Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 11

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 11
VÍSIR 11 DIMITR IVANOV: Sogú frd Búlgciríu. Jólanótt Höfundur þessarar sögu er Elin-Pelin, sem tók sér kjörorðið Dimitr' Ibanov, f. 1878 nálægt Sofia, af alþýðufólki kominn. Hann var sveita- kennari og skildi vel kjör bænda og- sveitafólks yfirleitt og er hann fór að skrifa sveitalífssögur. frá Búlgaríu vakti hann brátt mikla at- hygli á sér, og þykja sveitalífslýsingar hans afburða góðar. Fyrsta smásagnasafn hans kom út 1904. Frá 1904 var hann forstjóri Skóla- safnsins í Sofia. Eftir það gaf hann út nýtt smásagnasafn og jók það mjög hróður hans. IÐ höfum nógan tíma, herra niimi, yfrið nóg- an tíma. Við verSum komnir í áfangastað fyrir myrkur. Þorpið er þarna — við rætur hæðarinnar heint fram- undan. Sjáið þér það ekki ? Þeg- ar við erum komnir yfir liálsinn fer það að styttast, — þá er að að eins yfir sléttuna að fara, svo að það má heita, að við séum hráðum komnir.“ Ekillinn, sveitapiltur um tví- lugt, sveiflaði keyrinu, sló í klárana og mælti til þeirra hvatningarorðum: „Áfrain nú, áfram, lierrar mínir!“ Þelta var kátur piltur og hressilegur, en nokkuð þrár og álti til að fara sér liægt, eins og ekki var ótitt um sveitafólk- ið á þessum slóðum. Og klárarnir hertu ganginn, en vegurinn var blautur, og vagnhjólin voru annað veifið hálf í kafi i aurnum, sem slett- ist i allar áttir, en vagnskriflið skrölti og gjögti. Þetta var á aðfangadag jóla og það liafði verið úrkomusamt seinustu tvær til þrjái’ vikurnar og vegir allir erfiðir yfirferðar og ekki mundi betra taka við, er út i mýrlendið kæmi. En pilturinn lét þetta ekki á sig fá, hann kallaði glaðlega til kláranna ,lét fara vel um sig í sætinu, ýtti húfunni aftur i hnakkann og fór að söngla gamla þjóðvísu. „Hvað heitirðu, piltur minn?“ sagði maður sá, sem sat í aftur- sætinu, allhrokalega. Hann var maður gildvaxinn og sællegur og klæddur yfirhöfn úr úlfa- skinnum. Pilturinn svaraði engu og hélt áfram söngli sínu. „Hæ, strákur,“ kallaði sá gildvaxni hörkulega. irforingi og tveir óbreyttir her- menn gættu þess, að Þjóðverj- arnir kæmi ekki of nærri okkar skotgröfum......Að kveldi þess dags — þriðja i jólum — vor- um við leystir af verði. Við lét um þá, sem við tóku af okkur, vita hvernig samkomulagið hefði Verið við fjandrnennina, ef þá langaði til þeis að yaþþa. vI8 þá# lögreglufulltrúans. „Hvað er nú?“, sþurði piltur- inn og leit um öxl. „Hvað heitirðu?“, sagði eg. „Ertu heyrnarlaus ?“ „O-nei. Eg heiti Ondra.“ „Ondra, ha? Drjúgur, karlinn, eins og fleiri hérna á landsbygð- inni, og kannske lyginn og und- irförull líka. Eg þekki þig og þína líka. Gamlir kunningar allir, ef svo mætti segja — úr lögregluréttinum, ha, ha! Og hvað þið sveitamennirnir getið verið saldeysislegir, þegar þið eruð að bera af ykkur sakir. Eins og lömb. En úlfar i sauð- argærum — það er það, sem þið eruð. Og þið vogið ykkur að reyna að gabba sjálfan dómar- ann.“ „Við erum bara bændagrey,“ sagði pilturinn, „og við erum rægðir og logið upp á okkur. Og það er af tómri einfe'ldni, ef við blekkjum einhvern —- eða út úr neyð, því að hér er mesta hasl á öllum.“ „Basl, einfeldni! Ekki vantar afsakanirnar. Þú ert alveg eins og kunningjarnir úr lögreglu- réttinum. En ef við, sem eigum að gæta laganna, erum víðs fjarri, vantar ekki að þið séuð nógu borubrattir og gerið allan fjandann, sem ykkur dettur i lmg. Og svo drekkið þið úr ykk- ur alt vit, ef færi gefst.“ „Þér lialdið þó ekki, að það sé velgengni, sem stígur okkur til höfuðsins, herra minn?“ læddi Ondra út úr sér. „Eða að við höfum úr of miklu að spila. Nei, það er nú öðru nær. Og þér segið, að bændurnir drelcki úr sér alt vit. O, sei, sei, nei. Þeir gera það ekki af þvi, að þeir lumi á gulli, heldur af þvi, að þeir eru snauðir, og ef þeir bragða vín, liggur vel á þeim, og ])eir gleyma dægurstritinu. .Tá, þetta getið þér nú skrifað bak við eyrað, herra minn.“ „Fari i logandi, ef eg held ekki, að þú hafir bragðað á ein- hverju, piltur sæll. En þú ert of ungur — þer er ekki sprothn grön. Og eg á að skrifa það, sem þú sagðir, bak við eyrað, ha? Tja, þið hafið sannarlega kjaftinn fyrir neðan nefið, sveitadurgarnir,*' „Þér skrifið það, herra minn, bak við eyrað — eða í vasabók- ina yðar — sælir eru þeir, sem þá list kunna, ekki kunnum við — sveitadurgarnir — að lesa eða skrifa.“ Athygli Ondra beindist aftur að hestunum. „Áfram, áfram, herrar mín- ir,“ kallaði hann til þeirra. En það var eitthvað hik á klárunum, eins og jafnvel þeir væri orðnir hugsi. Gildvaxni maðurinn bretti upp kragann á loðskikkjunni og hallaði sér aftur. Hann var hugsi á svip og var sem liann gleymdi Ondra í svip og ferða- laginu. Krákugrey setlist á grein á eina trénu, sem sjáanlegt var frá veginum, og það brakaði í greininni, er krákan settist á liana, og glápti á ferðalangana athugulum augum.Hún var líka hugsi, að því er virtist. Alt var eitthvað svo grátt og dumb- ungslegt og farið að skyggja þar á ofan. Það var ekki kyn- legt, þótt menn og skepnur yrði dálitið leitt í skapi. Útlitið var sannarlega ekkert jólalegt. í hvaða átt sem litið var voru gráleit, æðandi stormský, en ef litið var beint i loft upp var hvolfið blátt og heiðið, en á jörðu niðri svartur aurinn framundan, en til beggja hliða i f jarskanum mátti líta skugga- legar Iiæðir og skóga, þorp og læki, og er út á mýrlendið kom hvarvetna polla og tjarnir, sem í kvöldhúminu mintu á köld, starandi draugsaugu. En áfram var haldið og seint sóttist ferðin. Vagnskriflið virtist skriða eftir aurblautum veginum eins og ormur, sem fer allur i hlykkjum, og það skrölti svo á- mátlega í vagninum, að það fór að fara í taugarnar á lagagætin- um, sem i vagninum sat, og liann gat ekki lengur dulið ó- þolinmæði sína. „Hvaða bölvað skrolt er þetta?“ kallaði hann til ekils- ins. „Það er bara skrúfa, sem losnað hefir, og fjöl, sem dingh ar svona fram og aftur „Þú ert ekki eins mikill græn- ingi og eg liélt,“ flýtti sá gild- vaxni sér að se'gja, því að hann bjóst við einhverri óþarfri at- hugasemd frá Ondra, ef hann héldi áfram. „Nógu liygginn til þess að leika á stelpurnar, ha, ha. Já, þið kvongist ungir hér — fallegum stúlkum.“ Og sá gildvaxni bretti niður kragann og bjóst til þess að lialda áfram að gera að gamni sínu. „O-jæja, þær giftu eru nú ekki til að forakta," sagði Ondra. „Hvað sem þér segið eru þær skárri. Eg veit hvað eg er að tala um. En meðal annara orða, herra minn, livert er er- indi yðar i þorpið?“ Ondra leit um öxl og horfði rannsakandi augum á liinn búlduleita farþega sinn. „Þér eruð vafalaust í embætt- iserindum?“ bætti hann við, er hinn svaraði engu. „Vitanlega. Einn af þessum hygnu náungum hérna í þorp- inu lék á mig, en i þetta skifti skal eg klekkja á honum. Eg liefi skjal liérna i vasanum, pilt- ur sæll, og nú sleppur hann ekki. Eg komst á snoðir uni, að liann væri ekki allur, þar sem liann er séður, þrjóturinn sá arna - - og í kvöld skal liann fá að kenna á því, þótt það sé aðfangadagskvöld. Hann skal minnast mín og þessara jóla, að mér heilum og lifandi. Og ekki þar með búið — hér skal verða svo um hnútana búið, að þið lærið allir af, og hættið að gabba yfirvöldin, því að það kalla eg það, drengur minn, að gabba yfirvöldin. Þið svikið kaupmennina, þið svíkið okkur borgarbúa yfirleitt; þið seljið okkur skemd egg og myglað smjör. En bíðið þið bara við, þið skuluð e'kki gabba yfirvöld- in oftar. Við kunnum tökin á ykkur. Það, sem þið þurfið, er að kenna á svipuólinni - -. rúss- neskri hnútasvipu — það ei' ema kensluahaldið, sem dugar. Allir eruð þið drykkfeldir, arg- ur skrill. Þið greiðið e'kki skatt þlð svíkið ríkið. Og við, hin- ir sönnu föðurlandsvinir, verð- um að groiða það. aem A Htyi,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.