Pressan - 10.12.1992, Side 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. DESEMBER 1992
7
F Y R S T
&
F R E M S T
M E N N
O
Davíð Ósvaldsson útfararstjóri
Útfararstjórinn sem
jarðaði Þjóðkirkjuna
Þjóðkirkjan er í vondum mál-
um. Verslunarráð hefur skammað
hana. Verðlagsstofnun hefur
skammað hana. Og kirkjumála-
ráðuneytið hefur meira að segja
skammað hana. Allt út af því að
Kirkjugarðar Reykjavíkur, sem
eru nokkurs konar dótturfyrirtæki
Þjóðkirkjunnar, hafa sullað saman
sköttum og þjónustugjöldum.
Forráðamenn kirkjugarðanna
hafa með öðrum orðum látið þá
sem ekki eru dauðir borga jarðar-
farirnar fyrir þá dauðu.
Ástæðan fyrir því að Verslunar-
ráð, verðlagsstofnun og kirkju-
málaráðuneytið eru að skipta sér
af þessu heitir Davíð og er Ós-
valdsson. Trúr nafni sínu hefur
hann valið sér það sem lífsstarf að
fara í samkeppni við Þjóðkirkjuna
um útfararþjónustu. Hann er
Davíð og Þjóðkirkjan er Golíat. Og
eins og við er að búast er hann
hetian en Golíat vondi maðurinn.
Þetta stríð Davíðs og Þjóðkirkj-
unnar hefur verið háð á mörgum
vígstöðvum. í síðustu Heims-
mynd má til dæmis lesa viðtal við
biskupinn yfir Islandi, Ólaf Skúla-
son, þar sem hann kvartar yfir
rógburði sem hafi sært hann.
Hann segir að upptökin megi
rekja til Davíðs og að hann hafi
meira að segja kallað hann fyrir og
beðið hann að hætta þessu. f nýj-
asta Mannlífi má síðan lesa viðtal
við Davíð þar sem hann kvartar
undan rógburði. Hann segir sorg-
legt til þess að vita að klerkar
Þjóðkirkjunnar hafi meira að
segja tekið þátt í þeim leik.
Eins og sjá má af þessu er stríð-
ið um hina dauðu síður en svo
líflaust. I því bregða menn jafnt
fyrir sig samkeppnislögum, ráðu-
neytum, rógi og illmælum.
Og fyrst Verslunarráð, verð-
„Stríðið um hina dauðu er síðuren svo
líflaust. Íþví bregða menn jafntfyrir sig
samkeppnislögum, ráðuneytum, rógi og
illmœlum. “
lagsráð og kirkjumálaráðuneyti
hafa skipað sér í flokk með Davíð
getur fátt bjargað Þjóðkirkjunni.
Varla Drottinn allsherjar sjálfur.
Hann er þekktur fyrir að vilja ekki
skipta sér af sköttum og þjónustu-
gjöldum.
Og kannski er það lærdómur-
inn sem Þjóðkirkjan ætti að draga
af orrustunni við Davíð. Að hún
ætti ekki að skipta sér of mikið af
sköttum, þjónustugjöldum og
Á L I T
peningum almennt. Þjóðkirkjan
hefur reynt að reka bókaútgáfu,
jarðarfararþjónustu, skóla og guð
má vita hvað og allt hefur það far-.
ið fremur illa.
Það sem Davíð meinar er að
kirkjan skuli sjá um sálina en
hann um skrokkinn. Og einhvern
tímann fyrr á öldum þótti það
ágætur boðskapur.
Ts
Mannréttindadagurinn er í dag
MANNRÉTTINDADÓM-
STÓLLINN fSLENSKUM
FÓTUM TROÐINN
f dag er Mannréttindadagurinn
og eins og allir vita er allt mann-
réttindi á íslandi; mannsæmandi
laun, menntun óháð efnahag,
áhyggjulaust ævikvöld og svo
framvegis. Úti í löndum hafa
menn meiri áhyggjur af pynting-
um, fangelsun án dóms og laga og
þvíumlíku, en það er önnur saga.
Þessa dagana eru menn farnir
að æpa „Mannréttindadómstóll
Evrópu“ í öðru hverju dómsmáli.
Meira að segja eru forhertustu
fíkniefnabarónar forsöngvarar í
kórnum. Mál Steins Ármanns
Stefánssonar, Stóra-kókaínsmál-
ið, fer kannski á Saga Class til Evr-
ópu. Gott ef málningarfötu-hass-
málið þeirra Stefáns Einarssonar
og Hallgríms Mássonar gæti ekki
verið við þröskuldinn. Það skiptir
litlu þótt viðkomandi kunni að
hafa flutt inn ógrynnin öll af fíkni-
efnum; á þeim voru mannréttindi
fótum troðin því þeir fengu ekki
réttláta dómsmeðferð, „Fair Tri-
al“. Og fleiri mál eru í uppsiglingu.
Til að mynda forræðismál Sophiu
Hansen svo eitthvað sé neíht.
Mannréttindabarátta íslend-
inga hófst með tveimur málum á
áttunda áratugnum. Annars vegar
kærði hundeigandi til Evrópu-
dómstólsins í mannréttindamál-
um hundabannið. Það þótti í hans
augum mikilsverð mannréttindi
að fá að hafa hund. Hins vegar var
álagning stóreignaskatts kærð, á
þeirri forsendu að slík skattlagn-
ing væri mannréttindabrot. Hvor-
ugt þessara mála komst í gegnum
þá þéttu síu sem fólgin er í sér-
stakri nefnd sem ákveður hvort
Steinn Ármann: Kókaín hvað?
Málið snýst um mannréttindi.
mál eigi heima fyrir dómstólnum.
Lögfræðingur nokkur, sem sótti
mannréttindanámskeið í London,
sagði að kenriarinn sinn hefði
borið saman hin ólíku mál sem
upp hefðu komið. Annars vegar
væru stóru mannréttindamálin,
pyntingar og svoleiðisnokk, og
hins vegar væru það málin frá ís-
landi; Jón Jónsson fær ekki að
hafa hund. En svo komu stóru
kanónurnar. ]ón Kristjánsson var
tekinn fyrir minniháttar umferð-
arlagabrot og var meira að segja
sýknaður, en Eiríkur Tómasson
lögmaður hans vildi ganga lengra.
Þeir bentu á að sami aðilinn hefði
handtekið Jón, yfirheyrt og rann-
sakað, ákært og sett sig í dómara-
stellingar. Eiríkur og Jón komu
málinu alla leið. Á íslandi blánaði
kerfið og bliknaði. I málinu sjálfú
Stefán Einarsson: Hvaða hass?
Málið snýst um mannréttindi.
var síðan samið, en ísland varð að
gjörasvovel að umturna öllu sínu
réttarkerfi.
Svo var það Þorgeir Þorgeirs-
son rithöfúndur, sem leyfði sér þá
ósvinnu að móðga lögguna. Hér á
landi var hann að sjálfsögðu
dæmdur fyrir slíkt atferli. En Þor-
geir gafst ekki upp, komst í gegn-
um síuna og vann mál sitt í Evr-
ópu. Það eru mannréttindi að fá
að úthúða löggunni.
Nú bíða margir eftir máli leigu-
bílstjórans sem vill ekki vera í
Frama. Málið er kornið í gegnum
síuna, en bíður meðtöku hjá dóm-
stólnum. Hér á landi nötrar allt og
skelfur í stéttarfélögunum, því
málið snýst um hvort menn eigi
að vera skyldugir til að vera í
þeim. Heiður félaganna — og
peningauppspretta — er í veði.
Þorgeir Þorgeirsson: Mannrétt-
indi að móðga lögguna.
Sophia Hansen: Tyrkjaránið er
mannréttindamál.
Hundabannið var kært sem
mannréttindabrot en Mannrétt-
indanefndin hafnaði málinu.
Hækkun meðlags og lækkun mæðralauna
Jóhanna
Kristjónsdótt-
ir blaðamaður
Ingibjörg Sól-
rún Gísladótt-
ir, þingkona
Lára V. Júlíus-
dóttir, lög-
fræðingur ASI
„Meðlag hefði átt að hækka í
18 þúsund svo nálgaðist að fram-
færslubyrði foreldra yrði jöfnuð.
Þetta er spor í rétta átt. Það er
ekki stórmál þótt mæðralaunin
með einu barni séu felld niður,
þau voru hvort sem er skattlögð.
Aftur á móti er lækkun með
tveimur og þremur börnum of
mikil af því meðlagið hækkar svo
lítið. Barnabótamálið er svo ann-
ar kapítuli og ekki par góður.
Ennfremur finnst mér til hábor-
innar skammar að hvorki hefur
heyrst hósti né stuna frá Félagi
einstæðra foreidra um málið.“
„Ég er í sjálfu sér ekki andvíg
þeirri meginhugmynd að ríkið
hætti áð niðurgreiða meðlög með
sérstökum mæðra- eða feðra-
launum. Hins vegar er ég mjög
andvíg því að þær 500 milljónir
króna sem ríkið sparar með þess-
um hætti séu ekki nýttar í þágu
barna. Þessa peninga hefði að
sjálfsögðu átt að nota til að hækka
tekjutengdan barnabótaauka og
létta þannig undir með tekjulágu
barnafólki. Tekjulágir fjölskyldu-
menn í hópi meðlagsgreiðenda
hefðu notið góðs af slíkri hækkun
tiljafhsviðaðra.“
„Velferð barnanna er fyrir
inestu. Það, hversu lágar með-
lagsgreiðslur hafa verið, var pólit-
ísk ákvörðun stjórnmálamann-
anna til að létta undir með feðr-
um. Mér finnst allt í lagi að þeir
taki þátt í framfærslunni en það
hefur alltaf verið ljóst að hún er
mun dýrari en sem nemur tvö-
földu meðlagi. Þó tel ég rétt að
geta þess að taka verður tillit til
þeirra einstaklinga sem eiga mörg
börn eða eru tekjulágir. Stjórn-
vöid eiga að leita annarra leiða til
að koma þeim til hjálpar.
Þótt ég sé sátt við að meðlags-
greiðslur hækki er það hið mesta
öfugmæli að sú hækkun skuli
ekki eiga að koma börnum ein-
stæðra foreldra til góða, heldur sé
þetta aðgerð sem eigi að spara
ríkissjóði útgjöld og mæðra- og
feðralaun skuli eiga að lækka á
móti. Ég hefði talið að einstæðum
foreldrum veitti svo sannarlega
ekki af viðbótargreiðslum til
framfærslu barna sinna. “
Guðni Níels Aðalsteinss.,
hagfr. ASÍ
kostnað frá ríkinu yfir á einstak-
lingana. Ég fagna þeirri breyt-
ingu, því það er ekki í verkahring
ríkisvaldsins að greiða fyrir upp-
eldi barna fullfrískra manna. Eg
er hins vegar ekki hlynntur því að
tekjutengja mæðralaunin, sem
þegar eru skattlögð. Að tengja sí-
fellt fleiri bótaflokka tekjum, eins
og gert er nú með barna- og
vaxtabætur, er í rauninni ekkert
annað en dulbúinn hátekjuskatt-
ur. Skattkerfi eiga að vera einföld
þannig að almenningur geti gert
sér grein fyrir hvað stór hluti af
tekjum hans rennur til ríkisins."
Hér er ekki
verið að gera annað en að færa