Tíminn Sunnudagsblað - 18.08.1963, Page 15
Efri myndin er af gömlu Svalbarðskirkjunni, sem stendur enn, en talaS er um
að flytja hana að sumarbúðum Æskulýðssambands Hólastiftis við Vestmanna-
vatn. — Neðri myndin er af nýju kirkjunni á Svalbarði.
síðar átti annar Glæsibæjarprestur
skipti við Bðlu-Hjálmar, ólíkt ánægju
legri. — Síra Jón Reykjalín átti ann-
ars andstætt um þessar cnundir, og
Jiefur því sviðiS enn sárar undan
kersknisvísum sóknarbarns síns.
Hann missti embættið 1820 — og
lenti vestur í Skagafjörð, eins og
Hjáknar. Uppreist fékk hann þó brátt
aftur og þjónaði þá fyrst Hvammi í
Laxárdal, síðar Fagranesi frá 1824,
fékk Ríp 1839, en andaðist á leið
austur í Breiðdal 1857, hafði þá feng-
ið veitingu fyrir Eydölum. Honum er
svo lýst, að hann væri gáfumaður
imikill, snjall ræðumaður og söng-
maður ágætur, en nokkuð ráðlítil'l.
Sonur hans og fyrri konu hans Sig-
ríðar Snorrad. prests tll Hofstaða
Björnssonar, var síra Jón Reykjalín
á Þönglabakka. Hann var fæddur i
Tungu 1811, en lézt í Fjörðum 1892
Han nvar talinn frábær söngmaður
Síra Daníel Halldórsson kom að
Glæsibæjarbrauði haustið 1843. Var
hann prófastur, sá eini í röð Glæsi-
bæjarpresta. Síra Daníel fékk Hrafna-
gil 1860, en þá var Glæsibær veittur
síra Sveinbirni Hallgrímssyni, f. 1814.
Hann dó á nýársdag 1863. í hans tíð
var reist af nýju timburkirkja í Lög-
mannshlíð, sbr. hér að framan og vígði
hann kirkjuna á aðventsunnudag 1860.
Jón Borgfirðingur var að vígslunni
og dáist hann mjög að ræðusnilli
sira Sveinbjarnar.
Síra Guðjón Hálfdanarson, faðir
síra Hálfdanar vígslubiskups á Sauð-
árkróki fékk Glæsibæ 1 ág. 1863. Hann
var prestur í öllum landsfjórðungum,
því áður en hann kom að Glæsibæ
hafði hann þjónað Flatey á Breiða-
firði um 3 ár. Var honum veittur
suður í Landeyjar, Krossþing, 1874,
en varð loks prestur í Saurbæ í Eyja-
firði 1882. Þar lézt hann ári síðar. —
Er nú sr. Guðjón var farinn austur
á Seyðisfjörð, kom að Glæsibæ sr.
Jón Jakobsson. Hann varð úti á heim-
leið frá Lögmannshlíð 19. jan. 1873,
aðeins 38 ára. Var hann son síra
Jakobs Finnbogasonar í Steinnesi.
Síra Jón varð stúdent 1857, Presta-
skólakandidat 1860, fékk Ása sama
haust, Stað í Grindavík 1866 og loks
Glæsibæ 6. apríl 1868.
— Og átti nú aðeins einn prestur
eftir að sitja í Glæsibæ. Var það síra
Árni Jóhannsson, hreppstjóra á Syðri-
Bægisá. Hann varð eigi eldri en fyrir-
rennari hans, drukknaði á Eyjafirði
3. nóv. 1880, á heimleið frá Akureyri.
— Þess má geta hér að sr. Árni var
fermingarfaðir Hannesar Hafstein,
sem þá ólst upp með foreldrum sín-
um í Skjaldarvík, næsta bæ sunnar
Glæsibæjar. Vegna mishermis í ævi-
sögu Hannesar eftir Kr. Albertsson,
skal það tekið fram, að Hannes var
fermdur í Glæsibæjarkirkju einn sér
barna haustið 1875. Vitnisburður
hans er ágætt í öllum greinum.
Sumarið 1874 riðu þeir suður að
þjóðhátíðinni og urðu samferða, síra
Arnljótur Ólafsson, síra Árni í Glæsi-
bæ og Jón alþingismaður Sigurðsson
á Gautlöndum. Staddir á Mælifelli 2.
ágúst, gerðu þeir samning við skáldið
Hjálmar Jónsson um forlagsrétt að
kvæðum hans og ritum, gegn árlegu
fastagjaldi Ól hans. Bólu-Hjálmar var
örsnauður og á sveit, er þetta varð.
Má geta nærri, hver fögnuður hinu
gamla skáldi hefur verið að því að sjá
ævistarf sitt svo vel metið af góðum
mönnum. Og víst hefir hann glaðzt í
T 1 M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ
663