Pressan - 10.12.1992, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. DESEMBER 1992
23
VORU VÍKIN6ARNIR VÍúALEOU, ÞESSIR SEM HJUOGU MENN í HERÐ-
AR NIÐUR, EFTIL VILL EKKI NEMA EITT FETÁ HÆÐ? KANN AÐ VERA
AÐ 6RETTIR ÁSMUNDARSON HAFI EKKI EINU SINNI STAÐIÐ ÚT ÚR
HNEFA? HOMO ISLANDICUS HEFURVERIÐ AÐ BREYTASTTÖLUVERT
Á ÞESSARI ÖLD Oú REYNDAR T06NAD SVO MIKID ÚR HONUM AÐ
FORNMENNIRNIR KYNNU AD HRÖKKVA í KÚT.
I5LANDICUS
flóru. í rúm sjötíu ár hafa ís-
lenskir karlmenn leitað til
Guðsteins eftir fatnaði og ef
einhvers staðar hefur verið
hægt að greina breytingar á
vaxtarlagi Islendinga, þá
einmitt þar. Eyjólfur Guð-
steinsson verslunareigandi
segir greinilega hafa tognað
úr íslenskum karlmönnum
frá stríðslokum, eftir að fólk
fórað borða meiri og betri
mat. „Karlmenn hafa án
nokkurs vafa stækkað mikið
síðustu áratugina, ekki síst á
þverveginn. í samræmi við
það höfum við þurft að
panta inn æ stærri fatanúm-
er; lengri þuxur, breiðari
buxnastrengi, stærri jakka,
peysur og skyrtur og síðast
en ekki síst víðari hálsmál.
Það er greinilegt að menn
sem komnir eru yfir þrítugt
eru mun meiri um sig á alla
kanta en fyrir nokkrum ára-
tugum. Þróunin hérá landi
hefur verið á einn veg í góð-
ærinu eftir stríð — íslend-
ingar eru alltaf að stækka og
breikka."
MINNI HENDUR
Eins og með fæturna hef-
ur handstærð okkar íslend-
inga breyst töluvert frá því
sem áður var. Þær hafa ekki
þó ekki stækkað eins og
flestir aðrir líkamshlutar ís-
lendingsins heldur þvert á
móti hafa hendur minnkað
tölvert að ummáli. Árni
Höskuldar, sem starfað hef-
ur sem gullsmiður í fjörutíu
ár, segir nú mörg dæmi
þess að konan þurfi jafnvel
stærri giftingarhring en
mannsefnið. Þessa þróun
megi rekja til breyttra lífs-
hátta íslendinga þarsem
léttari störf hafi leyst erfiðis-
vinnu af hólmi. Nú séu
hendurnar ekki eins vöðva-
stæltarog áður.
Gamli tíminn er þó ekki
með öllu liðinn, því enn er
algengt að fólk úr sveitum
landsins þurfi stærri hringa
en hvítflibbarnir í þéttbýl-
inu. Þrátt fyrir allt hafa fs-
lendingar alla tíð haft þá
sérstöðu að hafa almennt
stærri hendur en til dæmis
Frakkar, Þjóðverjar og ítalir.
Mörg aukakíló hafa fylgt
velmeguninni á íslandi en
þó ekki stærri hringar, enda
eru það beinastærðin og
vöðvarnir sem skipta mestu
máli um stærðina en ekki
hinn mjúki mör.
NÁTTÚRAN HRAÐAR SÉR
Ekki nóg með að við höf-
um hækkað, fætur okkar
breikkað og hendurnar
minnkað heldur verða ís-
lenskarstúlkurnú kyn-
þroska mun fyrr en áður. Að
sögn Auðólfs Gunnarsson-
ar, sérfræðings á kvenna-
deild Landspítalans, hafa er-
lendar rannsóknir leitt í Ijós
að kynþroskaaldur stúlkna á
Vesturlöndum hefur lækkað
verulega síðustu þrjátíu til
Qörutíu árin. Þannig hefur
meðalaldur stúlkna við upp-
haf tíðablæðinga færst frá
fjórtán til fimmtán ára aldri
niður í ellefu til tólf ára ald-
ur, í kjölfar betri fæðu og
breyttra lífshátta. Jón Hilmar
Alfreðsson sérfræðingur,
einnig á kvennadeild Land-
spítala, segir frjósemisskeið
kvenna á Vesturlöndum
hafa verið að lengjast síð-
ustu tvo til þrjá áratugina,
en með því er átt við þann
tíma sem líðurfrá upphafi
tíðablæðinga til tíðahvarfa.
Fyrir um þrjátíu árum var
meðalaldur kvenna viðtíða-
hvörf innan við fimmtíu ár,
en er nú kominn upp í 51 ár.
Hjá Krabbameinsfélaginu
er um þessar mundir verið
að vinna úr upplýsingum
um kynþroskaaldur ís-
lenskra kvenna, sem félagið
hefur safnað að sér frá því
leitarstöð félagsins var kom-
ið á fót árið 1964. Þegar
konur mæta í leitarstöðina
til krabbameinsskoðunar
gefa þær upplýsingar um
heilsusögu sína, m.a. um
það hvenærtíðablæðingar
hófust, og liggja þannig fyrir
ítarlegar upplýsingar um ís-
lenskar konur fæddar um
og eftir 1900. Laufey
T ryggvadóttir faraldsfræð-
ingur er ein þeirra sem nú
vinna að úttekt málsins á
vegum Kraþbameinsfélags-
ins. Að hennar sögn hefur
meðalaldur íslenskra
kvenna við upphaf tíða
lækkað um rúmlega eitt og
hálft ár á þessari öld, eða úr
15,2 árum að meðaltali í
13,5 ár. Eins og með svo
margt annað megi rekja
þessa þróun til batnandi lífs-
afkomu íslendinga.
Úr því verið er að tala um
kynþroska má til gamans
rifja upp spaugileg ummæli
Kristjáns Loftssonar, for-
stjóra Hvals hf., í sjónvarps-
viðtali fyrirallnokkrum ár-
um, þar sem fjallað var af
mikilli alvöru um það hvort
hvalurinn væri að deyja út
eða ekki. Umhverfisverndar-
sinni nefndi sem aðalrökin í
máli sínu að kyn-
þroskaaldur kven-
hvala (kúa) hefði
lækkað verulega á
síðustu
áratug-
um og væri það
svar náttúrunnar við
ofveiði. Kristjáni þótti
þetta ekki merkileg
rökfærsla og benti á
að síðustu áratugi
hefði kynþroskaaldur
kvenna lækkað verulega,
en þó væri engin hætta á
því að íslenska konan væri
að deyja út!
ÍSLENSKI FRAMÚR-
STEFNUSLÁNINN
Ljóst erað lenging á
æviskeiði fólks ræðst
frekar af þreytingum
á lífsstíl en framförum í
læknisfræði, en hvort-
tveggja þarf þó til. Með hóf-
legri bjartsýni má ætla að
meðalævin lengist um eitt
ár hvern áratug. Rétt er að
hafa í huga að á rúmri öld
hefur meðalævi á íslandi
lengst um fjörutíu ár í 85 ár
og lifa konurað meðaltali
sexárum lenguren karl-
menn, eða lengst allra
kvenna í heiminum. Aðeins
skortir fimm til tíu ár til að
líffræðilegum mörkum sé
náð.
Ef við sleppum nú ímynd-
unaraflinu lausu, líkt og Ól-
afur Gunnarsson hefur gert,
verður íslenski sláninn
þannig útlítandi eftirfimm-
tíu ár: Tæplega tveir metrar
á hæð, digurvaxinn, með
ógnarstóra fætur og agnar-
smáar hendur. Sláninn mun
fá náttúruna sjö vetra og
það sem meira er; þessi
hryggðarmynd mun lifa að
meðaltali í allt að heila öld.
Bergljót Friðriksdóttir
og Guðrún Kristjánsdóttir
smáa
letrið
Albert Guðmundsson er að verða
sjötugur. Og þegar hann verður sjö-
tugur kemur hann heim. Og þá fer
hann í pólitík vegna þess að hann
kann ekkert annað. (Fyrir utan fót-
boltann en hann er líklega of gamall
fyrir það sprikl.)
En hver vill Albert aftur í pólitíkina?
Var ekki nóg að hafa hann í borgar-
stjórn og á þingi fyrir Sjálfstæðis-'
flokkinn og Borgaraflokkinn? Og í
fjármálaráðuneytinu á sínum tíma?
Og Útvegsbankanum og Hafskip?
Eru ekki allir búnir að fá nóg af Al-
bert?
Hver veit?
Ef einhverjir bíða spenntir eftir að
Albert snúi aftur eru það líkast til
þeir sem studdu hann hvað dygg-
ast á árum áður; bæði hulduherinn
og eins þeir sem fóru ekki huldu
höfðu.
Miðað við stuðningsmannalista Al-
berts fyrir forsetakosningarnar árið
1980 ættu einhverjir eftirtalinna að
gleðjast:
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
fyrrverandi formaður Sóknar, Alfreð
Þorsteinsson, borgarfulltrúi Fram-
sóknar og forstjóri Sölunefndar
varnarliðseigna, Árni Helgason,
símstöðvarstjóri og bindindisforkólf-
ur í Stykkishólmi, Ásgeir Sigur-
vinsson, njósnari í Stuttgart og
þjálfari Fram, Björn Þórhallsson,
endurskoðandi og formaður Lands-
sambands verslunarmanna, Bergur
Guðnason, lögfræðingur og einn
aðstandenda Vatnsberans, Brynja
Nordqvist, módel og flugfreyja,
Birgir ísleifur Gunnarsson,
bankastjóri Seðlabankans, Eggert
Haukdal, þingmaður sjálfstæðis-
manna á Suðurlandi, Einar Gísla-
son í Fíladelfíu, Gerður G. Bjark-
lind útvarpsþula, Guðmundur
Jaki Guðmundsson, formaður
Dagsbrúnar, Gylfi Ægisson, al-
þýðumálari og -tónlistarmaður,
Guðmundur Rúnar Júlíusson,
rokkari og kyntröll, Gunnar Þórð-
arson lagasmiður, Geir R. Ander-
sen, umsjónarmaður og höfundur
lesendadálks DV, Haukur Clausen,
íþróttastjarna og tannlæknir, Indr-
iði G. Þorsteinsson, rithöfundur
og fyrrum ritstjóri Tímans, Jónas R.
Jónsson, fyrrum poppsöngvari og
núverandi Ijósvakamaður, Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra og varaformaður Alþýðu-
flokksins, Jón G. Zoega lögfræð-
ingur, Júlíus Hafstein, borgarfull-
trúi og íþróttafrömuður, Jón Orm-
ur Halldórsson, lektor í stjórnmála-
fræði og sérfræðingur í þriðja heim-
inum, Jón Magnússon, lögfræð-
ingur og formaður Neytendafélags
Reykjavíkur, Kristinn Hallsson,
bassi og skrifstofustjóri í mennta-
málaráðuneytinu, María Baldurs-
dóttir, söngkona frá Keflavík,
Magnús Kjartansson, poppari frá
Keflavík, Markús Örn Antonsson,
borgarstjóri Reykvíkinga, Ólafur
Laufdal veitingahúsakóngur, Pét-
ur Kristjánsson, fyrrverandi 5öngv-
ari og plötuútgefandi, Pálmi Gunn-
arsson söngvari og laxveiðimaður,
Pétur Pétursson, þjálfari Tinda-
stóls í knattspyrnu, Ríkarður Jóns-
son, fótboltasnillingur af Skaganum,
Sigrún „Diddú" Hjálmtýsdóttir
söngkona og Þórir Baldursson,
þessi sæti í Savannatríóinu.