Pressan - 01.10.1992, Qupperneq 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992
Ejárlög
LEIGUBEL-
STJÓRAUS
Sigfús Bjarnason
leigubílstjóri
Spamaður
1 Sameina ráðuneyti
og gera stjómsýsluna
skilvirkari. Við rek-
um okkur oft á vegg 1
ráðuneytunum og er
vísað á milli ráðu-
neyta. Virðist vera
fullt af fólki í ráðu-
neytinu sem hefur
þann starfa að vísa
fólki annað.
2 Fækka bekkjum I
grunnskólanum um
einn en um leið
herða námskröfur í
menntaskólunum.
Stytta semsagt náms-
tímann án þess að
það komi niður á
kröfunum sem gerð-
ar em til nemenda og
gera um leið námið í
menntaskólunum
hnitmiðaðra, þannig
að sá sem vill verða
lögfræðingur, læknir
eða eitthvað annað
geti hafið undirbún-
ing strax í mennta-
skóla.
3 Hætta offjárfesting-
um. Hér má benda á
allt of stóra flugstöð
og óþarílega dýra
Vestmannaeyjaferju,
en hún virðist hafa
verið byggð miðað
við að það sé þjóðhá-
tíð um hverja helgi.
Tekjuöflun
1 Leggja tíu prósenta
hátekjuskatt á þá sem
hafa 500 þúsund eða
meira á mánuði.
2 Fækka á biðlistum
sjúkrahúsa með því
að bjóða þeim sem
það vilja að borga
íyrir að komast strax
undir hnífinn.
3 Gera átak í því að
allir verði látnir
borga skattana sína.
Það er allt of lítið gert
til að koma í veg fyrir
skattsvik.
Fjárlög
TÓWLISTAR-
MAEUSmS
Björn Thoroddsen
tónlistarmaður
Spamaður
1 Banna einkabíl-
isma. Það mundi til
dæmis útrýma um-
ferðarslysum sem
kosta þjóðarbúið
óhemjufé, spara
gjaldeyri og fleira.
2 Skera niður yfir-
bygginguna við
stjórn landsins. Með
öðrum orðum fækka
stjórum og stofnun-
um.
3 Skera niður þjón-
ustugreinar. Til
dæmis veitingastaði,
verslanir, bensín-
stöðvar og slíkt en
auka þess í stað rann-
sóknir tii eflingar
framleiðslugreinum.
Tekjuöflun
1 Hefja skipulagða
markaðssetningu og
útflutning á íslensk-
um djassi.
2 Hefja útflutning á
notuðum bílum.
3 Hreinsa og græða
landið og gera meira
út á ferðamannaiðn-
aðinn.
Fjárlög
STJÓRNMALA-
FRÆÐmGSmS
Sveinn Líndal
Jóhannsson
stjórnmálafræðingur
Sparnaður
1 Fækka þingmönn-
um. Spara þannig
launakostnað og
koma jafhffamt í veg
fýrir eiginhagsmuna-
pólitík sem reynist
oft mjög dýr.
2 Gera yfirmenn rík-
isstofnana ábyrga
fyrir sínum eining-
um. Ef þær eru illa
reknar þá verða for-
stjórar þeirra reknir.
3 Slá þessu bara upp í
kæruleysi og detta í
það en gefa þing-
mönnum ekki einn
einasta snafs.
Tekjuöflun
1 Selja nýja Herjólf í
brotajárn og taka
þann gamla aftur í
gagnið.
2 Láta alla ráðherr-
ana aka um á rafbíl-
um. Það er orkuspar-
andi og umhverfis-
vænt.
3 Herða skatteftirlit
og taka á hvítflibba-
brotum.
Fjárlög
MEimTA-
SKÓLA-
NEMANS
Hálfdan Þorsteinsson
menntaskólanemi
Spamaður
1 Fækka þingmönn-
um um helming.
2 Skera niður risnu,
bílastyrki, ferða- og
dagpeninga og unt-
anlandsferðir hjá
ráðherrum.
3 Reka ríkisforstjóra
sem fara fram úr fjár-
lögum.
Tekjuöflun
1 Setja á hátekju-
skatt.
2 Afnema allar und-
anþágur á virðis-
aukaskatti.
3 Selja orku til út-
landa um sæstreng.
Fjárlög
LÖGREGLU-
ÞJÓNSINS
Kristján Ólafur Guðnason
lögregluþjónn
Spamaður
1 Fækka þingmönn-
um og ráðherrum
um tvo þriðju. Þá
yrði fjöldi þeirra
svipaður miðað við
fólksfjölda og á hin-
um Norðurlöndun-
um.
2 Hætta að veita
áfengi í öllum veisl-
um ríkisins.
3 Hætta að borga
mönnum óunna yfir-
vinnu.
Tekjuöflun
1 Hækka sektir vegna
lögbrota.
2 Láta aurana hans
Jóns í friði og ná í
krónuna hans séra
Jóns.
3 Byrja að nota þá
peninga og þær auð-
lindir sem við eigum
af einhveiju viti.
Pjárlög
RAKARANS
Villi Þór rakari
Sparnaður
1 Leggja niður milli-
liði í landbúnaði.
2 Hætta niðurgreiðsl-
um á landbúnaðar-
vörum.
3 Herða eftirlit með
styrkjum til lands-
byggðarþingmanna,
til dæmis húsaleigu-
styrkjum, og kaup-
um þeirra á atkvæð-
um til að fá hitt og
þetta í byggðarlögin.
Aðskilja fram-
kvæmda- og löggjaf-
arvald og fækka
stjórnmálaflokkum
niður í tvo.
Tekjuöflun
1 Ríkið og sveitarfé-
lögin framkvæmi í
niðursveiflu eins og
núer.
2 Selja ríkisfyrirtæki.
3 Breyta hlutafélaga-
reglugerð vegna
þeirra gjaldþrota sem
við erum sífellt að
borga fyrir aðra.
Ejárlög
VERKALYÐS-
FRÖMUÐAR-
INS
Ragnhildur Guðmunds-
dóttir, formaður Félags
íslenskra símamanna
Spamaður
Opinberi geirinn er
mjög lítill hér á landi
miðað við OECD-
löndin og Norður-
löndin. Það má ekk-
ert missa sig í heil-
brigðis- og mennta-
kerfinu og þjónust-
una þarf að bæta á
ýmsum sviðum. Það
er búið að hagræða
hlutunum þar eins og
hægt er og það geng-
ur ekki lengur að ætla
að spara með því að
leita fanga hjá þeim
sem minna mega sín.
Það verður að láta þá
borga brúsann sem
hafa mest handa á
milli. Þetta finnst
mér númer eitt, tvö
ogþrjú.
Tekjuöflun
Númer eitt, tvö og
þijú; herða skatteftir-
lit og búa þannig um
hnútana að hægt sé
að ná til þeirra sem
svíkja undan skatti.
Fjárlög
RITHÖFUND-
ARINS
Vigdís Grímsdóttir
rithöfundur
Spamaður
1 Skera niður laun
hátekjufólks og af-
nema allar sporslur,
eins og til dæmis
greiðslur undir borð-
ið.
2 Draga úr styrkjum
til íþróttahreyfingar-
innar.
3 Fella niður alla að-
stoð við svonefnd
„einkafýrirtæki“.
Tekjuöflun
1 Hætta við allar
hugmyndir um að
skattleggja íslenskar
listir og menningu,
samanber virðis-
aukaskatt á bækur;
við mundum græða
mjög mikið á því.
2 Auka alla heilbrigð-
is- og félagslega þjón-
ustu. Við mundum
græða mjög mikið á
því til langs tíma litið.
3 Auka skattbyrði
einkafyrirtækja og
stóreignafólks með
því að breyta skatta-
löggjöfinni.
Fjárlög
BARNSINS
Katrín Ýr Óskarsdóttir
11 ára
Spamaður
1 Hætta að kaupa inn
tóbak og áfengi.
2 Kaupa ekki svona
dýra ráðherrabíla.
3 Sleppa álverinu.
Tekjuöflun
1 Selja fiskinn dýrar
til útlanda.
2 Láta íslendinga búa
til fleiri hluti til að
selja í útlöndum.
3 Kaupa minna frá
útlöndum, nýta frek-
ar það sem við eig-
um.
Stjórnmálamenn þurfa oft að taka óvinsælar ákvarðanir og
óvinsælustu ákvarðanir sem þeir geta tekið er þegar þeir
ákveða að skera niður þjónustu eða fara að láta almenning
borga fyrir það sem áður var ókeypis. Það virðist ómögulegt
að taka ákvarðanir um sparnað án þess að það bitni á ein-
hverjum einum framar öðrum, en sá sem telur aðgerðirnar
beinast gegn sér getur ávallt bent á einhvern annan sem nær
hefði verið að skera niður hjá. En hvar finnst fólki að eigi að
spara? Og með hvaða ráðum má afla aukinna tekna?
PRESSAN fékk í lið með sér nokkra einstaklinga úr mismun-
andi stéttum og hað þá að benda stjórnmálamönnunum á hvar
mætti spara. Og líka hvernig mætti græða.