Pressan - 10.12.1992, Síða 28
28
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. DESEMBER 1992
B I O B O R G I N
Aleinn heima 2 - Týndur í New
York Home Alotie 2 - Lost in New
York ★ ★★★ Frábær skemmtun.
Spyrjið bara bömin. Það er helst að
þeim leiðist yfir boðskap jólanna í
gervi útigöngukonu. Þau tryllast
hins vegar af fögnuði yfir öllu því
dóti sem lendir á hausnum á bóf-
unum.
Sálarskipti Prelude to a Kiss ★★
Alec Baldwin lendir í þeim ósköp-
um að gamall maður kyssir kon-
una hans löngum kossi og skiptir
um líkama við hana á meðan. Þrátt
fyrir að þetta sé ágætt upphaf af
gamanmynd verður uppskeran lík-
ari Ijósrauðri hommafantasíu.
Friðhelgin rofin Unlawful Entry
★ ★ Þetta gæti verið Höndin sem
vöggunni ruggar II eða Pacific
Heights III.
Systragervi Sister Act ★★ Það er
visst átall þegar kemur í Ijós að
systurnar syngjandi eru fyndnari
en Whoopi Goldberg.
Veggfóður ★★★ Fjörug og
skemmtileg.
Fríða og dýrið The Beauty and the
Beast ★★★ Ótrúlega fögur mynd
og fjarska óhugnanleg þegar það
á við.
■nrimiM
Aleinn heima 2 - Týndur í New
York Horne Alone 2 - Lost in New
York ★★★★ Dett'á-rassinn-húm-
oraf bestu tegund.
Kúlnahríð Rapid Fire ★★ Hefnd
sonar Bruce Lee. Karatemennirnir
eru í hærri klassa en kvikmynda-
fólkið og fá báðar stjörnurnar.
Systragervi Sistcr Act ★★ Blanda
gaman- og tilfinningasemi og
sannar að það er sjaldan góður
kokkteill.
Lygakvendið Housesitter ★★
Myndin er spunnin út frá bráð-
snjallri hugmynd, en það er líka allt
og sumt.
Blade Runner ★★ Litlu breytt frá
frummyndinni og ekkert til bóta.
Kaliforníumaðurinn California
Man ★ Hellisbúi Ringo Starr
bregður sér til Kaliforníu.
Dingo ★★★ Þetta er mynd fyrir
djassara. Þeir kætast. Aðrir ekki. Og
þó. Semí-djassistar gætu endan-
lega frelsast.
Ottó Otto der Liebesfilm ★ Otto
Waalkes virðist vera svo fljótur að
búa til myndir að engar líkur eru á
að eftirspurn eftir honum vaxi á
milli myndanna. Hann er því á
góðri leið með að verða eins og
Valgeir Guðjónsson var á tímabili
og ætti að fara að ráðum hans og
hafa hægt um sig um stund.
Jersey-stúlkan Jcrsey Girl ★ Gam-
anmynd fyrir þá sem sjá allt í bíó;
þá sem þola ekki að eiga eina ein-
ustu stund með sjálfum sér eða
sínum nánustu.
Boomerang ★ Myndin sem átti að
draga úr hraðri niðurleið Eddies
Murphy af stjörnuhimninum. Hann
stendur sig þokkalega en getur
samt litlu bjargað.
Forboðin ást Ju Dou ★★★★
Meistaraverk. Óvenjustílhrein
mynd þar sem hvert smáatriði er
mikilvægur þáttur í magnaðri
heild.
Svo á jörðu sem á himni ★ ★★.
Háskaleikir Patriot Games ★★
ULWÆrWMÆ.WMA K‘3
The Babe ★★★ Hrífandi mynd
um einfeldning sem bjó yfir ein-
stökum hæfileikum í hafnabolta.
John Goodman er eins og skapað-
ur í hlutvekið.
Lifandi tengdur Live Wire ★
Mynd fyrir myndbandamarkað
sem einhverra hluta vegna hefur
fengið forsýningu í bíó.
Tálbeitan Deep Covcr ★★ Nokk-
uð smart mynd með meira af
spennu en ofbeldi. En spennan og
sagan renna út í sandinn eins og
tálbeitutrixið hjá fíkniefnalögregl-
unni.
Á réttri bylgjulengd Stay Tuned
★ Jón Axel og Gulli — The Movie.
Nokkuð af góðum hugmyndum
en þreytandi til lengdar.
Leikmaðurinn Thc Player
★ ★★★ í senn þriller, gamanmynd
og háðsádeila. Algjört möst — líka
til að sjá 65 stórar og litlar stjörnur
leika sjálfar sig. Maður býst við
Gunnari Eyjólfs í hverri senu.
Sódóma Reykjavík ★★★
Homo Faber ★★★★ Hittið frá
síðustu kvikmyndahátíð endursýnt.
Henry, nœrmynd af fjöldainorð-
ingja ★★ Að ýmsu leyti ókræsi-
legri morðingi en Hannibal Lecter.
Prinsessan og durtarnir ★★★ ís-
lensku leikararnir standa sig ekki
síður en þeir teiknuðu.
í sérflokki A Leaguc of their Own
★★★ Líklega skemmtu leikararnir
sér enn betur en áhorfendurnir.
Það ætti hins vegar engum að
leiðast að horfa á Geenu Davis.
Bitur máni Bitter Moon ★★★
Meinlega erótísk og kvikyndisleg.
Börn náttúrunnar ★★★
Borg gleðinnar City of Joy ★★★
S O G U B
Myndin kemur óhugnaði fátækra-
hverfanna í Kalkútta vel til skila en
sagan mætti hins vegar vera ris-
meiri. Þeir sem ekki nenna til Kalk-
útta að skera af sér tippið, eins og
Gunther Grass lagði til, geta
brugðið sér í Sögubíó.
Fríða og dýrið The Beauty and the
Beast ★★★ Ótrúlega fögur mynd
og fjarska óhugnanleg þegar það á
við.
Gulli milljónamæringur er
skemmtilegur í hlutfalli við
bassann, en ræður vel við
gripinn.
HVERJIR ERU HVAR?
Það er einhvern veginn erfitt að
hefja för annars staðar en á bíó-
barnum og skal haldið í þá hefð í
þetta sinn. Þar sást meðal annars
bregða fyrir Jóni Tryggvasyni leik-
ara, Einari Erni sykurmola og hans
frú, ballerínunm Sigrúnu Guð-
mundsdóttur Matthíasi Viðari
Sæmundssyn Þorgeiri Ólafssyni
listfræðingi Ingjaldi Hannibals-
syni hjá Utflutningsráði, Burkna J.
Óskarssyni og frænda hans Hringi
Hafsteinssyni Árna Snævarr,
Arnaldi Indriðasyni fréttamönn-
unum Hauki Hólm, Herdísi Birnu
Arnardóttur og Rósu Guðbjarts-
dóttur ásamt makanum Jónasi
Sigurgeirssyni. í fréttamánnalið
Stöðvar 2 vantaði meðal annarra yfir-
mann fréttastofunnar, en það kom
ekki að sök, því Ingvi Hrafn Jóns-
son sást á . Þar voru
líka meðal annarra Andri Már Ing-
ólfsson, séra Önundur Björnsson
og Sigurbergur bóksali. Það sást
til ferða Páls Stefánssonar Ijós-
myndara, Karls Óskarssonar kvik-
myndagerðarmanns og Rósu Guð-
nýjar Þórsdóttur leikkonu á Bar-
rokken á Hressó voru allir meðlimir
Sálarinnar og þar var hljómsveitin
Jet Black Joe eins og hún lagði
Þær eru villtar stúlk-
urnar í Kolrössu krók-
ríðandi, laundætrum
Bogomils, eins og sjá
má á þessum myndum
af trommmaranum,
bassaleikaranum og
henni Elísu, sem bæði
syngur og hoppar um
Sjon er sögu rikari.
Pála pensill brá sér á dansskóna
og tók léttar sveiflur á gólfinu.
Islandsvinurinn og Georgíu-
maðurinn Grigol Matsjavariani
brá sér út á næturlífið ásamt
leiðsögumanni sínum, Ólafi
Arnarsyni, „aðstoðarráðherra"
menntamálaráðherra. Þeir
heilsa hér upp á Bjarna Þórar-
insson, öðru nafni Kokk Kirjan
Kvæsir.
Þór Eldon
var mjög
þreyttur
þetta
kvöld en
lét sig þó
hafa það.
Hann er
hér í fé-
lagsskap
Jóa mynd-
listar-
nema.
Það er orðinn árviss viðburður
að hljómsveitin Todmobile haldi
tónleika í Óperunni fyrir jólin. Það
er ekki brugðið út af vananum nú
frekar en endranær og í kvöld
klukkan 21.00 stíga þau Andrea
Gylfadóttir, Eyþór Arnalds og
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson á
svið ásamt fríðu föruneyti og fylla
fslensku óperuna af drynjandi ís-
lensku gæðarokki með sviðsffam-
komu, sem hæfir vettvanginum.
Siður þessi komst á fyrir þrem-
ur árum þegar sveitin var að gefa
út fyrstu breiðskífu sína. Það þótti
reyndar bera vott um töluvert
hugrekki hjá nýrri rokkhljómsveit
að halda fyrstu tónleika sína í
Óperunni, enda ekki á vísan að
róa þegar reykvískir tónleikagestir
eru annars vegar. Efasemdar-
menn töldu líka ógerlegt að leika
stúdíóbrögðin eftir á sviði, en
Todmobile vakti frá fyrstu stund
athygli fyrir gífurlega vandvirkni
og snyrtimennsku í hljóðfæra-
slætti og útsetningum. Svo fór
hins vegar, að húsfyllir varð, og
þannig hefur það líka verið und-
anfarin tvö ár.
Á dagskrá tónleikanna í kvöld
verða meðal annars leikin lög af
síðasta diski Todmobile, 2603, en
einnig eldri lög, sem ekki hafa
heyrst um nokkurt skeið, þannig
að effir nokkru er að slægjast.
Þá spillir það ekki fyrir á þess-
um síðustu og verstu tímum, að
iriiðaverði er mjög stillt í hóf, er
aðeins 1.000 krónur.
Margir lögðu leið sína
í hljómsveitaveisluna
sem haldin var á
Hressó um síðustu
helgi, en þar tróðu
meðal annars upp Sig-
tryggur Baldursson
Sykurmoli ígervi Bog-
omils Font (frœnda
Franks Sinatra) og
vinir hans Milljóna-
mœringarnir. Fjör var
alvegfrá föstudegi
fram á sunnudags-
morguti, enda eiga
Bogomil ogfélagar sér
stóran kvenaðdáendahóp sem
eltirþá landshornatma á milli.
— Kolrössur kváðu einnig við
nýjan tón með vönduðu þjóð-
lagarokki en þess tná geta (því
miður strákar) að kœrastarnir
þeirra voru víst allir á gesta-
lista staðarins og mœttu til að
fylgjast með stúlkunum sínum.
Hljómsveitin Rut + með Ara
Eldon (bróður Þórs Sykur-
mola) í broddi fylkingar sýndi
einniggóða takta, en ekki eins
villta og Kolrössurnar.
Bogomil Font elskar sviðsljós-
ið. Þriggja ára stúlka, sem sá
hann um daginn í viðtali hjá
Hemma Gunn, sagði hneyksl-
uð við móður sína: mamma
saðu, hann e me vaðalid.
fólaskreytingarnar héVí víð og dreifútn síðuna eru
utinar af Sigríði Ingólfsdóttur íBorgarblómi, en hún
hefur á sér orðfyrir að gera frumlegar ogfallegar skreyt-
ingar. Jólaskreytingarnar í ár eru eingöngu unnar úr
náttúrulegum efnum ogSigríður notast mikið viðgræn
efni ogþurrkuð. Annar aðventukransinn sem hún
hannaði býður upp á að kertin standiýmist á kransin-
um sjálfum eða inni í honum.
Þessi eraf framsóknar-
ættum, eins og sjá má,
því þetta er enginn
annar en Guðmundur
Steingrímsson Her-
mannssonar, svolítið
undrandi.
Bogomil brá sér á
dansgólfið ineð eín-
um úr hópi fjöl- (
margra kvenaðdá-
enda.
sig...