Pressan - 21.01.1993, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 21. JANÚAR 1993
U N D I R
Ö X I N N I
Varstu bara að
reka áróður fyr-
ir Jón Baldvin,
Ingimar?
„Það er bara rugl."
Afhverju?
„Ég var að segja frá samningn-
um eins og hann iiggur fyrir."
Ragnar nefnir átta eða níu atriði
sem þú slepptir.
„Sumt af því sem hann tilgreinir
erekki liður í samningnum.
Sumt af því er vankantar á
samningnum og sumt af þvi er
atriði sem sérstaklega hans flokk-
ur hefur bent á sem vankanta. I
þessum þáttum var aldrei ætl-
unin að ræða nákvæmlega kosti
og galla samningsins, heldur
segja frá meginatriðum í hon-
um. (tíu mínútna þætti er ekki
hægt að fara ofan í saumana á
einstökum deilumálum. Hins
vegar hef ég fjallað um öll atrið-
in sem Ragnar nefnir, bæði í
fréttum og í fýrri þáttum, og þá í
óþökk þeirra sem þá sátu i ríkis-
stjórn, þar á meðal Alþýðu-
bandalagsins."
Þú skoraðir á Ragnar að gera
frekari grein fyrir gagnrýni sinni
á sínum tfma.
Já, hann talaði um að Sjónvarp-
ið hefði („fjölmörgum þáttum"
rekið áróður fýrir þessu efna-
hagssvæði, sem er alveg út í
hött. Ég skoraði á hann að fara
yfir þessa þætti og nefna atriðin
sem ekki kæmu þar fram. Það
hefur hann ekki gert. Ríkisstyrkir
EB til skipasmíðaiðnaðarins eru
eina atriðið sem ég hefði átt að
nefna. Það ræður hins vegar
engum úrslitum fýrir þann iðnað
hérlendis."
Hann segir að þú nefnir stjórnar-
skrármálið í einni stuttri setn-
ingu.
„Ég benti á hvað það væri varð-
andi Eftirlitsstofnun EFTA sem
ylli deilum hér. Fréttastofa Sjón-
varps hefur hins vegar fjallað
mjög ítarlega um stjórnarskrár-
málið, bæði í Þingsjá og nánast
daglega í fréttum."
Þeir hafa gert athugasemdir áð-
ur við störf þín, stjórnarandstæð-
ingar.
„Þingfiokkur Alþýðubandalags-
ins fól Ragnari að ganga á fund
útvarpsstjóra og óska eftir því að
ég yrði rekinn. Páll Pétursson fór
með, en ekki í umboði þing-
flokksins, svo og Kristín Einars-
dóttir, en hún flutti reyndar ekki
sömu skilaboð. Það var ekki
hlustað á það, enda ekki venja
þegar fólk úti í bæ vill færa til fólk
innan stofnunarinnar. Þau bentu
heldur ekki á nein efnisleg atriði
sem væru í ólagi, heldur var
þetta eitthvað sem þeim fannst."
En varla getur þetta verið tilvilj-
un, ef þau eru öll svona sammála
um hvað þú ert hlutdrægur
fréttamaður.
„Ég hef bent á að stjórnarand-
staðan sem síðast sat vildi fá mig
burt líka, svo ég hef engar
áhyggjur af því. Það fer kannski í
taugarnar á þeim að ég hef leg-
ið meira yfir þessum samningi
en flestir aðrir fjölmiðlamenn og
veit þess vegna nokkuð mikið
um hann. Ég hef ekkert hikað
við að benda á rangfærslur þeg-
ar þær koma fram, hvorki hjá
andstæðingum né stuðnings-
mönnum málsins."
Er rétt að utanríkisráðuneytið
hafi kostað þessa þætti að ein-
hverju leyti?
„Nei, það er rangt. Þeir voru kost-
aðiraf skrifstofu framkvæmda-
stjóra Sjónvarpsins."
Ragnar Arnalds, þingflokksfor-
maður Alþýðubandalagsins, hefur
gagnrýnt Ingimar Ingimarsson
harðlega fyrir hlutdrægan frétta-
flutning af EES-málinu.
F Y R S T
F R E M S T
INGVI HRAFN. Færir bróður sinn yfir á Stöð 2. ÓLITYNES. Verður
yfirmaður erlendra frétta í stað Þóris Guðmundssonar.
BRÆÐRAKÆRLEIKUR Á
STÖÐ2
Um mánaðamótin verða breyt-
ingar á fréttastofu Stöðvar 2 og
Bylgjunnar þar sem Ingvi Hrafn
Jónsson ræður ríkjum. Hann hef-
ur ákveðið að færa bróður sinn,
Óla Tynes, af Bylgjunni yfir á er-
lenda fréttadeild Stöðvar 2 og tek-
ur hann við stöðu Herdísar
Birnu Arnardóttur. Hún flyst
hins vegar yfir á Bylgjufréttir.
Ennfremur hefur Ingvi Hrafn í
hyggju að gera bróður sinn að
yfirmanni deildarinnar næsta
haust þegar núverandi yfirmaður,
Þórir Guðmundsson, heldur til
útlanda í nám. Þessar breytingar
bætast við tilflutning Hallgríms
Thorsteinssonar yfir á Bylgju-
fféttir, en nefnt hefur verið að við
hlutverki hans í Reykjavík síðdeg-
is taki Sigursteinn Másson, nú
fréttamaður.
TVEIR HÓPAR VILJA SAM-
SKIP
Tveir hópar athafnamanna eru
nú að velta fyrir sér kaupum á hlut
Landsbankans í Samskipum hf.,
hvor í sínu lagi. Þetta eru fslensk
verslun undir forystu Birgis
Rafns Jónssonar, Bjama Finns-
sonar og Sigfusar Ingimundar-
sonar í Heldu, en á hinn bóginn
hópur smáfyrirtækja innan Versl-
unarráðs. Þar eru í undirbúnings-
hópi Loftur A1 Þorsteinsson,
össur Stefánsson og Kristján
Óli Hjaltason. Tilgangur hvorra
tveggja er að tryggja samkeppni
við Eimskip í flutningum og kem-
ur það glöggt ffarn í bréfi sem síð-
arnefndi hópurinn sendi frá sér.
Ummælin um einokunartilhneig-
ingar Eimskips voru reyndar svo
sterk í upprunalegri útgáfu bréfs-
ins að framkvæmdastjóri Versl-
unarráðsins, Vilhjálmur Egils-
son, lagði til að orðalagið yrði
mildað áður en bréfið yrði sent út.
Þetta er angi þeirrar undarlegu
stöðu að smáfyrirtækin starfa inn-
an Verslunarráðs, þar sem staða
Eimskips og tengdra fyrirtækja er
mjög sterk. Uppistaðan innan fs-
lenskrar verslunar er hins vegar
fyrirtæki sem klufu sig út úr
Verslunarráðinu fyrir um ári, ekki
síst vegna meintra áhrifa Kol-
krabbans þar.
VALDABARÁTTA HJÁ
EIMSKIP
Eftir fráfall Thors Ó. Thors
verða óhjákvæmilega breytingar í
stjómum fyrirtækjanna sem hann
sat í. Ein þeirra er stjóm Eimskips.
Búist er við að Sjóvá-Almennar
muni nú reyna að fá inn annan
stjórnarmann, en Benedikt
Sveinsson, stjómarformaður Sjó-
vár-Almennra, situr nú í stjórn
Eimskips fyrir fyrirtækið. Helst er
rætt um að Einar Sveinsson, for-
stjóri Sjóvár og bróðir Benedikts,
sé kandídat í stjómina. Auk þess
að fá annan mann í stjórn munu
Sjóvá-Almennar geta krafist þess
að fá varaformannsstólinn, en
Garðar Halldórsson, húsa-
meistari ríkisins, gegnir því starfi
nú. Varaformaður í Eimskip hefur
feitt embætti, því hann situr jafn-
framt í stjórn Burðaráss ásamt
Herði Sigurgestssyni forstjóra
og Indriða Pálssyni stjómarfor-
manni. Þá sitja þessir þrír í stjórn
Háskólasjóðsins, sem fer með
hlutabréf sem Vestur-íslendingar
gáfu Háskólanum á sínum tíma.
Það er því til nokkurs að slægjast
fyrir þá Sjóvármenn.
REYKJAVÍKURKRATAR
SLÁST UM FORMANN
Senn líður að aðalfundi Al-
þýðuflokksfélags Reykjavíkur,
sem haldinn verður 10. febrúar
næstkomandi. Búast má við
harðri baráttu um formannssætið
þar sem Þorlákur Helgason,
varaformaður félagsins, og Val-
gerður Gunnarsdóttir sjúkraliði
hafa kunngert áhuga sinn á emb-
ættinu. Þorlákur hefur gegnt for-
mannsembætti síðan í haust að
Skúli Johnsen borgarlæknir lét af
því, en Valgerður situr einnig í
stjórn félagsins. Þau em þegar far-
in að falast eftir stuðningi félaga
sinna, en auk þess hafa verið
nefndir til sögunnar sem hugsan-
legir frambjóðendur þeir Gunnar
Ingi Gunnarsson, heilsugæslu-
læknir í Árbæ, og Þröstur Ólafs-
son, aðstoðarmaður utanríkisráð-
herra. Segja heimildir úr innsta
kjarna Alþýðuflokksins að fjöldi
fólks geti hvorki sætt sig við Þor-
lák né Valgerði og því hafi nöfn
þeirra Þrastar og Gunnars komið
upp.
DAVÍÐ VILL EKK
Hvorki Davíð né Þorsteinn vilja taka á móti Efraim Zuroff.
íslensk stjórnvöld hafa nú svarað beiðni Sim-
on Wiesenthal-stofnunarinnar um fund for-
stjórans, Effaims Zuroff, með Davíð Odds-
syni forsætisráðherra og/eða Þorsteini Páls-
syni dómsmálaráðherra vegna nýrra og um-
fangsmikilla gagna í máli Evalds Miksons.
Svarið er í stuttu máli á þá leið að Zuroff gæti,
ef hann ætti leið hjá, haft samband við Albert
Jónsson í alþjóðadeild ráðuneytisins og
myndi hann sjá til þess að einhverjir embættis-
menn hittu Zuroff að máli. Þetta vekur athygli
í ljósi þess að á nýlegri ferð Zuroffs um Eystra-
saltsríkin átti hann meðal annars fundi með
forsætis-, dómsmála- og innanríkisráðherrum
Eistlands og nýkjömum forseta Litháens.
Annars staðar í heiminum hafa pólitískir vald-
hafar sinnt erindum Wiesenthal-stoftiunar-
innar, svo sem Helmut Kold Þýskalands-
kanslari og Hans Englehardt, þá dómsmála-
ráðherra, Douglas Hurd, þá innanríkisráð-
herra Bretlands, og Bill Hayden, utanríkis-
ráðherra Ástrah'u, svo einhveijir séu nefridir.
Hjá Wiesenthal-stofnuninni er mál Miksons
litið svo alvarlegum augum að það verði að
bera upp við þá sem pólitískar ákvarðanir
taka, en ekki dugi til þess lágt settir embættis-
menn. Forstjórinn mun þó enn hafa í hyggju
að koma til landsins um mánaðamótin og
vinnur nú að skipulagningu þeirrar ferðar.
EINAR SVEINSSON. Kandidat Sjóvá-Almenna í stjórn Eimskips. GARÐAR HALLDÓRSSON. Sjóvámenn
horfa til varaformannsstólsins sem hann situr í. ÞRÖSTUR ÓLAFSSON. Nefndur sem einn hugsanlegra
frambjóðenda til formanns í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur. VILHJÁLMUR EGILSSON. Bað smáfyrirtæk-
in að milda gagnrýnina á Eimskip.
Skóverksmiðjan
Strikið. Það hlýtu>
eitthvert vit að
vera í framleiðsl-
unni (þóttengum
hafi tekist að
finna það hingað
til) úr því Skag-
strendingur vill
kaupa fyrirtækið.
Sighvatur Björg- a
vinsson. Hljópá
sigþegarhann "
vændi eiliheimilin
um þjófnað.
Friðrik Þór og Hilmar
Oddsson. Einu kvik-
myndagerðarmennirnir
sem geta búið til bíó á
þessu ári án þess að berj
ast I bönkum og bensín-
stöðvum.
Einar S. Einarsson og VISA
Island. Missti ferðaskrif-
stofurnar og farkortin yfir
til keppinautarins.
Jón Sigurðsson iðn-
aðarráðherra.
Hann er orðinn
svo örvæntingar- iL
fullur í álmálinu
að hann rýkur
vesturum hafaf því
að ÓlafurÓ. Johnson
segirað vinursinn
eigi slípiefnaverk-
smiðju (og líklega
án þess að vita
hvað í ósköpun-
um það er).
Svanhildur Kaaber
og kennarastéttin.
Hún ereinhvern
veginn meira með
sjálfri sér þegar
verkföll eru yfirvof-
andi en inni (
kennslu-
Um ...... stofun-
Viðar Eggertsson og Eggleikhús-
ið hans. Hann hefur sjálfsagt
aldrei fengið jafnslæma dóma
og nú fyrir Svínasteikina.
Þórður Frið-
jónsson. Hann
stal senunni
með þjóð-
hagsspánni
og á hana þar
til þing kemur
saman.
Óli Laufdal. Örfáar
hræður á Hótel (s-
landi og öll „showin"
hafa fallið
undanfarna
URfS mánuði.
Jóhann Berg-
þórsson. Stakk
SH-verktökum
undan Pétri H.
Blöndal.