvarinnar þar upp frá.
Þá eru þeir líka í viðræðum við
aðila í L.A. sem hafa sýnt þeim
mikinn áhuga. Óskandi er að
þeim gangi vel, strákunum. Og
tónleikunum í kvöld er útvarpað
beint á Bylgjunni í boði Japis. Og
já, það er ný hljómsveit sem hitar
upp; Plast.
LOKSINS, LOKSINS
Nýtt kaffihús á Kjarvalsstaði
Forstöðumaður Kjarvalsstaða,
Gunnar Kvaran, er ekki sagður
hafa sofíð vært að undanförnu.
Ástæðan er léleg kaffiaðstaða á
Kjarvalsstöðum sem kunnugir
telja hafa dregið mjög úr aðsókn
að annars ágætum sýningum þar
undanfarin ár. Ef við berum sam-
an kaffiaðstöðuna á Kjarvalsstöð-
um annars vegar og á Listasafni
fslands hins vegar, kemur í ljós
mikill munur, svo ekki sé meira
sagt.
Á þessu verður ráðin bót innan
tíðar því þá munu nýjir
rekstraraðilar, Nýja kökuhúsið,
opna kaffisölu á nýjum stað í hús-
inu, eða í austurforsal Kjarvals-
staða. f miðskipinu, þar kaffi-
stofan var áður, verður hins vegar
nýtt sýningarpláss.
Við þessar breytingar minnkar
kaffiaðstaðan en það er ekki talið
koma að sök þar sem hún verður
þess í stað hlýlegri og notalegri.
Úrvalið verður aukið til muna og í
hádeginu verður boðið upp á létt-
an hádegisverð.
Rómantík í gróðurham
Loksins, loksins er hann
runnin upp ágústmánuðurinn
eftirsótti sem maður þarf að
bfða eftir í tæpt ár. Það er ekki
að ástæðulausu sem maður bíð-
ur svona lengi eftir að þessi
mánuður renni upp, ágústmán-
uður er hreint frábær mánuður
og eini mánuður ársins sem
minnir helst á útlönd. Þá er
aldrei meiri hiti í loftinu og aftur
farið að dimma á kvöldin og aft-
ur er óhætt að fara haga sér ilia.
Þetta er yfirleitt eini mánuður
ársins þar sem hugsanlegt er að
maður geti verið á peysunni
einni saman, jafnvel á stutt-
ermabol á kvöldin án þess að
þurfa að skammast sín fyrir öll
lýtin. Gróðurinn er í miklum
ham og svo er einnig lífsneisti
manna (barnsfæðingar í maí eru
langflestar árinu, eða 440 árið
1991).
Brjálæði verslunarmanna-
helgarinnar er að baki og nú er
tími til kominn að slaka örlítið á
og leyfa rómatíkinni að njóta
sín, annað hvort með ástinni
sinni eða þá bara með því að
ímynda sér að maður eigi í heitu
sambandi við draumaprinsinn
eða -prinsessuna. Þeir sem eru
enn á lausu og sérstaklega þeir
sem eru í námi erlendis nota síð-
asta tækifærið til þess að hitta þá
réttu (þeir þekkjast úr því þeir
eru allir á iði). Þeir sem eru bún-
ir að vera í sumarffíi, að ekki sé
talað um með fjölskyldunni, eru
hins vegar afar afslappaðir, hey-
annir fara að hefjast, höfuðdag-
ur er framundan og svo mætti
lengi telja, semsagt ágústmánuð-
ur er besti mánuður ársins.
ALLT FRA BORG-
AR5KIPULACI
TIL KAFFIBOLLA
Ólafiir Þórðarson er arkitekt og
hönnuður sem starfar í New York
fyrir nokkuð þekktan ítalskan
listamann að nafhi Gaetano Pesce.
„Ég sé um að útfæra megnið af
hugmyndum hans,“ segir Ólafiir.
„Meginstefnan er þó að koma eig-
in hönnun í gang og ég nota vinn-
una til að framfleyta mér, kynnast
nýjum hlutum og fá reynslu. Ég er
að útfæra hugmyndir og stefhi að
því að halda sýningu innan
tveggja ára.“
Skarast arkitektúr og iðnhönn-
un? „Yfirleitt skarast þetta tvennt
ekki en það er vegna þess að fólk
hefur tilhneigingu til að sérhæfa
sig. I arkitektúr er hægt að hanna
allt frá borgarskipulagi niður í
kaffibolla. Flestir þrengja sig þó
niður í hús eða byggingar en ég
hef hins vegar áhuga á því að af-
Ólafur Þórðarson vinnur að hönnun fyrir velþektann ítalskan listamann í New York.
marka mig ekki um
of.“
Ólafur nam arki-
tektúr í miðfylkjum
Bandaríkjanna en
tók mastersnám við
Columbia háskól-
ann í New York.
Hann hyggst vera
úti eins lengi og gott
starf býðst honum
en hann þarf að vera
stöðugt á tánum því
ekki fær hann vinn-
una rétta upp í
hendurnar. „Vinn-
an er mjög upp-
byggjandi og ég reyni að vera úti
svo lengi sem ég get haldið áfram
og stend ekki í stað.“ Um mögu-
leika á að starfa hérlendis segist
Ólafur trúa því að hann myndi
hafa það alveg þokkalegt. „En hér
á fslandi er ekki nýjabrumið fyrir
hendi eins og í París og New York.
Það væri hægt að fá góða vinnu
hér en þá er maður ekki í beinum
tengslum við það sem er að gerast
gagnstætt því sem maður á að
venjast erlendis.“