Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Síða 41

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Síða 41
VÍSIR 41 1 I eg er svo glöð, að mér finst eg sjálf vera að opinbera. Hún settist en Daníel tók upp tvo hringa og dró annan á fing- ur Önnu, en hinn setti hann á fingur sér. Gestirnir stóðu upp og óskuðu hjónaefnunum til hamingju. Anna tók þessu með mestu ró, brosti blítt, hætti sér út í vafasamar samræður, en varað- ist að skrökva. Hún lék hlut- verk sitt belur en nokkur Ilolly wood-stjarna, þangað til Daníel kveikti á jólatrénu og settist svo við slaghörpuna og byrjaði að spila og syngja jólasálma. Allir tóku undir nema Anna. Hún gelck að glugganum og horfði út. Það var hætt að rigna. Tunglið gægðist niður á milli skýjanna og nokkrar stjörnur hlikuðu hér og hvar á dökkblá- um himninum. Jólastjörnur, hugsaði hún, og á morgun verð- ur ef til vill kominn jólasnjór. Á morgun-----------þá var æf- intýrið horfið, eins og dýrðleg- ur draumur, og hún alein heima. Á miðnætti buðu gestirnir góða nótt og fóru. En Anna fór upp á loft til þess að bafa fata- skifti. — Við ætlum nefnilega að ganga heim, sagði hún við „tengdamóður“ sina. — Jæja, börnin mín, sagði gamla konan. — Þið ráðið því. En látið ykkur ])á ekki verða kalt. Þegar þau voru tilbúin að fara, tók gamla konan loðkápu út úr skápnum í andyrinu og sagði: — Gjörðu svo vel, góða mín og farðu í þessa kápu. Þér get- ur orðið kalt í svona þunnri regnkápu, því nú er víst farið að frjósa. Anna ætlaði að mótmæla þessu, en komst ekki að fyrir gömlu konunni. — Unnur átti kápuna, hún fór að eins einu sinni í liana. Vexáð þið sæl á meðan, börnin mín. Þú kemur aftur á morgun, er það ekki? Eg þarf að hafa ungt fólk í ki-ingum mig. Góða nótt, Danni minn — eg verð víst sofnuð þegar þú kernur aftur. Góða nótt, vina mín. — Síðan kysti hún Önnu á ennið og tár blikuðu í augum hennar. Þá fékk Anna samviskubit. Hún skammaðist sín fyrir það, að þurfa að skrökva að þessari góðu og einlægu konu. Hún á- sakaði sjálfa sig fyrir léttúð sína og Daníel fyrir brellurnar. Þau gengu þegjandi dáíitinn spöl, svo sagði hann: — Þér hafið gert mér ómet- anlegan greiða. — Og orðið völd að sorg yðar, sagði Anna lirygg. — Hvað eigið þér við? — Bréfið. Það hlýtur að vera vegna þess, sem þér urðuð að biðja mig að leika í þessum skopleik. — Hvei-nig vitið þér um bréf- ið? — — Það var einmitt vegna bréfsins, sem eg kom. Hvað hélduð þér að eg væri annars að gera í ókunnugt liús á að- fangadagskvöld ? — Já, auðvitað. Hann kinkaði kolli og sagði svo eftir augna- hhks þögn: — Eg hugsaði ekk- ert um það, hvert erindið liefði verið, þvi eg var svo hissa og glaðui', þegar eg sá yður standa á tröppunum. Eg varð santn- færður um að jólasveinninn lxefði sent yður til mín, til að gleðja mömmu. Öll jólagleði hennar liefði breyst i sorg, ef eg hefði sagt henni hvernig komið var. Inga kom liingað i gær til þess að dvelja hér um jóhn og kynnast mömmu. Við kyntumst í fyrra austur í Fljótshlíð, en þar á Inga heima. Hún hefir á- kaflega gaman að blómum og þessvegna keypti eg blómaköx’fu í dag og ætlaði að láta senda hana til hennar. En af því eg hafði ekki nafnspjald á mér, lét eg senda hana heim til mín. Seinna fékk eg litinn dreng til þess að fara með hana. Þegar eg nú í kvöld kom tií Ingu, var hún ferðbiíin, en ekki til þess að fara með nxér, held- ur jðrum manni, sem beið eft- ir henni. Er eg spui'ði um ástæðuna, rétti hún mér þetta bréf, og. sagðist í raun og veru gleðjast yfir því, að svona skyldi fara. Og þar sem eg væri nú giftur annai'i, ætlaði hún líka að gift- ast öðrum, sem hún elskaði — þó bláfátækur væri. — Mér þykir afar leiðinlegt.. að þetta skyldi lconxa fyrir, og; það er alt liirðuleysi mínu að. kexxna, sagði Anna. Og nú sagði hún lionum upp alla söguna. — Ef til vill er ekki of seint að laga þetta. Ef þér viljið, skal eg koma með yður til stúlkunn- ar og sannfæra hana um mis- skilninginn. Máske hefir hún slegið þessu fram í augnahliks geðshræi'ingu. Henni hlýtur að þykja vænt um yður. —: Haldið þér það? — Já, eg efast ekki unx það. — Hversvegna? — Það veit eg ekki, eg held það bara. — Nei, þakk’ yður fyrir. Við skulum ekki fara til Ingu; það er sjálfsagt best að svona fór. Mamma hefði hvort eð er aldrei getað felt sig við hana. En yð- ur kann hxín vel við, það held eg að mér sé óhætt að segja. — Já, en það er hræðilegt, að skrökva að henni. Eg skamm- ast mín, og það ættuð þér líka að gei-a. — Ilversvegna má mömmu eleki þykja vænt um yður? — Jólasveinnhm sendi yður til mín, og einhver hefir tilgang- ur lians verið nxeð þvi. Og þér lofuðuð mömmu að koma á morgun, og það er ljótt að svíkja loforð sin. — Eg ’.oíaði alls ekki neinu. Eg fyrirlit mig og yðui', — því það er yður að kenna, að eg hefi komið fram sem svikai'i á jafn heilögu kvöldi og nú. — Já — en Inga---------æ — — nei, eg meina----------- — Eg heiti Anna Ingólfsdótt- ir. — — Anna, þér gleymið því, að bréfið á sökina. En hvað gerir þetta til? Við erum bæði skips- brotsxnenn ástarinnar. Forsjón- in hefir hagað þvi svo til, að við liöfum bæði lent á sama flekan- um. Þar erum við neydd til að vera, þangað til ákveðið er, hvort eigi að sökkva okkur í hið ólgandi djúp, eða leiða í höfn. Er nokkuð því til fyrir- stöðu, að við ákveðum sjálifl,, hvor leiðin verður valin? Þau staðnæmdust og stöi'ðu þegjandi hvort á aixnað dáhtla stund. Svo brosti hún og kink- aði kolli til samþykkis. --------Stjörnurnar blikuðu, tunglið skein skært og töfi’andi. Það var komið fi’ost og snjór var í lofti. Jólin voru komin. i GLEÐJLEG JÓL! Versl. Drífandi. ÍÖOÍSÍKSOÍXÍOÍÍOOÖOÖOÍSOOOOÍSÍÍQS GIÆÐILEG JÓL! Prentmyndagerðin Ólafur J. Hvanndal. s? SOOí SOOOO! SOOOOOOOO! SOOOO! SOO! GLEÐILEG JÓL! Skóbúö Reykjavíkur. GLEÐILEG JÓL! Húsgagnaverslun Reykjavíkur, Vatnsstíg 3. GLEÐILEG JÓL! Jónas Bergmann, Reylcjavíkurveg 19. 500!50000! SÍSOOOOOOO!50000!500! GLEÐILEG JÓL! S a n i t a s. 3 § ÍOOOOOOÖOOOOOOOOOOOOOOOGOO! GLEÐILEG JÓL! ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ GLEÐILEG JÓL! ■ ■ ■ ■ Tóbaksverslunin ■ Versl. Havana. London. ■ ■ ■ ■ ■ ■ 11

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.