Pressan - 01.10.1992, Qupperneq 34
34
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÓBER 1992
Poppið
FlfVIIVlTUDAGUR
• Bleeding Volcano
með útgáfutónleika á
Café Rósenberg í tilefni
__^_l af útgáfu nýs geisladisks,
retur fengið nafnið Damcrack.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22.30.
Vonir standa til að meðlimirnir Vil-
hjálmur G.F. Brekkan, Guðmundur Þ.
Sigurðsson, Sigurður Kristinsson og
Hallur Ingólfsson kynni 13 frumsam-
in lög af diskinum á fleiri veitinga-
stöðum í mjög svo náinni framtíð.
• Bogomil Font og milljóna-
mæringarnir leika á amerískum
dögum á Bylgjunni og Púlsinum
vegna þess að Frank Sinatra komst
ekki til landsins í tíma vegna
slæmsku í hálsi. Þetta verður í síðasta
sinn ( bili sem Bogomil leikur á (s-
landi, en ástæðan fýrir þvl er að nú
ætlar Bogomil að skipta um ham og
ganga til liðs við Sykurmolana, sem
bráðlega leggja uþp í tónleikaför
með stórsveitinni U2 með heimsyfir-
ráð eða dauða i farteskinu. Þess má
geta að Sykurmolarnir fara vel haldn-
ir í þá för því þeir voru í síðustu viku I
hinni árlegu sláturveislu hjá frú Re-
gínu.
• Viðar og Þórir eiga það sameig-
inlegt að spila kántrí í Borgarvirkinu,
Viðar syngur og spilar á gítar og Þórir
á hljómborð og gítar líka. Það er búið
að stækka dansgólfið, því pláss fyrir
stærri sveiflur.
• Guðmundur Rúnar kæmi eng-
um á óvart þótt hann flytti bara inn á
Fógetann. Það er trúbadorhelgi
framundan á Fógetanum.
• Karaoke á Tveimur vinum að
vanda.
• Fánar eru gleði- og skemmtisveit
sem hefur verið að skemmta á ýms-
um stöðum að undanförnu. Nú ætla
þeir á Feita dverginn að skemmta
Grafarvogsbúum.
• Sýn eru þeir Guðmundur og Kiddi
sem spila á hljómborð og gítar og
spila allra handa dansmúsík. Á Dans-
barnum í kvöld.
•BP og þegiðu Ingibjörg er sveit
sem sett er saman í fúlustu alvöru af
nokkrum meðlimum Sniglabandsins,
þeim Björgvini Ploder, Friðþjófi bassa
og Einari hljómborði. Aukameðlimur-
inn er Þúsund andlita-maðurinn
Tómas gítar.
nmnuniM
• Gömlu brýnin á Dansbarnum.
„Rosalega góð danshljómsveit," segja
þeir þar.
• Todmobile spilar á Hressó í
kvöld. Með sveitinni spilar píanóleik-
arinn Kjartan Valdimarsson.
• Viðar og Þórir með bandaríska
fiðluleikaranum Dan Cassidy í Borg-
arvirkinu. Blandað kántrí- og rokk-
danskvöld.
• Stjórnin er búin að vera í fríi í tvo
mánuði. Það er kominn tími á hana.
Nú með tónleika á Tveimur vinum.
• Tveir Logar eru Eyjamennirnir
Hermann Ingi, söngvari og gítarleik-
ari, og Guðlaugur, kallaður Laugi, á
hljómborð. Þeir spila írska kráarmúsík
með íslenskum lögum í bland. Það
væri nú ekki verra ef þeir bættu víð
flautuleikara og seldu þykkan Guin-
ness úr tunnum. Það væri nú ekki
amalegt.
• Guðmundur Rúnar gæti
kannski fengið merkt hjólreiðastæði
fyrir utan Fógetann?
• Hermann Ingi verður áfram á
Feita dvergnum, helgi eftir helgi.
• BP og þegiðu Ingibjörg enn og
aftur á Gauknum og væntanlega í
hinsta sinn, vegna þess að þetta er
einungis stundargaman.
• Exizt-menn ætla hvað úr hverju
að snúa sér að heimsmarkaðinum,
enda búnir að láta hanna fyrir sig
bráðhuggulegt plötuumslag. í kvöld
verða þeir á Púlsinum og hver veit
nema þetta verði síðasta kvöldið
sem hægt er að sjá þá í návígi, — áð-
ur en þeir verða heimsfrægir.
twm'w<wmw.wm+mM
• Júpíters á Hressó.
• Tveir Logar aftur á Rauða Ijóninu
í kvöld með írska taktinn.
• Guðmundur Rúnar losnar ekki
af Fógetanum eða Fógetinn við
Guðmund. Enda óþarfi. Þetta er góð
blanda.
• Gömlu brýnin enn á Dansbarn-
um.
• Viðar og Þórir með Dan Cassidy,
þeim bandaríska gestafiðlara, í Borg-
arvirkinu. Hér er á ferðinni blanda af
kántríi og rokki.
• Hermann Ingi er kominn með
svefnpokann sinn á Feita dverginn.
• Gildran leggur snöru fyrir fólk á
amerískum dögum. sem nú standa
yfirá Bylgjunni og Púlsinum.
SUNNUDAGUR
• Guðmundur Haukur á orgel á
Dansbarnum í kvöld. Hvernig ætli
það sé?
• Karaoke á Tveimur vinum eins
og alltaf á sunnudagskvöldum. Nú er
hægt að velja úr hvorki meira né
minna en 430 lögum, þannig að þeir
sem eiga í basli með að læra dægur-
lagatexta hljóta að finna lag sem þeir
kunna, — þó ekki væri nema eitt.
• Viðar og Þórir með sveitakvöld í
Borgarvirkinu. Nýtt og betra dans-
gólf.
•Svartur pipar úr Hafnarfirði
kryddartilveru Reykvíkinga.
Sveitaböll
L'U.H'l
i Djasskvartett Kristj-
lönu Stefánsdóttur treð-
lur upp á Hótel Selfossi.
Ipetta er liður í helgardag-
skránni sem þeir fýrir austan fjall hafa
kallað „Rómantík og fjör", sérstaklega
hannað fyrir pör og hjónafólk en aðr-
ir rómantíkerar eru líka velkomnir.
Kvartettinn er stofnaður fýrir austan
fjall og var Kalli Sighvats í honum á
sínum tíma.
• Af lífi og sál spilar í Þotunni,
Keflavík. Hér er á ferðinni átta manna
grúppa með lúðrablæstri og öllu
• Kredit með Ijúfa tríómúsík á
Sjallakránni, Akureyri.
LAUGARDAGUR
• Karma á Hótel Selfossi, en sveit-
ina stofnaði Labbi í Mánum. Það er
von á ýmsum uppákomum undir
yfirskriftinni „Rómantík og fjör". Kynn-
ir kvöldsins er Villi Þór rakari.
• Loðin rotta á Þotunni í Keflavík.
Tveir söngvarar að þessu sinni, þeir
Richard Scobie og Jóhannes Eiðsson.
• Galileo í Sjallanum, Akureyri.
BARIR
I DiykkjumaðurPRESSUNNAR
■ lagði leið sína til Neskaupstað-
ar um síðastliðna helgi og
naut þar veitinga á barnum á
íúð, sem kom bara skemmti-
lega á óvart. Úrvaliö var í ágætu lagi og
stemmningin ágæt. Þar eystra eiga menn
þó ýmislegt ólært í barfræðum, því aldrei
á ævinni hef ég smakkað jafnvondan
Martini Dry. Á móti kemur kannski að ís-
lenskir barþjónar virðast almennt ekki
hafa höndlað leyndardóminn að baki
þessa annars ágæta drykkjar, svo það er
kannski ósanngjarnt að áfellast Norðfirð-
inga sérstaklega í þeim efnum. En að öðru
leyti var barinn að flestu leyti til fyrir-
myndar ef undan er skilin hefðbundin
vöntun á eðalbúrboninu Jim Beam. Á Nes-
kaupstað fylgjast menn greinilega vel
með tíðarandanum, því á barnum var
meðal annars að finna karaoke-apparat,
sem naut gríðarlegra vinsælda. Nú hef ég
ekkert út á slíkar vélar að setja, en söng-
kúnstirnar geta orkað tvímælis eins og
þegar ungur maður sté á stokk í tilefni
brúðkaupsafmælis síns og vildi syngja lag
til konu sinnar. Þetta hefur vafalaust
flestum fundist afar rómantískt, en það
vöknuðu óneitanlega áleitnar spurningar
þegar maðurinn hóf upp raust sína og
kvað: „When my body has had enough of
you..." og svo framvegis. Það var líka at-
hyglisvert að fylgjast með atferli Norðfirð-
inga eftir að barnum var lokað, því þá var
umsvifalaust boðið til teitis í heimahúsi.
Sérstaka athygli drykkjumanns vakti hátt-
erni húsráðanda, sem stóð í dyrunum og
taldi inn: „Tveir út, tveir inn..." Þegar inn
var komið var liðið svo rekið úr skónum að
góðum íslenskum sið. Þrátt fyrir íhalds-
semi á ýmsum sviðum þar eystra er frjáls-
lyndi hreint gífurlegt á öðrum. Þannig
liggur við að opinn skiptimarkaður á mök-
um hefjist þegar eftir miðnætti. Kunningi
greinarhöfundar fékk þannig ómótstæði-
legt tilboð, sem gekk út á að hann léti for-
láta rauð axlabönd fyrir dökkhærða
drottningu, en sakir aðaláhugamáls
drykkjumanns PRESSUNNAR man hann nú
ekki alveg hvernig kaupunum reiddi af.
Nú geta menn haft alls konar skoðanir á
þessum málum, en sá sem þetta skrifar
nennir ekki að setjast í siðferðislegt dóm-
arasæti, enda álíka óhæfur til þess og
siðanefnd blaðamannafélagsins. Á hinn
bóginn getur hann hiklaust mælt með
áfengisdrykkju og góðu rugli á Norðfirði,
því þar taka menn slíka iðju föstum tökum
í stað þess að láta hana reka á reiðanum
eins og allt of algengt er meðal áhuga-
manna um áfengi hér í höfuðborginni.
Næmishyggja í
málmskúlptúrum
Jóhann Eyfells er um niargt sérstæður listamaður,
en sýning á verkum hans vferður opnuð í Listasafni fs-
lands á laugardag. Sköpun hans fann sér snemma eig-
in farvegi og telst hafa markað nýjar brautir mynd-
hugsunar, en að margra áliti eru verk hans nátengd ís-
lenskum fyrirbærum; hrjúf, tætt, rifin. „íslenskijáhrif-
in koma ekki fram á sterkan, meðvitaðan hátt,“ segir
Jóhann. „En þetta er líkt og með mataræði; það sem
einstaldingurinn elst upp við verður partur af honum
sjálfum." Jóhann vinnur skúlptúrverk sín með stór-
virkum vinnutækjum og grefur holur í jörð til mótun-
ar. f gryfjurnar hellir hann bræddum málmi þar sem
hann storknar og þróast í samspili við náttúruna —
samspil milli hitastigs, veðurs og verksins. Einnig not-
ar Jóhann viðarmót, oft fuin, sem taka við málminum.
„Þannig næst jákvæður hlutur úr neikvæðu rými.“ Jó-
hann segist einbeita sér að efnum sem gefa sem mesta
möguleika og leitast ff ekar við að uppfylla óskir efnis-
ins en að því sé öfugt farið og efnið uppfylli óskir hans
sjálfs. Hugmyndaffæði Jóhanns endurspeglast í næm-
ishyggjunni, en þetta nýyrði vísar til „næmi fyrir öfl-
um sem ekki hafa fengið táknræna merkingu í okkar
eigin veröld“ — nýr veruleiki sem er „utanhallt við
gjjjx Johann Eyfells sýnir sérstæða málmskúlptúra í
Á sjöunda áratugnum var Jóhann meðal ungra L'stasafn' íslands.
listamanna sem mörkuðu myndlistinni nýja braut en eftir nokkum tíma hérlendis flutti hann utan til Banda-
ríkjanna, þar sem hann hefur verið búsettur nær óslitið síðan. Vera hans erlendis er meginástæða þess að verk
hans hafa sjaldan komið fýrir augu Islendinga og er því spennandi viðburður að fá listamanninn heim. Skúlp-
túrar hans eru feiknastórir og hafa í gegnum árin þróast úr óreglulegum abstraktskúlptúmm í hrein gmnnform
eins og þríhyrninga, hringi og feminga. Á sýningunni er aðallega lögð áhersla á málmskúlptúra.
Laufey
Bjarnadóttir
... hefur þetta táknræna,ferska og
íslenska útlit sem vekur svo mikla
hrifningu hérlendis og vinnur fyrir
lcelandic Models. Hún hefur mest
starfað á Islandi og vann síðustu
forsíðukeppni Vikunnar, sem hald-
in var i byrjun árs. Margar myndir
hafa birst af henni í blöðum sem
sýna íslenska handavinnu en Lauf-
ey hefur ekki i hyggju að reyna að
slá í gegn erlendis og segir að sig
skorti nokkra sentimetra upp á að
það mætti takast. Andlit hennar
prýðir næsta auglýsingaspjald No
name-snyrtivaranna sem ber yfir-
skriftina „(slensk fegurð". Dags
daglega vinnur Laufey sem sölu-
maður í íþróttabúðinni við Borgar-
tún en hluta frítímans eyðir hún
við að halda sér I formi hjá þeim I
World Class og einnig sést hún
reglulega á sundstöðum bæjarins.
Stelpan er rétt að skríða yfir tvi-
tugsaldurinn og hefur mest gam-
an af að ferðast.
SÍMSVARINN
MENNTA-
VECUR
RÍTU
Líf kviknar á sviðum leikhús-
anna á haustin og þegar er búið að
ffumsýna nokkur verk. Þjóðleik-
húsið hyggst á föstudag ífumsýna
leikritið Ríta gengur menntaveg-
inn eftir Willy Russel, en margir
kannast við Rítu þessa úr sam-
nefndri kvikmynd sem sýnd var
hérlendis fýrir nokkrum árum.
„Ríta er hárgreiðsludama sem
aldrei hefur lagt neitt upp úr
námi,“ segir Tinna Gunnlaugs-
dóttir um aðalpersónu verksins.
„Henni finnst líf sitt ffemur inn-
antómt og snautt og fær þá hug-
mynd að fara í opinn háskóla og
nema bókmenntir. Til að byrja
með er hún fullkomnlega á skjön
við þær væntingar sem kennari
hennar gerir til hennar, en hann
kemst fljótlega að því að hún hef-
ur einlægan áhuga á að mennta
sig þótt það sé löng leið fyrir hana
að fara.“ Þessi nýi heimur hefur
þau áhrif á Rítu að
hún endurskoðar alla
tilveru sína og Hfsgildi.
„Mér finnst alveg
óskaplega gaman að
kynnast Rítu því hún
er alveg frábærlega
skemmtileg," segir
Tinna. „Hún er þessi
lífsglaða manneskja
sem sér alltaf björtu
hliðarnar á því sem
hún fæst við, er
brandarakerling en
vill hins vegar segja
eitthvað afviti.“
Leikverkið er gam-
anleikur en um leið
bjartsýn dæmisaga
um hvernig fólk getur
með vilja breytt lífi
sínu og gert það innihaldsríkara
og skemmtilegra. Á móti Tinnu
leikur Arnar Jónsson. Hann er í
hlutverki kennarans, Franks, sem
verður heillaður af einlægri löng-
un Rítu til náms þó að við íyrstu
kynni fallist honum hendur.
Leikstjórn er í höndum Maríu
Kristjánsdóttur.
búningahönnuður
„Hæ þetta er hjá Óla Má, Kalsí
og Maríu. Við erum ekki
heima sem stendur. En skildu
eftir skilaboð. Við munum
hafa samband.“
SMOTTER-
ÍSSNUÐ OC
PÍNUPELAR
Islenska smáfólkið lætur ekki
erlenda tískustrauma framhjá sér
fara frekar en þeir sem stærri eru
og eldri. Það sem krakkar eru æst-
ir í að eyða sparikrónunum sínum
í þessa dagana eru smáhlutir gerð-
ir úr plasti og hengdir á þartil-
gerðar teygjur, reimar, bönd og
keðjur. Snuðin eru eftirlæti flestra
og eru vinsældirnar þvílíkar að
þau stærstu seljast upp nánast áð-
ur en þau komast í búðarhillurn-
ar. Þó er líka ásókn í pela, koppa,
bangsa, skó og höfiunga, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Hlutirnir eru til í öllum regn-
bogans litum og má ekki á milli
sjá hver er þeirra vinsælastur.
Strákar fulsa þó við bleiku, eins og
við var að búast, og eru helst í því
að hengja utan á sig svört snuð
eða glær. Það er líka pínulítil
heimspeki á bak við puntið og
fýlgir til að mynda bláa litnum
velgengni í námi. Mörgum þykir
þetta nýja æði ólíkt skemmtilegra
en Turtles- og Batman-flóðbylgj-
an og víla því ekki fyrir sér að bíða
þolinmóðir með börnunum í
röð við afgreiðsluborðið
getur orðið ansi löng.
Smáhlutir úr plasti tröll-
ríða tískuheimi smá-
fólksins þessa dagana
og þykir mörgum sem
þetta krúttlega punt sé
ólíkt skemmtHegra
Turtles-æðið sem
yfir landið ífyrra.
Tónlistin hjákona
Kátir piltar eru hreinræktaðir Hafnfirðingar — allir með tölu.
En á bak við andlitin kátu er alvörugefin rokkhljómsveit með kím-
inni undiröldu sem ætlar textum sínum að hafa djúpa og meðvit-
aða meiningu þrátt fyrir létta framsetningu. Þessir glöðu gaflarar
eru nú að leggja lokahönd á upptökur íhljóðveri og ætla að
senda frá sérgeislaplötu í nóvemberbyrjun.
„Hljómsveitin hefurlifað fráþvívið vorum saman íFlensborg,"
segir Hallur Helgason, kátur trommari og starfandi kvikmynda-
gerðarmaður. „Við höfum hins vegarsinntýmsum verkefnum
meðfram tónlistinni og má segja að hún sé í raun hjákona okkar
allra, efundanskilinn er hljómborðsleikarinn. Nú höfum við tekið
upp þráðinn að nýju eftir nokkurt hlé og stundum upptökur eins
og um fulla vinnu væriað ræða."
Kátir piltar gáfu út fyrstu og einu plötu sína fyrir fjórum árum
og spiluðu víða íeitt ár eftir það. Sú sem nú kemur út verður rokk-
uð eins og hin fyrri en hljóm-
sveitarmeðlimir telja sig
standa með báða fætur I
gamalli ryþmahefð. „Við er-
um ekki tölvupopparar," segir
Hallur. „Við spilum út frá til-
finningunni."
Mörgum þykir samsetning
hljómsveitarinnar heldur sér-
stök fyrir rokksveit, því
menntun meðlimanna flestra
snýr að allt öðru en tónlist.
Sólógítaristinn er til að
mynda að Ijúka doktorsnámi
í lífefnafræði en þarna eru líka
á ferðinni leikari, kvikmynda-
gerðarmaður, bók-
menntafræðing-
ur og leikmynda-
gerðarmaður.
Rítu tekst að hrista upp
I kennara sínum og
bæði endurskoða þau
lífið og gildi þess. Ríta
gengur mennta-
veginn
- gamanleikur
og bjartsýn
dæmisaga.