Pressan - 18.11.1993, Blaðsíða 8

Pressan - 18.11.1993, Blaðsíða 8
F R ETT I R 8 PRESSAN Fimmtudagurinn 18. nóvember 1993 Himnasending Stöðvar tvö ÞRÍR OG HÁLFUR MILLJARÐUR í LOFTIÐ H' JBlr #i|p#ipi*ify ■M iiwiiir •' ' ;■■■ v::i ■' ^gWBP^ 45 þúsund myndlyklar að verðmæti 400 milljónir króna verða gagnslausir og verðlausir, en eiga þó flest- ir 5-8 ár eftir af líftíma sínum. Stöð 2 viðurkennir siðferðislegar og lagalegar skuldbindingar við eigend- ur þeirra, en veit ekkert hvernig bregðast á við. Ny loftnet geta kostað þjóðina tæpan milljarð. Stöð 2 hefur lagt fjárhagsiega framtíð sína að veði með breytingunum. Gerist þeir 45 þúsund íslend- ingar sem nú eru áskrifendur að Stöð tvö jafnframt áskrif- endur að Fjölvarpi, þ.e. gervi- hnattasjónvarpi, má reikna út að þjóðin eyði sem svarar þremur milljörðum, tvö hundruð og tíu milljónum króna á ársgrundvelli fyrir vikið. Það er samanlögð árs- áskrift að Stöð 2 og Fjölvarpi, kostnaður við ný loftnet sem fólk þarf til að ná sendingun- um og skilagjald sem krafist verður af nýjum myndlykl- um. Er hér gengið út ffá að loft- net, sem nauðsynleg eru til að ná nýju útsendingunni, kosti með uppsetningu að meðal- tali 27 þúsund krónur og að þörf verði á að setja upp 35 þúsund slík. Þá eru ekki meðtaldar þær fjögur hundruð milljónir króna sem liggja í gömlum af- ruglurum sem ekkert gagn verður að þegar nýir afruglar- ar verða teknir við á næsta ári. Reyndar hefur Stöð tvö skuld- bundið sig til að greiða sem svarar þriggja mánaða áskrift að Fjölvarpi fyrir hvern gaml- an myndlykil sem skilað verð- ur inn og samsvarar sú upp- hæð 125 milljónum tæpum í endurgreiðslur til áskrifenda. Þelta tilboð er háð því að við- komandi gerist áskrifandi að Fjölvarpinu, annars liggur myndlykillinn óbættur. Að teknu tilliti til þessa yrði kostnaður áskrifendanna fjörutíu og fimm þúsund því um þrír og hálfur milljarð- ur króna. Er þá ótalinn kostnað- ur Stöðvar tvö vegna nauðsyn- legra fjárfestinga við gervihnatta- sjónvarpið og myndlyklaskipt- in, en hann gæti gróflega áætlað numið um átta hundruð millj- ónum króna. Stöð 2 hefur pantað 50 þús- und nýja afrugl- ara og eru þeir fyrstu þegar á leið til landsins. Þó er sýnt að einhvern hluta gömlu affugl- aranna hefði mátt nota til að taka á móti sendingum Stöðvar tvö á næstu árum og tæknilega séð einnig til mót- töku á væntan- legu gervi- hnattasjónvarpi, samkvæmt upp- lýsingum Páls Magnússonar sjónvarpsstjóra. 400 milljónum stungiö inn í geymslu Útreikningarnir hér að ofan miðast við að allir núverandi áskrifendur að Stöð tvö gerist áskrifendur að Fjölvarpi á sama tíma. Það er hins vegar ekki tæknilega ffamkvæman- legt í dag, því Stöðin á eftir að koma upp sendum á fjöl- mörgum stöðum úti á landi, svo móttaka þar sé möguleg. Hins vegar hefur stjóm Stöðv- ar tvö ákveðið að skipta út öll- um gömlu affuglurunum fyr- ir nýja. Verður hafist handa af krafti næsta vor og reynt að ljúka verkinu fýrir árslok. Þegar Stöð tvö breytir svo „affuglunarkerfi“ sínu i ffam- haldi af útskiptingu á gömlum afruglurum fyrir nýja glata hinir gömlu afruglarar bæði nota- og verðgildi sínu. Má áæda að verðmæti affuglara í eigu viðskiptavina Stöðvar tvö nemi um 400 milljónum króna. Á þjóðhagslegan mæli- kvarða jafngildir það að 400 milljóna króna eignum væri stungið inn í geymslu, —- við hliðina á fótanuddtækinu. Tap einstaklingsins ræðst af því hvort og með hvaða hætti Stöð tvö bætir honurn gamla myndlykilinn. Páll Magnús- son sjónvarpsstjóri segir að Stöð tvö beri siðferðisleg og lagaleg skylda til að bæta við- skiptavinum sínum það tjón sem felist í að leggja gömlu myndlyklana á hilluna, en ekld hafi verið tekin ákvörðun urn með hvaða hætti það verði gert. Samkvæmt upplýsingum Heimilistækja má ætla líftíma myndlyklanna á bilinu 10-12 ár, sem þýðir að meirihluti þeirra á S-8 ára notkunartíma fyrir höndum. Stjórnendur Stöðvar tvö gera sér grein fyrir vandanum sem liggur í því að um leið og þeir gera eignir viðskiptavina sinna verðlaus- ar, þjóðhagslega séð, verða þeir að halda þeim ánægðum og helst fá þá til að gerast áskrifendur að nýju gervi- hnattasjónvarpi. Þeir eru því að brjóta heilann þessa dag- ana um með hvaða hætti þeir geti bætt viðskiptavinum sín- um tapið, en enn sem komið er hafa þeir ekki fundið full- nægjandi lausn á vandanum. Miklar fjárfestingar Vegna gervihnattasjón- varpsins þarf Stöð tvö að koma sér upp endurvarps- stöðvum víða um land. Send- ing í gegnum ljósleiðara yrði mun dýrari kostur. „Það er ætlunin að byrja að setja upp senda á helstu þéttbýlisstöð- um, en það er ljóst að það tek- ur langan tíma að byggja það kerfi upp. Það er verið að reikna út núna hversu stórar einingarnar þurfa að vera til að það beri sig að setja þar gervihnattasjónvarp. Mín til- finning er að þéttbýliskjam- amir þurfi að vera ansi stórir til að þetta borgi sig,“ sagði Hannes Jóhannsson, yfirmað- ur tæknideildar Stöðvar tvö. Það er því ljóst að mynd- lyklaskiptin, sem fyrirhuguð eru á næsta ári, munu ekki færa þeim handhöfum nýrra myndlykla, sem búa utan höf- uðborgarsvæðisins, neitt nýtt efhi á skjáinn um langan tíma. Það er jafnvel líklegt að þeir sem búa í dreifðari byggðum lendi alveg utan við gervi- hnattasjónvarpið. Hversu langur sá tími verður ræðst væntanlega af fjárhagslegri getu Stöðvar tvö. Uppsetning senda þeirra •sem upp em komnir í Reykja- vík kostar á bilinu 30-40 milljónir króna. Á næstu ár- um mun stöðin setja upp við- líka senda víða um land og er ekki fjarri lagi að áæda þann kostnað um 350 milljónir króna. Áskrifendur Stöðvar tvö eru um 45 þúsund talsins, en reikna má með einhverjum samnotum af loftnetunum. Ef reiknað er með 35 þúsund loftnetum með 27 þúsund króna meðaluppsetningar- kostnaði gerir það í heild 945 milljónir króna. Uppsetning- arkostnaður loftneta getur hins vegar orðið hár þrösk- uldur fyrir marga áhugamenn um sjónvarp og um þann þröskuld gætu áædanir Stöðv- armanna átt eftir að hnjóta. Ný áskrift ofan á áskriftar- gjöld Stöðvar tvö bætir ekki úr skák. Áskrift að Stöð tvö kostar í dag 3.067 kr. á mán- uði. Áskrift að Fjölvarpi kost- ar 923 kr. fyrir þann sem er einnig áskrifandi að Stöð tvö eða 3.990 kr. á mánuði. Áskrift að Fjarvarpi einu og sér kostar 2.630 kr. á mánuði og er gjaldið það hátt að óhag- stætt er fyrir flesta að velja slíka áskrift eingöngu. Árs- áskrift að Stöð tvö og Fjöl- varpi kostar því tæp fjörutíu og átta þúsund. Miðað við óbreyttan áskrifendafjölda skila sameiginleg áskriftar- gjöld að Stöð tvö og Fjarvarpi því tveimur milljörðum og eitt hundrað tuttugu og fimm milljónum í kassa Stöðvar tvö áári. Leiðin sem stjórn Stöðvar tvö hefúr valið er fjárhagslega áhættusöm þar sem brugðið getur til beggja vona með við- brögð áskrifenda Stöðvar tvö. Páll Magnússon viðurkennir að áskrifendur hafi bæði lög- legan og siðferðislegan rétt að sækja á hendur Stöð 2 vegna afruglaraskiptanna. Sá sem hefði til dæmis fjárfest í nýj- um afruglara fýrir tveimur ár- um til að geta horff á dagskrá Stöðvar tvö og vildi ekki ganga að einhverjum nýjum skilyrðum, sem stjóm Stöðvar tvö kynni að ákveða í tengsl- um við nýja myndlykla, kynni að hafa rétt að sækja á hendur stöðinni. Stjórnendur Stöðvar tvö telja sig hins vegar af tækni- legum ástæðum nauðbeygða til að leggja í þessar breytingar nú, ekki síst þar sem þeir segja þjófnað á efni stöðvarinnar í gegnum hriplekt afruglara- kerfi stefna framtíðarhags- munum stöðvarinnar í voða. Verðgildi myndlyklanna 400 milljónir Seldir affuglarar á Islandi eru u.þ.b. 48 þúsund og skv. upplýsingum ffá markaðs- deild Stöðvar tvö má gera ráð fýrir að áskrifendur séu um 45 þúsund talsins. Fyrsta starfsár stöðvarinnar voru seldir um 4.000 einrása affuglarar af gerðinni Discreet. Um 37-38 þúsund affuglarar eru af gerð- inni TUDI12, sem er fjölrása afruglari, og voru flestir þeirra Fótanuddtækin fá nýjan bótfélaga í ruslakompunni.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.