Tíminn Sunnudagsblað - 18.08.1963, Page 12
GLÆSIBÆR VIÐ EYJAFJÖRÐ
GLÆSIBÆJARKIRKJA
Af máldaga Auðunar biskups rauða
Þorbergssonar fyrir Hólabiskups-
dæmi árið 1318 er ei meir til en
llpphafsQxðin fyrir Glæsiibæ. Þessi
forna skinnbók var skrifuð upp á 17.
öld, og getur afskrifarinn þess, að
vanti blað í bókina. Á hinum glataða
hluta máldagans hafa verið vísitazíu-
gerðir nokkurra kirkna, því að næsti
hluti, sem varðveitzt hefur, er frá
Stærra-Árskógi.
Árin 1439—1480 sat í Glæsibæ síra
Þorgrímur Jónsson. Um miðja prest-
skapartið hans gerði Ólafur Rögn-
vaMsson eitt sinn yfirreið um bisk-
apsdæmi sitt. Máldagi hans er enn
varðveittur, en þegar Árni Magnús-
son lét bera afskriftir sínar saman
við frumritið, varð ekki lesið: Illuga-
staðamáldagi, Lögmannshlíðar- og
Glæsilbæjarmáldagar, né heldur
kirknatalið. Til skamms tíma var mál-
dagabók Ólafs biskups innbundin í
fornt skinn, órakað og hárið rautt,
en snöri hárhamur út, og var það ann-
að hvort útselaskinn eða nautaskinn.
Nú er búið að fletta mál'dagabókina
þessu forna bandi og það glafað. Er
það illa f:arið, því að fyrir band þetta
mun bók þessi í þjóðsögunum hafa
orðið Rauðskiniiia sú, er mestur gald-
ur var í, og var í höndum Hólabisk-
ups.
Einn hinna fornu máldaga Glæsi-
hæjarkirkju er þó enn vel varðveitt-
ur. Er hann frá vísitaziu Péturs Hóla-
biskups Nikulássonar anno 1394. Og
skal hann nú tekinn hér upp að
mestu, en í nútíma stíl:
Kirkja í Glæsibæ er helguð með
Guði hinum heilaga Nichol'ao. Hún
á allt heimaland og skögarstöðu í
Fnjóskadal.
Þetta ininan kirkju: Messuklæði
fornt og laus hökull, kantarakápa,
sloppar tveir vondir, brík, krossar 3,
blöð 2 og spjald. Nicholás líkneski og
Jóns biskups. Maríuskrift með hurð-
um og önnur minni hurðalaus. Alt-
arisklæði 3 og dúkar, tveir blámerkt-
ir, hinn þriðji með sprang. Altaris-
teinar 2, dúkur sæmiligur fyrir Ni-
cholao. Sacrarium mundlaug, glóðar-
ker, 4rar altarisstikur, tvær sæmileg-
ar stikur fyrir líkneskjum. Klukkur
4rar og hin 5. bjalla, en sjötta læst
niðri. Skrúðakista sæmilig. Kaleikur,
stólar 3. lektarar 2, sár, sacrarium
handklæði.
Þetta í bókum: Nicholaus saga ný
og önnur forn, Þorlákssaga, Vor bók
de tempore og de sanctis að öllu.
Óttusöngvabók de sanctis á sumarið
frá Jónsmessu og til jólaföstu og tvær
lesbækur af sama. Missale. Bók de
sanctis allt árið. Kommune suffra-
gium samsett að öllu. Sumarbók að
pistlum og guðspjöllum. Matutinale
bók að lesa á sumarið. De tempore
jólabók samsett. Messubækur frá jól-
um og til páska de tempore. Saltari,
kyrial, lágasöngvakver, messudaga
bréf. Historia sancti Nicholai. Sálu-
tíðakver. Crismakier.
Fontur með umbúnaði. Matutinale
fornt. Glergluggar tveir. Lítið skrín
um t . . . , stentjöld 3 um kór all-
vond, steintjald, litað og á cruci-
fixum. Tjald um framkirkju. Hym-
narius og capitularius. Merki tvau.
í Glæsibæ er prests skyld, tekur
heima í leigu 4 merkur, en utan garðs
hundrað.
Ljóstollur og heytollur af tíu bæj-
um.
Tíund tali árl. kirkju hluti hálfur
tíundi eyrir.
Þetta í kvikfé: Ásauðar, kúgildi
átta, kýr níu, geldfjár kúgildi níu
og tíu aurar, hundrað og tuttugu
vöruvirðt. Tvö hundr. í slátrum, fjög-
ur hundr. í hafnarvoðum. Hross tvau,
roskin, og eitt tvævett.
Árið 1429, tíu árum fyrr en sr. Þo -
grímur Jónsson sezt að Glæsibæ, set-
ur Jón biskup Vilhjálmsson Jóni smið
Guðmundssyni staðinn um eins árs
skeið:
„stadarbref jons smidz gudmundz-
sonar vm eitt ar glesibæ, ver jon med
660
T í M 1 N JN — SUNNUDAGSBLAÐ