Pressan - 01.10.1992, Side 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992
15
Sambandið hefur ábyrgst skuld-
ir íyrirtækja sinna sem nemur
tæpum milljarði króna. Líklegt
er talið að helmingur þeirrar
upphæðar muni tapast. Nánari
á öðrum tölum í reikn-
SÍS leiðir í ljós að eigið fé
ofmetið um að minnsta
kosti milljarð.
Sverrir Hermannsson,
Landsbankastjóri. Tekur vænt-
anlega við bestu eignunum, en
skilur S(S eftir með van-
dræðabörnin.
unnar, en Sambandið sjálft þarf
að greiða Qórðung til þriðjung
upphæðarinnar eða 120 til 150
milljónir. Þessi tala er ekki hluti
niðurstöðutalna ársreiknings, en
greint er frá skuldbindingunni í
skýringum.
Að öllu samanlögðu (500 millj-
óna tapi vegna ábyrgða, 240 millj-
óna rekstrartapi, 120 milljóna
króna eftirlaunagreiðslum, 100
milljóna ofmati á Sambandshús-
inu) lækkar eigið fé Sambandsins
í fyrra úr 1.467 milljónum í 507
milljónir. Þá er ekki tekið tillit til
ofangreindrar 1.114 milljóna
skuldar dótturíyrirtækja sem óvíst
hlýtur að teljast úm innheimtu á.
I umræðu um yfirtöku Lands-
bankans á eignum SÍS hefúr verið
gefið 1 skyn að eignarhlutur Sam-
bandsins í dótturfyrirtækjum
(bókfærður á um 2.700 milljónir)
sé ofrnetinn. Það er erfitt að meta,
en bókfært verð er miðað við
innra virði fyrirtækjanna. Hins
vegar hefur bankinn helst lýst
áhuga á hlut Sambandsins í Sam-
skipum og íslenskum sjávarafúrð-
um (auk Olíufélagsins, sem SÍS á
aðeins um þriðjung í), sem eru
þau fyrirtæki sem helst væru lík-
leg til að skila Sambandinu tekj-
um. Ef þær mjólkurkýr hverfa
verður lítið eftir annað en Mikli-
garður, Jötunn og önnur fyrirtæki
sem enn eru að tapa peningum.
Karl Th. Birgisson
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri
Sambandsins. Dótturfyrirtækin
eru flest enn rekin með tapi og
skulda SfS vel á annað milljarð.
Jötunn og Islenskur skinnaiðnað-
ur. Tap hefur verið á rekstri þeirra
allra og er staða Miklagarðs sýnu
verst. Ætla má að Sambandið fái
ekki mikið greitt af skuldum þess-
ara fýrirtækja í bráð eða lengd. Ef
helmingur þessara skulda er glat-
aður — sem er alveg óábyrg
ágiskun — þýðir það 550 milljóna
tap til viðbótar fyrir Sambandið.
ÓVISSA UM SÖLU HLUTA-
FJÁR í SAMSKIPUM
Sambandið hafði áætlað að
selja 400 milljóna hlutafé í Sam-
skipum og lauk fýrsta áfanga í
sumar með sölu 100 milljóna á
genginu 1,12. Vátryggingafélag fs-
lands keypti rúmlega 20 milljóna
hlut á sama verði í ágúst, en óvíst
er um framhald sölunnar. Þegar
hlutafjárútboðið var kynnt var
reiknað með rúmlega 100 millj-
óna króna hagnaði á þessu ári.
Fyrri helming ársins reyndist hins
vegar 130 milljón króna tap á
rekstrinum. Þetta dregur væntan-
lega úr áhuga kaupenda og enn
hefur ekki verið ákveðið á hvaða
gengi bréfin verða boðin í næsta
áfanga. Reyndar er fýrirséð að
Samskip muni auka veltu sína
vegna flutninga fyrir varnarliðið
og Grænlandsflutninga, en ekki er
hægt að setja jafnaðarmerki á
milli aukinnar veltu og aukins
hagnaðar og ffekar er búist við að
gengi bréfanna lækki frá því sem
nú er. Sambandið á nú um 760
milljóna króna hlut í félaginu eða
um 84 prósent.
KIRKJUSANDUR LÍKLEGA
OFMETINN UM HUNDRAÐ
MILLJÓNIR
Húseign Sambandsins við
Kirkjusand er samtals um 6.900
fermetrar, en brunabótamat húss-
ins í heild er um 1.100 milljónir.
Húsið er fimm hæðir og turn
norðanmegin í byggingunni.
Sambandið á þrjár hæðir, en Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn og fslensk-
ar sjávarafurðir.hf. sína hæðina
hvort. Hlutur Sambandsins, um
þrír fimmtuhlutar eða 4.100 fer-
metrar, er metinn á 475 milljónir
króna. Það eru um 115 þúsund
krónur fermetrinn. Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn metur sinn hluta í
húsinu á 119 milljónir eða á 86
þúsund krónur fermetrann.
Verð á skrifstofuhúsnæði í
Reykjavík er afar mismunandi,
samkvæmt upplýsingum fast-
eignasala. Algengt verð er á bilinu
40 til 50 þúsund, en nýtt skrif-
stofuhúsnæði, til dæmis í Kringl-
unni, gæti selst á 100 þúsund
krónur fermetrinn. Mat Sam-
bandsins á sínum eignarhluta
virðist því alveg í hæsta kanti.
Miðað við mat Samvinnulífeyris-
sjóðsins er eignarhluti SÍS 350
milljóna virði, en ekki 450.
Þess ber þó að gæta að hús-
næðið þykir afar gott og vel hann-
að að mörgu leyti. Utanhúss er
það tiltölulega viðhaldsfrítt og
innanhúss er gluggum og ofnum
þannig fyrir komið að breyta má
herbergjaskipan fýrirhafnarlítið.
Taka verður mið af þessu í sam-
anburði á verði, en hitt er jafnljóst
að markaðsvirði hússins er mjög
óvíst á meðan enginn fæst til að
kaupa það — nema gegn því að
andvirðið gangi upp í skuldir.
EFTIRLAUN Á ANNAÐ
HUNDRAÐ MILLJÓNIR
Með eftirlaunasamningum við
starfsmenn sína hefúr Sambandið
skuldbundið sig sem nemur um
450 milljónum króna, samkvæmt
mati tryggingarffæðings. Stærstur
hluti þess færðist til dótturfýrir-
tækja við uppskiptingu samsteyp-