Pressan - 10.12.1992, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. DESEMBER 1992
25
í Þ R Ó
T T I R
Verðlisti íslenskror knattspyrnu
FRAM KOSTAR JAFNMIKH) OG
TVEGGJA HERBERGJA ÍBÚD
Nýverið gaf KSI út lista yfir þá
leikmenn sem hafa gert samninga
við félög sín. Eru leikmenn metnir
í fimm flokka og verðmæti þeirra
fundið út samkvæmt ákveðnum
stuðlum. Þeir sem gefinn er stuð-
ullinn 10 eru 500 þúsund króna
virði, þ.e.a.s. ef þeir skipta um fé-
lag verður nýja félagið að greiða
því gamla þá upphæð. Ef litið er á
félagsliðýi í heild sést að Fram
hefur á að skipa dýrasta liðinu. Ef
öllum leikmönnum dytti í hug að
skipta um félag yrðu nýju félögin
að greiða Fram 4,1 milljón króna,
eða sem nemur andvirði lítillar
tveggja herbergja íbúðar. Flest lið í
annarri og þriðju deild eru ómet-
in, sem þýðir að allir leikmenn
liðsins geta skipt yfir í önnur félög
án nokkurra útgjalda fyrir nýju fé-
lögin. Athygli vekur að Grindavík
hefur gert samninga við flesta
leikmenn sína og er verðmæti
Pétur Arnþórsson og Kristján Jónsson: Dýrustu leikmennirnir í dýr-
asta liðinu.
þeirra, samkvæmt útreikningum
KSI, orðið 1,55 milljónir króna.
LEIKREYNSLAN EINSKIS
VIRÐI?
Það vekur athygli að þeir leik-
menn sem náð hafa 32 ára aldri
eru einskis virði að mati KSI.
Leikmennirnir Guðmundur
Steinsson, Sveinbjörn Hákonar-
son og Ómar Jóhannsson eru ein-
ungis með stuðulinn einn og því
Rúnar Kristinsson: Dýrasti leik-
maður KR. Spilar hann hér
næsta sumar eða verður hann
atvinnumaður i Hollandi?
50 þúsund króna virði. Leikmenn
eins og Atli Eðvaldsson, Sævar
Jónsson og Pétur Ormslev eru svo
ekki einu sinni á listanum og því
fengju félagslið þeirra ekkert fýrir
þá ef þeir kysu að skipta um félag.
Þá eru útlendingarnir í deildinni
ýmist einskis virði eða með stuð-
ulinn einn. Luka Kostic, sem kos-
inn var leikmaður ársins í fyrra, er
til dæmis ekki með neinn stuðul.
ArnarGrétarsson: Dýrasti ung-
lingurinn.
4m
Fram
KR
FH
Þór
ÍA
Víkingur
ÍBV
UBK
KA
Valur
Crindavík
Stjarnan
Leiftur
Selfoss (•)
Haukar f)
Grótta f)
Á meðfylgjandi línuriti sést verðmæti dýrustu liðanna í íslensku
knattspyrnunni. Þess má geta að hvorki Fylkir né Keflavík, sem
komu upp í fyrstu deild, eru þar á meðal.
LEEDS l
KREPPU
ARNÚR TIL
GRINDA-
VÍKUR?
Grindvíkingar eru nú að
gæla við að fá knatt-
spyrnumanninn Arnór
Guðjohnsen til liðs við
sig. Eftir því sem komist
verður næst er rætt um
að hann taki að sér þjálf-
un jafnframt því að leika
með liðinu. Þarna eru
Grindvíkingar að hugsa
til framtíðarinnar, því
þeir hafa mestan hug á
þriggja ára samningi. Á
sama tíma er hætta á að
þeir missi Þórð Birgi
Bogason aftur til Vals, en
Valsmenn hafa hug á að
fá þennan sterka mið-
vallarleikmann heim.
Körfubolti
Keflavíkurliðið hefur átt hvern
stórleikinn á fætur öðrurn og unn-
ið tólf fyrstu leikina í deildinni.
Liðið varð Islandsmeistari í fyrra
og allar líkur benda til þess að fé-
lagið muni verja titilinn. Jón Kr.
Gíslason landsliðsmaður er þjálf-
ari Keflvíkinga auk þess sem hann
leikur með liðinu.
Hverju■ þakkar þú þennan
: góða árangur liðsinsjón?
„Þetta er fyrst og fremst samæf-
ingu liðsins að þakka. Við erurn
líka með sama hóp og í fý'rra og
svo er mikill metnaður hjá okkur
Gordon Strachan: Lykilmaður
liðsins hefur ekki náð sér á strik
á þessu keppnistímabili.
og öllum aðstandendum félags-
ins.“ Jón Kr. benti einnig á að
vegna velgengninnar hefði leik-
mönnunum aukist sjálfstraust og
slíkt væri ekki veigalítið.
Aðspurður hvort Jón gleymdi
ekki sínum hiut — hvort hann
væri eldd svona góður þjálfari —
svaraði hann því til að allt ynni
það saman; liðið væri reynt og
hann væri ekki að kenna neinum
grundvallaratriði 1 íþróttinni.
Hans væri að stilla saman streng-
ina og hingað til hefði það tekist
vel.
Yfirstandandi keppnistímabil
hefur verið Leeds-áhangendum
erfitt. Eftir átján umferðir er liðið í
fimmtánda sæti deildarinnar en á
sama tíma í fyrra trónaði það á
toppnum. Hvað veldur? Knatt-
spymufræðingar hafa skýringar á
reiðum höndum.
Líkt og öðrum liðum, sem orð-
ið hafa Englandsmeistarar, hefur
Leeds reynst erfitt að standa undir
því að vera meistarinn frá í fýrra.
Miklar væntingar voru gerðar til
Erics Cantona fyrir þetta keppn-
istímabil og eftir góða byrjun
skoraði hann ekki mark í þrjá
mánuði áður en hann var seldur
til Manchester United. Mikið
hafði verið lagt upp úr því að stilla
samar. strengi Cantona og Lees
Chapman, en útkoman varð sú
Jón Kr. Gíslason: „Mitt að stilla
strengina."
SIGURGANGA
KEFLVÍKINGA
Eric Cantona hætti að skora og var seldur.
að varnarmenn annarra liða áttu
auðvelt með að sjá út leik þeirra.
John Lukic, markvörður Leeds,
þurffi aðeins að hirða knöttinn úr
netinu 37 sinnum á síðasta
keppnistímabili (bikarleikir með-
taldir), en nú, þegar tímabilið er
ekki hálfnað, hefur liðið fengið á
sig yfir 40 mörk. Á þessu sést að
vöm Leeds er eins og gatasigti og
er þar helst um að kenna ósann-
færandi leik miðherjanna, þeirra
Chris Whyte og Chris Fairclough.
Sóknarmenn liðsins hafa hins
vegar verið iðnir við kolann og
skorað álíka mörg mörk nú og á
sama tíma í fyrra.
Þá hafa meiðsli hrjáð liðið.
Mel Sterland hefur verið meiddur
og John Lukic, sem lék 210 leiki í
röð í fyrstu deildinni, hefur átt við
innvortis blæðingar að stríða eftir
að hann lenti í samstuði við annan
leikmann. Gordott Strachan varð
að leggjast undir hnífinn og hefur
ekki náð sér sem skyldi, en Leeds
hefur átt sína bestu leiki þegar
Strachan hefur komið inn á sem
varamaður. Liðið hefur nú verið
slegið út úr öllurn bikarkeppnum.
Víst er að stórleikirnir þrír við
þýsku meistarana í Stuttgart í Evr-
ópukeppninni reyndu mjög á
krafta leikmanna og nú virðist
sem allir möguleikar til stórra af-
reka á keppnistímabilinu séu úr
sögunni. Héðan af geta Leedsarar
lítið annað gert en beðið eftir
næsta tímabili og vonað að Eyjólf-
ur hressist.
Um helgina
lll,'l»,'lHll.t:HI»:l
HANDBOLTI1. DEILD KARLA
ÍR-Fram. Frammarar eru á upp-
leiðog Atli Hilmarsson er afturfar-
inn að spila með þeim. iR-ingar
eru hins vegar með sterkt lið og
líklegri til að sigra.
Þór Ak.-Víkingur. Þórsarar
verða að taka sig saman í andlit-
inu eftir tapið gegn Fram ef þeir
aetla að sigra Víkinga.
HK-Stjarnan. HK-menn þjálfara-
lausir gegn sterku liði Sjörnunnar.
Sclfoss-KA. Þetta verður hörku-
leikur þar sem hvergi verður gefið
eftir. Selfoss er með valinn mann í
hverju rúmi, en KA á mikilli upp-
leið.
Allir leikirnir í þessari 13. umferð
deildarinnar fara fram klukkan
20.00.
KÖRFUBOLTI BIKARKEPPN-
IN - ÁTTA LIÐA ÚRSLIT
KVENNA
Grindavík-Snœfell kl. /0.CC
iw.m'jnr.iiMJL
KÖRFUBOLTI 1. DEILD
KVENNA
Grindavík-Njarðvík Nágranna-
slagur þar sem Grindavikurstúlk-
urnar eru sigurstranglegri, enda
hafa Njarðvíkurstúlkurnar ekki
ennþá unnið leik.
KÖRFUBOLTI BIKARKEPPN-
IN - ÁTTA LIÐA ÚRSLIT
KARLA
Skallagrímur-KR. í deildinni eru
þessi lið á svipuðum slóðum og
því allt útlit fyrir jafnan slag.
Snœfell-Valur. Tvö efstu liðin i
sínum riðli eigast hér við í bikar-
leik. Búast má við jafnri og fjörugri
viðureign tveggja góðra liða.
Breiðablik-Keflavík. Ekki lítur
þessi leikur gæfulega út fyrir Blika.
Keflvíkingar eiga tvímælalaust
besta körfuboltalið landsins og
þarf að koma til kraftaverk hjá Blik-
um ætli þeir að sigra. Ekki má þó
gleyma því að í íþróttum getur
allt qerst og enginn leikur er unn-
inn fyrirfram.
Tindastóll-Njarðvík. Hér verður
líklega enn einn hörkuleikurinn í
þessum átta liða bikarúrslitum.
Flestum er kunnugt um hina
brjálæðislegu stemmningu sem
myndast á deildarleikjum í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Hvernig verður þá stemmningin í
þessum bikarslag?
KÖRFUBOLTI - ÁTTA LIÐA
ÚRSLIT KVENNA
Tindastóll-Keflavíkkl. 17.00