Tíminn Sunnudagsblað - 10.03.1963, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 10.03.1963, Blaðsíða 2
INGÓLFUR DAVÍÐSSON: AÐ HEIMAN OG Á HAFNARSLÓÐ ÞAÐ VAR brakandi þurrkur og þaut í fossinum einn *fagran ágúst- dag sumarið 1929. Við vorum að taka saman á túninu uppi í Smiðju- hólsbrekkunni, þegar systir mín kem- ur að heiman og færir mér bréf út í flekkinn. Ég les það í flýti og segi síðan: ,,Ég er búinn að fá 1200 króna styrkinn, nú kemst ég utan til náms í haust“. Pabbi óskaði mér til ham- ingju og bætti svo við: „Þá verður þú einhvers staðar úti á Jótlandi næsta sumar“. Teningunum var kastað. Með 100 krónur á mánuði í fjögur ár þóttust námsmenn færir í flestan sjó í þá daga. Hálfum mánuði síðar var ég á leig til Reykjavíkur með eimskip- inu íslandi. Á Siglufirði barst fregn um hafísihroða fyrir Horni. Var því siglt austur um landið í þokusudda- veðri, og sást lítið til lands, fyrr e'n út af Austfjörðum. Kannaðist ég þar við hrikaleg fjöllin, því ag um vor- ið hafði okkur, nýútskrifuðu stúd- entunum frá menntaskólanum á Ak- ureyri, verið boðiff í fræðsluför til Hornafjarðar — með varðskipinu Óðni. Var tjaldað yfir okkur aftur á, og urðu margir sjóveikir. Barst í tal, aff Jón frá Völlum hefði því miður ekki getað tekiff þátt í förinni. Skrapp þá upp úr Steingrimi Pálssyni: „Sæll er hann“. Þetta var sagt meg svo mikilli alvöru, að enginn brosti að þessu, fyrr en í land var komið degi síðar. í Hornafirði mættum viff sunn- anstúdentum, og varð ferðin um hér- aðið hin ánægjulegasta og fróðleg mjög — undir stjórn kennaranna Guðmundar Bárffarsonar og Pálma Hannessonar. í Reykjavík var dvalizt tvo daga. ,,Það er gott að taka þetta svona stig af stigi“, sagði kennari minn, Brynleifur Tobíasson, sem var mér samskipa suður og vissi, að ég hafði sjaldan komig út fyrir byggffir Eyja- fjarðar. Jú, Reykjavík var stærri en Akureyri, en ég saknaði vænu trjá- garðanna, og mér fannst umhverfið grátt, grýtt og kaldranalegt. „í mið- bænum þrifast aldrei tré, það gerir sjáivarseltan í jarðveginum", sagffi reykvískt yfirvald mæðulega. Allmargt námsmanna tók sér far meff skipinu tn Hafnar. Urðu sumir sjóveikir, og man ég vel, hve geita- mjólkin í Þóþshöfn í Færeyjum hressti okkur. Við settumst kringum stóran mjólkurpott og drukkum ó- sleitilega. í myrkri seint ttm kvöld sáum við ljós og fundum hlýjan landblæinn Þrír islenzkir námsmenn viff gótu- dyr í Höfn: Runóífur Sveinsson, Pétur Gunnarsson og Zóphónías Pálsson. af Skaganum danska. Siglt var að morgunlagi inn Eyrarsund, og varð ég gagntekinn af hrifningu að sjá hvarvetna dimmgrænan skóginn. — Heima hafði ég að visu séð hríslur í skjóli húsa. En hér glitti aðeihs i hvít máluð býlin milií trjánnu. og vrtist limið lykjast yfir húsþökin. — „In- dæla Eyrarsund — opnast með gull í mund, borgir og skrúðgræna skoga“, kvaff Matthías Jochumsson. Bo.-gin hreif mig minna viff fyr/tu sýn Ég var vanur víðittunni heima, og mér þóttí.þröngt i stórborginm. Götu nar virtust sem gjár og fólkið i hömr- unum framandi lýður. Ég leitaði fljótt upp í turnana, út í dýragarð, Tivoli eða reikaði um grasgarðinn mikla. Úr hinum mörgu turnum er allvíðsýnt um flata borgina. En iiita- móða og mistur liggja oft í lofti. svo að sjónarsviffið verffur miklu minna en heima. Stundum gekk ég út á Löngulínu, andaffi að mér sjávar- lofti, starði yfir til sænsku strandar- innar og borðaði epli allt hvað af tók. Virtust margir landar haldnir ávaxtahungri á þeim árum og notuðu óspart tækifærið, er í aldinlunda- land var komið. — Ég kom mér fyrir skammt frá háskólanum, á homi Nörregade og Nörrevold. Þar var umferff afarmikil og hávaði gífurleg- ur. Neðanjarðarbraut lá undir göt- unni og frá uppgöngu nálægrar járn- brautarstöðvar heyrðist hvæsið í eimlestunum, en stöðugar hringingar og dynur sporvagnanna kváðu við rétt fyrir utan gluggann. Þetta var óþægilegt fyrst í stað, en fljótlega 218 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.