Pressan - 10.12.1992, Page 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. DESEMBER 1992
21
E R L E N T
Hægriöfgamenn í Þýskalandi láta í Ijós andúð sína á útlendingum.
Eitrið breiðist út um Evrópu
Athygli heimsins hefur beinst að ofsóknum hægriöfgamanna á hendur útlendingum í Þýskalandi, enda of-
beldisverk og morð orðin nær daglegt brauð þar í landi. Um alla Evrópu eru menn þó að vakna upp við
vondan draum, þar sem útlendingahatur hefur verið að breiðast út með ískyggilegum hraða.
Á árinu sem senn er á enda
hafa ofbeldisverk gegn útlending-
um náð algjöru hámarki í Þýska-
landi og er svo komið að útlend-
ingar og aðrir er tilheyra minni-
hlutahópum lifa í stöðugum ótta
um líf sitt. Árásir nýnasista á graf-
reiti, minnisvarða og bænastaði
gyðinga hafa vakið upp sárar
minningar frá heimsstyrjöldinni
síðari, enda minna skemmdar-
verkin illilega á ömurlegasta kafl-
ann í sögu Þýskalands. Það er ekki
að ástæðulausu sem gyðingar í
Þýskalandi óttast æ meira skipu-
lagðar ofsóknir á hendur sér og
margir hafa fengið af þeim smjör-
þefinn, með morðhótunum í
nafnlausum bréfum og símhring-
ingum. Minnugir voðaverka nas-
ista í stríðinu íhuga margir gyð-
ingar nú að flytja ffá Þýskalandi,
enda löngu orðið ljóst að árásar-
mönnunum er fúlasta alvara.
FATLAÐIR MEÐAL FÓRN-
ARLAMBA
Um allan heim horfa menn
með óhugnaði til Þýskalands og
eru ofsóknirnar þar sífellt umfjöll-
unarefni fjölmiðla. „Andúð Þjóð-
verja í garð útlendinga er komin á
svo alvarlegt stig að við það verð-
ur ekki lengur unað,“ skrifaði
ítalska blaðið La Stampa nýverið
og hið ítalska La Republica hefur
lýst Þýskalandi sem „landi við-
bjóðslegra kynþáttafordóma“.
Bandaríska blaðið New York
Times er þeirrar skoðunar að
„þvinga beri Þjóðverja til skyn-
semi með aðflutningsbanni á
þetta land óeirðanna þar sem allt
virðist vera komið úr böndun-
um“. Framtíðarsýn breska blaðs-
ins The Times er allt annað en
fögur. „Ef Þjóðverjar og ríkiss-
stjórn þeirra læknast ekki af óút-
skýranlegri deyfðinni varðandi
mál innflytjenda er óumflýjanlegt
að Þýskaland muni einangrast ffá
öðrum löndum heims, líkt og
Suður-Afríka á tímum kynþátta-
stefhunnar."
Hægriöfgamönnum í Þýska-
landi hefur vaxið fiskur um hrygg
á þessu ári og sumir eru svo svart-
sýnir, að þeir óttast að ekki verði
unnt að snúa við þeirri óheillaþró-
un. Á þessu ári hafa lögregluyfir-
völd í Þýskalandi skráð hátt í tvö
þúsund ofbeldisverk gegn útlend-
Brúður upplýsa kyn-
ferðisafbrotamál
Það er ekki aðeins á Islandi sem kyn-
ferðisafbrot gagnvart bömum hafa ver-
ið mikið til umræðu. Víða í Evrópu er
sama upp á teningnum, meðal annars í
Þýskalandi þar sem slíkum afbrotum
fer stöðugt fjölgandi og hafa yfirvöld af
því þungar áhyggjur. Kynferðisafbrot
gagnvart börnum eru þess eðlis að oft
er örðugt að sanna glæpinn, en sökum
ungs aldurs fórnarlambanna getur
reynst erfitt að spyrja nákvæmlega út í
málavöxtu. Enda kunna börn ektó einu
sinni réttu orðin til að lýsa voðaverkun-
um. I Þýskalandi hafa
menn fundið árang-
ursríka aðferð til að
hjálpa börnum, sem
orðið hafa fórnar-
lömb kynferðisaf-
brotamanna, við að
rifja upp atburðinn.
Notaðar eru þartilgerðar brúður sem
sýna annars vegar „pabbann" eða
„frændann" nakinn og hins vegar
barnið. Með hjálp brúðanna á barnið
auðveldara með að rifja upp það sem gerðist, með því að sýna en ekki
segja. Aðferðin hefur gefið góða raun og hjálpað til við að upplýsa
ntörg kynferðisafbrotamál í Þýskalandi.
ingum, þar af um 500 sprengju-
árásir og íkveikjutilraunir. Árásir
öfgahópa hafa kostað sautján inn-
flytjendur lífið á árinu og alls hafa
rúmlega 800 manns slasast í
óeirðum. Ofbeldi hægriöfga-
manna beinist ekki lengur ein-
göngu gegn innflytjendum og
gyðingum, heldur hafa kynhverfir
og þó einkum andlega og líkam-
lega fatlaðir bæst í hóp hinna of-
sóttu.
Eins og með nasista þriðja rík-
isins, fýrirmynd margra öfgahóp-
anna, beinist hömlulaust hatrið að
þeim þeim sem minnst mega sín í
þjóðfélaginu. Atburðirnir í Þýska-
landi síðustu mánuði eru vægast
sagt óhugnanlegir. I Hannover
réðust hægriöfgamenn að fatlaðri
konu á gangi og hrifsuðu af henni
hækjumar svo hún féll í götuna og
slasaðist. Á sömu slóðum varð
kona í hjólastól fórnarlamb
„skalla“ sem hrintu henni úr
stólnum og börðu á henni. I Halle
réðust nýnasistar á fimm unga
nemendur heymleysingjaskóla og
misþyrmdu þeim á hroðalegan
hátt. Af öðrum fórnarlömbum í
hópi fatlaðra má nefna andlega
skertan mann á flmmtugsaldri,
sem mátti þola margra daga bar-
smíðar. Nokkrir hægriöfgamenn
biðu mannsins er hann kom út af
kvikmyndahúsi, tóku hann til
fanga og læstu inni í nærliggjandi
hjólhýsi. Þar misþyrmdu þeir
manninum með öllu hugsanlegu
móti í fimm daga samfleytt, uns
lögregla kom manninum til bjarg-
ar, og var hann þá illa haldinn.
ALDA OFBELDIS í EVRÓPU
Þýskaland er stöðugt til um-
fjöllunar í erlendum fjölmiðlum,
en í ljósi þess hversu málið er al-
varlegt og saga þýsku þjóðarinnar
„óþægileg11 hefur athygli manna
beinst að Þjóðveijum. Full ástæða
er þó til að hafa áhyggjur af
ástandinu í nágrannalöndunum,
því alda ofbeldis hægriöfgamanna
virðist vera gengin yfir Evrópu. I
nánast öllum löndum álfunnar
vaða öfgahópar uppi, meira að
segja í hinum umburðarlyndu vel-
ferðarþjóðfélögum Svíþjóð og
Sviss. I Madrid réðust fjórir
grímuklæddir menn inn á heimili
fyrir innflytjendur ffá Dóminíska
lýðveldinu og skutu á íbúa þess
með hríðskotabyssum. I árásinni
lét ung kona lífið og margir slös-
uðust.
I Svíþjóð hafa ofsóknir á hend-
ur innflytjendum, einkum frön-
um og Tyrkjum, kostað mannslíf.
Nýverið unnu hægri öfgamenn
tvisvar í sömu vikunni spellviki á
f afreitum gyðinga í Stokkhólmi.
bænum Mariestad varð kirkja
staðarins illa úti í sprengingu, en
með því vildu hatursmenn út-
lendinga refsa sóknarprestinum
fyrir að taka þátt í kröfugöngu
gegn útlendingahatri. Á ftalíu er
svipað upp á teningnum. Á hús-
veggjum nálægt Colosseum-
hringleikahúsinu í Róm gefur að
h'ta slagorð nýnasista, vel þekkt ff á
tímum heimsstyrjaldarinnar. Þá
hafa mörg ítölsk bænahús gyðinga
verið útkrotuð og skemmd af
öfgahópum.
Á Bretlandi hafa sex útlending-
ar látið lífið á þessu ári eftir árásir
„skalla“. Þeirra á meðal var afg-
anskur unglingur sem lét lífið þeg-
ar fimmtán breskir táningar réð-
ust að honum með kúbeinum. f
Hollandi varð brotlending ísra-
elsku vöruflutningaþotunnar í
innflytjendahverfi í miðri Amster-
dam til þess að kynda undir öfga:
sinnuðum Hollendingum. f kjöl-
far slyssins fóru hægff iöfgamenn í
flokkum um innflytjendahverfi
borgarinnar og krotuðu niðrandi
ummæli á húsveggi, eins og til
dæmis: „Af hverju ekki að hrapa
hér?“
UPPTÖKIN í ÞÝSKAI.ANDI
f Frakklandi, líkt og í Þýska-
landi, eru yfirvöld farin að bregð-
ast við ofbeldi gegn útlendingum
af aukinni hörku. í Lyon voru
tveir lögreglumenn dæmdir í lífs-
tíðarfangelsi eftir að hafa barið
Norður-Afríkubúa til dauða og
misþyrmt öðrum. Sömu refsingu
hlutu tveir ungir öfgamenn í bæn-
um Caen fyrir að myrða Mar-
okkóbúa. f Áusturríki eru yfirvöld
sömuleiðis hætt að sýna linkind í
málum sem þessum, en þar eru
graffeitir gyðinga ekki látnir í ffiði
frekar en svo víða annars staðar í
Evrópu.
Margir eru sannfærðir um að
ofbeldisaldan, sem nú gengur yfir
Evrópu, eigi upptök sín í Þýska-
landi. Dómsmálaráðherra Italíu,
Claudio Martelli, hefur opinber-
lega látið í ljós tilgátu sína um að
allir öfgahópar í Evrópu lúti einni
og sömu stjórn, sem hafi aðsetur í
Þýskalandi. Ýmsir fleiri eru þeirr-
ar skoðunar að eitrið sem nú
breiðist með ógnarhraða út um
alla Evrópu sé runnið undan
sömu rifjum. Það sé engum nema
Þjóðverjum að „þakka“ að leið-
togar hægriöfgamanna á borð við
Jean-Marie Le Pen í Frakklandi og
Jörg Haider í Austurríki eigi ört
vaxandi fylgi að fagna í heima-
löndum sínum. Það séu því Þjóð-
verjar sem hafi óheillaþróunina í
Evrópu á samviskunni.
Fyrirsætunni líkt
við herðatré
Þýska fyrirsætan Claudia Schif-
fer, sem er ein eftirsóttasta sýning-
arstúlka í heimi og hefur átt mik-
illi velgengni að fagna síðustu ár,
fékk það óþvegið frá breska dag-
blaðinu Daily Express á dögun-
um. I blaðinu var stúlkunni líkt
við herðatré, en skýrt tekið fram
að það hefði þó mun meiri kyn-
töfra en hún. Fegurðardísinni
ungu voru ekki vandaðar kveðj-
urnar, heldur var hún sögð líkjast
helst lifandi dúkku og væru einu
sýnilegu hæfileikar hennar full-
komnar tennur. Ástæðan fyrir
þessari hörðu gagnrýni bresku
pressunnar munu vera ummæii
fyrirsætunnar í nýlegu sjónvarps-
viðtali. Þar lýsti stúlkan því yfir að
hún væri sönn „stjarna", vegna
þess að hún hefði „persónuleika",
sem væri svo sannarlega ekki
hægt að segja um aðrar sýningar-
stúlkur.
Skopmyndir
gegn alnæmi
Franski skopmyndateiknarinn
Tomi Ungerer, sem vel er þekktur
í heimalandi sínu fýrir spaugilega
afskræmingu á veruleikanum,
hefur gengið til liðs við samtök er
berjast gegn alnæmi í fæðingar-
borg hans, Strassborg í Elsasshér-
aði. Eins og öllum er kunnugt lítur
kaþólska kirkjan á notkun getnað-
arvarna eins og mannsmorð. Því
var ekki öllum skemmt í Frakk-
landi, þegar fijálsleg póstkort eftir
Ungerer komu fyrir sjónir al-
mennings á dögunum. Póstkortin
minna á notkun getnaðarvarna á
skoplegan hátt og er þeim ætlað
að hvetja Frakka til að lifa hættu-
lausara kynlífi. Ungerer, sem
hannaði póstkortin endurgjalds-
laust, hefur séð á bak mörgum
vinum sem látist hafa úr alnæmi.
Taldi hann það ekki eftir sér að
gefa vinnu sína og leggja þeim
Qölmörgu lið sem berjast gegn
þessum mikla ógnvaldi.
Ættargersemar á uppboð
Ekki alls fyrir löngu var sagt frá
því hér í blaðinu að þýska furst-
ynjan Gloría af Thurn og Taxis
væri í miklum íjárkröggum, enda
að súpa seyðið af fádæma óhófleg-
um lifnaði fjölskyldunnar í ára-
íjöld. Tæpast er þó hægt að segja
að konan sé á köldum klaka. Enda
þótt lausafé sé af skornum
skammti á Thurn og Taxis-ættin
geysimiklar og verðmætar eignir;
jarðir, hallir og síðast en ekki síst
feiknfn öll af ættardýrgripum sem
varðveist hafar í margar aldir.
Þessum gersemum hyggst Gloría
nú koma í verð, þýskum
aristókrötum og listfræðingum til
mikillar skelfingar. Ákveðið hefur
verið að stór hluti Thurn og Taxis-
ættarskartgripanna verði boðinn
upp hjá Sotheby í Genf nú í des-
ember. Forsvarsmenn þessa fræga
uppboðsfýrirtækis segja að
um sé að ræða þýðingar-
mesta skartgripauppboð
Sothebys frá því að djásn
hertogaynjunnar af Wind-
sor voru boðin upp í Genf
1987, en þau skiluðu hvorki meira
né minna en þremur miljörðum
króna. Meðal þess sem nú verður
boðið upp er aldagömul geysi-
dýrmæt kóróna úr gulli, þakin
demöntum og perlum. Ein
þeirra sem borið hafa höfuð-
djásnið er keisaraynjan
Eugénie og er til frægt mál-
verk af henni þar sem hún
skartar kórónunni góðu. Er
skemmst frá því að segja að
listffæðingar eru harmi slegn-
ir vegna uppátækis fyrstynj-
unnar Gloríu, en hún lætur
ekkert hindra sig í áformum sín-
um.