Pressan - 18.11.1993, Blaðsíða 23

Pressan - 18.11.1993, Blaðsíða 23
f Fimmtudagurinn 18. nóvember 1993 V I ÐT A L PRESSAN 23 Píanóleikarinn og undrabarnið Jónas Sen kveður sér hljóðs eflir langt hlé Hef sætt mig við að lífið sé leyndardómur Undrabörn eru ekki áber- andi á íslandi. Ef þau leynast einhvers staðar er þeim í það minnsta ekki hampað mikið á opinberum vettvangi. Undan- tekningar eru þó ef þau skara fram úr í íþróttum, þá þekkir maður þau næstum eins og eigin börn, eða ef þau vinna hjá erlendum stórfyrirtækj- um, líkt og Ólafur Jóhann Ól- afsson, forstjóri Sony. Því hef- ur löngum verið haldið ffarn að Jónas Sen flokkist undir skilgreininguna undrabarn. Þegar hann kom fyrst fram var sagt að í jafnfærum píanó- leikara hefði eldd heyrst síðan Þórunn Ashkenazy heillaði landann, en sem kunnugt er gaf hún feril sinn upp á bátinn er hún giftist hinum heims- kunna píanóleikara Vladimir Ashkenazy. Þrátt fyrir ótvíræða hæfi- leika hefur Jónas Sen verið fyrirferðarlítill í íslensku tón- listarlífi undanfarin ár. Þar til nú. Hann var á síðustu dög- urn að senda ffá sér sína fyrstu geislaplötu. Herma ffegnir að áttatíu eintök hafi selst fyrstu þrjá dagana, sem þykir afar gott á sölumælikvarða klass- ískrar tónlistar. Nú eru tvö og hálft ár liðiti síðan þú hélst síðast tónleika opinberlega á Islandi. Hvers vegna fœr maðitr ekki að heyra tneira í þér? Má vera að full- komnunarárátta séein skýring- in? „Það er eitthvað til í þessu með fullkomnunaráráttuna. Það er hins vegar ekki hægt að koma fram eingöngu af því mann vantar pening. Sumir eru þó þannig. Það finnst mér óheiðarlegt. Maður á að gera sitt besta. Ef mig vantar pen- ing þá afla ég hans með ýms- um öðrum hætti, t.d með því að kenna meira eða gera stjömukort. Markaðurinn hér er líka svo þröngur að fólk verður leitt á manni ef maður spilar of oft. Erró sagði ein- mitt að héldi hann of margar sýningar féllu myndirnar hans í verði. Það er betri leikur að taka pásur, þá byggist upp eft- irvænting.“ Hefurðu engati hug á að reyna fyrir þér erlendis? „Það vantar allan drifkraft í mig, að minnsta kosti í augna- blikinu. Það þarf ákveðna per- sónuleika í það, einstrengings- lega persónuleika.“ Missirinn Skýringuna á deyfðinni seg- ir Jónas þó fyrst og fremst vera andlega þreytu, sem megi að miklu leyti rekja til þess að fýrir fjómm ámm missti hann eiginkonu sína, Margréti Björgólfsdóttur, í bílslysi. Hinn nýútkomni geisladiskur er einmitt gefinn út í minn- ingu hennar. „Við höfðum aðeins átt saman ellefú mán- uði, þar af verið gift í tvo, þeg- ar hún féll ffá.“ Mikið hafði gengið á í lífi Margrétar áður en þau Jónas felldu hugi saman, þvi nokkru áður hafði hún orðið fyrir öðm slysi í London. „Hún var á leið í neðanjarðarlest. Um það bil sem hún er að teygja sig eftir töskunni sem var við brúnina á brautarpallinum ekur lestin hjá og skellur á höfði hennar. Slysið var það alvarlegt að henni var ekki hugað líf. Svo varð eitthvert kraftaverk. Hún náði sér næstum til fulls.“ Leiðir þeirra lágu fýrst sam- an á námskeiði um stjörnu- speki. „Við kynntumst þar,“ staðfestir hann, en viðurkenn- ir að hafa veitt heoni athygli nokkru áður. „Ég man eftir Margréti á Mensunni þar sem ég sat löngum stundum með Alfreð Flóka.“ Þótt liðin séu fjögur ár síð- an slysið varð segir hann erf- iðlega hafa gengið að hefja nýtt líf.“ Ég fékk martraðir lengi á eftir. Mig dreymdi æ ofan í æ að ég væri giftur aftur og þetta hefði komið fýrir aft- ur. Ég hélt þó áfram að lifa eins og ég hafði gert áður; spilaði og kenndi jafnmikið og áður. Af því ég hægði ekki ferðina safnaðist upp spenna. Ég var kominn að því að fá taugaáfall þegar ég ákvað loks að bremsa mig af.“ Eins og flestir sem verða fýrir áfalli reyndi Jónas að leita skýringa. „Maður skilur ekki hvernig svona getur gerst. En ég fann engin svör. Að lokum varð ég að sætta mig við það að lífið er leyndardómur. Eftir það fór mér að líða betur.“ Þótt Jónas sé búinn að stúdera stjörnurnar og sé enn að — er núna í indverskri stjörnuspeki og mun flóknari — segist hann ekkert vita hvað framtíðin beri í skauti sér. „Þetta er bara teoría. Eng- inn veit í raun hvað felst í stjörnunum. Ég tel að til séu örlög, að allt sé fyrirfram ákveðið. En ekki þó alltaf. Ég veit þetta er óskiljanlegt," segir hann eins og harrn viti betur. „Hvað sem því líður þá er ég að ná mér. Ég hugsa að ég standi sterkari fótum eftir en áður.“ Ferillinn Svo við snúum okkur að ferli Jónasar, sem níu ára hóf píanónám, má geta þess að aðeins þrettán ára lék hann einleik með Sinfóníuhljóm- sveit íslands. „Satt best að segja man ég ekki hvemig það kom til. Það eina sem ég man frá þessum tónleikum er að Þorgerður Ingólfsdóttir var kynnir,“ segir hann kæruleys- islega og hlær eins og honum finnist það ekki í ffásögur fær- andi. Áður en Jónas lauk einleik- araprófinu lék hann víða, meðal annars á tónleikum í Bretlandi, Bandaríkjunum og í Grieg- höllinni í Bergen. Sautján ára lauk hann einleik- araprófi. „Ég beið í ár með að fara út svo ég gæti lokið stúd- entsprófi og sé ekki eftir því. Besta tónlistarnám sem mað- ur fær er nefhilega ekki í tón- listarháskóla heldur hefð- bundnum háskóla með tón- listardeild. Þar er námið miklu akademískara auk þess sem maður hefur úr meiru að velja og þarf ekki að sitja uppi með fög sem maður er i fýlu yfir að þurfa að taka. Að auki getur maður gert rannsóknir, sem á vel við mig.“ Lokaverkefni Jónasar í mastersnáminu auk píanó- leiks voru rannsóknarritgerð- ir; annars vegar ritgerð um at- vinnusjúkdóma hljóðfæra- leikara, sem vakið hefúr mikla athygli, og hins vegar verkefni um tónlist í tíbetskum búdd- isma. „Égvitna bara íAlfreð Flóka, sem sagði að hann hlyti að hafa verið Jack the Ripper í fyrra lífi eða ein af vœndis- konunum sem hann drap til þess að verð- skulda það að vera lista- maður áíslandi.“ „Mér finnst skipta miklu að tónlistarmenn séu vel að sér, að píanóleikur sé ekki bara einhver iðn sem maður kann. Músík er svo margt. Hún er innblásin af svo mörgu; bók- menntum, myndlist, heirn- speki og fleiru. Hvert tónskáld hefúr sinn hugarheim, sem oft er á mjög háu andlegu plani. Sem túlkandi verður maður að geta sett sig inn í þann heim.“ Að afloknu stúdentsprófi lá leið Jónasar til Parísar þar sem hann stundaði tónlistarnám með hléum í fjögur ár. I mast- ersnámið fór hann svo til London 1990 og lauk því ári síðar með fýrrnefndum rann- sóknarritgerðum. Gáfumennirnir sem höfðu áhrif Áður en stefnan var tekin á París kynntist Jónas þremur gáfumönnum sem hann segir hafa haft afgerandi áhrif á líf sitt og þá stefúu sem hugsun hans tók. Þetta eru Hilmar Örn Hilmarsson tónlistar- maður, Alfreð Flóki myndlist- armaður og Eysteinn Bjöms- son, sem kallaður hefur verið afi íslenskra stjörnuspekinga. „Flóki var einhver gáfaðasti og skemmtilegasti maður sem ég hef kynnst. Hann var ofboðs- lega vel lesinn í litteratúr, svo mjög að hann mundi plottið og nöfn söguhetja úr fjölda bóka sem hann hafði lesið fýr- ir löngu. Hann lifði svolítið í þessum nítjándu aldar bó- hem-heimi,“ útskýrir hann. „Alfreð Flóki opnaði augu mín fyrir ákveðinni tegund bókmennta, sem hefur ein- mitt mjög innblásið róman- tíska tónlist. Franz Liszt las mikið og einmitt mörg verka hans eru komin úr bók- menntunum. Og það mætti nefna fleiri. Meira að segja vísinda- skáldsagnahöfundurinn Philip K. Dick er dæmi um rithöfund sem hefur veitt mér innblástur. Tvær kvikmyndir, Total Recall og Blade Runner, hafa verið gerðar eftir sögum hans. Hann var mikill aðdá- andi klassískrar tónlistar og á einhverja bestu sprettina um Beethoven sem ég þekki.“ Hélt hann væri Messías Ertu sjálfur mest í rótnan- tískum tónlistarhugleiðingum? „Ég hugsa það. Ómeðvitað spila ég mest nítjándu aldar tónlist. Ég er nokkuð hrifinn af Messiaen og svo er það rokkið. Ég kom einu sinni fram undir dulnefni á plötu með Kamarorghestunum,“ upplýsir hann, að því er virð- ist dálítið stoltur. „Annars er gert grín að því hve illa ég er að mér í rokktónlist. En þar sem ég kenni klassíska tónlist finnst mér þó gott að setja eitthvað létt á þegar ég kem heim.“ Hefurðu hug á að einbeita þér að tónlistarferlinum fyrst þú ert á annað borð byrjaður aftur? „Já, annars er það allt óráð- ið ennþá. Ég ætla að bíða og sjá. Við Hilmar Örn eigum saman gamlan draum sem við höfúm í hyggju að láta rætast. Draumurinn er sá að gefa út geislaplötu með verkum ein- göngu eftir rússneska tón- skálcfið Scriabin, sem var uppi um aldamótin. Hann var um tíma talinn eitt efnilegasta tónskáld Rússlands. Tónlist hans er í síðrómantískum stíl; ástríðufúll, heit og dimm, og svipar nokkuð til tónlistar Rachmaninoffs. Þrjátíu og eins árs — líkt og ég er nú — fékk Scriabin áhuga á dulspeki og fór að stúdera hana. Hann taldi sig skyggnan og sá allskyns sýnir. Frægastur varð hann fýrir að sjá tónverk sem litahaf á hreyfingu. Ein sóntatan sem hann samdi sagði hann að væri samþjöppun allra mar- traða sem hann hefði fengið um ævina. Alltaf þegar hann spilaði þá sónötu horfði hann í kringum sig eins og hann sæi her af afturgöngum og ófreskjum. Hann var í afar skemmtilegum pælingum en varð geggjaðri og geggjaðri með árunum. Undir lokin var hann farinn að ímynda sér að hann væri einhvers lags Messías. Lokaverkið sem hann hafði í huga bar vott um það. Hann var þegar búinn að semja 55 arkir og verkið, sem hann nefndi Mysteríum, átti að taka sjö daga í flutningi. Upphafsatriðið átti að setja upp með hjálp Zeppelín-loft- fara sem í hefðu verið hengdar stórar bjöllur. Eingöngu bjöll- umar áttu að sjást og Zeppe- lín-förin áttu að vera hulin skýjum. Átti verkið að hefjast á bjölluhljómi. Boða átti allt mannkynið til þessa tónlistar- viðburðar, sem hann áleit að yrði næsta stökkbreyting í sögu mannkyns, líkt og þegar apinn varð að manni. Honum entist þó ekki aldur til að klára verkið. Annað tónskáld og dul- spekingur að nafni Cyril Scott taldi að illu öflin í heiminum hefðu komið Scriabin fyrir kattarnef. Allt í einu hefði dauðlegur maður ógnað veldi þeirra. En hugmyndin er semsé sú að ég spili verk Scriabins en Hilmar taki upp. Okkur lang- ar að gefa með plötunni út ít- arlegan texta, eða jafnvel bók. Okkur vantar hins vegar fjár- magn og auglýsum hér með eftir því. Það kostar ekki undir hálfri milljón að gefa út disk.“ Svona í fljótu bragði ímynd- ar tnaður sér að tónlist Scria- bitts falli fáutn ígeð. „Tónlist hans er mikil tískubylgja núna. Það er sér- staklega fólk af yngri kynslóð- inni sem heillast. Þetta er alls ekki ólógísk tónlist. Hún er fullkomlega strúktúreruð þrátt fýrir allt.“ Jack the Ripper í fyrra lífi Jónas segist einnig hafa fúll- an hug á að gera klassískt tón- listarmyndband, sem ein- hverra hluta vegna hafi aldrei verið gert hér á landi. „Vin- kona mín Lára Marteinsdótt- ir, mikill talent, sem nú er í námi í kvikmyndagerð í Kali- forníu, hefur skrifað handrit sem mér finnst hreint æðis- legt. Allir sem hafa skoðað það eru mér sammála. Þrátt fýrir að hafa reynt að afla fjár- magns til þess að gera mynd- bandið hefur okkur ekki tekist að kría út fimmkall! Ég vitna bara í Alfreð Flóka, sem sagði að hann hlyti að hafa verið Jack the Ripper í fýrra lífi eða ein af vændiskonunum sem hann drap til þess að verð- skulda það að vera listamaður á íslandi. Ég veit samt ekki hvort ég tek undir þetta. Ég á enn eftir að reyna að sækja um styrk úr Kvikmyndasjóði íslands.“ Pœlingar þíttar á andlega sviðinu virðast ekki síður for- vitnilegar og svo virðist setn þú hafir komið víða við; í stjörnu- speki, bœði vestrœnni og ind- verskri, og búddistna. Trúir þú á eitthvað afþessu sjálfur? „Hilmar Örn heldur því ffam að ég ég sé skápakristinn. Ég trúi á Guð, að hann sé upphafið — einhvers konar intelligensía, svona plott sem er á bak við allt. En ég er ekki búddisti þótt ég skilji vel fólk sem praktíserar búddisma, enda afar heillandi trú, bæði serimóníurnar og ritúalið. Búddisminn talar um að menn verði að vera viðbúnir því að geta dáið hvenær sem er, að ekkert jarðneskt vari að eilífu. Eina eilífðin sé undir- liggjandi orka. Allt hitt sé draumur. I búddisma er litið svo á að við séum sofandi og markmiðið er að vakna. Þá upplifi maður eitthvert ótrú- legt ástand og sjái hve allt í kring er óraunverulegt.“ Er þetta ekki bara sefjun, eins og svo mörg önnur trúar- brögð? „Ekki skilst mér. Það hafa til dæmis verið skrifaðar margar bækur um hvernig nútímaeðlisfræði kemst að sömu niðurstöðu og indversk og asísk heimspeki, sem er sú að heimurinn sé ekkert annað en orka. Þær komast báðar að því að það sé misskilningur að heimurinn sé stöðugur. Þetta er meðal annars að finna í bókinni Tao of Physics." Konsertmeistarinn og út- varpsstjórinn Annars tel ég mig vera svo- kallaðan sófaheimspeking. Ég les mjög mikið til þess að auka þekkinguna, svo ég skilji til dæmis tónlist betur. Það má eiginlega segja að ég hafi feng- ið bæði dulspekina og tónlist- ina í arf, því faðir minn, Jón Sen, var konsertmeistari hjá Sinfóníuhljómsveit íslands og afi minn, Jónas Þorbergsson, fyrsti útvarpsstjórinn, va^^ mikill spíritisti. Hann var meðal annars mikill vinur Hafsteins Björnssonar miðils og skrifaði nokkrar bækur um spíritisma, bara fjandi góðar. Dulspekin er svo nátengd mér að ég get ekki útskýrt af hverju ég trúi á líf eftir dauð- ann. Mér finnst það bara góð trú sem gott er að hafa. Tón- listin er fremur baktería sem ég losna ekki við. Hún er part- ur af mér. Bernskuminningar mínar eru tengdar því að faðir minn, sem einnig var í strengjakvartett, var að spila með kvartettnum í stofunni heima.“ Jónas segist aldrei hafa orð- ið fyrir neinni dulrænni reynslu, að minnsta kosti ekki svo hann viti. Honum er hins vegar sagt, án þess að hann reki minni til þess sjálfan, að hann hafi verið skyggn sem barn. „Barnfóstran sem ég hafði var skyggn. Hún féll í trans og hélt prívat skyggni- lýsingafundi fyrir mig.“ Þúfékkst viðurnefnið undra- bartt. Var ekki erfitt að vera undrabam á íslandi? „Ég vil taka það fram að-«i^. var ekkert undrabam eins og Mozart, sem samdi sína fýrstu óperu ég veit ekki hvað ung- ur.“ Jónas vill greinilega ekki gera mikið úr þessum undra- barnsstimpli. „Þessu var þá eitthvað misskipt, því þó að ég væri vísir að einhverju undra- barni í tónlist var ég til dæmis langt frá því að vera undra- barn í íþróttum. Ég hafði enga burði í íþróttir, enda akfeitur sem bam.“ Sem er ekki að sjá á honum í dag. „Það eina sem ég varð var við er að mér fannst ég svolítið út úr sem*i barn og gat því ekki stundað eins mikið félagslíf. Þá var mikið álag á mér í menntó." Langur biðlisti Jónas segist öðrum þræði furða sig á öllum tónlistar- áhuga íslendinga, sem þó hafi borið af sér góðan ávöxt. Nefnir hann Áshildi Haralds- dóttur flautuleikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara og fiðluleikarana Sigrúnu Eð- valdsdóttur og Auði Haf- steinsdóttur sem dæmi um það. „Það er greinilega í tísku að senda börn í tónlistarnám. Það er langur biðlisti í tónlist- arskóla,“ segir tónlistarkem’P* - arinn Jónas, sem hefúr svo fátt eitt sé nefnt einnig hug á því ásamt Halldóri Haraldssyni, skólastjóra Tónlistarskólans, að setja á stofú klíník með sér- fræðingum til að freista þess að forða tónlistarmönnum frá atvinnusjúkdómum. Að þeir beiti líkamanum rétt. Guðrún Kristjánsdóttir

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.