Pressan - 18.11.1993, Page 14
S KOÐ A N I R
14 PRESSAN
Fimmtudagurinn 18. nóvember 1993
PRESSAN
Útgefandi Blaö hf.
Ritstjóri Karl Th. Birgisson
Ritstjórnarfulitrúi Sigurður Már Jónsson
Markaðsst|óri Sieurður I. Ómarsson
Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar:
Nýbýlavegi 14 -16, sími 64 30 80
Faxnúmer: Ritstjóm 64 30 89, skrifstofa 64 31 90,
auglýsingar 64 30 76
Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjóm 64 30 85,
Áskriftargjald 798 kr. á mánuöi ef greitt er með VISA/EURO
en 855 kr. á mánuði annars.
PRESSAN kostar 260 krónur í lausasölu
Rannsóknarnefnd
á bankana
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leggur til á Alþingi að óháð
nefhd verði skipuð til að rannsaka viðskiptahætti og útlána-
tap banka og fjárfestingalánasjóða síðustu árin. Þetta er góð
hugmynd. Það er tímabært að það sé kortlagt í eitt skipti fyrir
öll hvernig auðlindum landsins hefúr verið sóað með þeim
afleiðingum að þjóðin er kreppt í spennitreyju skulda um
langa ffamtíð.
Við þekkjum þessa sorgarsögu þegar í grófum dráttum.
Dæmi eftir dæmi eftir dæmi hafa verið rakin um lánveitingar
sem eru í eðh sínu auðvitað hlægilegar, en um leið grafalvar-
legar vegna þeirra fjármuna sem hefur verið sóað. Dæmin
eru úr öllum geirum atvinnulífsins: sjávarútvegi, landbúnaði,
fiskeldi, verzlun, þjónustu og byggingariðnaði. Þar hafa
stjórnmálamenn rammskekkt heilbrigt atvinnulíf í nafni
byggðastefnu og „nýsköpunar" sem átt hefúr þá ólánlegu
uppsprettu, skrifborðin í stjómarráðinu.
Svokallaðar „efnahagsaðgerðir", sem ríkisstjómir síðustu
ára hafa gripið til reglulega á þriggja mánaða fresti, hafa und-
antekningarlaust snúizt um viðbrögð við vandamálum sem
„nýsköpunarstefnan" hefur búið til. Það er ekki fýrr en á allra
síðustu missemm, og ekki sízt í tíð núverandi ríkisstjómar,
sem glittir í stefnubreytingu. Þar gætir loks skilnings á því að
heilbrigt atvinnulíf er bezt byggt á hörðum viðskiptaforsend-
um, en nærist illa á örlæti stjómmálamanna með ótakmark-
aðan aðgang að annarra manna peningum.
Það segir sitt um stöðu Alþingis og nefnda þess að þing-
manninum þyki nauðsynlegt að skipa nefnd utan þings til að
rannsaka málið. Það er algengur misskilningur að Alþingi
eigi að vera upptekið allt árið við að setja lög. Þvert á móti;
því færri lög að öðm jöfiiu, því betra. Ef Alþingi tæki alvar-
lega annað meginhlutverk sitt sem eftirhtsstofiiun með fram-
kvæmdavaldinu væri rannsókn á fjárfestingarmistökunum
einmitt úttekt af því tagi sem þingnefnd ætti að sinna. Til
þess hafa þingnefndir allar forsendur og heimildir í þing-
sköpum. Það vantar hins vegar ffumkvæði og manndóm til
að skapa fordæmi fyrir sliku.
í skýrslu nefndar á borð við þessa fæhst í reynd kjaminn í
sögu hagstjómar og fjármálastjórnar á íslandi síðustu árin.
Það er saga offjárfestinga, misheppnaðrar byggðastefnu og
póhtískra afskipta af fjármagnsmarkaði, nú saga kreppu, at-
vinnuleysis og fátæktar. Þeirri sögu verður ekki breytt og
varla verður nokkur dreginn til ábyrgðar fyrir það bruðl
ffernur en annað. En börnin okkar munu bera skaðann af
mistökunum með slakari lífskjörum. Þau eiga skihð að vita
hvernig eldri kynslóðin fór með auðævi landsins og eldri
kynslóðin þarf að fá það ffaman í sig svart á hvítu, þó ekki
væri nema ef einhverjir kynnu að skammast sín.
BLAÐAMENN: Guðrún Kristjánsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarsson,
Jim Smart Ijósmyndari, Kristján Þór Árnason myndvinnslumaöur,
Páll H. Hannesson, Pálmi Jónasson,
Sigriður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari,
Steingrimur Eyfjörð útlitshönnuöur, Þorsteinn Högni Gunnarsson.
PENNAR Stjórnmál: Andrés Magnússon, Árni Páll Árnason, Einar
Karl Haraldsson, Guðmundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, Hreinn Loftsson, Mörður Árnason,
Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Össur Skarphéðinsson.
Listir: Einar Örn Benediktsson, mannlíf, Guðmundur Ólafsson,
kvikmyndir, Gunnar Árnason, myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson
popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Martin Regal leiklist.
Teikningar: Ingólfur Margeirsson, Kristján Þór Árnason,
Steingrimur Eyfjörð, Einar Ben.
AUGLÝSINGAR: Kristín Ingvadóttir, Pétur Ormslev.
Setning og umbrot: PRESSAN
Rlmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI
STIÓRNMÁL
Óvirkjuð viðskiptaauðlind
í Guðsgjafaþulu Halldórs
Laxness segir frá því að Is-
landsbersi keypti tvö gross,
288 pör af axlaböndum, vegna
þess „að hámark endíngar ís-
lenskra axlabanda væri tveir
klukkutímar, en lágmark tvær
mínútur...“
Vinir íslenskrar ffamleiðslu
hafa alltaf verið jafnhissa á því
hve heimsbyggðin hefúr verið
áhugalítil um að „gánga í bux-
umar einsog haft um öklana".
Gúanófiskur og kláðalopi hef-
ur þótt gott í kjaftinn á út-
lendingum, þó að enginn ís-
lendingur láti sér nægja
minna en glænýja ýsu og há-
tískuföt. Það er fyrst þegar
fastakúnnar okkar erlendis
hafa gert skýlausar kröfur um
breytta framleiðsluhætti að
við höfúm lagað okkur að
þeim.
Axlabandaverksmiðjan á
Djúpuvík brást vonum þjóð-
arinnar eins og glerverksmiðj-
an og svo er einnig um físk-
eldi, loðdýrarækt og „álrækt“
Jóns Sigurðssonar, nokkrum
áratugum eftir tíma íslands-
bersa. Vatnsútflutningur er
svo dæmi um nýja tegund af
útflutningssókn þar sem reynt
er að sækja inn á markaði
með hönnun og hugvit að
vopni, en þar er íslenska geng-
ið einnig valL
Nýtt forrít
Happdrættis- og síldar-
draumahugarfar er ákaflega
óheppilegt í framleiðslu- og
sölustarfsemi, en það er fyrst
og ffernst nú, eftir að búið er
að háskólamennta þorra
stjómenda, að það er að láta
undan hér á landi. Það er svo
hin hlið þeirrar þróunar að
stjómmálaflokkur eins og Al-
þýðubandalagið, sem stund-
um hefur verið talinn hallur
undir íslenskar axlabanda-
verksmiðjur, er að forrita sig
upp á nýtt í þessum efiium.
I Alþýðubandalaginu er at-
orkusamt fólk sem nennir
ekki að fást eingöngu við
nöldur í stjómarandstöðunni
og hefúr tekið sér fyrir hendur
að skrá á bók ýmislegt af nýti;
legum hugmyndum í hag-
stjóm og hugmyndaffæði sem
á kreiki er víða hér heima og
erleiidis. Úr þessu verður safii
hugmynda undir samheitinu
Útflutningsleiðin, sem er teflt
gegn þenslu- eða samdráttar-
lausnum síðustu áratuga, og
verður í framhjáhlaupi öflugt
vopn til þess að reka flótta
fijálshyggjumanna.
Þama er á ferðinni þanka-
gangur sem verðskuldar um-
ræðu og má því til sönnunar
taka upp eftirfarandi þráð. Því
er slegið föstu að heimurinn
sé að verða sem eitt þorp: Fá-
menn þjóð, sem er nútímaleg
í hugsun, þekkir sjálfa sig og
veit hvað hún vill, getur verið
gjaldgeng hvar sem er í heims-
þorpinu. En einungis með því
að þekkja tungu sína og þjóð-
menningu til hlítar geta Is-
lendingar staðið uppréttir í
samskiptum við aðrar þjóðir.
Sjálfsþekkingin er einnig lykill
að því að opna leyndardóma
annarra tungumála og ólíkra
menningarheima. Nútíma Is-
lendingar þurfa sem flestir að
vera mæltir á tvö til þrjú
tungumál önnur en íslensku
til að geta tekið fullan þátt í
heimsmenningunni. Við
þurfum líka að kunna glögg
skil á menningu annarra
þjóða til að geta átt ábatasöm
viðskipti við umheiminn þar
sem við erum bæði þiggjend-
ur og veitendur.
Innflytjendur hafa
sambond
Græna bókin með rauða
kilinum lætur ekki við það
sitja að hafa uppi þessi al-
mennu viðhorf, heldur leggur
á grundvelli þeirra til að ís-
FJ0LMIÐLAR
Um hagsmuni
Þessa dagana er Stöð tvö að
selja ffamtíð sína. I þeirri
söluherferð sem nú stendur
yfir hefur Páll Magnússon
lagt áherslu á að nauðsynlegt
sé að skipta út öllum mynd-
lyklum og færa þá í eigu
Stöðvar 2 sjálffar. Sem meg-
inástæðu nefiiir hann að þjóf-
ar bijóti sér leið að efni stöðv-
arinnar án þess að greiða
áskriffargjöld. Með því viður-
kennir hann að það séu pen-
ingalegir hagsmunir Stöðvar
tvö sem geri myndlyklaskipt-
in nauðsynleg, frekar en að
hagsmunir áskrifenda krefjist
þess. En það má færa rök fyrir
að það sé önnur ástæða fyrir
myndlyklabreytingunni nú,
sem er sennilega raunveru-
legri og veigameiri í hugum
Stöðvar tvö-manna en
hræðslan við þjófa.
Hún er sú að það er lífs-
spursmál fyrir Stöðina að
halda í áskrifendur sína. Það
gerist meðal annars með því
að ná undir sig sem flestum
rásum sem hugsanlega er
hægt að sækja um og útiloka
þar með fyrirfram sam-
keppni. Stöð tvö hefur á
stuttum tíma sótt um og
fengið átta rásum úthlutað
hjá útvarpsréttamefhd. Til að
fá leyfin þurftu þeir að sýna
fram á að þeir hefðu samn-
inga við erlendar stöðvar í
höndunum. Þeir samningar
voru aftur háðir því að Stöð
tvö kæmi efninu í loftið inn-
an ákveðinna tímamarka. Til
að halda rásunum ffá út-
varpsréttamefnd þarf svo að
nota þær innan átta mánaða
ffá úthlutun og því liggur svo
mikið á að koma gervihnatta-
sjónvarpinu í loftið —- núna!
I annan stað þarf að tryggja
að núverandi áskrifendur
gangi ekki úr skaftinu.
Vandamálið blasir við: Ef ég
sem áhugamaður um Fjar-
varp þarf að punga út 25-30
þúsund krónum í loftnet
fæm að renna á mig að
minnsta kosti tvær grímur ef
ég þyrfti á sama tíma að
kaupa nýjan myndlykil fyrir
u.þ.b. 20 þúsund. Að maður
tah nú ekki um þegar áskrift-
argjaldið er komið upp í tæp
fjörutíu og átta þúsund yfir
árið. Og tveggja ára gamli
myndlykillinn minn, sem
kostaði sextán þúsund þá,
orðinn verðlaus! Það er
lenskir innflytjendur hjálpi út-
flytjendum við markaðssókn.
Rökin em þau að íslenskum
innflutningsfyrirtækjum sé
mörgum vel stjórnað af
menntuðu, ungu hæfileika-
fólki sem hafi tileinkað sér það
besta úr alþjóðlegum rekstri
og stjórnun. Stjórnendur
þessara fyrirtækja hafa margir
hverjir aflað sér tengsla við
forráðamenn sterkustu inn-
og útflutningsfyrirtækja heims
í Japan, Suður-Kóreu og fleiri
hagvaxtarríkjum í Asíu. Inn-
flytjendur á bílum ffá Asíu-
löndum eru t.a.m. helstu
tengslamenn íslenskir við við-
skiptasvæði þar sem eiga sér
stað meiri innbyrðis viðskipti
en meðal hinna svokölluðu
iðnríkja á Vesturlöndum.
Öðruvísi oss áður brá
Það þarf að virkja þá við-
skiptaauðlind sem felst í sam-
böndum, tengslum og trausti
sem íslenskir innflytjendur
hafa byggt upp í samskiptum
við útiendinga. Það er ekki
hægt að hafa vatnsþétt skil á
milli útflutnings og innflutn-
ings eihs og tíðkast hefur hér á
landi. Innflytjendur þekkja
þarfir og vilja íslensks al-
mennings, vita sínu viti um
þjóðarsálina, og hafa betri
þekkingu á erlendum mönn-
um og mörkuðum en flestir
aðrir.
Alýðubandalagið leggur til
að stofnað verði samvinnuráð
innflumings- og útflutnings-
fyrirtækja til að afla nýrra
markaða fyrir íslenskan út-
flutning og að sérhæfðar sam-
starfsnefndir þessara aðila ein-
beiti sér að ákveðnum mark-
aðssvæðum. íslenskir innflytj-
endur geta áreiðanlega gefið
útflytjendum og framleiðend-
um góð ráð um það hvemig
þeir eiga að hafa „axlaböndin“
til að þau séu seljanleg á fjar-
lægum mörkuðum.
Þetta er aðeins eitt dæmi af
mörgum sem mætti taka um
þann skilning á hugtakinu
auðlind sem ffam kemur í Út-
flutningsleiðinni. Það er
óneitanlega nýjabrum að því
hjá Alþýðubandalaginu, sem
lengi hafði hom í síðu heild-
sala, að það skuli telja sam-
bönd og þekkingu innflytj-
enda meðal auðlinda íslend-
inga.___________________________
Höfundur er framkvæmdasijóri
Alþýðubandalagsins.
„Það er óneitanlega nýjabrum að því
hjá Alþýðubandalaginu, sem lengi hafði
horn í síðu heildsala, að það skuli telja
sambönd ogþekkingu innflytjenda
meðal auðlinda íslendinga. “
„Það máfæra rökfyrir að það sé önnur ástœða
fyrir myndlyklabreytingunni nú, sem ersenni-
lega raunverulegri og veigameiri í hugum
Stöðvar tvö-manna en hrœðslan viðþjófa.“
nokkuð ljóst af hveiju Stöð
tvö vaidi þann kostinn að
kaupa 50 þúsund myndlykla
sjálf. Ég vona bara að her-
kostnaðurinn af öllu saman
leiði ekki til hærri afnota-
gjalda.
Svo vikið sé að öðm. I leið-
ara Alþýðublaðsins er fjallað
um ráðningu Jóns Sigurðs-
sonar í stöðu bankastjóra
Norræna fjárfestingabankans
á þann hátt að ekki er víst að
hann kunni leiðarahöfundi
miklar þakkir fyrir. Þar stend-
ur m.a.: „Aldrei hefur íslensk-
um embættismanni verið
boðin slík virðingarstaða...
Betri einkunn er vart hægt að
gefa J.S. sem ábyrgum emb-
ættismanni og faglegum yfir-
burðamanni... það þarf ekki
að koma okkur íslendingum
á óvart... Þeir sem fylgst hafa
með... vita hvers konar hæfi-
leikamaður J.S. er. Hæfileikar
J.S. sem Seðlabankastjóra
hafa hins vegar komið í ljós...
Hógværð og æðruleysi J.S...
er öðmm til eftirbreytni ...á
Islandi ræður off ríkjum óbil-
gimi og dómharka sem verð-
ur þess valdandi að ekki hillir
í verðmæta eiginleika bestu
sona þjóðarinnar vegna
moldviðris fordóma og róg-
burðar... J.S. er vel að stöðu
aðalbankastjóra NIB kominn.
Eftir sem áður mun hann
gegna lykilhlutverki í mótun
nánustu framtíðar Islands.“
Leiðarahöfundi Alþýðublaðs-
ins er bent á að oft er stutt á
milli (ofjlofs og hæðni. Ekki
er ljóst hvorum megin
hryggjar þessi skrif lenda.
Páll H. Hannesson