Tíminn Sunnudagsblað - 25.08.1963, Side 10
íyrst verið tamin á þessum slóðum,
Cg hún Ihefur ekki aðeins mikla þýð'-
íngu fyrir atvinnulíf manna, heldur
nýtur um leig trúarlegrar yirðingar,
svo að auðvelt er að skilja, að mikið
iberi á haframyndum. En með' hest-
inn gegnir öðru máli. Kalashmenn
eiga ekki hesta og sjá þá sjaldan,
enda væri ekki hægt að koma hest-
um vig í því fjalllendi, sem þarna er.
En í augum þeirra virðist hesturinn
vera höfðingjagripur, og sómi hverj-
um manni að mvnda hann á hest-
baki.
Robertsson lýsir meðal annars hofi,
sem Presun-Kafírar í Nuristan höfðu
reist. Það var hof, helgað' Imra, skap-
aanum, sextíu fet í grunnþvermál og
tuttugu feta hátt. Aðaldyrnar voru
nær því jafnháar húsinu. Alls voru
dyrnar sjö, og kringum þær voru átta
risastórar myndir af goðinu, og er
ljóst af lýsingum Robertssons, að þær
hafa verið í sama stíl og myndin, sem
birtist með þessari grein. Auk þessara
átta mynda voru inni í hofinu fimm
stór líkneski af Imra, og þar að auki
fjöldinn allur af útskornum súlum og
þiljum og önnur skreyting.
Tréskurðurinn var ekki hinn sami
hjá öllum ættbálkunum. Presun-Kaf-
írar virðast hafa lagt mest upp úr
goð'amyndum, en þeir virðast ekki
hafa smíðað grafmyndir. Kalash-
menn leggja hins vegar megináherzlu
á grafmyndir, en gera sér ekki goð'a-
líkneski. Undantekning frá því er að-
eins ein, lítU stílfærð mynd af gyðj-
unni Dezalik, sem geymd er í bams-
fæðinga'húsi ættbálksins.
iHof Presun-manna var jafnað við
jörðu, meðan verið var að snúa þeim
til K "’meðstrúar. Þau kafírsku hof,
sem iU standa, hafa litlu hlutverki
að gegna, og löngu er hætt að byggja
.ý hof. En minningar- og grafmynd-
ir eru enn gerð'ar, og virðast aðal-
lega vera tvenns konar. Sumar eru
reistar við hlig þorpanna og eru um
átján þumlunga háar og standa á sjö
eð'a átta feta hárri steinundirstöðu.
í hinum flokknum eru stórar myndir,
oft í fullri líkamsstærð. Kalash-menn
jarða ekki lík sín, heldur le^gja þau
í grafhýsi, sem reist eru otanjarðar
úr viðardrumbum og bjálkum og graf
myndirnar eru reistar upp við veggi
þessara grafhýsa.
Myndir eru látnar. við grafhýsi
bæði karla og kvenna. Gerg myndar-
innar segir til um, hve umfangsmikil
hátíðahöld skuli fara fram á þeim
degi, er ár er liðið frá greftrunar-
deginum, þegar styttan var reist.
Venjulegar styttur fá eins dags há-
tíð, en sé meira í þær borið geta
hátíðahöldin staðig í allt ag þremur
dögum. Þessar styttuhátíðir eru ein-
att miklar veizlur og góður gleðskap-
ur. Kafírar taka dauðanum jafnan
með stillingu. Algeng andlátsorð
þeirra eru: „Þú getur refsag mér,
Hestur er virðingarmerkí i grafmyndalist Kalash-manna, og fyrir kemur meira að
segja, að sami ríddarinn sé látinn sitja tvo reiðskjóta í senn.
662
T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ