Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Qupperneq 6

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Qupperneq 6
VÍSIR 6 einstakar gullnar skemtisnekkjur frá Tiberias. Sigling á vatninu var þó engan vegin bættulaus. Hamslausir fellibyljir bárust yfir valnið frá binu þrönga fjalllendi, og umliverfðu þvi á augnabliki. Þá ríkti angist i litlu fiskiþorpunum við vatnið, sem lágu með litlu milíibili all umhverfis vatnið, þar sem fjöllin höfðu skilið eftir dálítið landsvæði til bygginga og beitar búpeningsins. Valerius inti eftir höfuðsmanninum, og var honum vísað á eitt af stórliýsum bæjarins. Ilann steig af baki og um leið og hann barði að dyrum var hliðið' opuað af hliðverðinum. Kallað var á þræla og önnuðust þeir hestana og fylgdarlið lians, en dyra- vörðurinn fyigdi Valeriusi í gegnum ldiðið og opnaðist þá víður skrautgarður, og í honum miðjum var gosbrunnur. Höfuðsmað- urinn gekk í móli Valeriusi og heilsaði lionum hjartanlega, en síst af öllu hafði hann búist við að bitta stríðsfélaga sinn hér úti á hjara veraldar. Strax var Valeriusi fylgt til gestaherbergis, her- klæðin dregin af honum, liann þveginn og smurður með oliu. Þvinæst klæddist hann rómversluim kirtli, léttum og þægilegum og að því loknu lögðust þeir vinirnir á eitt liægindi, sem þremur var ællað, og stóð við hálf hringmyndað borð. Þeir lágu á vinstri olnboga, en seildust með Iiægri liendi eftir matnum, sem borinn var á borð af þrælunum. Aðallega var framreitt, — eins og al- staðar í Palestinu, — liveitibrauð, en með því var neytt nokkurra smáfiska, þá alskyns ávexti, olífur og fíkjur og ríkulega var vínið fram l)oiáð. Hið fjörgandi vín frá Hebronsdal í Judeu, blandað með vatni, endurnærði og liresti ferðamanninn til fulln- ustu, enda fullyrti höfuðsmaðurinn það, að tveir væru til vökvar, sem endurnærðu líkamann: að utan olian en hið innra vínið. Er höfuðsmaðurinn hafði int af hendi risnuskyldu sína, skýrði Valerius lionum aftur á móti frá því livernig á ferðum hans stæði. Er hann gat þess að hann hefði i hyggju að fara fná Kapernaum til Cesarea þar sem landsstjórinn hafði aðsetur, skaut höfuðsmað- urinn því inn, að landsstjórinn færi ávall um þetta leyti árs til Jerusalem, og héldi þar kyrru fyrir meðan hátið Gyðinganna, — páskarnir — stæðu yfir. Skýrði hann frá því, að Gyðingar frá allri Palestinu söfnuðust þar saman um þetta leyti, en auk þess kæmi þangað fjöldi Gyðinga frá öllu Rómaveldi, þannig að bær- inn fvltist af fólki eins og maurabú. íbúar bæjarins væru um 100.000, en á páskunum brefaldaðist siá fjöldi, en eins og ástandið væri í landinu, þvrfti þá óhjákvæmilega að fjölga setu- liðinu þar mcðan á hátíðinni stæði. Þar væru nú um 600 manna liðssveit og auk þess sveit riddaraliðs, en á páskunum færi Pila- tus jiangað sjálfur til þess að liafa hemil á óróaseggjunum. „Ef þú vilt hitta landstjórann verður þú sjálfur að fara þang- að. Þangað á eg raunar sjálfur erindi og skal eg því slást i för með þér, og skýra þér frá ástandinu á leiðinni,“ sagði hann að lokum. Morgunmn næsta sýndi höfuðsmaðurínn gesti sinum híbýli sín. Húsið var bygt á sama, hátt og flest stórhýsi i Palestinu, i fer- hyrning. I bakálmunni voru vistarverur kvennanna, og þar var einnig eldhúsið og í því var brauð bakað daglega. Hveitimjölið í brauðin var malað í handkvörn, en hún var búin til úr stórum ^feini með holu {, en j þeirri lék gnnfir steinn minni, sem muldi kornið. I hliðarálmunum var birgðageymslan og bústaður þrælanna. Á þessum tíma var aðbúð þeirra mjög ill i öllu Róma- veldi, en vegna hinna mannúðlegu ákvæða Moselögmálsins, var hún miklum mun belri meðal Gyðinganna. í framhlið byggingar- innar, þar sem hliðið var að götunni, lágu gestaherbergin og inn- göngusalur, en frá honum lágu dyr inn i garðinn, en við hlið þeirra aðrar dyr, þar sem gengið var upp í sal einn, sem lá á allri efstu bæðinni. Þar kom fjölskyldan saman við hátíðleg tækifæri. Ljósið féll inn á múrsteinsgólfið gegnum op á múrvegg þeim, semsneriað garðinum, en gler var aðeins nolað meðal auðkýfinganna. Úr þess- um sal lágu tröppur upp á þakið, en umhverfis það var girðing, og var þar mjög þægilegur dvalarstaður í þessuheita loftslagi, nemaað eins meðan rigningartíminn stóð yfir. Einkum var þelta þægilegt á eftirmiðdögum, þegar sólin var tekin að lækka á himni, og auk þess var þarna hið dásamlegasta útsýni yfir Genesaretvatnið og bæinn með hinum þröngu götum. Hús fátæklinganna voru oftast ein hæð, og var kvikfénaðurinn í öðrum endanum, en fjölskyldan bjó í hinum, og var þangað aðeins upp að ganga eina eða tvær tröppur úr fjárhúsinu. Fátl var þar um hægindi, en gólfið var notað, sem rúm, stóll og matborð. Ljósið féll inn um dyrnar, og þar var enginn olíulampi í miðju lofti, sem brann stöð- ugt, enda var það eitt og bið sama að segja um einhvern, „að hann svæfi í myrkri“ og það að segja að hann væri fátækur. Rétl hjá húsi höfuðsmannsins sá Valerius nokkuð stóra bygg- ingu einálma, og er hann spurði, svaraði höfuðsmaðurinn því, að þetta væri bænhúsið (Synagog). Valerius vissi vel hvað það var, því að í öllum bæjum Rómaveldis voru Gyðingar, og þar sem þeir voru nægilega margir, bygðu þeir samkomuhús eða bænahús, þar sem þeir hittust og héldu hvíldardaginn heilagan livern laug- ardag. Það, sem vakti liinsvegar undrun Valeriusar, var að heyra, að höfuðsmaðurinn hafði sjálfur annast byggingu þessa — - bygg- ingu samkomuhúss Gvðinganna, — enda þótt hann væri Róm- verji. Nú fékk liann einnig það að heyra að höfuðsmaðurinn hefði sjálfur hallast að Gyðingatrú, og lifði eftir hennar boðorð- um, — að minsta kosti þeim merkustu. Valerius liafði einnig frétt það, að þeir voru nokkrir, sem hefðti gengið Gyðingatrú á hönd, og hefðu verið umskornir. Skuldbundu þeir sig lil að fylgja í öllu boðorðum Gyðinga og siðavenjum. Þessa menn viðurkendu Gyð- ingar þó ekki fyllilega, og því síður hina, sem voru allnokkrir, sem kallaðir voru guðhræddir menn, og sem ekki létu umskera sig, en fylgdu þó siðum Gyðinga um hvíídardag og matarhæfi, og neyttu því hvorki svínakjöts né blóðs. Undrandi blýddi Valer- ius á frásögn höfuðsmannsins um trú sína á guð Gyðinganna, sem þeir máttu ekki búa lil myndir af, og nafn hans — Jahve — ekki nefna. Og jiótt höfuðsmaðurinn heiðraði guð þeirra, héldi boðorðin, gæfi ölmusur og hefði meira að segja bygt bænhús, sem hann sótti að staðaldri bvern hvíldardag og aðrar vikulegar samkomur á mánudögum og fimtudögum, forðuðust Gyðingarnir hann með því að liann var ekki umskorinn, en mörgum þeirra var þó vel til hans. Enginn Gyðingur kom í hús hans, og þeir, sem voru kreddufastastir vildu ekkert hafa saman við hann að sælda utan húss. ’FTWf Alt þetta var nægt umræðuefni, er þeir riðu morguninn eftir út úr bænum og lögðu suður á leið. Meðan hestarnir tifuðu eftir mjóum troðningum, sem lágu upp í fjalllendið, reyndi höfuðs- Við Damaskushliðið í Jervjsalem, Það gr sknautlegasta hlið borgarinnar,

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.