Pressan - 18.11.1993, Síða 2

Pressan - 18.11.1993, Síða 2
FYRST OG FREMST Fimmtudagurinn 11. nóvember 1993 2 PRESSAN SVAVA JOHANSEN. Hjónin Bolli og Svava í Sautján hafa keypt Ashkenazy-húsið. HERLUF CLAUSEN. Selur villuna sína, gerir eignakönnun og opnar spilavíti. Ashkenazy-húsið keypt Hjónakornin Ásgeir Bolli Kristinsson og Svava Johansen hafa löngum látið að sér kveða í viðskiptalífinu og nú hafa þau keypt eitt glæsilegasta hús bæjarins, Ashkenazy-húsið svonefnda við Brekkugerði 8. Þar bjuggu lengst af Vladimir Ashkenazy og Þórunn Jó- hannsdóttir Ashkenazy en nú síðast Unnur Óskarsdóttir bókaútgefandi. Bolli og Svava eru bæði af efnuðu fólki kom- in, Bolli er sonur Kristins heit- ins Bergþórssonar sem rak samnefnda heildverslun og var einn auðugasti maður landsins og Svava er dóttir Rolfs Johansen. Bolli stofnaði tískuverslunina Sautján árið 1976 en nú reka þau hana bæði í Kringlunni og við Laugaveg. Þá eiga þau um 8 prósenta hlut í íslenska út- varpsfélaginu. Herluf Clausen í kröggum Á sama tíma og Ásgeir Bolli Kristinsson og Svava Johansen eru að bæta við sig er Herluf Clausen að draga saman segl- in og hefur sett glæsihýsið á Hofsvallagötu 1 á sölu. Það hús byggði Vilhjálmur Þór, forstjóri Sambandsins, en Björgólfur Guðmundsson bjó þar áður en Herluf keypti hús- ið. Eins og PRESSAN greindi frá í sumar hefur þrengt tals- vert að Herluf í kjölfar hnign- unar Laugavegarins og fata- verslunar auk erfiðs efnahags- ástands. Hann hefur ekki ver- ið við á skrifstofú sinni síðasta mánuðinn og er fullyrt að hann sé að láta gera eigna- könnun fyrir sig. Einnig hefúr hann eytt talsverðum tíma með Sigríði Ingvarsdóttur hjá uppboðsfyrirtækinu Sothe- by’s, en hún er ein fsbjarnar- systkinanna svokölluðu. Herluf ber sig þó mannalega og telur sig vera að ná tökum á fjárhagserfiðleikunum. Hann hefur heldur ekki lagt árar í bát, því á næstunni verður opnað spilavíti í hús- næðinu undir Café Romance. Misheppnaöir út- gúfutonleikar Spor hf., útgáfufyrirtæki Jóns Ólafssonar og Steinars Berg ísleifssonar, hélt útgáfu- kynningu í Þjóðleikhúskjallar- anum á þriðjudagskvöld. Mikill fjöldi tónlistarmanna og fjölmiðlafólks mætti á kynninguna, enda átti hún að hefjast klukkan átta og boðið var upp á fjórar hljómsveitir auk auglýstra veitinga, bæði í mat og drykk. Eitthvað virðist skipulagið hafa farið fýrir ofan garð og neðan, því flestir fengu hvorki mat né drykk og spilamennskan hófst ekki fýrr en klukkan hálfellefu um kvöldið. Skipuleggjendur höfðu gleymt að kynna sér að Þjóðleikhúsið var með æfingu á Skilaboðaskjóðunni sem ekki mátti trufla. Spormenn reyndu að hefja leik á tíunda tímanum eftir nokkrar afsak- anir á langvinnum töfúm Stefán Hilmarsson sté á svið en náði einungis að klára eitt lag. Þá kom Kristín Hauks- dóttir, sviðsstjóri í Þjóðleik- húsinu, sótrauð og hellti sér yfir Steinar Berg á meðan Jón Ólafsson stóð álengdar, enda ekki vanur að sjá um skítverk- in. Stefán fór heim við svo bú- ið en hinar sveitirnar hófu spilamennsku seint á ellefta tímanum. Einkavinavæð- ing á Sjónvarp- inu Ekki er enn allur vindur úr Hrafni Gunnlaugssyni, fram- kvæmdastjóra Sjónvarps. Á dögunum réð hann til starfa við stofnunina nýjan starfs- kraft, Elsu Stefánsdóttur, til að gegna starfi sviðsstjóra Sjón- varps. Starf sviðsstjóra þykir feitur biti, sem sést best á því að hvorki meira né minna en eitt hundrað tuttugu og sjö sóttu um stöðuna. Þeir sem leggja sig fram um að fýlgjast með þvíumlíku þykjast finna einkavæðingarfnyk af þessari ráðningu eins og fleirum í Sjónvarpinu. Elsa Stefánsdótt- ir er nefnilega eiginkona Birgis Sigurðssonar rithöfundar — góðvinar Hrafns. Tapsórir unglið- ar i Kópavogi Prófkjör sjálfstæðismanna í Kópavogi var haldið nú um helgina. Eðli málsins sam- kvæmt urðu menn mishrifnir af niðurstöðunni en enginn var jafnóhress með eigin út- 1 viðtali við Morgunblaðið 29. október gerði Hrafn Gunnlaugsson því skóna að Árni Þórarinsson ritstjóri hefði átt stóran þátt í því hversu lítinn stuðning Hin helgu vé fengu frá Kvik- myndasjóði, en þar situr Árni í úthlutunarnefnd. Þennan sama dag var ný úthlutunar- nefnd skipuð með Árna inn- anborðs, en daginn eftir gerði Árni athugasemd við um- mæli Hrafns í Mogganum þar sem hann „lýsti eftir þeim manni sem getur fært gild rök fýrir því að Hrafh Gunn- laugsson hafi borðið skarðan hlut frá borði í viðskiptum við opinbera sjóði“. Þetta var nóg til þess að Ólafi Arnar- syni, varamanni Hrafns í stjórn sjóðsins, þótti ástæða til að efast um hæfni Áma til að starfa í úthlutunarnefnd og skrifaði stjórn Kvik- myndasjóðs bréf þar að lút- andi. í bransanum var al- mennt álitið að nú hefðu Hrafnsmenn farið yfir strildð, enda vandlifað ef menn mættu ekki svara ásökunum á hendur sér án frekari mála- lenginga. Þegar stjórn sjóðs- ins hafði skoðað álitsgerð um málið frá Ragnari Aðalsteins- syni lögmanni komst hún að þeirri niðurstöðu síðasta ÓLAFUR ARNARSON. Efaðist um hæfni Árna sem úthlutara. föstudag að ekkert væri at- hugavert við setu Árna í nefndinni, en auk hans voru skipuð þau Ingibjörg Briem og Ragnheiður Steindórs- dóttir. Ekki er vitað hvort Hrafn Gunnlaugsson verður meðal styrkumsækjenda á næsta ári. ÁRNIÞÓRARINSSON. Svaraði ásökunum Hrafns. komu og Jón Kristinn Snæhólm, sem lenti í áttunda sæti. Stuðningsmenn hans brugðust ókvæða við niðurstöð- unni í Sjálfstæðishúsinu, glös og borð- búnaður var brotinn og stólar eyði- lagðir. Einnig fékk Gunnar I. Birgisson það óþvegið frá stuðningsmönnum Jóns Snæhólms og á endanum var lög- regla kölluð til. Ungliðarnir fluttu sig flestir yfir götuna í kosningaskrifstofú Jóns og héldu „gleðskapnum“ áfram. Jón Kristinn Snæhólm var í bandalagi við Gunnar I. Birgisson, Arnór Pálsson og Höllu Halldórsdóttur og átti að fá þriðja sæti listans. Þegar Jón Kristinn opnaði kosningaskrifstofu sína stóð Gunnar Birgisson upp og lýsti því yfir að hann ætti 100 prósent stuðning sinn vísan í þriðja sætið og því töldu menn sætið öruggt. Jón Kristinn lagði í mikinn kostnað vegna prófkjörsins og mikið af stuðningsfólld vann ötul- lega fýrir hann en það dugði ekki til og hann féll um eitt sæti frá síðasta lista. Palllisti í Képavogi Þótt Gunnar Ingi Birgisson hafi hlotið glæsilega kosningu í fýrsta sæti hjá sjálfstæðismönnum í Kópavogi er ljóst að Bragi Mikaelsson er ótvíræður sigurvegari prófkjörsins. Hann náði öðru sæti listans og helsti stuðnings- maður hans, Guðni Stefánsson, hlaut fjórða sæti listans. Á þessu kjörtímabili er flokkurinn með fimm bæjarfúlltrúa en flestir reikna með að þeir verði íjór- ir eftir næstu kosningar að teknu tilliti til meirihlutaþátttöku í bæjarstjórn, óvinsællar ríkisstjórnar og tiltölulega veiks lista nú. Engin kona er í öruggu sæti og fulltrúi ungu kynslóðarinnar galt afhroð. Fylkingarnar verða því væntanlega með tvo menn hvor í bæj- arstjóm og ekki era nokkrar líkur á að hreyft verði við listanum þótt Gunnar sé sá eini þeirra sem hlaut bindandi kosningu. Gunnar og Arnór Pálsson munu ekki víkja fýrir konu og því síð- ur Bragi eða Guðni. Klofningsóttinn er of mildll til að breytingar verði knúðar í gegn og má nefna að Guðni hefur áð- ur boðið fram klofið. Sá sem átti ekki hvað minnstan þátt í góðu gengi Guðna og Braga er Ríkarður Björg- vinsson, sem leiddi listann á árum áð- ur. Karl Steinar gegn tryggingalæknum Gangur skattamála gagnvart fjórum læknum Tryggingastofnunar hefur mörgum þótt með ólíkindum. Því er haldið fram að ekki hafi komist hreyf- ing á þetta innan stofnunarinnar fyrr en Karl Steinar Guðnason tók við for- stjórastöðunni, en hann hefur sagt í einkasamtölum að hann telji málið allt hafa skaðað stofnunina mikið. STEINAR BERG ÍSLEIFSSON. Mundi ekki eftir æfingu í leikhúsinu og boðaði helling af fólki á útgáfutónleika. KRISTÍN HAUKSDÓTTIR. Sýningarstjórinn hellti sér yfir Steinar og stöðvaði útgáfutónleikana. STEFÁN HILMARSSON. Var stoppaður eftir eitt lag ogfór heim. HRAFN GUNNLAUGSSON. Réð eiginkonu einkavinar síns sem sviðsstjóra. GUNNARI. BIRGISSON. Stuðningsmenn Jóns Kristins Snæhólm sökuðu hann um svikið bandalag og gengu berserksgang. BRAGI MfKAELSSON. Konulaus og ungir tapa á einvígi gömlu mannanna. KARL STEINAR GUÐNASON. Flýtir málsmeðferð gegn tryggingalæknum. iiMNI/ELI VIKUNNAR HeilJ U lll !"■ U 1 „Ýtarleg rannsókn ' (ðLTHLS verður að fara ffarn á því sem meist- ari Jakob er með á milli eyrnanna til að fá skýringu á far- sælum ferli hans.“ „Konur búa ekki aðeins yfir hæfileikanum að ala af sér börn, kvenlíkaminn er einnig erótískur og sexual. Ég veit ekki til þess að mikið hafi verið fjallað um konur sem kynverar innan Kvennalistans.“ Inga Dóra Bjömsdóttir kynvera. Björg Árnadóttir Verustýra. Ytoðasvæðikarla Hugsjón í orði en ekki Konur eru honum á borði verstar „Ég var konu minni ótrúr og eignaðist barn utan hjóna- „Auðvitað er full þörf á nýrri kvenna- bands. Það var hins vegar ekki það sem ég ætlaði mér. Það hreyfingu en hin sterka staða Kvennalistans er mín hugsjón að þegar maður giftir sig er maður að mundi gera slíkri hreyfingu mjög erfitt fýr- bindast sínum maka til ffambúðar." ir.“ Jón Magnússon borgarstjóri. Inga Dóra Björnsdóttir kynbomba. „Karlmenn verða að fá að hafa sín yfirráðasvæði.“ Siguröur Svavarsson karlremba. „Þróttur verður aldrei neitt félag og ég treysti mér ekki til að breyta því.“ Jóhannes Eðvaldsson fótboltabulla.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.