Pressan - 10.12.1992, Qupperneq 18

Pressan - 10.12.1992, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. DESEMBER 1992 PRESSAN Útgefandi Ritstjóri Ritstjórnarfulltrúi Auglýsingastjóri Dreifingarstjóri Blað hf. Gunnar Smárí Egilsson Sigurður Már Jónsson Sigríður Sigurðardóttir Haukur Magnússon Rekið opinbera starfsmenn Svo virðist sem nýákveðnar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar- innar dugi ekki til. Miðað við þær verður hallinn á fjárlögum næsta árs um 8 milljarðar. Það getur ekki talist viðunandi. Ríkisstjórnin eða Alþingi þarf því að grípa til niðurskurðar á ríkisútgjöldum, tvisvar til þrisvar sinnum meiri en ráðherrar ríkisstjórnarinnar gátu komið sér saman um á fundum sínum um síðustu helgi. í sjálfu sér þurfa þetta ekki að vera slæmar fréttir. Þegar litið er yfir efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar er auðséð að hún hefur gefist upp við að taka alvarlega á stærstu útgjaldavanda- málum ríkissjóðs; landbúnaðinum, heilbrigðiskerfinu, Lána- sjóði íslenskra námsmanna og öðrum ríkissjóðum, að ekki sé talað um sjálfan ríkisreksturinn. Forsætisráðherra hefur lýst því yfir að hann hafi tekið við slæmu búi eftir óstjórn undanfarinna sex til átta ára. Á þess- um tíma hafi stjórnmálamenn gefið út hvern útfylltan víxilinn á fætur öðrum til að geðjast kjósendum. Það er því kominn tími til að forsætisráðherra láti þessa víxla falla. Þótt einhver menntamálaráðherra hafi gefið námsmönnum þá hugmynd að skattborgarar eða komandi kynslóðir hefðu efni á að styrkja þá ríkmannlega í gegnum lánasjóðinn þá er staðan einfaldlega sú að skattborgararnir geta það ekki og íslenska ríkið hefur einfaldlega ekki það lánstraust að það geti velt framfærslu námsmanna yfir á komandi kynslóðir. Það sama gildir um væntingar sem landbúnaðarráðherrar hafa komið inn hjá bændum, heilbrigðisráðherrar hjá heilbrigðisstéttun- um, félagsmálaráðherrar hjá húsbyggjendum og einstæðum foreldrum og svo framvegis. Ef forsætisráðherra skynjar óstjórn síðustu ára jafn vel og hann lýsir er kominn tími til að hann beiti sér fyrir því að skrúfað verði ofan af henni. Að ríkisstjórnin taki fremur mið af stöðu ríkissjóðs og íslensks efnahagslífs en stöðu þing- manna í einstökum kjördæmum eða vinsældum þeirra hjá hagsmunahópum. Nú þegar allur almenningur hefur fundið áþreifanlega fyrir kreppunni er hann líklegri til að styðja ríkisstjórnina til gagn- gerrar uppstokkunar á því ríkisbatteríi sem stjórnmálamenn hafa hlaðið upp til að auka sér vinsældir á undanförnum ár- um. Svo tekið sé lítið dæmi af allri vitleysunni, þá kemur fram í frétt PRESSUNNAR í dag að ríkissjóður hefur greitt sem nemur 40 milljörðum króna í útflutningsbætur á undanförn- um áratugum. 40 milljarðar til að greiða niður mat í vestur- landabúa. Flestir gera sér grein fyrir að svona della og önnur ámóta á stóran þátt í slæmri stöðu íslensks atvinnu- og efna- hagslífs. Og nú þegar almenningur finnur fyrir afleiðingunum er hann tilbúinn að styðja ríkisstjórnina til að afnema þessi og viðmóta hlunnindi hagsmunahópanna. En þrátt fyrir nauðsyn þessa er ef til vill eðlilegast fyrir ríkis- stjórnina að líta sér nær. Til að spara 2 milljarða er nóg að reka tæplega 1.700 ríkisstarfsmenn. Það er líklega ekki stærri blóð- taka en svo að koma tjölda ríkisstarfsmanna niður í það sem hann var fyrir um ári. Ef ráðherrarnir byrja á starfsmönnum mötuneyta ríkisins, rannsóknastofnana atvinnuveganna og þeim sem vinna í öðrum tilhæfulausum atvinnurekstri ríkis- ins er von til þess að þeim takist að fylla upp í þessa tölu án þess að þurfa að reka neinn sem ekki getur fengið sér vinnu annars staðar. Starfsfólk í mötuneytunum ætti að geta fengið vinnu á veitingahúsum og starfsmenn rannsóknastofiiananna hjá SS eða BM Vallá. Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14-16, sími 64 30 80 Faxnúmer Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborös: Ritstjórn 64 30 85, dreifing 64 30 86, tæknideild 64 30 87. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði ef greitt er með VISA/EURO/SAMKORT en 750 kr. á mánuði annars. PRESSAN kostar 230 krónur í lausasölu BLAÐAMENN: Andrés Magnússon, Bergljót Friðriksdóttir, Friðrik Þór Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Jón Óskar Hafsteinsson útlitshönnuður, Jónas Sigurgeirsson, Jim Smart Ijósmyndari, Karl Th. Birgisson, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Telma L Tómasson. PENNAR: Stjórnmál og viðskipti; Árni Páll Árnason, Guðmundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hreinn Loftsson, Jeane Kirkpatrick, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, RagnhildurVigfúsdóttir, Össur Skarphéðinsson. Listir; Gunnar Árnason myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Hrafn Jökulsson, Jón Hallur Stefánsson og Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Lárus Ýmir Óskarsson leiklist. Teikningar; Andrés Magnússon, Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján Þór Árnason. Setning og umbrot: PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI V I K A N HÆSTIRÉTTUR í steininn Tilraunir ríkisstjórnarinnar til að tryggja að Hæstiréttur fái ekki Safnahúsið við Hverfisgötu taka á sig skringilegar myndir. Sem kunnugt er var gerð úttekt á hús- næðisvanda Hæstaréttar og nið- urstaða hennar varð sú að Safna- húsið mundi henta best þegar Landsbókasafnið flytti og vera ódýrara en nýbygging. Þegar þetta lá íyrir hljóp ríkisstjórnin upp til handa og fóta og reiddi fram 130 milljónir af skattfé til að hægt væri að hefja framkvæmdir við ný- byggingu Hæstaréttar strax. Ástæðan er sú að forsætisráðherra vill Safnahúsið undir ráðuneyti sitt og hinir ráðherranir vilja gera það að móttökusölum, enda er Rúgbrauðsgerðin eins og hvert annað félagsheimili og alls ekki nógu virðuleg. Þrátt fyrir milljón- irnar er lítið að frétta af fram- kvæmdum, enda vantar sárlega lóð undir nýbygginguna. Nýjasta hugmyndin er sú að setja Hæsta- rétt í steininn; það er Hegningar- húsið á Skólavörðustíg. Þar hafa gist um tuttugu fangar og verið svo þröngt um þá að legið hefur við afskiptum Amnesty Interna- tional. Ef Hæstiréttur verður sett- ur í Hegningarhúsið mun hug- myndin vera að byggja við húsið. Allt Þórði að kenna Þá liggur það ljóst fyrir. Mars- súkkulaði er dýrara hér á landi en á Indlandi. Og Levi’s-buxur líka. Þetta eru nýjustu upplýsingarnar sem verðsamanburður, þjóðar- íþrótt Islendinga seinni misserin, hefur getið af sér. Stofnun í Eng- landi dró þetta upp með Mars- súkkulaðið og Levi’s. Niðurstaða hennar er sú að fjölþjóðleg fyrir- tæki verðleggi framleiðslu sína miðað við kaupgetu hvers rnark- aðar fyrir sig. Og þótti henni það vont. f sjálfu sér er ekki hægt að kvarta yfir því. Það er einfaldlega lögmál framboðs og eftirspurnar sem liggur þar að baki. Það sem enska stofnunin hefði átt að kvarta yfir er að fsland skuli alltaf flokkað með tekjuhærri löndum. Það vita allir, sem reynt hafa að lifa af á Islandi, að er ekki satt. Þessi misskilningur er runninn undan rótum Þjóðhagsstofnunar, sem dælir upplýsingum um þjóð- arhag til Alþjóðabankans sem aft- ur gefur út kataióga um hag al- mennings, ríkis og fyrirtækja í ýmsum löndum. Ef Islendingar eru ósáttir við að borga það sama fyrir Mars og Levi’s og best stæðu þjóðir heims eiga þeir að skamma Þórð Friðjónsson en ekki kaup- menn, heildsala eða fjölþjóðleg fyrirtæki. HVERS VEGNA Eru evrópskir stjórnmálamenn úr takt við almenning? GUNNAR HELGI HÁLFDÁNARSON, DÓSENT (STJÓRNMÁLAFRÆÐIVIÐ HÍ, SVARAR „Það hefur alltaf reynst erfiðara að vekja áhuga fólks á stjórnmál- um utanlands en innan. Evrópu- málin eru fremur tæknileg og mikið um leiðindasmáatriði sem snerta ef til vill ekki daglegt líf fólks. Það á því erfitt með að setja sig inn í þær pólitísku formúlur sem um ræðir og skortur á tengsl- um stjórnmálamanna og almenn- ings liggur því að hluta til í eðli málsins sjálfs, hversu fjarlægt það er. Stjórnendur Evrópubandalags- ins (EB) hafa heldur ekki verið nógu vakandi fyrir þeirri stað- reynd að almenningur er ekki bú- inn að meðtaka með öllu hvaða þýðingu bandalagið hefur. Fólk hefur til að mynda ekki áttað sig á því að EB hefur yfirtekið mikið af málum þjóðanna meðan hollusta fólksins er ennþá við þjóðríkið og heimahagana. EB hefur farið helst til of geyst og er komið langt fram úr almenningi. Ef stjórnendur EB ætla ekki með öllu að missa tengslin við al- menning í framtíðinni tel ég að það verði að fara sér hægar í þró- un sinni og tileinka sér opnara stjórnkerfi svo fjölmiðlar hafi greiðari aðgang að stofnunum þess og upplýsingastreymi um hvað er að gerast innan þess verði virkara. Margir stjórnenda EB koma frá lokuðum embættis- mannakerfum, þar sem embættis- hefðirnar eru ríkar, og setur það mark sitt á starfshættina. Það ber einnig að nefna að í sumum löndum Evrópu ríkir viss einangrunarhyggja, einangrunar- stefna. Þau eru ekki vön að semja um sín mál við aðra og þeim finnst óþægilegt að blandast inn í valdastjórnmál stærri ríkja álf- unnar af því þau hafa alltaf notið þeirrar verndar sem einangrunin veitir. Islendingar, Norðmenn og Svisslendingar eru þeirra á meðal. Þessi einangrunarhugsun er fram- andi smáríkjunum Lúxemborg, Belgíu og Hollandi sem velkst hafa á nrilli stórvelda á borð við Frakk- land og Þýskaland. Þau vilja þvert á móti að stofnanir EB fái sem mest vald svo stóru ríkin vaði ekki yfir þau eina ferðina enn. Dan- mörk fellur undir svipaða hefð og þar hefur verið litið svo á, síðustu tvær aldirnar eða svo, að það borgi sig að blandast sem minnst í illdeilur nágranna sinna. Efna- hagslegir hagsmunir Dana líta hins vegar öðruvísi út en okkar og því áttu þeir auðveldara með að tengja sig EB efnahagslega en mörg önnur ríki, til dæmis með tilliti til landbúnaðarins, og var það ástæða þess að þeir sóttu um aðild að bandalaginu. Þeir hafa hins vegar aldrei samþykkt þá pólitísku hugsun sem liggur til grundvallar bandalaginu." „Stjórnendur Evr- ópubandalagsins hafa heldur ekki verið nógu vakandi fyrir þeirri stað- reynd að almenn- ingur er ekki búinn að meðtaka með öllu hvaða þýðingu bandalagið hefur. Fólk hefur til að mynda ekki áttað sig á því að EB hef- uryfirtekið mikið afmálum þjóðanna meðan hollusta fólksins er ennþá við þjóðríkið og heimahagana. EB hefurfarið helst til ofgeyst og er komið langtfram úr al- menningi. “ FJÖLMIÐLAR Texti ekki œtlaður til lestrar Undanfarna mánuði hafa stjórnendur DV verið að bæta blaðið sitt. Næstaftasta opnan, I dagsins önn, er til dæmis ágæt til- raun til að setja efni ekki aðeins skipulega fram heldur líka skemmtilega. (Það væri reyndar einkenni- legt ef ég segði eitthvað annað því þessari opnu hefur frá upphafi svipað um margt til Lífsins eftir vinnuna í PRESSUNNI; sam- bland af einskisnýtum fróðleik, fólki, tilraunum til aulafyndni og hörðum upplýsingum.) önnur jákvæð breyting á DV er sú sem gerð var á leiðaraopn- unni í síðustu viku. í stað þess að birta þrjá kjallara og einn leiðara hefur verið bætt við tveimur þátt- um; Með og á móti og Skoðunum annarra. (Aftur verð ég að vara lesendur við skoðunum mínum þar sem þessar breytingar minna einnig á PRESSUNA. Þetta er aðferð til að vera ekki alveg háður kjallara- höfundum um skoðanaskrif. Sambærilegir dálkar í PRESS- UNNI eru Álit, Hvers vegna og Ummæli.) Þetta tvennt sýnir að DV er ekki alveg dautt úr öllum æðum eins og Moggitm virðist vera. Hann boðaði fyrir nokkrum vik- um í Reykjavíkurbréfi gerbreytta stefnu í menningarskrifttm, sagði að tími pantaðra viðtala væri lið- inn og kominn tími til að aðferð- um blaðamennskunnar yrði beitt á menninguna sem annað. Ég hef hins vegar ekki séð þessar breyt- ingar enn. Ef eitthvað er hafa menningarskrifin orðið enn líf- lausari en nokkru sinni fyrr á undanförnum vikum. En þar sem ég er að hæla DV (að því er virðist til að skjalla sjálfan mig innan sviga) vil ég jafnframt kvarta undan blaðinu. Hvers konar blaðamennska var átta síðna aukablað um geislaplötur og tónbönd síðast- liðinn þriðjudag og annað um bækur í gær? Þar var ekki nokk- urt efni ffá ritstjórn heldur birt í lönguvitleysu safn fréttatilkynn- inga. Það á náttúrulega ekki að láta framleiðendur vöru búa til texta handa lesendum blaða. Það eru svik við lesendur. Alveg á sama hátt og það á ekki að birta dag- skrár sjónvarpsstöðvanria eins og starfsfólk þeirra gengur frá þeim. Meira að segja Mogginn lítur yfir þær og bætir við speki frá Maltin kvikmyndabókahöfundi. Það er ef til vill hreinlegra hjá DV að birta bara fréttatilkynningar frá plötuútgefendum í sérblaði í stað þess að blanda þeim saman við annað efni. En hvort sem frétta- tilkynningarnar eru birtar sér eða innan um annað ber það vott um að stjórnendur blaðanna líti ekki á þetta sem texta til lestrar heldur aðeins til uppfyllingar. Mér er hins vegar til efs að allir lesendur blaðanna geri greinar- mun á þessum texta og þeim sem blöðin telja sinn. Með því að birta sjálfskynningar útgefenda og annarra framleiðenda eða sölu- manna vöru gera blöðin þær að sínum. Og það er slæm blaða- mennska — ef nokkur.__________ Gunnar Smári Egitsson

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.