Tíminn Sunnudagsblað - 18.08.1963, Blaðsíða 13
gudz nadh etc. gerom ollum monnum
kunnigt ath vær hofum uætt oc skip-
at stadæn oc kirkona j glæsibæ jonæ
smidh um æitt aar med ollum gogn-
um etc oc eckki læighsælia edr lia
af stadnum oc mæga tala efter stad-
arens godzsæ logliga oc bioda firir
þeim rangliga hafua haldit.
Oc til sanninda her vm etc.
vt gefuit a holum j hialtadal þridia
dagen næsta firir jool, er þat thomas
messo postula aftan anno M cd xx
nono'1,
þ.e. 20. des. 1429.
Það sama ár hafði Jón biskup gert
sína fyrstu yfirreið um Vaðlaþing og
Þingeyjarþing. Segir í máJdaga hans
fyrir Glæsibæjarkirkju, að hún eigi
m.a. 4 kúgildi, 6 hundruð í virðingar-
gózi, 3 hundruð í hrossum, item 17
aura sérdeilis o.s.frv.
En í Ólafsmáldaga 1461 eru þessar
ítölur kirkjunnar: skógur í Fnjóska-
dal, út frá Hofstöðum, mánaðarrekst-
ur öllu búfé í bæði mál fram í fremri
kleifum dals lands heiði (óljóst i
skinnb.), afrétt hrossum og öllu geld-
fé undir Bröttubrekku í Hörgárdal.
Tólf feðmingar torfs árlega í Dag-
verðareyrarjörðu, hálfsmánaðarteigur
í Moldhaugajörðu árlega gegn þara-
göngum í Básum. — Kirkja var
um langt bil á Laugalandi á Þela-
mörk.
Hinn 4. marz 1400 kaupir Runólfur
nokkur Sturluson þá jörð, og eru
kaupin gerð í Saurbæ í Eyjafirði.
Tilgreindar ískyldur eru m.a. að
kirkjan í Glæsibæ átti mánaðar
rekstur í bæði mál, á surnar, búfé,
ella tveggja mánaða rekstur í annað
mál. Laugalandskirkja átti hinsv. ítök
í iandi kirkjunnar í Auðbrekku,
engjateig vænan, og sn. Dauðatjörn
í Möðruvall'aklausturs jörðu, svo að
nokkuð sé nefnt.
Að Glæsibæ í Kræklingahlíð var
eins og áður getur Nikulásarkirkja.
Annexíur vorú Lögmannshlíð, þar
var Ólafskirkja, og Svaibarð, og var
þar Jónskirkja postula (Jóhannes-
ar — ). Fyrrum var kirkja í Siglu-
vik á Svalbarðsströnd, en alls lágu
5 bænhús til Svalbarðs, eitt þeirra
var á Gautsstöðum. — Hálfkirkja var
á Ytra-Krossanesi. en bænhús í Sam-
týni. — Að Gásum var kirkja, fyrir
1359, að vitað er ,og sér enn vel fyrir
kirkjustæðinu á hól rétt ofan búðar-
rústanna. Mátti enn vel sjá fyrir
skemmstu stóra hellu fyrir kirkju-
dyrum að Gásum. Við rannsóknir,
sem gerðar voru þar 1908, mun ekk-
ert hafa fundizt, er benti til að grafið
hefði verið að Gásakirkju. Vel væri
vð hæfi, að ekki sé meira sagt, að
hinum fornu menjum að Gásakaup-
stað væri meiri sómi sýndur en verið
hefir til þessa, t.d. að tóftirnar væru
girtar og friðlýstar, en minnisvarði
reistur að hinni fornu góðhöfn Norð-
lendnga.
Hinn 22. febr. 1452 gefur Gottskálk
biskup leyfi sitt til þess að Einar
ábóti á Munkaþverá selji Sigurði
príor og klaustrinu á Möðruvöllum
Gásir, og þar ttt 10 kúgildi fyrir jarð-
irnar Vaglir og Gil í Hrafnagilsþing-
Síðan skömmu eftir aldamót hefir
búið á Gæsum, en svo er staðurinn
nú nefndur í dagl. tali, sjálfseignar-
bóndinn Kristján Kristjánsson, en nú
eru synir hans teknir við jörðinni.
Gæsabærin stendur spölkorn frá hin-
um fornu kaupstaðarrústum.
Svalbarðskirkja á Svalbarðsströnd,
um.
Séð heim að Glæsibæ neðan frá lendingunni: Hér lá sjávargata prestanna í að
minnsta kosti hálfa S. öid.
T í M I N N — SUNNUDAGSiiLAÐ
661