Pressan - 18.11.1993, Blaðsíða 7

Pressan - 18.11.1993, Blaðsíða 7
Immtudagurinn 18. nóvember 1993 pressan 7 Bankar og sparisjóðir (Tölur i mílljörðum kr.) Lagtáaf* skrift- arrcikning Töpuð útlán Töpuð staöa á afskrift- arreikning 1989 1.9 1,1 3,1 1990 2,6 0,4 5,3 1991 2,5 2,1 5,7 1992 7.2 3,0 9,8 Samtals 14,2 6,6 Tap og afskriftir eftir bönkum 1989-1992 (Tölur i milljörðum króna) Afskriftir Tap Landsbanki 7,4 2,7 íslandsbanki 4,0 2,4 Búnaðarbanki 1,4 0,6 Sparisjóðirnir 1,5 0,9 Samtals 14,3 6,6 Fjárfestingarlánasjóðir (Tölur i milljörðum kr.) Lagt á af- skrift- orrcikning Töpuð útlán Staðaáaf- skriftarreikn- tng reikningi f árslok 1989 2,0 0,9 2,0 1990 2,6 1,2 3,4 1991 6,9 3,5 6,8 1992 2,3 3,7 5,4 1993^ 2,5 1,6 6,4 Samtals 16,3 10.9 Banka- og fjórfeslingarlánasjóðskeifið úllánum ngibjörg Sólrún Gísladóttir leggur fram frumvarp til laga um skipan rann- ióknarnefndar. Hliðstæða nefndarinnar sem skipuð var vegna Hafskips- nálsins. Á að kanna hvort bankakerfið hafi staðið eðlilega að útlánum )g hvort óeðlilegum pólitískum þrýstingi hafi verið beitt við lánveitingar. Jtlánatap 16,1 milljarður 1989-1992 og 35,3 milljarðar lagðir á afskrift- irreikning síðastliðin fimm ár. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Vill láta rannsaka hvort fjármálastofnanir hafi staðið faglega að útlánum og hvort þær hafi verið beittar óeðlilegum pólitísk- um þrýstingi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mun á næstu dögum leggja fram frumvarp til laga, þar sem hún leggur til að skipuð verði sérstök fimm manna rannsóknarnefnd til að kanna útlánatap viðskiptabanka og fjárfestingarlánasjóða at- vinnuveganna. Ber Ingibjörg Sólrún málið upp sem ífurn- varp til laga, svo starf nefndar- innar eigi sér lagastoð, og er þar hafður sami háttur á og þegar sérstök rannsóknar- nefnd var skipuð í Hafskips- málinu til að rannsaka töpuð údán Útvegsbankans. Údána- tap banka og fjárfestingar- lánasjóða var 16,1 milljarður árin 1989-1992 og 35,3 millj- arðar hafa verið lagðir á af- skriftarreikning síðastliðin fimm ár. I nefndinni munu að öllum líkindum sitja tveir að- ilar frá Hæstarétti, tveir frá Ríkisendurskoðun og einn frá viðskipta- og hagfræðideild Hl. Má búast við að nefhdar- innar bíði langt og strangt starf verði lagafrumvarpið samþykkt, enda hefur slík heildarrannsókn á bankakerf- inu aldrei farið fram áður. Rannsóknarnefhdinni verður látið eftir að ákveða hversu langt aftur í tímann rann- sóknin nær. Standa lánastofnanir sig faglega? Ingibjörg Sólrún sagði í samtali við PRESSUNA að nefhdin ætti að kanna hvort þetta údánatap á undanförn- um árum mætti að einhverju leyti rekja til þess að um óeðli- lega viðskiptahætti hefði verið að ræða í viðskiptum banka og fjárfestingarlánasjóða við helstu skuldunauta sem ekki hefðu getað staðið í skilum. Segir í frumvarpinu að „nefndin skuli sérstaklega at- huga hvort lánafyrirgreiðsla bankanna og fjárfestingar- lánasjóðanna á hverjum tíma hafi verið í eðlilegu samræmi við starfsumfang lántakenda, eiginfjárstöðu fyrirtækja og tryggingar fyrir skuldum“. Þetta þýðir að nefndin eigi að kanna hvort bankarnir hafi látið fara fram eðlilegt mat á lántakendum og eiginfjár- SIGHVflTUR BJÖRGVINSSON Tekur á móti skýrslunni ef fllþingi samþykkir að láta vinna verkið. hagsstöðu þeirra og trygging- um á þeim tíma þegar þeir fengu þau lán sem þeir hafa síðan ekki getað greitt til baka og bankamir tapað. Nefhdin á sem sé að kanna hvort hugs- anlega hafi verið vafasamt mat á ferðinni. Óeðlilegur pólitískur þrýst- ingur í lánveitingum Jafhffamt er nefndinni æd- að að kanna hvort stjómvöld eða aðrir aðilar hafi í einhverj- um tilfellum beitt óeðlilegum pólitískum þrýstingi til að greiða fyrir lánveitingum. Benti hún á hnútukast Sig- hvats Björgvinssonar við- skiptaráðherra og Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráð- herra í fjölmiðlum nýverið. Þorsteinn Pálsson hafði þá gagnrýnt bankakerfið harð- lega fyrir slælegan rekstur á aðalfundi Sambands fisk- vinnslustöðva, en viðskipta- ráðherra svaraði Þorsteini og sagði sjávarútvegsráðherra gleyma „að meirihlutinn af þessum lánum hefur farið til fyrirtækja í sjávarútvegi, í mörgum tilvikum fyrir beinan eða óbeinan þrýsting frá stjórnvöldum, meðal annars frá honum sjálfum". Þor- steinn heimtaði í ffamhaldinu að Sighvatur „geri nána grein fyrir fullyrðingum sínum um að bankastjórar hafi brotíð lög með því að láta stjórnmála- menn ákvarða útlán“. Ekki hefur heyrst meira frá þeim félögum um þetta mál síðan. Þá hefúr Davíð Oddsson for- sætísráðherra haldið því ffam að Landsbankinn hafi verið notaður sem „félagsmála- stofnun atvinnulífsins“, en þau ummæli féllu þegar ríkis- stjórnin kom bankanum til bjargar síðastliðið vor. Þá styrkti ríkið bankann um tvo milljarða sem eigið fé, Seðla- banki veittí honum 1,25 millj- arða í víkjandi lán og Trygg- ingasjóður ríkisbankanna veitti einn milljarð í lán. Við sama tækifæri kom fram hjá Jóni Sigurðssyni, þáverandi viðskiptaráðherra, að Lands- bankinn hefði látið gera „ítar- legri könnun á stöðu viðskipta- manna sinna en hann hefur nokkru sinni áður gert“. Má æda að sú vinna komi til með að gagnast hugsan- legri rannsókn- arnefnd nokk- uð. 16 milljarðar tapaöir Útlánatap í bankakerfinu undanfarin ár hefur verið mikið, þótt það blikni við hliðina á hruni bankastofnana undanfarin ár á Norðurlönd- um. Niðurstöðutölur fyrir banka og sparisjóði og fjár- festingarlánasjóðina eru þær að á árunum 1989 ffam á fyrri helming þessa árs hafa verið lagðir 35,3 milljarðar á af- skriftarreikning og 16,1 millj- arður hefur tapast. Spurning- in sem Ingibjörg Sólrún vill láta svara er hvort það var óhjákvæmilegt eða ekki. Ingibjörg segist hafa hug- myndir um að tilnefht verði í nefndina og að í henni muni ekki sitja pólitískir aðilar. Nefndinni er ætlað að skila skýrslu til viðskiptaráðherra, sem á síðan að gera Alþingi grein fýrir störfúm sínum og niðurstöðum. Einungis er tek- ið fram að ætlast sé til að nefndin hraði störfum, en henni eru ekki sett önnur tímamörk. Páll H. Hannesson RONNING BORGARTUNI 24 SÍMI 68 58 68 Rannsókn á óeðlilenum ★1993 miðast við fyrri helming árs

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.