Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1963, Síða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1963, Síða 19
hunda Lnn í svefnherbergið og hafði þá þar í afþiljuðu horni. Katrín ætl- aði að kafna af óþefnum, sem af þessu stafaði, en furstinn sagði, að við þvi yrði ekki gert, enginn mætti vita um þessa skemmtun hans. Veturinn sem Katrín varð átján ára, segist hún hafa farið að fríkka og farið ag halda sér til og einstaka slnnum hafi sér verið hrósað fyrir fegurð. Einu sinni fór hirðin í heimsókn á sveitasetur, sem elskhugi drottningar var nýbúinn að láta byggja. Vildi þá hvorki betur né verr til en bygging- in hrundi og fyrirfólkið bjargaðist margt nauðuglega út, en um tuttugu manns af þjónaliði og handverks- mönnum fórust. Drottning þoldi eng- um að láta í ljós ótta eða hafa orð á þessu. Og tíminn leið vig skemmtanir, ferðalög, og ótrygga vináttu æðri sem lægri. Þeir, sem voru vildarvinir í dag, voru á morgun píndir og dæmd- ir í útlegð. Stórfurstinn hélt áfram að venja hunda og misþyrmdi þeim stundum svo, að Katrín ætlaði ag ær ast, en fékk engu tauti við hann kom ið. Og nú er komið árið 1750 og Katr- ín og furstinn eru í Pétursborg, en fátt eitt af hirðinni enn komig frá Moskva. „Þá átti hirðfólkið enn þá erfiðara með að yfirgefa Moskva en nú“, segir Katrín, „þann stað elskar þag umfram alla aðra og þar er slæp- ing9háttur og leti þess göfugasta verkefni. Það' er ekki sjaldgæft að sjá þar hlið að stórum húsagörðum, þar sem mykja og alls konar óþverri er í hrúgum umhverfis fúna og ógeðslega trúskúra, opnast fyrir skrúðklæddum og gimsteinaprýddum hefðarfrúm, sem sitja í íburðarmiklum vögnum, sem sex húðarjálkum með skitin ak- týgi er beitt fyrir og stjórnað af ó- greiddum, ótótlegum þjónum í snotr. um einkennisbúningum, sem rudda- legt útlit mannanna eyðileggur. Yfir- leitt verða bæði karlar og konur væsklar og vesalingar hér í stórborg- lnni. Þau sjá ekki né fást við annað en það, sem gæti deyft og sljóvgað sköipustu anda. Þau þjóna ekki öðru en lund sinni, sniðganga lög og rétt, og árangurinn verður sá, ag annað hvort lærir þetta fólk aldrei að skipa fyrir eða verður að örgustu harðstjórum". Hún heldur áfram að lýsa þeirri harðstjóm, sem þarna viðgangist henni til viðurstyggðar og hve frá- leitt sé viðhorf yfirstéttanna til al- múgans og hverri andspyrnu hún hafi mætt, er hún vildi bæta kjör bænd- anna. Næst lýsir Kalrín því, er hirðmeyj ar koma með þau skilaboð frá drottn ingunni, að stórfurstinn ætti að fara 1 bað, en hann taldi slíka uppáfinn- ingu andstyggilegt, rússneskt fyrir- bæri, sem hann neitaði að beygja sig fyrir. Hirðmærin hótaði honum fang- elsi, en hann grét og skammaðist og neitaði og bætti það ekki samkomu- lag hans og drottningar. Furstinn hélt áfram að verða ástfanginn af hverri hirðmeynni eftir aðra, en ónotast við eiginkonuna og átti jafn- vel til að berja hana, ef hún ekki tók undir, þegar hann lofsöng meyj- arnar, sem hann girntist hverju sinni. Katrín gefur 1 skyn, að hún hafi á þessum árum farið að gamna sér með einstaka aðalsmönnum og verður einkum líðrætt um Serge Saltykov, sem að vísu var fyrir skömmu kvænt ur, en var fljótúr að útskýra, að konan hefði valdið honum vonbrigðum. — Katrín segist hafa reynt að telja hon um hughvarf, en því miður hafi hún ekki getað varazt að hlusta á hann. Hann hafi verið engilfagur og eng- inn við hirðina hafi jafnast á við hann í menntun og andríki. Aðdrag- andi ástasambands þeirra virðist hafa verið æði langur, en eitt sinn voru þau í veiðiferð úti á eyju og skall á óveður, og lætur hún þá í það skína, að andspyrna sín hafi verið þorrin. Æði lengi tókst þeim að fara í kring um hjón þau, sem raunverulega áttu að gæta Katrínar og eiginmanns henn ar í umboði drottningar. Katrín var mikil hestamanneskja og skemmti sér við útreiðar og klædd ist þá karlmannsfötum og reið í hnakk. Drottnirgin hafði orð á því við gæzlukonu hennar, að kannski staf- að'i bamleysi Katrínar af þessu hátta- lagi og klæðnaður hennar væri ósið- legur. Gæzlukonan svaraði, að ekki vaéri von, að Katrín yrði bamshafandi, Slíkt gerðist ekki af sjálfu sér. Þá skammaði drottningin gæzlukonuna fyrir að hafa ekki vakið „áhuga við; komandi persónu" og eftir miklar bollaleggingar var ákveð'ið að fá stór furstanum eins konar kennslu- konu — umga og laglega — ekkju. En þar sem það er Katrín siálf, sem getur þess að Saltykov hafi aftur verið kominn til hhðar- innar, áður en nokkur vottur sást um að kennslan bæri árangur, virð ist vafalítið, hver valdur hafi verið að þunga hennar. En í einni vetrar ferðinni til Moskvu frá Leningrad, veiktist hún og missti fóstrið. Þann vetur árið 1752, var þeim hjónum fengin til íbúöar ný við- bygging við höllina í Moskvu, og var húsið svo illa byggt, að allt rann út í slaga. 1 búningsherbergi Katrínar áttu allar hirðmeyjar liennar og þjónustustúlkur að sofa og voru þær sautján aHs. Ekki var annar inngangur í herbergið en gegnum svefnherbergi Katrínar. í þessu herbergi lá hún veik og reyndi að' skýla sér með skermum, en lítið var um næði. Drottningin heimsótti hana loks á tíunda degi, og þegar hún sá allan umganginn, sem um svefnherbergið var, skip- aði hún að setja aðrar dyr á bún- ingsherbergið, svo það varð enn minna, og stúlkurnar urðu að fara út og yfir götuna til að komast milli herbergja. „Ekki skil ég“, seg- ir Katrín, „hvað verndaði stúik- urnar frá að taka einhverja far- sótt og fárveikjast. Svefnherbergi mitt var fullt af alls konar óværð, sem rændi mig nætursveini". Þegar Saltykov kom næst til hirð arinnar, var ást hans eitthvað tek in að réna. Gæzlukonan fór aftur að hefja ináls á nauðsyn þess, að Katrín eignaðist son, og sagði að lokum, að hún skyldi sjá til þess, að henni yrði frjálst að velja milli Saltykov og annars aðalsmanns, til að koma þessu á rekspöl, og ekki skyldi hún á nokkurn hátt verða meinsmaður þess, að slík tilraun yrði gerð. Og aftur varð Katrin þunguð, og allt fór á sömu leið og í fyrra skiptið. Lá hún fárveik í sex vikur og fáir sinntu henni, nema lítil þjónustustúlka, sem var 1 í úf og góð. Stórfurstinn drakk og iék sér að brúðum, og þegar þjónarnir vildu ekki gegna honum, af því að þeir voru allir drukknir, sótti hann Katrínu til að skamma þá fyrir sig. Einu sinni kom Katrin þai að, sem hann var að hengja rottu, sem hafði klifrað upp á pappírshöll, sem stóð á borði, og sagðist stór- fiirstinn hafa stefnt rottunni fyrir herrétt. Gramdist furstanum mjög, er Katrin hló að þessu réttarhaldl hans. Ári síðar brann höiiin, og flutti þá Katrin og furstinn fyrst heim tii hjónanna, sem gættu þeirra. Er ljót lýsing á þeun bústað. Vind- urinn blés gegnum rifur, hurðir fiestar fúnar og gólfið allt í göt- um, en þarna bjuggu sjö börn hjón anna og þjónalið. Drottningin sagð ist hafa misst fjögur þúsund al- kiæðnaði í brunanum, auk alls annars. Næst fluttu þau hjón til biskups borgarinnar og þó að það hús væri skárra af því, að undir því var kjallari, þá voru ofnarnir svo lélegir, að alls staðar sá í glóð ina og reykinn lagði inn í stofurn- ar. Öllum súrnaði í augum og ótt- v.ðust að brenna inni hvern dag, enda kviknaði einum þrisvar sinn um í húsinu meðan þau dvöldu þar. í þriðja sinn átti Katrin von á b&rni, en þrátt fyrir það, varð hún að fara akandi til Pétursborgar og tók ferðin heilan mánuö. í sumar- höllinni þar voru henni fengin í- búðarherbergi rétt við herbergi drottningar og leizt henni heldur dapurlega á þau, dimm og einangr uð. Hinn 20. september fæddist henni sonur, sem skirður var Páll strax eftir fæðinguna. Síðan skip- TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 547

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.