Pressan


Pressan - 01.10.1992, Qupperneq 38

Pressan - 01.10.1992, Qupperneq 38
ÞORGEIR LJÓSVETni 38. tbl 3. árgangur GULA PRESSAN Fimmtudagur l.október Nemendur 10 ára bekkjar í Álftamýrarskóla ÓSKfl EFTIR SKILNADI VIB KENNARA SINN segja kennarann óbærilega leiðinlegan og óskýrmæltan og að hann geri alltofmiklar kröfur um námsárangur. Páll Kristjánsson, kennari við Álftamýrar- skóla, mun þurfa að svara ásökunum nem- enda sinna fyrir rétti. Nemendurnir vilja fá Olgu Ragnarsdóttur aftur, en hún kenndi bekknum í sex ára bekk. Olga kenndi eitt- hvað sem hægt var að læra, - segir Gylfi Friðriksson, talsmaður barnanna. Friðrik Sophusson LÉT RÍKISSJÓB KAUPA HflPPfl- ÞREIUNUR FYRIR 2 MILLJARÐA Fékk 750 milljónir I vinn- ing og tapaði því rúmlega 1,2 milljörðum. Af750 milljónunum fóru um 130 milljónirí aukavinnu starfsmanna fjármála- ráðuneytisins við að skafa afmiðunum. „Maðurinn er galinn," segir Ólafur Ragnar Grímsson. Ég skil ekki þessa gagnrýni Ólafs, - segirFriðrik Sop- husson. Hefði Ól- afur gagnrýnt þessa tilraun til að rétta ríkissjóð við ef ég hefði unnið 3 milljarða á happaþrennurn- ar? HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR Teljum að ríkisstjórnin hafi annaðhvort sett einhvern óþverra ímatinn í kaffistofunni eða komið honum fyrirístólum þingmanna stjórnarandstöðunnar, - segir Ólafur Ragnar Grímsson. Hann segir grun sinn hafa vaknað þegar hann áttaði sig á því að hann var kominn með tveggja ára gamla skoðun sjálfstæðismanna á EES-samningnum. Henni hefur verið piantað í mig, - segir Ólafur. Stjórnarandstaðan hefur ákveðið að mæta ísérstökum búningum til varnar eiturefnum þegarþing kemur saman eftir helgi. Á myndinni eru þau ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kvennalista, Ólafur Ragnar Grímsson Alþýðubandalagi og Steingrímur Her- mannsson Framsóknarflokki. Reykjavík, 1. október. „Um tíma var ég búinn að missa allan áhuga á pólitík. Það var sama hvað var að ger- ast hér í þinginu; mér fannst það ekki koma mér við. Nú sé ég að það var vegna eiturefna- áhrifa sem áhuginn hvarf. Eftir að ég fór að ganga í búningn- inn hef ég afitur fengið brenn- andi áhuga,“ segir Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokks, en hann hefur ásamt öðrum forystu- mönnum stjórnarandstöð- unnar sakað ríkisstjórnar- flokkana um eitureftiahemað á Alþingi. „Það sér hver sem vill að það getur ekki verið eðlilegt að enginn stjórnarandstöðuflokkanna stækki samkvæmt skoðanakönn- unum á sama tíma og ríkisstjóm- in nýtur takmarkaðra vinsælda. Astæðuna teljum við að megi rekja til málflutnings stjómarand- stöðunnar, sem hefur verið hálf- lömuð vegna eiturefnaáhrifa," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingkona Kvennalista. Olafur Ragnar Grímsson tekur í sama streng. „Ég áttaði mig allt í einu á að ég hefði algjörlega skipt um skoðun í EES-málinu og var kominn á sömu skoðun og Sjálfstæðisflokk- urinn fyrir meira en tveimur ár- um. Það sér hver maður að getur ekki verið eðlilegt," segir Ólafur Ragnar. Hvorki Davíð Oddsson, for- maður Sjálfstæðisflokks, né Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokks, vildu tjá sig um þessar alvarlegu ásakanir. Davíð sagði þó að ef hann gæti stjómað hugsunum þingmanna með eitur- efnum mundi hann fýrst beita þeim á vissa þingmenn Sjálfstæð- isflokksins áður en hann úðaði þeim á stjómarandstöðuna. „Þessar ásakanir stjórnarand- stöðunnar eru óábyrgar, eins og allt sem kemur frá þeim bæ,“ sagði Davíð. IIM VII IV V VI VILL AÐ ÍS- LAI\ID SAM- ÞYKKIEES kom fram á miðils- fundi Sálarrann- sóknafélagsins Birgir Hjaltason sálfræðingur KENNIR KRINGUM AU HALUA MEU ÖURUM ÍÞRÓTTA FÉLÖGUM Mikil ásókn er í námskeiðin þar sem margir KR-ingar eru orðnir langeygir eftir titli, en félagið hefur ekki unnið mót síðan 1968. Flestir sem sótt hafa um á nám- skeiðinu vilja læra að halda með Fram, - segir Birgir Hjalta- son. Menntamálaráðuneytið TliniGUMÁLANÁM í GRUNNSKDLUM BOÐIÐ ÚT Á ALÞJÓDLEGUM MARKADI Höfum þegarfengið fyrirspurn frá Spánverjum og Tætend- ingum sem bjóðast til að borga tvöfaltþað verð sem kennslan kostar, - segir Ólafur G. Einarsson menntamála- ráöherra. Hann segirþað fáránlegtaö kenna erlend tungumál án þess að viö- komandi þjóðir borgi brúsann. Þótt Danir hafi vissulega styrkt dönskukennslu I grunnskólum er sá styrkur tittlingaskitur miðað við það sem aðrar þjóðir eru tilbúnar að borga, - segir Ólafur G. Einarsson. Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri Útflutningsráðs / / / FRAMMISTABAN A OLYMPIU- LEIKUM ÞROSKAHEFTRA ER Ég heforðið var við að útlending- ar hafa misst álit á íslensku þjóð- inni. Þeir telja greindarvísitölu ís- lendinga almennt lága úrþvíað 260 þúsund manna þjóð hreppti næstflesta verðlaunapeninga á leikunum. Menn í útlöndum hafa tekið mér á annan hátt eftir Ólympíuleikana, - segir Ingjaldur Hannibalsson. 68 55

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.