Vísir Sunnudagsblað - 05.04.1942, Blaðsíða 5

Vísir Sunnudagsblað - 05.04.1942, Blaðsíða 5
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ 5 KRISTJÁN GUÐLÁUGSSON: Gunnlaugur Blöndal listmálari » Kona greiðir sér Gunnlaugur Blöndal. íslenzk málaralist er tiltölu- lega ung, enda má heita að menn legðu hana ekki fyrir sig ein- vörðungu fyr en um eða eftir aldamótin síðustu. Málaralistin var áður eingöngu tómstunda- vinna, unnin af hneigð einni, en eigi þekkingu, enda var árang- urinn eftir því. Frá því um aldamót liefir ís- land hinsvegar eignazt hóp af ágætum listmálurum. Eru sum- ir þegar rosknir og landskunnir, en aðrir ungir og upprennandí. Hafa ýmsir málaranna getið sér hið bezta orð hjá erlendum list- gagnrýnendum, sem, komizt hafa að þeirri niðurstöðu, að þeir stæði sumir hverjir ekki að baki öðrum ágætum listamönn- um í þessari grein á Norður- löndum,. Fáir eru þeir hinsvegar, sem hafa borið hróður Islands nokkuð verulega út fyrir land- steina Skandinavíu, þótt þeir hafi dvalið langan tíma eða skamman á suðrænni breiddar- gráðum. í liópi hinna íslenzku mólara er einn maður liðlega fertugur, og getur því kallasl miðaldra, sem mikla athygli liefir á sér vakið erlendis. Er það Gunn- laugur Blöndal. Hefir hann ekki sýnt verk sín í Evrópu einni, en brugðið sér yfir til lands sólar- innar, Japans, og tekið þátt með frönskum listamönnum í mál- verkasýningu i Tokio. Verk hans er einnig að finna á lista- söfnum i París og á öðrum stöð- um á Frakklandi, og á Norður- löndum hefir hann vakið ó- skipta athygli og unnið sér við- urkenningu sem liinn færasti listamaður í sinni grein. Einnig þar eru mörg af málverkum lians á söfnum eða i einstakra manna eigu, en ekki sízt í Dan- mörku á hann fjölda dáenda. Má í því sambandi nefna það, að Chr. Rimested hefir mjög haldið nafni hans á lofti, og m. a. ritað um hann itarlega og merkilega ritgerð, er birtist framan við myndasafn Blöndals, er Arthur Jensens forlagið gaf út árið 1938. Eg hygg þó að öll erlejid við- urkenning væri málaranum Gunnlaugi Blöndal út af fyrir sig lítils virði, ef liann nyti ekki einnig hylli og óskiftrar aðdá- unar eigin þjóðar. Má tvímæla- laust fullyrða, að einmitt hér í höfuðborginni kunna menn vel að meta list hans, og margir af þeim, sem málaralistinni unna, télja liann einhvern ágætasta málara okkar, næmastan fyrir litum náttúrunnar, djarfan, en þó á þann hátt, að aldrei er far- ið út í neinar öfgar, — í fám orðum sagt gáfaðan og stórlærð- an listamann. * * * Rétt eftir fermingu kom Gunnlaugur Blöndal hingað til bæjarins og hóf nám í mynd- skeraiðn. Honum var það þá þegar ljóst, að list vildi hann stunda, en hinsvegar gerði hann sér ekki þá þegar fulla grein fyrir því, hvert allt eðli hans stefndi í rauninni. Hann stund- aði myndskeranámið af kappi og tók sveinsbréf í þeirri grein. Ilann var þó ekki ánægður með þetta, en hneigðist öllu frekar að því, að mála og teikna. Hélt hann svo til Danmerkur til frék- ara náms. 1 Kaupmannahöfn lagði hann stund á teikningu, en fór því næst til Oslo árið 1918' og slundaði málaranám hjá ein- hverjum frægasta málara Norð- manna, Chr. Krogh. Taldi Krogh hann einhvern efnilegasta nem- anda sinn, enda unni Gunnlaug- ur mjög kennara sínum, og tel- ur hann ennþá þann manninn, sem hann dái mest og hafi mest lært af. Dvaldi hann í skóla Kroghs í tvö ár, en hélt þá til Parísar til þess að fullnuma sig enn frekar i list sinni. Er hann dvaldi í Oslo, var þar haldin sýning á málverlcum frönsku meistaranna Renoir og Matisse, og lelur Rimestad, að þar hafi hann kynnst hinni djarflegustu listameðferð, sem mjög hafi hrifið hann, og það svo, að hann hafi tekið sér þessa málara til fyrirmyndar á skólanum,og hafi Kjrogh þótt nóg um þann ungæð- isskap. En Iírogh skildi hinn unga listamann og lét kyrrt liggja, en beindi honum, inn á þær brautir, sem hann taldi honum hollastar, þar til hann væri fær um að ryðja braut sína sjálfur í listinni, — velja og hafna. Árið 1923 hélt Gunnlaugur Blöndal til Parísar. Gekk hann þá um skeið á skóla André Lhotes. Mat hann þann kennara sinn mikils, enda var Lhote í senn stórgáfaður málari og list- gagnrýnandi, sem. mikið kvað að. En þótt Blöndal dáðist að þessum kennara sínum, vár hann orðinn sjálfstæður í list sinni, hirti hvorki um „kub- isma“ né „impressionisma“, þ. e. a. s. féll ekki fram og tilbað neina listastefnu, sem þá var efst á baugi og naut mestrar hylli ungra listamanna, en valdi það eitt, sem honurn féll, og forðaðist allar öfgar i stefnum. Gunnlaugur Blöndal var of mik- ill íslendingur í eðli sínu til þess, Frá Vestmannaeyjum

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.