Pressan - 10.12.1992, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. DESEMBER 1992
35
Athugasemd
frá Wilhelm
Wessman
Wilhelm Wessman, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Gildis hf., hefur sent blað-
inu eftirfarandi athugasemd vegna þess
sem fram kom um gjaldþrot Gildis í frétt
blaðsins í síðustu viku um gjaldþrot í veit-
ingabransanum.
„í fyrsta lagi er ekki rétt farið með tölu-
legar upplýsingar. Heildarkröfufjárhæð er
ekki framreiknuð með sama hætti og það
sem greiddist upp í kröfur. Forgangskröf-
ur í þrotabú Gildis voru 23,8 m.kr. sem
greiddust að mestu eða 23,3 m.kr.
Þar sem ljóst var að ekkert greiddist
upp í lýstar almennar kröfur að fjárhæð
77,6 m.kr. var ekki tekin afstaða til þeirra.
Krafa frá einum lífeyrissjóði var þó tvítal-
in og krafa frá Hótel Sögu upp á hátt á
þriðja tug milljóna var ekki á rökum reist.
Eiginlegt gjaldþrot var því nær 45 m.kr.,
vissulega há fjárhæð en þó tæplega mán-
aðarvelta Gildis á þeim tíma svo hlutum
sé lýst í samhengi. Sárgrætijegast þó er að
ef lífdagar Gildis hefðu orðið þremur til
fjórum mánuðum lengri hefði væntanlega
enginn þurft að bera fjárhagslegan skaða
af - - en það er önnur saga.
Aivarlegra er þó að í greininni er rangt
farið með þar sem segir: „Á meðan inn-
heimtumaður ríkissjóðs beið á ganginum
skaut stjórn Gildis á skyndifúndi og stofn-
aði nýtt hlutafélag."
Við stofnuðum ekkert nýtt félag. Það
sem gerðist var að síðla föstudagsins 17.
mars 1989 átti að loka allri starfsemi Hót-
els Sögu vegna vangoldins söluskatts
Gildis af rekstri veitingasala. (Var um að
ræða þriggja vikna gamla skuld og í fýrsta
sinn í sögu Gildis sem söluskattur var ekki
greiddur á gjalddaga.) Tók framkvæmda-
stjóri og lögmaður Bændahallarinnar þá
þann kost að rifta samningi við Gildi og
yfirtaka þá þegar veitingastarfsemina.
Höfðu þeir fulla heimild til þess skv.
ákvæðum leigusamnings við Gildi hf. Ég
átti síðan engan þátt í áframhaldandi veit-
ingarekstri á Hótel Sögu og lauk starfsferli
mínum þar að kvöldi þessa sama dags.
Wilhelm Wessman, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Gildis hf.“
Athugasemd ritstj.
Varðandi kröfur í þrotabú Gildis kom
skýrt fram á sérstökum lista með grein-
inni að 23 prósent hefðu greiðst upp í
heildarkröfur. Það er ekki lök útkoma í
samanburði við flest hinna þrotabúanna.
Ekki verður útkoman lakari ef krafa Hót-
els Sögu var ekki á rökum reist, en það er
ekki í verkahring blaðsins að úrskurða
þar um.
Varðandi fullyrðinguna um inn-
heimtumann rfkissjóðs og stofnun nýs
hlutafélags virðist ljóst, að þar var ekki
farið rétt með. Er Wilhelm beðinn vel-
virðingaráþví.
ritstj.
Leiðrétting
I síðasta blaði birti PRESSAN fréttak-
Iausu þar sem fram kom að Lára V. Júlí-
usdóttir hefði ráðið Birnu Hreiðarsdóttur
sem framkvæmdastjóra Nordisk Forum
af íslands hálfu. Verkefnisstjóm Nordisk
Forum hefur aðstöðu í húsnæði Jafnrétt-
isráðs, þar sem Lára er formaður og Bima
framkvæmdastjóri í afleysingum, auk
þess sem verkefnisstjórnin hefur aðgang
að starfsmanni ráðsins og gögnum. Engin
formleg tengsl eru þarna á milli, þótt hús-
næðið sé hið sama og Birna komi bráð-
lega til með að fara í annað herbergi þar
innan. Það er verkefnisstjórnin undir for-
ystu Valgerðar Gunnarsdóttur varaþing-
manns, en ekki Jafnréttisráð, sem ákveðið
hefur að ráða Birnu, án auglýsingar, í
stöðu ritara/starfsmanns verkefnisstjóm-
arinnar. Em hlutaðeigandi beðnir velvirð-
ingar á þessum misskilningi.
ritstj.
POTTÞETT
HELGflRTILBOÐ
Súpa, salatbar og desertbar
fylgja öllum réttum.
Barnaréttir kr. 99.-
í fylgd með fullorðnum
Lambalæri Bernaise kr.1390.-
POTTURINNj
OG —
PRNtí
POTTURINN & PANNAN
BRAUTARHOLTI 22 SÍM111690
V^JTINGASTAÐUR
FJOLSKYLDUNNAR
Gfæsiíegur
3ja rétta
kvöldverður
Verð kr. 1.890-
Einnig bjóðum við
uppá nýjan og
glæsilegan matseðil á
verði sem öllum líkar.
L
Hádeýiswrðarttfíioð
alla virka daga
Súpa og brauð fylgir.
Hamborgari, franskar og kokteilsósa
kr. 485,-
Samloka, franskar og kokteilsósa kr.
485,-
Tex-Mex réttur kr. 485,-
Salatdiskur kr. 485,-
Réttur dagsins kr. 585,-
Kaffi kr. 50,-
Atfv'öru. gtesi/lafct(f6oð
Alla daga vikunnar
Nauta-, lamba, og grísarsteikur 180
gr. með grænu káli og 1000-eyjasósa,
kryddsmjöri, bökuðum og frönskum
kartöflum. Verð kr. 790,-
Tryggvagötu 20
s: 623456
J
„m
PIZZAHÚSID
takt' ana heim!
FRlAR HEIMSENDINQAR ALLAN
SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR
PÓNTUNARSlMI:
679333
PIZZAHÚSIÐ
Grensásvegi 10
- þjónar þér allan aólarhringinn
HAFNARSTRÆTI15
REYKJAVÍKSÍMI13340
35 réttajólahlaðborð í
hádeginu og á kvöldin
Veitingastaðurþar sem hjartað slzr SkólabrÚ VÍð Austurvöll
sími 62 4455