Pressan - 01.10.1992, Side 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992
ÞETTA
BLAÐ ER
EKKI ALLT
ÞAR SEM
ÞAÐ ER
SÉÐ
... eins og Verðbréfa-
sjóðir Fjárfestingarfé-
lagsins. Það hafa
Scandia-menn fengið
að reyna eins og lesa
má um á blaðsíðu 9.
Þeir finna ekki einar
700 milljónir sem áttu
að vera i sjóðunum
(ánþess aðþað sé
nokkuð tilað tala
um).
... eins ogítalska
efnahagsundrið. Á
blaðsíðu 19 má lesa
um hvernig þetta und-
ur hefur breyst í mar-
tröð. Og þarmunar
einum
1.000.000.000.000.00
0 milljónum líra (án
þess að það sé nokkuð
tilaðtalaum)
... alveg eins og Sam-
bandið. Eins og sjá má
á blaðsíðu 14 líturþað
asskoti vel út á papp-
írunum en hreint
hörmulega í reynd.
Þar munar einum
1.000 til 1.500 milljón-
um (án þess að það sé
nokkuð tilað tala
um).
... eins og leikararnir
okkar. Á blaðsíðu 13
kemur fram að það
kostar 1,5 milljónirað
halda hverjum leiklist-
arnema við nám. Þótt
við greiðum okkar
leikhúsmiða fyrirsýn-
ingu i Þjóðleikhúsinu
og niðurgreiðum
hann með sköttunum
okkar þáer það ekki
allt. Hver leikari á
sviðinu hefur kostað
okkur 6 milljónir til
viðbótar (án þess að
það sé nokkuð til að
tala um).
Væri ekki nær að spá
betra veðri áður en þið
heimtið launahækkun,
Magnús?
„Ég held að veðurspárnar séu
nægilega góðar miðað við þau
laun sem við höfum.“
Magnús Jónsson veðurfræðingur og
nokkrir kollegar hans á veðurspárdeild
hafa sagt upp störfum með þriggja
mánaða uppsagnarfresti til að mót-
mæla launakjörum sínum og innra
skipulagi á veðurstofunni.
F Y R S T
F R E M S T
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON. Keypti dýru verði álit þeirra sem
telja fríiðnaðarsvæði nauðsynlegt. JÚLÍUS HAFSTEIN. Leitaði eftir
stuðningi hjá Gísla Halldórssyni.
JÓN BALDVIN KEYPTl
DÝRA SKÝRSLU
Allsérkennileg deila er risin á
milli utanríkis- og fjármálaráðu-
neyta. Jón Baldvin Hannibals-
son kennir fjármálaráðuneytinu
um tafir á framgangi fríiðnaðar-
svæðis á Suðumesjum. Embættis-
menn Friðriks Sophussonar eru
hins vegar alls ekki vissir um til
hvers er ætlast af þeim, enda er
þegar í gildi reglugerð um fríiðn-
aðarsvæði og engar nákvæmar til-
lögur komnar fram um til hvaða
annarra ráðstafana ætti að grípa.
Bandaríkjamaðurinn Dan
Chumy, sem unnið hefur í mál-
inu fyrir Jón Baldvin, segir hins
vegar að málið sé lífsnauðsynlegt
fyrir íslenskt efnahagslíf, enda
muni svæðið innan fárra ára velta
meiru en allur sjávariðnaður gerir
nú. Sú velta er þegar farin að sýna
sig: Jón Baldvin borgaði Churny 7
milljónir króna fyrir að gera
skýrslu um málið. í skýrslunni
segir Churny svo að næsta skref í
undirbúningi kosti að lágmarki 14
milljónir og árskostnaður við að
auglýsa fyrirtækið verði aldrei
undir einni milljón dala eða 55
milljónum króna.
JÚLÍUS LANGAR MIKIÐ í
ÓLYMPÍUNEFND
Sá mikli íþróttaffömuður Gísli
Halldórsson ætlar að láta af
embætti forseta Ólympíunefndar
íslands. Þarna losnar embætti
sem ýmsum frnnst álitlegt, enda
fýlgja því taumlaus ferðalög, mikl-
ar veislur og bílífi í útlöndum. Og
ef til vill eignast ísland einhvern
tíma fulltrúa í Alþjóðaólympíu-
nefhdinni, en það þykir ekki neitt
slor að sitja í þeim klúbbi. Því er
ekki furða að nokkrir kandídatar
skuli hafa gert sig líklega.
í þessu sambandi hefur verið
nefnt nafn Ara Bergmanns Ein-
arssonar, sem er formaður Sigl-
ingasambands íslands og situr í
framkvæmdastjórn ólympíu-
nefndarinnar. Ara mun talið það
til tekna að hann hefur starfað
mikið á vettvangi nefndarinnar og
setið fundi ytra, en hins vegar er
hann tiltölulega ungur maður og
hefur ekki mjög öfluga bakhjarla.
Slíkt skortir hins vegar varla
Júlíus Hafstein, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks og formann
fþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur, sem sækist mjög stíff
eftir þessari vegtyllu. Júlíus hefur
viljað hafa vaðið fyrir neðan sig og
hefur þegar átt fund með Gísla þar
sem hann leitaði eftir stuðningi
hans.
Það má svo fljóta með að eitt
sinn tilheyrði Gísli borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna.
FORMAÐURSUS í MINNI-
HLUTA Á MÁLEFNAÞINGI
Sérstakt málefnaþing Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna
(SUS) var haldið í Neskaupstað
um síðastliðna helgi og ku al-
mennt hafa tekist vel þó svo álita-
mál sé hvort málefnin hafi eitt-
hvað batnað fyrir vikið. Það rætt-
ist sem spáð var á þessum stað í
síðustu viku að þingið yrði átaka-
lítið en að helst yrði karpað um
Evrópumálefnin og sjávarútvegs-
málin.
Lyktir urðu þær að samþykkt
var með yfirgnæfandi meirihluta
að ástæðulaust væri að ræða ffek-
ar við Evrópubandalagið um nán-
ara samstarf svo framarlega sem
EES-samningurinn gengi eftir. Og
í sjávarútvegsmálunum var hug-
myndum um veiðigjald ýtt út í
hafsauga, en hvatt til þess að er-
lendar fjárfestingar í greininni
yrðu leyfðar.
Athygli vakti hins vegar að í
báðum málum sat Davíð Stef-
ánsson, formaður SUS, hjá, en
hann er ákafur talsmaður inn-
göngu í EB og upptöku veiðileyfa-
gjalds. Umræður um afnám sjó-
mannaafsláttar voru einnig
nokkrar og var tillaga þess efnis
felld með einu atkvæði, sem gár-
. ungarnir sögðu hafa verið atkvæði
Ara Edwald, aðstoðarmanns
Þorsteins Pálssonar í dóms-
málaráðuneytinu.
Að öðru leyti mun lítið hafa
verið um byltingarkenndar breyt-
ingar á málefnaafstöðu stutt-
buxnadeildarinnar, fastir liðir eins
og jafn atkvæðisréttur, fækkun
og þret
oröng
L ^ ^
an
Nú fýrripart október kemur á markaðinn ný
geislaplata ffá Magnúsi Þór Jónssyni eða
Megasi. Meistari Megas kemur víða við á disk-
inum, flytur tvö íslensk þjóðlög við ljóð Stefáns
Ólafssonar — meðal annars Meyjarmissi eða
Björt mey og hrein — syngur um Höllu og Ey-
,vind, innheimtumenn fógeta, fýrstu ástina og
afmeyjun í Atíavík svo eitthvað sé tíundað.
Margt góðra manna kemur við sögu á diskin-
um, til að mynda Hilmar öm Hilmarsson,
Jón Ólafsson, Sigtryggur Baldursson, Mó-
eiður Júmusdóttir, Bubbi Morthens og
Gregoríanski telpnakórinn, en myndir af stúlk-
unum í þeim kór skreyta bæklinginn sem disk-
inum fylgir. f stuttu spjalli við PRESSUNA
sagðist Megas vera ánægður með affaksturinn
en hann væri ekki ffá því að þessi diskur væri
ívið léttari en sá síðasti.
Aðspurður um hvort hann væri ekki hrædd-
ur um að myndimar af stúlkunum hneyksluðu
viðkvæmar sálir sagðist hann ekki sjá af hverju
það ætti að vera. En verk Megasar hafa vissu-
lega verið umdeild gegnum tíðina. „Ef ég hefði
hagað lífi mínu miðað við að það yrði eldd
stórskandall þá hefði ég nú aldrei hreyft mig.
Og það er nú náttúrlega merki á þeim sem
haga lífi sínu með tilliti til hugsanlegra
stórskandala að það verður lítilla sæva og lít-
illa sanda þeirra aktfvitet,“ sagði Megas.
Á þessari plötu eins og öðrum tæpir Meg-
as á ýmsu í textum sínum sem hingað til hef-
ur legið í þagnargildi og fólki finnst kannski
best að hugsa sem minnst um:
Jú ogsvo varð hún drukkin
og sá sem keyrði trukkinn
spurði: sæta viltu íglas viltu smá?
Hún vildi engan styggja
og það virtist skást aðþiggja
svo velmeint boð hún sagðiþvújá
Þá sagði hann: þér ég ann mœr
og nú ertu orðin mannbær
og með þér vil ég hvílayst sem
innst
þú veistþú deyrðpiparmey ef
þetta neiþýðir nei
það er því best þú mœlir sem
minnst
Og hann héltþað væri rakið
að hún hallaði sér á bakið
í höndunum stæði hann
meðpálmann
þetta er nýtt fyrir þig
en lítið málfyrir mig
nú verður manngeng
kjallaraálman
þú ert þrifaleg þröng og
þrettán
mérfmnst heldur sem
mighafihentlán...
þingmanna, frjáls aðild að verka-
lýðsfélögum, skattalækkanir,
markaðsvæðing landbúnaðarins
og svo ffamvegis var allt á sínum
stað...
HÖRÐUR VARASAMUR í
UMFERÐINNI
Það bætist smám saman við
rekstrarkostnaðinn hjá Eimskipa-
félaginu og er vart á bætandi í
kreppunni. Það er þó ekki sam-
drátturinn sem veldur nýjustu
hremmingum félagsins, heldur
hrakföll forstjórans, Harðar Sig-
urgestssonar, í umferðinni.
Hörður hefur haft til ráðstöfunar
tvo bfla á vegum félagsins, Range
Rover og BMW. Við heyrum að
Herði hafi tekist að laska báða bfl-
ana á stuttum tíma, jeppann með
því að keyra út í skurð og sportbfl-
inn í árekstri í höfuðborgarum-
ferðinni. Ekki fylgdi sögunni
hverju Hörður ekur þessa dagana,
en óstaðfestar fregnir herma að
sjálfur eigi hann ekkert annað en
gamla Fólksvagnsbjöllu.
SJÓNVÖRPIN HÖFÐU EKKl
ÁHUGAÁTULL
Rokksveitin fræga Jethro Tull
skemmti á Akranesi um helgina,
eins og kunnugt er. Sveitin hefur
yfirleitt ekki verið ginnkeypt fyrir
að láta kvikmynda sig á tónleik-
um. En á Skaganum voru hljóm-
sveitarmeðlimir hins vegar í góðu
skapi og tóku þá ákvörðun að
leyfa myndatökur. Fyrst mun
Sjónvarpinu hafa verið tilkynnt að
það væri velkomið upp á Skaga að
taka upp svosem sex lög, ókeypis.
Hefði þar Ifldega verið komið efiti
í hálftímaþátt eða kannski rúm-
lega það. A þeim bæ reyndist eng-
inn áhugi. Þá var haft samband
við Stöð 2 og henni boðin sömu
kjör, ókeypis upptökur. Þar var
sama sagan. Enginn áhugi.
Ian Anderson og félagar hans
fóru því að mestu ómyndaðir ffá
íslandi.
ARI BERGMANN EINARSSON. Öllum hnútum kunnugur hjá ólympíunefnd og margir telja hann eðli-
legan arftaka. DAVÍÐ STEFÁNSSON. Ósammála meirihlutanum í hinum veigameiri málum. HÖRÐUR
SIGURGESTSSON. Eimskipafélagið beið tjón á bílaflota sínum. IAN ANDERSON. Sjónvörp máttu taka
ókeypis upp, en vildu ekki.
UMMÆLI VIKUNNAR
„ Við höfum aldrei kannað í hverju rann-
sóknir tannlœkna erufólgnar en það sem
einkennirþetta er að tannlœknar, sem eru
kunnir bindindismenn, stunda engar
rannsóknir þar sem spiritus fortis er
nauðsynlegur. Aukþess virðist færast fjör,
í rannsóknarstörftannlœknafyrirjól og
hátíðirþvíþá seljum við þeim meira. “
mmmtmmm^m^^mmmmmm höskuldurjónssonáfengisstjóri
‘En verðið á
ffampavíni?
„íslenskar stúlkur eru ekki vanar
rómantík og ég kenni íslenskum
körlum um það.“
Gunnar Ólafsson
brúðgumi
Einmitt þegar það var
farið að ganga svo vel
„Kalda stríðinu er lokið og það er
brostinn á íriður.“
Karl Steinar Guðnason
þingmaður
Stefhan er sem-
sagt út og suður
„Nú er Alþýðubandalagið búið að
taka upp stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins og öfugt. Þetta er nú pólitíkin
og það er ekki nema eðlilegt að
fólkið í landinu eigi í erfiðleikum
með að átta sig á því hvað er
vinstri og hvað hægri.“
Einar Oddur Kristjánsson
bjargvættur
Er hann þá bráöum
búinnaðvera?
„Ég legg áherslu á að ég er kominn
til að vera.“
Markús Örn Antonsson
borgarstjóri
Orðítímatöluð
„Lengi lifi marxisminn, lemnism-
inn, maóisminn og hugsanir
Gonzalos."
Abimael Guzman
skínandi stígur númer eitt
Ekki líst mér á effram heldur sem horfir með at-
vinnuleysið. 1,3 prósent karla qanqa nú atvinnulau
oq er pað 125 prósenta hlutfallsleq fjölgun síðan (
fyrra. Efsama þróun helduráfram verða allirís-
lenskir karlar orðnir atvinnulausir í áqúst árið
2010. En ástandið erenn verra hjá konunum. Nú
eru 5,4 prósent Jpeirra atvinnulaus oq er það 143
prósenta hlutfallsleq fjölgun frá í fyrra. Eær verða
því allar orðnar atvinnulausar (janúar árið2001.
Konur! Gáið að þvíað Ipað eru aðeins tvennar kosn-
ingar til Alþingis fyrir ípann tíma.