Pressan - 10.12.1992, Side 27

Pressan - 10.12.1992, Side 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. DESEMBER 1992 27 Síðasti móhíkaninn er söguleg ævintýramynd, blönduð ást og spennu. Daniel Day-Lewis ætl- aði aldrei að leika á ný Stórmyndin Síðasti móhíkan- inn, sem tekin verður til sýningar hér innan fárra daga, hefur hlotið prýðilega dóma meðal erlendra gagnrýnenda. Daniel Day-Lewis fer með aðalhlutverk í myndinni en eins og flesta rekur minni til hlaut hann Óskarinn fyrir túlkun sína á Christy Brown í myndinni My Left Foot árið 1989. Þetta var ekki fyrsti leiksigur hans en talið var að verðlaunin yrðu til þess að hann myndi birtast æ oftar á hvíta tjaldinu. Það fór þó á annan veg en menn ætluðu og hefur leikar- inn nánast farið huldu höfði síð- astliðin þrjú ár. Þeim tíma hefur hann eytt í löng ferðalög um Evr- ópu og einverustundir á írlandi. Hann sýndi enga löngun til að snúa sér að kvikmyndaleik að nýju og af þeim sökum náði um- boðsmaður hans vart sambandi við hann, hvað þá vinir eða venslamenn. Leikstjórinn Michael Mann var því í töluverðum vanda staddur þegar hann hugðist fá Day-Lewis til að leika aðalhlut- verkið í mynd sinni. Eftir margar tilraunir náði Mann loks sam- bandi við hann en töluverður tími leið þó þar til Ieikarinn samþykkti að taka hlutverkið að sér. 800 miðar seldust upp á klukkutíma! Slíkur var áhuginn á tónleikum með Kristjáni Jóhannssyni í Hallgrímskirkju, sem haldnir eru til styrktar Barnaheill- um, að 800 aðgöngumiðar seldust upp á einni klukkustund. Mikið var að gera á símanum þær sextíu mínútur sem tók að koma miðunum út og töluvert hefur verið að gera síðan, því enn er fólk að hringja og freista þess að fá miða. Miða- verð, sem var 3.000 krónur, settu fáir fyrir sig og sumir undruðust að það skyidi ekki vera haft hærra. Vegna ótrú- legrar aðsóknar hafa margir gælt við þá hugmynd að haldnir verði aukatónleikar, en staðfest hefur verið að úr því verði ekki. Sinfóníuhljómsveit íslands sér um undirspil á tónleik- unum en hinn ítalsk-ameríski „maestro" Rico Saccani kemur til með að stjórna hljómsveitinni. Mótettukór Hallgrímskirkju sér um kór- söng og Hörður Áskelsson leikur á orgelið. Aðdáendur Kristjáns geta þó huggað sig við að herlegheitin verða sýnd á jóladag á Stöð 2. C7 {AýWUWs i átMnuu l „Mér líkar hún alveg æðislega. Hún er búin að gjörbreyta lífi mínu. Það er svo mikill unaður að fá að spila á svona hljóðfæri að það er ólýs- anlegt. Ég og hún rennum saman í eitt,“ segir Sigrún Eðvaldsdóttir, sem nýkomin er úr heimsókn til kærasta síns í Bandaríkjunum, um nýju fiðl- una sína. Hún ætlar að leika á fiðluna í fyrsta sinn á Islandi um helgina í fslensku óperunni ásamt Selmu Guðmundsdóttur píanóleikara. Tón- leikar verða bæði á föstudagskvöld og sunnudag. Föstu- dagstónleikarnir hefjast klukkan níu en sunnudagstón- leikarnir klukkan eitt og eru þeir hugsaðir sem fjöl- skyldutónleikar. Ágóðinn af tónleikunum rennur til kaupa á nýju fiðlunni, sem hún hefur þegar greitt helm- inginn af. „Ég fer ofsalega vel með fiðluna mína og hef keypt undir hana sérstakan einangrunarkassa sem þolir bæði mikinn hita og kulda.“ Lögin sem leikin verða á tónleik- unum eru af nýrri geislaplötu þeirra Sigrúnar og Selmu er nefnist „Ljúf- lingslög". Þar er að finna lög eftir Sigvalda Kaldalóns, Pál ísólfsson, Sigfus Einarsson, Atla Heimi Sveins- son og fleiri. Sigrún Eðvaldsdóttir með nýju fiðluna sem hún er enn að fjár- magna og ætlar að leika á í fyrsta sinn á Islandi í fslensku óperunni. VIÐ MÆLUM MEt> ... að fólk lesi jólabækurnar fyrirjól til að geta fylgst með öðrum taka þær upp á aðfangadag og segja: Ég er búinn að lesa þessa, hún er ekk- ert sérstök AÐALNUMERIP — en lítið í mynd Kvikmyndin Karlakórinn Hekla, sem frumsýnd verður síðar í mán- uðinum, geymir margan sérstæðan karakterinn. Garðar Cortes leikur einn þeirra og er í raun aðalnúmerið án þess þó að vera mikið í mynd. Það kemur til af því að hlutverkið hans er þeirrar náttúru að enda þótt hann sjáist lítið er stöðugt verið að tala um hann. Persóna Garðars er af þýskum ættum, flutti til íslands með föður sínum ungur að árum. Þeir feðgar enduðu í Hveragerði þar sem sá stutti ólst upp, en hann reynist söngvinn mjög og verður ein aðal- driffjöðrin í karlakórnum í bænum. Að hans tilstuðlan hyggst kórinn síðar fara í söngferðalag til útlanda en skömmu áður en lagt er af stað berast tíðindi sem setja strik í reikninginn. f framhaldi af því fá kórfélagar verk- efni sem tengist öðru en söngnum. Þótt sviðsvanur sé er þetta fyrsta hlutverk Garðars í kvikmynd. Hann segist hafa kunnað ágætlega við sig fyrir . framan tökuvélina þótt ekki sé saman að jafna kvikmyndaleik og óperuflutningi á sviði. Þessa stundina hugs- ar hann um lítið ann- að en óperuna í Gautaborg, sem hann stjórnar, og segir þar öll verkefni vera á full- um dampi auk þess sem verið sé að undir- búanýverk. ... öruggukynlifi og flestöllu kynlífi sem er ekki beint lífshættulegt ... jólahlaðborðum, jóla- glöggspartíum og öllu því sem getur slegið á kvíðann yfir öllu sem er ógert fyrir jólin ... fjögurra stjömu bókum og plötum en ekki þeim sem fá hauskúpu (sjá bóka- og plötublað) INNI Að trúlofa sig. Það er ef fólk vill. Að gifta sig. Ef fólk hefur áhuga á. Að skilja. Ef fólk endilega vill. Að leita eftir hjónabandsráðgjöf. Ef fólk telur sig þurfa á því að halda. Að slíta trúlofun. Ef fólk hefur ekki trú á henni. Að mæta ekki í eigin brúðkaup. Ef fólk hefur ekki lyst á því. Að láta sig hverfa í stað þess að standa í skilnaði. Ef fólk telur sig ekki geta horfst í augu við fýrrum maka. Að halda við hjóna- bandsráðgjafann. Ef fólki finnst hann þesslegur. Að mæta ekki í annarra manna brúðkaup. Nei, aldrei. Það er ókurteisi. UTI Að segjast ætla að gefa heima- tilbúnar gjafir í jólagjöf. f fyrsta lagi er þetta lygi sem allir sjá í gegnum. í öðru lagi er hræsnis- fullt að þykjast vera uppfullur af „hinum rétta anda jólanna" en vera eftir sem áður jafn geðveikur í búðunum og allir hinir. f þriðja lagi þá eyðileggurðu jólin fyrir öðrum ef þú ætlar í raun og veru að gefa einhverjum heimatilbúna jólagjöf. Efþú trúirþví ekki skaltu pakka inn einhverju af heimatil- búna dótinu sem börnin þín hafa gefið þér á umliðnum jólum og gefa þeim það aftur. Fylgstu með svipnum á þeim þegar þau opna ana. pakk- t> Ú K E M S T ... ef þú heldur áfram að brugga. Verslaðu Jvið ríkið — annars nær Breiðholts- löggan í þig. E K K 1 1 G E G N .. Jn þess að tivíla HríTarhorMö Pumtíma. ... án þess aðfinna lykilinn að hamingjunni. ... án þess ad velta því fyrir þér m aö flýja til útlanda ® fyrir jólin. ... nema þú búir þér til óskalista. „Ekki kom mérþað d óvart að Svisslending- ar skyldu segja nei við EES. Ég hefþekkt einn Svisslending oghannsagði alltaf nei. Það var alvegsama hvort égfór vel að honum eða varýtin. Alltafsama nei-ið. En hann var myndarlegur, helvítið d honum."

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.