Pressan - 18.11.1993, Síða 5
S K I L A BOÐ
Fimmtudagurínn 18. nóvember 1993
PRESSAN
ins og PRESSAN
greindi frá í síðustu viku
kastaðist hressilega í kekki
milli umboðsskrifstofunn-
ar Wild, sem þau Linda
Pétursdóttir og Les Ro-
bertson standa að, og Vik-
unnar, sem Samútgáfan
gefur út.
Úrslita-
k v ö 1 d i
vegna For-
síðukeppni
Vikunnar
og Wild,
sem fara
átti fram um helgina, var
aflýst og sökuðu aðilar
hvor annan um samnings-
svik og fleira í þeim dúr.
Nú er komin upp sú sér-
kennilega staða að bæði
Vikan og Wild ætla að
klára keppnina, en hvort í
sínu lagi. Wild ætlar að
halda sitt úrslitakvöld án
afskipta Þórarins Jóns
Magnússonar og Péturs
Steins Guðmundssonar
hjá Vikunni og hefur af-
ráðið að slá upp stórveislu
á Ömmu Lú föstudaginn
25. nóvember til að kjósa
sigurvegara. Á sama tíma
ætlar Vikan að velja sína
forsíðustúlku, sem mun
væntanlega prýða forsíðu
blaðsins 2. desember. Á
milli sitja stelpurnar átta
sem hafa ákveðið að taka
þátt í Wild-keppninni og
jafnframt sent Vikunni
bréf þar sem þær banna
blaðinu að birta myndir
vegna keppninnar nema
samþykki þeirra komi
til...
N.
ýjasta aðferð ís-
lendinga til þess að hafa fé
af fólki eru Víkingalottós-
keðjubréf sem streyma nú
inn um bréfalúgur hjá
fólki. „Þetta er löglegur
lottóklúbbur sem getur
gert þig að milljónamær-
ingi eftir 2-3 mánuði,"
segir í bréfinu og síðar seg-
ir: „Þú færð 15.360 raðir
án þess að hafa eytt einni
einustu krónu." Það íylgir
hins vegar ekki sögunni að
til að þú fáir þínar 15.360
raðir þarf keðjan að ganga
til 1.023 einstaklinga. Þeir
sem eru neðstir á listanum
þurfa hins vegar að bíða
ansi lengi eftir að verða
milljónamæringar, því
keðjan þarf að ganga í
gegnum 1.048.575 ein-
staklinga, sem allir þurfa
að taka þátt í leiknum.
Verður að teljast ólíklegt
að hvert einasta manns-
barn á íslandi taki þátt í
lottókeðjunni fjórum
sinnum áður en hagnað-
urinn er tryggður...
Vatnsrum hf
Ótrúleg útsala!
20 - 40%
af rúmum
Rúm með allt að 100.00 kr afslætti
50% af fataskápum
H m