Pressan - 01.10.1992, Page 36

Pressan - 01.10.1992, Page 36
36 ____FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. OKTÖBER 1992 LÍFIÐ EFTIR VINNU Klassíkin mrMMim'giigim-a'jii • Sinfóníuhljómsveitin Fyrstu áskriftartónleikunum stjórnar aðalhljómsveitar- stjórinn Petri Sakari. Einleik- arinn er Ingvar Jónasson sem stund- aði lágfiðluleik í Svíþjóð um árabil, en sneri heim aftur fyrir fáeinum árum. Ingvar leikur einleik í Könnun sem er tuttugu ára gamall konsert eftir Atla Heimi Sveinsson. Önnur verk á tón- leikunum eru Sinfónía nr. 6 eftir Beet- hoven og Kristján konungur II eftir Si- belius. Háskólabíó kl. 20. Leiklist FIMMTUDAGUR • Jóhann Eyfells hefur búið í Bandaríkjunum í marga áratugi og kemur lítt til íslands. Á sýningu í Lista- safni íslands er úrval af verkum eftir Jóhann, meðal annars skýlptúrar og pappírsverk .Opiðkl. 12-18. Hafið. Það er skemmst •/■s^jfrá því að segja að áhorf- Jandans í leikhúsinu bíða ______Imikil átök og líka, eins og 5íafi Hauki er lagið í leikverkum sín- um, húmor, oft af gálgaætt, skrifaði Lárus Ýmir Óskarsson í leikdómi. Þjóð- leikhúsið kl. 20. • Dunganon Ef maður gerir kröfu til að leikverk sé dramatískt í uppbygg- ingu þá vantar slíkt í leikritið. En öðr- um skilyrðum er fullnægt; maður skemmtir sér vel og fær nóg til að hugsa um eftir að sýningu er lokið, skrifaði Lárus Ýmir Oskarsson í leik- dómi. Borgarleikhús kl. 20. FOSTUDAGUR • Lucia di Lammermoor Frumsýn- ing íslensku óperunnar á þessari óperu eftir Gaetano Donizetti, sem ekki hefur verið færð upp áður hér á landi. Náttúrlega er prímadonnan Diddú í aðalhlutverki. fslenska óperan kl. 20. • Ríta gengur menntaveginn Meira en tíu ára gamalt enskt kassa- stykki, sem síðar varð að vinsælli bíó- mynd, endurlífgað í Þjóðleikhúsinu. Frumsýnt á Suðurnesjum í vor en nú aftur á Litla sviðinu. Arnar Jónsson leikur Michael Caine, en Tinna Gunn- laugsdóttir Julie Walters, Þjóðleikhús- ið, litla svið, kl 20.30. • Ragna Róbertsdóttir sýnir verk úr grágrýti, hrauni, gúmmíi, en líka teikningar á vegg í öllum sölum Ný- listasafnsins .Opiðkl. 14-18. • Hulda Hákon er búin að hengja upp á Mokkakaffi verk sem hún hefur gert með akrýllitum á tré. Þetta eru portrett af dýrum í miðbænum! Opið kl. 9.30-23.30 • Bernd Löbach er myndlistarmað- ur og prófessor frá Þýskalandi og hef- ur sýnt víða um heim. Löbach er um- hverfislistamaður og notar listina til að sýna vandamál í umhverfinu, með efnum sem eru úrhrat neyslusamfé- lagsins. • Inga Þórey Jóhannsdóttir stundaði nám hér og í Vínarborg, en sýnir í Galleríi 11 verk sem hún málaði í Glasgow á síðasta ári. Opið kl. 14-18. • Dunganon. Borgarleikhúsið, kl. 20. • Hafið Þjóðleikhúsið kl. 20. tmxamiMiwmMmmn • K«ra Jelena Nú hafa allar gáttir brostið [ Þjóðleikhúsinu og til að losna einhvern tíma við þetta stórvinsæla (og stórgóða) leikrit hefur verið tekið það ráð að færa það á sjálft aðalsviðið. En nú má Sþyrja hvort það þrífist jafn- vel þar og í fámenninu. Þjóðleikhúsið kl. 20. • Dunganon. Borgarleikhúsið kl. 20. SUNNUDAGUR • Emil í Kattholti Leikrit sem er lík- legt til að geta höfðað til allra barna á öllum tímum. Bessi Bjarnason kann betur en aðrir að leika fyrir börn. Þjóð- leikhúsiðkl. 14. • Lucia di Lammermoor. Sérstök hátíðarsýning, sem er ekki jafnfín og frumsýningin, en fínni en sýningarnar sem á eftir koma. Líkt og að lenda í öðru sæti að fá miða á hana. íslenska óperan kl. 20. • Ríta gengur menntaveginn Þjóðleikhúsið, litla svið, kl. 20.30. Ókeypis | • Þeir Fischer og Spasskí I eru aftur að setjast að I tafli, að þessu sinni í I Belgrad. Þangað kemst sá blanki ekki og hann langar heldur ekki, en fyrir hann er gott að vita af húsaskjóli í höfuð- stöðvum skákmanna í Faxafeni (Skeifunni). Þar koma unnendur skáklistarinnar saman meðan teflt er og fylgjast með, spá og spekúlera, eins og sagt er. Og þótt sá blanki hafi ekki hundsvit á skák og alls engan áhuga er þetta ágæt vist fyrir hann. Lík- lega er hann atvinnulaus og þarna hittir hann aðra menn sem þurfa ekki að vera í vinnunni, þótt um hábjartan vinnudag sé... Málþing LAUGARDAGUR EM Norræna félagið er •Isjötíu ára. Félagsmenn eru pvíst taldir um sjö þúsund á ■Éíslandi, en samsvarandi fé- lög eru starfandi á hinum Norður- löndunum. í Norræna félaginu eru menn náttúrlega hæstánægðir með þetta og ætla að minnast afmælisins um helgina. Á sunnudag verður há- tíðarsamkoma í íslensku óperunni, en á laugardaginn málþing þar sem ein- hver hluti af meðlimum Norræna fé- lagsins ræðir framtíð þess, ekki síst í Ijósi aukins samstarfs milli Norður- landa og ríkja Evrópubandalagsins. Kannski verður einfaldlega spurt hver verði þörfin á Norrænu félagi þegar Norðurlönd verða komin í EB, nema auðvitað ísland. Myndlist J# Magnús Kjartansson fer nokkuð sínar eigin leiðir í myndlistinni, einna mestur fagurkera af hérlendum fnumönnum. Hann sýnir myndir sem hann vann á pappír á ár- unum 1982—'89 í Listmunahúsinu í Hafnarhúsi. Opiðkl. 14-18. • Tolli sýnir í Listasafni ASÍ málverk sem eru einfaldari í sniðum en bau sem hann hefur áður fengist við. Áhrif frá austurlöndum eru auðsæ, þetta er dálítið annað en Tolli hefur verið að bardúsa. Opiðkl. 14-19. • Guöbjörg Linda Jónsdóttir er ísfirðingur sem heldur sjöttu einka- sýningu sína í listsalnum Nýhöfn í Hafnarstræti. Þar sýnir hún olíumál- verk. Opiðkl. 14-18. • Fígúra - fígúra er yfirskrift sýning- ar í vestursal Kjarvalsstaða. Þar eiga verk nokkrir helstu myndlistarmenn af yngri kynslóð, Brynhildur Þorgeirs- dóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hulda Hákon, Jón óskar, Kjartan ólason og Svala Sigurleifsdóttir. Myndefnið er fígúran — og fígúrur. í austursal er sýning á teikningum eftir Alfreð Flóka, en í miðsal afstraktverk eftir Ásmund Sveinsson. Opið kl. 10-18. • Bengt Adlers er skánskur lista- maður sem hefur margsinnis komið til íslands og sýnir ,verk í þróun" í Galleríi Sævars Karls. Þetta er eitt verk úr ýms- um hlutum, meðal annars Ijóðum. Opið á verslunartíma. • Káre Tveter er norskur listamaður, í talsverðu uppáhaldi hjá drottningu Noregs, og málar norrænar vetrar- stemmningar, úr kulda og einsemd á Svalbarða. Myndir eftir Tveter voru meðal annars valdar sem framlag Nor- egs á heimssýninguna í Sevilla, en hanga líka uppi í Hafnarborg í Hafnar- firði. Opiðkl. 12-18. • íslensk málverk hanga uppi í Listasafni íslands, úr eigu safnsins. í sölunum á neðri hæð gamla íshússins eru verk eftir frumherja íslenskrar mál- aralistar, á efri hæðinni eru nýrri verk, auk nokkurra verka frá útlöndum. Op- iðkl. 12-18. • Blöðum flett er sýning á breskum bókverkum svokölluðum sem stendur yfir í Listasafni íslands. Þarna eru verk eftir 32 listamenn — þetta eru verk þar sem er lagt út af bókarforminu. Opiðkl. 12-18. • Æskuteikningar Sigurjóns Elstu myndirnar á sýningunni í Safni Sigurjóns Ólafssonar eru frá æskuár- um hans á Eyrarbakka, en flestar frá ár- unum 1924 til 1927 þegar hann stundaði nám í Iðnskólanum. Skemmtileg sýning og svo er alltaf gaman að koma í safnið á fallega staðnum í Laugarnesinu, úti við Sund- in blá. Opiðkl. 14-17. aSýningar • Húsavernd á íslandi Aðalstræti er sorglegt dæmi um þegar menn vilja hvort tveggja halda og sleppa, vernda og rífa. Vissir hlutar Akureyrar eru á hinn bóginn fagurt dæmi um skynsamlega húsavernd. í Bogasal Þjóðminjasafns stendur yfir sýning þar sem er rakin saga húsaverndar á ís- landi. Opiðkl. 11-16. • Vetnistækni er sýnd í anddyri Há- skólabíós og detta bíógestir óvart inn í sýninguna, en aðrir verða að gera sér sérstaka ferð. Sýningin er haldin í sam- ráði við þýsku loft- og geimferðastofn- unina og eru menn bjartsýnir í sam- bandi við hana og telja að ísland fari bráðum að flytja út vetni sem orkugjafa. Frábœr staður fyrir smávaxna og hitaþolna (TALÍA ★ ★ HELSTU KOSTIR: BRAGÐGÓÐIR RÉTTIR ÚR ELDHÚSI, ÁGÆT ÍTÖLSK VlN OG SÓMASAMLEGAR PIZZUR. HELSTU GALLAR: ALLTOF ÞRÖNG- IR BÁSAR, ÓNÓG LOFTRÆSTING OG OF LÖNG BIÐ EFTIR MATNUM. Oi ÍÞrátt fyrir allar pizzer- íurnar og þá staði sem kenna sig við ítalskt eld- hús er ftalía (með stóru f-i) líklega eina veitingahúsið í Reykjavík sem kalla má ítalskt með nokkr- um sanni. Fyrir utan pizzurnar býður ftalía upp á langan matseðil sem sannanlega er ættaður frá ftalíu. Og á leið sinni af seðlinum yfir á disk gestsins tapar maturinn heldur ekki ættemi sínu. Kjötsós- an með spaghettíinu hefur ekki breyst í íslenska kjötkássu eins og vill gerast á öðrum semí-ítölskum stöðum. Og eldamennskan á ftalíu er til fyrirmyndar öðrum veitingastöð- um í milliverðflokki. Fiskurinn er nánast undantekningarlaust rétt eldaður, grænmetið léttsoðið og jafnvel í brösuðustu réttunum nær hvert hráefni að halda bragði sínu. Stærsti gallinn við ftalíu er hins vegar veitingasalurinn. Honum er skipt niður í bása sem eru svo óguðlega þröngir að þeir minna helst á farþegaþotur Flugleiða. Og þar sem þriggja rétta máltíð getur varað álíka lengi og flug ffá Kaup- mannahöfn til Keflavíkur getur það verið álíka raun fyrir fúllvaxið fólk að sitja til borðs á Ítalíu og um borð í einhverri dísinni hjá Flugleiðum. Eini munurinn er sá að gestirnir á Ítalíu geta staðið upp frá borðum og yfirgefið stað- inn án fallhiífar. Ofan á þrengslin bætist að loft- ræstingin á Italíu er mjög bágbor- in. Þegar líður á kvöldið verður því heitt í salnum; stundum mjög heitt. Þetta tvennt, hitinn og þrengslin, skyggir á aðra, annars ágæta, kosti Ítalíu. Það þriðja sem má kvarta yfir er hversu gestir þurfa að bíða lengi eftir mamum. Þetta er baga- legt í hádeginu þegar fæstir vilja verja þremur korterum í að bíða eftir matnum sínum. Og þetta verður óþolandi þegar þjónarnir afsaka staðinn með því að gestirn- ir séu svo margir. Það er ekki sök gestanna heldur veitingamanns- ins. Ef hann annar ekki öllum gestum sem setjast í sætin hans á hann að fækka stólunum. Fyrir utan þetta þrennt er ftalía gott veitingahús. Smávaxnir, hita- þolnir og þolinmóðir ættu til dæmis ekki að geta kvartað und- an neinu. ftalía á auk þess hrós skilið fyrir ágætan vínseðil. Afósjálfráðu taugakerfi litla heilans MAGNÚS KJARTANSSON LISTMUNAHÚSINU Öll verkin á sýningunni eru unnin á pappír á sjö ára tímabili, frá ’82 til ’89. Það þýðir þó ekki að þau séu smá í sniðum eða létt í hugsun. Magn- ús virðist hafa lagst í fornleifa- fræði í leit að frumstæðum kröft- um sem siðmenningin þreytist aldrei á að halda í skefjum og, ef ekkert betur dugar, kviksetja. Það er eins og hann sé að reyna að magna upp hjá sér hugarfar hella- málara steinaldar með galdrastöf- um og hellaristum. Mannslíkam- anum hefur verið þrykkt eða varpað á pappírinn, samanhnipr- uðum eins og liðnu líki, svörtum og fomeskjulegum. Hamsleysið í verkunum sver sig í ætt við „Art Bruf‘-isma Jeaits Dubuffet, sem trúði því að hinn sanna sköpunarkraft væri hvergi lengur að finna nema hjá þeim sem lifa í einangrun á mörkum sturlunar. En það er einnig að finna nokkurn skyldleika við vinnulag Jaspers John og Bobs Rauschenberg. Það er raunar sjaldgæft að sjá listamann skýra svo nákvæmlega frá vinnuaðferð- um sínum eins og Magnús gerir á þessari sýningu. I fjórum sýning- arkössum sýnir hann, og gefur dæmi um, hvernig hann hefur unnið myndirnar með aðferðum sem notaðar voru við upphaf ljós- myndatækninnar. Allar byggjast á því að gera pappírinn ljósnæman með nokkuð frumstæðri efna- fræði. Hann varpar síðan ljósi í gegnum glærur eða ljósmynda- búta á pappírinn sem hefur verið vættur með Ijósnæmum efhum og framkallar jafnframt sterk lit- brigði. Aðferðirnar eru fróðlegar, en sem slíkar aukaatriði. Aft ur á móti falla þær sérkennilega vel að anda myndanna. Ljósgeislarnir sem varpa ímynd líkamans með því að brenna sig inn í yfirborðið og lík- amspartarnir sem er þrykkt á pappírinn mynda gagnkvæm lík- ingatengsl. Farið effir líkamann verður jafn óefniskennt og ímynd- in sem ljósið varpar verður líkam- leg. Ósjálfr átt kemur upp í hugann myndlíking Platóns, þar sem hann líkir þekkingu mannsins á umheiminum og sjálfum sér við skuggaspil á heliisvegg. Hellirinn, völundarhúsið og gröfin eru alda- gamlar líkingar fyrir sálarfylgsnið. Til frekari ábendingar bregður fyrir ljósaperunni, skilningsljós- inu, varla meira en týra í myrkr- inu. Einnig hnífapörum, en eng- um mat, til að minna á hungrið, sem stafar af líkamlegum þörfum jafnt sem óuppfylltum vænting- um. Fomleifauppgröftur Magnús- ar leitar inn á við og staðnæmist ekki fyrr en komið er niður á hið ósjálfráða taugakerfi litla heilans. Sem vonlegt er þá er enga heiilega mynd að hafa úr þeim minjum sem hann finnur, enda er allur greinarmunur milli staðreynda og ímyndunar, hugar og líkama harla brigðull þegar horff er inn á við. Sýningin í heild sinni er áleitin og þótt verkin séu misjöfn eru sum þeirra með því sterkasta sem ég man eftir að hafa séð frá hendi Magnúsar. Síðustu myndirnar eru frá ’89, það þýðir vonandi ekki að hann hafi horfið frá þessari mynd- könnun sinni. Gunnar J. Ámason Kórrétt en steinrunnið ERIK FOSNES HANSEN: SÁLMUR AÐ LEIÐARLOKUM MÁLOGMENNING 1992 ★ lörlagasaga þeirra hljóð- ‘færaleikara sem léku lundir dansi um borð í Titanic meðan skipið sökk ætti að bjóða upp á margvíslega og glæsi- lega túlkunarmöguleika. Það má býsna lengi daðra við þá hug- mynd hvað núlifandi bókmennta- risar á borð við Milan Kundera og John Fowles hefðu spunnið úr slíku efni. En það voru ekki þeir sem sóttu þangað sögu heldur kornungur Norðmaður, Erik Fos- nes Hansen, og eftir þessa bók mun hann vera helsta ungstimið í bókmenntaheimi Noregs. Það er eins og Fosnes telji sig vera að vinna verkefni sem lagt verði fyrir strangan akademískan prófdómara er fetta muni fingur út í minnstu smáatriði. Fosnes vinnur verk sitt samviskusamlega, tekur enga áhættu heldur kýs að segja sögu sína af mikilli ná- kvæmni, togar efnið og teygir, dekrar við umhverfislýsingar, staldrar við minnstu smáatriði. Frásögnin er því afar hæg og svo Hann er lœrður og hátíðlegur, mál- frœðilega kórréttur en steinrunninn. Textinn hefur verið pússaður svo vand- lega að allt lífhefur um leið nuddast af honum. KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR langdregin að löngu fyrir miðja bók geristþað sem síst skyldi: Les- andinn óskar þess að Titanic taki að sökkva. Fosnes skrifar mjög vandað rit- mái af sömu tegund og Ólafúr Jó- hann Ólafsson hefúr getið sér orð fyrir. Stíll beggja er ekki ósvipaður því málfari sem miðaldra karl- menn bregða fyrir sig í tækifæris- ræðum. Hann er lærður og hátíð- legur, málfræðilega kórréttur en steinrunninn. Textinn hefúr verið pússaður svo vandlega að allt líf hefúr um leið nuddast af honum. Persónusköpun mistekst af sömu ástæðu. Persónur tala offast nær eins og þær hafi nýsloppið úr Sýningin í heild sinni er áleitin og þótt verkin séu mis- jöfn eru sum þeirra með því sterkasta sem ég man eftir að hafa séðfrá hendi Magnúsar GUNNAR J. ÁRNASON

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.