Pressan - 01.10.1992, Síða 31

Pressan - 01.10.1992, Síða 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992 í Þ R Ó T T I R 31 Pétur Guðmundsson Lloyd Sergent Sigurður Hjörleifs*H ^son, þjálfari Blika I \ásamt risunum" Usexsemsaman V llagteru 12,15 ■ metrará hæð. Haraldur Egill Viðarsson Þorvarður Björgvinsson Eitt og hálft tonn af krafta- jotnum Það hefur víst ávallt þótt kostur í körfubolta að vera hávaxinn. Það hefur einmitt oft staðið íslenskum félagsliðum og landsliðinu fyrir þrifum hversu fáir stórir íslenskir körfuboltamenn eru til. En það er ekki skortur á há- vöxnum leikmönnum hjá Breiða- bliki, nýliðunum í úrvalsdeildinni — eða Japisdeildinni eins og hún heitir. Þrír leikmenn liðsins eru yfir tveir metrar á hæð. Og það sem meira er; þeir eru allir ís- lenskir. Fyrstan skal telja Pétur Guðmundsson en hann er 2,18 metrar. Þá er það i'var Webster — reyndar frá Bandaríkjunum en hefúr verið hér í mörg ár og er ís- lenskur ríkisborgari — sem er 2,10 metrar. Og Haraldur Krist- insson er svo sem engin smásmíð heldur; 2,02 metrar. En þetta er ekki allt. f liði Breiðabliks eru líka þrír leikmenn sem eru 1,95 metrar á hæð: Þeir Þorvarður Björgvinsson, Egill Viðarsson og Bandaríkjamaður- inn Lloyd Sergent mælast allir 1,95. Sigurður Hjörleifsson, þjálfari Blikanna, sagði í samtali við PRESSUNA að veturinn yrði Blik- um án efa strembinn. „En ef við náum að nýta okkur hæðina verð- um við erfiðir," sagði Sigurður. Og víst er að ekki er þetta árennilegur hópur með Pétur fremstan í flokki, en hann verður fyrirliði Blika í vetur. Sigurður sagði að Pétur virtist mjög ffískur og ekki væri að sjá að meiðsli þau sem hann hefði átt við að stríða háðu honum. Er Clo búinn Jón Páll gat ekki keppt í fyrra vegna meiðsla. Þá hljóp Magn- ús Ver í skarðlð og vann. Nú mætast þeir í keppninni um Sterkasta mann heims. Nú um helgina verður keppnin Sterkasti maður heims haldin hér á landi. Tíu jötnar mæta til leiks, þar á meðal tveir fslendingar, þeir Magnús Ver Magnússon og Jón Páll Sigmarsson. Kapparnir eru engin smásmíð; samanlagt vega þeir 1.441 kíló eða tæplega hálft annað tonn. Sá þyngsti er Bandaríkjamaðurinn James Perry, lítil 196 kíló. Perry þessi var æfingafélagi og mikill vinur OD sáluga Wilsons og til- einkar Perryþátttöku sína minn- ingu hans. Odí var ekki smár í sniðum ffekar en þessi félagi hans. Aðrir keppendur eru Gerrit Badenhorst, Henning Thorsen, Gary Taylor, Gregg Ernst, Ilkka Nummisto, Ted Van Der Parre og Jaime Reeves en hann gæti orðið íslendingunum skeinuhætt- ur eins og reyndar hinir allir. Keppnin hefst nú í dag klukkan tíu, en þá verður keppt í trukka- drætti á Skothúsvegi við Tjömina. Og svo er bara að vona að sterk- asti maður heims verði áffam fs- lendingur! vera Liði Nottingham Forest hefur gengið afleitlega nú í upphafi tímabilsins. Svo afleitlega að þær raddir gerast æ háværari sem segja að tími sé kominn fýrir Bri- an Clough að hætta. Áhangendur liðsins, leikmenn og stjómarmenn virðast þó enn hafa trú á gamla manninum en fótboltasérffæðing- ar margir segja ljóst að Clough sé yfirkeyrður og það skynsamleg- asta fyrir hann í stöðunni sé að hvíla sig. Brian Clough var ráðinn fram- kvæmdastjóri Forest í janúar 1975. Hann er því búinn að vera við stjómvölinn hjá liðinu í bráð- um átján ár og er orðinn 57 ára, en liðið hefur aldrei byrjað jafhilla í deiidinni og í ár. Ferill Cloughs er samt óneitanlega glæsilegur og undir hans stjórn hefur liðið unn- ið marga glæsilega sigra en nú gengur allt á afturfótunum. Talið er að Clough sakni mjög aðstoðarmanns síns, Peters Tayl- or, en hann hafði lag á gamla manninum og var eiginlega sá eini sem talaði tæpitungulaust við hann. Tók vodkaglasið af honum og ræddi við hann eins og maður við mann. Brian Clough er búinn að vera hjá Forest í 18 ár. Léttkenndur á grænu peysunni hefur hann stýrt liðinu til glæstra sigra en í augnablikinu virðist það tímabil liðið. Clough þykir mjög hrjúfur og mislyndur og sérviska hans á sér lítil takmörk. Aðra stundina faðmar hann alla og kyssir en hina hreytir hann skætingi í menn. Framkoma hans hefur oft farið í taugarnar á mönnum í kringum hann en meðan vel gekk var látið kyrrt liggja. Darren Wassal var einn efnilegustu leikmanna For- est. f leik með varaliðinu kom hann að hliðarlínunni meiddur á hendi og vildi fá skiptingu, Clough hrækti á hönd hans, sagði; „þetta er betra“ og lét Wassal leika áfram, — dæmigert fyrir fram- kvæmdastjórann. Wassal fór ffam á sölu og gerði samning við Derby County. Forest hefur þótt spila skemmtilega knattspyrnu, ekki þennan dæmigerða enska bolta sem sitt sýnist hverjum um. Des Walker varnarjaxl er farinn til Ítalíu og hans skarð hefur Clough ekki náð að fylla og ekki bætti brottför Wassals úr skák, en hann var gífurlega sterkur varnarmað- ur. Knattspyrnan er ágæt ennþá en vamarleikurinn er höfuðverk- ur og liðið hefur fengið á sig ódýr mörk. Helstu mistök Cloughs fyrir þetta tímabil vom að selja Walker án þess að hafa arftaka hans í sjónmáli. Andinn í herbúðum Forest er ekki allt of góður og sagt er að fyr- irliði liðsins og enska landsliðsins, Stuart Pearce, væri farinn ffá lið- inu ef ekki væri vegna konu hans og hestanna þeirra, konunni hans líkar vel í Nottingham og vill ekki flytja. Nigel Clough væri sennilega líka farinn ef ekki væri fyrir það að Brian Clough er faðir hans. Áður voru leikmenn áfjáðir í að komast til Forest af því Clough var ffam- kvæmdastjóri þar. Nú renna á þá tvær grímur þegar minnst er á sölu til Forest. Clough hefur látið mjög á sjá og virðist illa þola álagið. Kannski væri skynsamlegast fyrir hann að hætta núna. Þá yrði hans minnst fyrir sigrana og frábæran árangur en ekki töp og botnbaráttu. Framkvæmdastjórarnirá Englandi FÉLAG FRAMKVÆMDASTJÓRI RÁÐINNI Nottingham Forest Brian Clough jan1975 Oldham Athietic Joe Royle jún1982 Crystal Palace Steve Coppell jún 1984 Arsenal George Graham maí1986 Manchester United Alex Ferguson nóv1986 Sheffield United Dave Bassett Leeds Howard Wilkinson okt1988 Ipswich John Lyall maí 1990 Everton Howard Kendall nóv1990 ManchesterCity Peter Reid nóv1990 Liverpool Graeme Souness apr1991 Queen's Park Rangers Gerry Francis jún 1991 Aston Villa Ron Atkinson jún 1991 Chelsea lan Porterfield jún 1991 Sheffield Wednesday TerryFrancis jún 1991 Southampton lan Branfoot jún 1991 Middlesborough Lennie Lawrence júl 1991 Blackburn Kenny Dalglish okt 1991 Wimbledon Joe Kinnear jan 1992 Tottenham Doug Livermoore maí 1992 Norwich Mike Walker jún 1992 Coventry Bobby Gould júl 1992 Þaðáekkiaf gleðimálaráð- herranum David Mellor að ganga. Karlgreyið elti tippið á sér um allar jarðir og hefur nú orðið að segja afsér. Mellor er frægur Chelsea-aðdáandi eins og vinur hans og félagi John Major en nú hefurþað verið rifj- að upp að Mellor, hinn æsti Chelsea-að- dáandi, kastaði af sér Chelsea-hamn- um í den og gerðist trylltur aðdáandi Fulham — var varaforseti félags- ins i ofanálag. Það þarf kannski ekki að koma á óvart að Mellor uppgötv- aði að Fulham var rétta liðið til að halda með og öllum öðrum liðum betra á sama tíma og hann barðist fyrir því að komast á þing fyrir Fulham... Um helgina STERKASTI Trukkadráttur kl. 10.00. A Skot húsvegi við Tjðrnina. Daufialyfta kl. 12.00. A útitaflinu við lækjargötu. Hiefislukappnl kl. 15.30. N0 eru kapparnir staddir við Bláa lóniö. Sfðasta greinin þennan daginn. STERKASTIMAÐUR HEIMS Lyft yflr httfuð kl. 10.30. Þetta hlýtur að vera erfitt og ullfc nu er keppnisstaðurinn við GuilJoss. Þórshamarlnn kl. 14.30. Land- kynningin heldur áfram og keppt er á Geysissvæðinu og glímt við Þórshamarinn. HANDBOLTI EVRÓPUKEPPNI MEISTARA- LIÐA FH - Kyndill kl. 20.00. Maður skyldi nú ætla að Hafnfirðingarnir ættu ekki að eiga t miklum vand- ræðum með frændur okkar Fær- eyingana. Fimleikafélagið virðist þó ekki hafa alveg eins sterku liði á að skipa nú og I fyrra, en þeir eiga að vera betri en Kyndils- menn. Ll'MlHIHi'l STERKASTI MAÐUR HEIMS Handleggir beint fram kl. 8.45. Þessi grein heitir á ensku Forward hold en keppendur verða að halda þyngdinni með báða hand- leggi beint fram. Keppt við Höfða. Flugvéladráttur kl 11.30. Á Reykjavíkurflugvelli ætla kepp- endur sér aö draga flugvélar — ekki á loft samt. Húsafellssteinninn kl. 15.00. Þetta er síðasta greinin og keppt verður á þingvöllum. FRJÁLSAR (þróttir Öskjuhlffiarhlaup ÍR kl. 14. Væntanlega er hlaupið um Öskju- hlíðina og allir geta verið með. Sannkallað fjölskylduhlaup og hægt að skoða kanínur og fleira skemmtilegt á hlaupunum. Skrán- ing frá klukkan 1230 til 13.30. GOLF Bændaglíma er heiti móta sem fram fara um land ailt. Svo til hver einasti klúbbur landsins heldur mót undir þessu heiti, en fyrir- komulagið er alls ekki það sama hjá öllum klúbbunum. Það er og. »ffl'líllllM.M;l HANDBOLTI EVRÓPUKEPPNIBIKARHAFA Valur - Stavanger kl. 20.00. Valsarar unnu nánúrlega ekki bik- arinn í fyrra, heldur FH. En af þvl Fimleikafélagspiltarnir unnu allt sem hægt var að vinna I fyrra þá spila Valsmenn, sem töpuðu úr- slitaleik bikarsins fyrir FHI fyrra, við Nojarana frá Stafangri. Valsmenn eru góðir og eiga hikstalaust að vinna finnst okkur.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.