Nýja dagblaðið - 24.12.1936, Side 5

Nýja dagblaðið - 24.12.1936, Side 5
N ¥ J A DAGBLAÐIÐ 5 en þjóðsögn og heilaspuni. Aldrei hefi ég séð um- jhverfi, sem betur hæfði vættum og kynjaverum. | SnÖgg eru þau viðbrigði að ríða í hlaðið á Svína- jfelli, myndarlegum og kyrrlátum bóndabæ í grænu og gróðursælu umhverfi. Það var kafgras á túninu, jí garðinum myndarleg tré og útsprungin blóm. Allt ivar örhljótt, baðað í miðaftanssól.------------Hér var lífinu lifað í kyrrð og ró eins og ekkert hefði þorið við, síðan á dögum Flosa, annað en hvers- idagsstörfin, sem hver kynslóðin hafði af annaii érft. i : Aftur stóð ég augliti til auglitis við veruleika Islendingasagnanna. Hér bjó Flosi Þórðarson freys- goða, sem kominn var af Bjama bunu, hersi í Sogni.---------- ; Nafn hans rifjar upp harmleikinn í Njálssögu, sem átti sér stað á hinu stórbrotna leiksviði, sem nú blasir við okkur vestur að Lómagnúp, en nær langt handan við hánn, til Hlíðarenda og að Berg- þórshvoli, bæ Njáls, sem Flosi varð nauðugur, vilj- ugur, að brenna, til þess að koma fram hefnd á jNjálssonum. ! Hvort mun nokkur geta skilið til fulls hinn isagnræna kraft og djúpu lífsspeki í leikslokum Njálú, án þess að hafa komið að Svínafelli og riðið þaðan fram um sandana til strandar? j „það segja mcnn, að þau yrðu æfilolt Flosa, að hann færi utan, þá er liann var gamall orðinn, að sælcja sér 'akálavið. Og var hann í Noregi þann vctur. Enn um sumarið varð hann síðbúinn. Menn ræddu um að vont jværi skip hans. Flosi sagði vera ærið gott gömlum og feigum og sté á skip og lét í haf — og hefir til þess ..skips aldrei spurst síðan". Við vöknum af þessum sögudraumum við það að !síminn hringir. Frá Skaftafelli er okkur tilkynnt að nú sjáist til ferðamanna úti á Skeiðarársandi og muni húsfreyjur okkar vera þar á meðal; hópurinn væri bráðum kominn að Skeiðará og ætti um tveggja stunda férð eftir að Skaftafelli. Þetta kom hreyfingu á okkur, nú var ekki tími til að dvelja við löngu liðna tíma, ef sú skömm ætti eklti að henda oltkur að koma of seint til stefnumótsins, þar sem okkar dagleið var helmingi styttri. Hestamir voru söðlaðir í skyndi og á harða spretti riðum við aftur út á aurana. Svínafellsá reyndist verri heldur en hún leit út fyrir, straum- hörð og stórgrýtt. En nú höfðum við hvorki tíma til að velja vað eða þræða það nákvæmlega. Jóreyk- ur úti á sandinum færðist óðum nær. Brátt var hægt að greina sundur hestana og loks varð hrein og bein kappreið um að komast fyrst að gilinu í Skaftafelli, þar sem vegurinn liggur upp að bæj- unum.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.