Pressan - 18.11.1993, Blaðsíða 4

Pressan - 18.11.1993, Blaðsíða 4
SKÁTABALL PRESSAN Fimmtudagurinn 18. nóvember 1993 EKKI- SJÓN- VARPS- AUGLÝS- ING MOGGANS „Sagði [Páll] að efnið hefði ekki verið afmarkað sam- kvcemtþví sem segði í útvarps- lögutn og það leiddi hugann að því hvert stefndi í kostun sjónvarpsefnis. „Kostunarað- ila var ekki getið í þessu sam- bandi. Er það œskileg stefna hjá Ríkissjónvarpinu að fyrir- tœki geti keypt sig inn í dag- skrá Ríkissjónvarpsins með svona efni?“„ Páll Pétursson, þingmaður Framsóknarflokks, í Morg- unblaðinu. Halldór V. Kristjánsson, auglýsingastjóri RÚV: „Það er ekki rétt hjá Páli að efnið hafi ekki verið af- markað samkvæmt því sem segir í útvarpslögum. Það var gert samkvæmt lögum Ríkis- útvarpsins bæði fyrir og eftir þáttinn. Það var heldur ekki um kostunaraðila að ræða, en þarna blandar Páll saman auglýsingaraðila og kostun- araðila. Morgunblaðið var bara auglýsandi en ekki kost- unaraðili. Varðandi endur- skoðun á kostun sjónvarps- efnis vil ég benda honum á að síðastliðið vor komu lög um breytingar á útvarpslög- um, en þar kemur ffam hvað er auglýsing, dulin auglýsing og kostun. Það er bráðnauð- synlegt fyrir þingmenn að lesa þessi lög. Mér finnst slæmt hvernig ráðist er á Ríkisútvarpið og starfsmenn þess vændir um að brjóta lög. Hér var farið fullkom- lega að lögum.“ PLATA UNGLING- AR LÖGG- UNA? „Við sáum drukkinn ung- lingspilt lúbarinn aðeins nokkra metra frá lögreglubíl með þremur lögregluþjónum sem ekki skökkuðu leikinn þótt þeir vceru beðnir um það ítrekað. Greinilegt var að lög- reglan taldi það ekki verkefni sitt að leysa upp drykkjusam- komu barnanna... Lögreglu- þjónarnir reyndu ekki aðfjar- lœgja þá sem voru drukknir á almannafceri þótt það stríði gegn landslögum.“ Valdimar Jóhannesson framkvæmdastjóri í DV. Jónas Hallsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn í Reykja- vík: „Ég bara trúi því ekki að þetta sé eins og hann lýsir því. Lögreglumönnum er uppálagt að hafa afskipti af unglingum og ég sé ekki hvað þarna er á ferðinni. Við upplifum hlutina kannski allt öðruvísi en fólk sem kemur sjaldan eða aldrei í miðbæ- inn. Við upplifum ólæti í unglingunum, þau eru með ólíkindalæti og látast vera í áflogum eða í einhverjum fær Slöfui fyrir að hœkka meðal- aldur drengjanna Itans Hrafns. árásarhugleiðingum þegar við erum nærstaddir. Það er kannski ögrun við okkur, við skiptum okkur kannski af einhverju sem er ekki neitt neitt. Við upplifum þetta lika þannig að unglingar eru að leika sig ölvaða í nálægð okk- ar, gagngert til þess að plata okkur. Eg tel þetta orðum aukið og séð ffá sjónarhorni aðila sem bregður virkilega við ástandið þótt það sé orð- ið miklu betra í dag en það var.“ EIGI SKAL HÖGGVA! „Fjölmiðlarfóru hamförum nokkru síðar þegar svonefnt jeppamál Seðlabankans varð að fárviðri í blöðum, útvarpi og ekki síst sjónvarpi... Sú að- för jjölmiðla sem gerð var að Jóni Sigurðssyni bankastjóra verður ekki íslenskum fjöl- miðlum til sóma er fram líða stundir.“ Úr leiðara Alþýðublaðsins. Ingvi Hrafn Jónsson, fféttastjóri Stöðvar 2: „Ég hef ekki annað um þetta að segja en það að um- fjöllun fjölmiðla um þessi jeppakaup endurspeglaði bara almenningsálitið. Punktur basta.“ Félagið vekur athygli ó félaginu / kvöld eru tónleikar í Tungl- inu. Þeir eru haldnir til að vekja athygli á réttindabar- áttu tvíkynhneigðra. Á íslandi er til félag sem heitir Félagið. Það er rétt- indafélag samkynhneigðra og tvílcynJmeigðra. Þessi fé- lagsskapur er ekki eins og Kvennalistinn, það geta all- ir fengið að vera með. Fé- lagið varð til fyrir ári og hvatinn að stofhun þess var klofningur hóps úr Sam- tökunum 78, en þau neit- uðu að taka orðið tvíkyn- hneigðir inn í undirtitilinn: Samtök homma og lesbía. Ritari Félagsins er Eysteinn Traustason. „Já, þeim í Samtökunum hættir til að sjá hlutina í svart/hvítu, tala meira og gera minna. En við eigum í engum útistöð- um við þau. Þetta er ein- faldlega önnur Jcynslóð sem vill taka öðruvísi á málun- um. Við viljum fá að skil- greina okkur sjálf. TvíJcyn- hneigðir eru eklci það sama og hommar og lesbíur." í Félaginu eru um fimm- tíu félagsmenn. Lesbíur eru í meirihluta, restin skiptist nokkuð jafnt milli homma og tvíkynhneigðra. Ey- steinn segir að ekki hafi komið ffam nein togstreita milli kynja né kynlineigðar. „Þetta byggist allt á jafhrétt- isgrundvelli. Markmiðið er að allir geti komið út og kynnst hver öðrum. Þannig upprætum við fordóma. Einnig er það svo að fólk á oft erfitt með að slcilgreina sig sjálft. Þama er vettvang- ur til að tjá sig, fólk þarf milcið að tala. Við þurfum öll að læra af reynslu ann- arra. Það hefur gætt mis- skilnings — þessi félags- skapur snýst ekki um kynlíf heldur um stuðning. Við erum hálfgerðir skátar. Þetta er spurning um ást, ekki kynlíf.“ Félagið hefur í hyggju að bjóða upp á fyrirlestra í skólum, hefur reyndar farið í tvo skóla nú þegar. Tak- markið er að koma upp skrifstofu, gefa út bækling til að koma afstöðunni á ffamfæri og útvega síma. En eru miklir fordómar ríkjandi? „Það kemur mér á óvart hvað fólk hefur tekið okkur vel, en það þarf alltaf að halda umræðunni opinni. Annars em ranghugmyndir fljótar að gera vart við sig. Tvíkynhneigðir hafa orðið undir í umræðunni. Það eru ekki nema um tvö ár síðan þessi hópur kom ffam. Tvíkynhneigðir eiga erfiðara með að viðurkenna kenndir sínar og standa við þær.“ Tónleikarnir eru til styrktar Félaginu og húsið verður opnað klukkan 21.00. Þeir sem koma ffam eru eftirtaldin SSSpan, Kol- rassa krókríðandi, Texas Jesús, Páll Óskar Hjálmtýs- son, Bubbleflies og Ham. Á milli atriða kemur fram bongódúett skipaður tveimur stelpum sem kalla sig Dafínu. Þá láta trúba- doramir Heiða og Kristína sjá sig. EYSTEINN TRAUSTASON. „Það gætir misskilnings, þetta snýst ekki um kynlrf. debet Gunnar I. Birgisson „Gunnar er skarpgreindur, vinnusamur, góður samningamaður, fljótur að átta sig á kjama málsins og nær því oft yfirburðastöðu á fundum. Hann er skemmtilegur félagi og traustur vinur og honum er að takast það sem engum datt í hug, að halda meiri- hlutasamstarfi í Kópavogi í fjögur ár,“ segir Öm Kjærnested, formaður Verktakasambandsins. „Gunnar er ákaflega vel gefinn maður, úrræðagóður og þrautseigur. í samstarfi leggur hann vel til mála og er óhræddur að taka til hendinni,“ segir Páll Sig- urjónsson, framkvæmdastjóri ístaks. „Gunnar er vitsmunavera og er fljótur að greina aðalatriði frá aukaatriðum. Hann er fljótur að taka ákvarðanir og nægilega djarfhuga til að hlutimir gangi þokkalega undan. Maðurinn er lúmskur húmoristi," segir Val- þór Hlöðversson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalags- ins. „Gunnar er hörkuduglegur og metnaðargjam maður og virðist ekkert gefinn fyrir óþarfa málæði og tafir af þess völdum. Það er óskiljanlegt hvað hann kemst yfir af margþættum störfum. Fyrir okk- ur Kópavogsbúa var það mikill fengur að fá Gunnar til forystu um málefni bæjarins," segir Páll Hannes- son verkfræðingur. Skarpgreindur og vinnu- samur — eða einrátt átvagl? Gunnar I. Birgisson er umdeildur en leiðir llsta sjálfstæðismanna í Kópavogi. „Gunnar er óþolinmóður þegar karpað er um mál sem skipta litlu málL Hann borðar of mildð eins sjá má á honum, hann getur verið langræk- inn og tekur stundum of mikið að sér,“ segir öm Kjærnested, framkvæmdastjóri Álftáróss og for- maður Verktakasambandsins. „Fyrir okkur Reykvíkinga er helsti gallinn við Gunnar að hann skuli vera Kópavogsbúi," segir Páll Sigur- jónsson, framkvæmdastjóri Istaks. „Gunnar hef- ur ríka þörf fýrir að safna um sig jábræðrum. Hann þolir illa gagnrýni og tekur henni sem per- sónulegum árásum. Hann hefur of mikinn áhuga á verklegum framkvæmdum á kostnað hinna mýkri gUda,“ segir Valþór Hlöðversson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Kópavogi. „Gunnar má vara sig á að metnaður hans og kapp beri hann ekki ofurliði. Hann er að sýsla í of mörgu og slitnar því örar en efiii standa til. Hann gæti líka verið í betri félagsskap en með frjálshyggjumönnunum í Sjálfstæðisflokknum,“ segir Páll Hannesson verlcfnéðingur.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.