Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 17.11.1963, Qupperneq 6

Tíminn Sunnudagsblað - 17.11.1963, Qupperneq 6
Krossinn á NjarSvíkurskriSum. (Ljósmynd: Þorstelnn Jósepsson). pr.jög alvarlegt mál. Síðan nefndi hann tvo pilta, sem höfðu átt leið um skólann á þessum tíma, og sagði, að ef þeir hefðu verið á ferðinni á sprengingartímanum, væru þeir dauð- ir. Og ef púrlnerinn hefði verið á ferðinni, væri hann dauður líka; sem sagt: þrír menn dauðir. Og ef tveir menn, sem áttu leið um portið hefðu verið staddir á ákveðnum stað á á- kveðnum tíma, hefðu þeir farið líka — sem sagt :fimm menn dauðir. Og ef Pálmi Pálsson, sem þá bjó við skól- ann, hefði gengið fyrir gluggann, væri hann dauður líka. Sem sagt: Pálmi Pálsson dauður líka. Þetta væri því mjög alvarlegt mál. Síðan sagði rekt- or, að kennarafundur hefði verið haldinn um málið, og þar sem betra væri enginn skóli en vondur skóli, hefði verið ákveðið, að ekkert yrði kennt næstu þrjá dagana, en síðan hófst kennsla aftur. En um vorið sagði rektor af sér embætti. — Og til þess hafði leikurinn kannski í og með verið gerður? — Já, það má segja það. Ólsen naut ekki aímennra vinsælda meðal pilta sem rektor. Hann var ekki lag- inn stjórnari, en hins vegar afburða kennari. Hann gat kennt hvað sem var, nema stærðfræði og kristin fræði. Og kennsla hans var svo minn- isstæð, að menn gleymdu því aldrei, sem hann kenndi. En sem rektor var hann um of smásmugulegur og vildi halda ströngum aga og reglu, en réð ekki við það. — Og hver tók þá við skólastjórn? — Það var Steingrímur Thor- steinsson. Hann var þá orðinn nokk- uð hniginn að aldri, en hann var vinsæll af piltum og ekki smámuna- samur eins og Ólsen hafði verið. — Síðan lærðir þú til prests og fluttir atistur á land. Þótti þér ekki viðbrigði að koma austur, Sunrilend- ingnum? — Jú, það þótti mér, en ég kunni fljótt ágætlega við mig þar, og þar reyndist prýðisfólk, pargt af því vel gefið og mjög bókhneigt. — Hvernig stóð á því, að þú gerð- ist prestur á Austfjörðum? — Það skal ég segja þér. Ég var fyrst ráðinn aðstoðarprestur til séra Jónasar Hallgrimssonar á Kolfreyju- stað. Hann hafði áður haft aðstoðar- prest, séra Harald Jónasson, en hann hafði þá sótt um Sandfell í Öræfum, og af því að hann var eini umsækj- andinn, var talið víst að hann fengi brauðið. Séra Jónas gerði hann þá út til að útvega prest í sinn stað, og hann fékk augastað á mér. Mér leizt þetta álitlegt, og við gerðum samn- ing um þetta á biskupsskrifstofunni og voru lögð viðurlög við ef annar hvor riftaði samningnum. Svo liðu tímar fram, og ég var farinn að búa mig undir að fara austur. Þá var ég kvaddur í síma, talsverðan veg, en ég var þá fyrir austan fjall. Þetta var Þórhallur biskup og hann sagði mér, að Öræfingar hefðu hafnað séra Har- aldi. Þeir höfðu bundið sig við ann- an prest, séra Gísla Kjartansson, sem seinna varð prestur þeirra, og vildu ekki festa neinn annan, fyrr en út- séð væri um, að hann fengist ekki. Og nú sagði biskup mér, að illa stæði á. Fólk séra Haralds ætti erfitt með að hugsa sér, að hann færi frá Kol- freyjustað, og hvort ég vildi ekki gefa stöðuna eftir. Ég var ekki allt of ánægður með þetta og sendi séra Jónasi skeyti og spurði hann, hvort ég ætti að koma eða ekki, en fékk ekkert svar. Þá gaf ég þetta eftir og sagði biskupi það, en hann bauðst til að veita mér Desjarmýri í stað- inn; þar vantaði prest, og hann kvaðst tilbúinn að setja mig í það embætti, og síðan gæti ég sótt um það, ef mér litist svo. Ég geng að þessu og tek vígslu í september 1912. Síðan fer ég austur öllum ókunn- ugur, en Borgfirðingar tóku ágæta vel á móti mér og reyndust miklir prýðismenn. Auk þess var þarna mikil náttúrufegurð, svo að ég kunni ljómandi vel við mig þar. Sóknár- börnin skoruðu fljótlega á mig að sækja um brauðið, *og síðar um vet- urinn var svo haldinn kjörfundur. Og þá komu þeir langa vegu, allt sunnan úr víkum í kafaófærð bara til þess að kjósa mig, sem var einn í kjöri. Þetta var mikið ágætisfólk fyr- ir austan. —Settistu strax að á Desjarmýri? — Ég leigði fyrst á Bakkagerði hjá Þorsteini M. Jónssyni, sem þá var skólastjóri barna- og unglingaskól- ans þar, og kenndi ég jafnframt í unglingaskólanum. Til Desjarmýrar flutti ég vorið 1914. Faðir minn hafði dáið árinu áður, og þetta vor fór ég suður og sótti móður mina og systur, fósturson móður minnar og vinnu- konu henni áhangandi, og flutti þau með mér austur. Það var heldur köld aðkoma að Desjarmýri, túnið kargaþýft, enginn girðingarspotti og nokkuð langt í vatnsból. Ég man, að frú Ingunn Lofts dóttir, ekkja séra Einars Þórðarson- ar, sem var annar prestur á undan mér, kom þangað með legstein til að setja á leiði hans, en á undan voru sendir tveir valdir menn til að at- 942 IllHINN - SUNNUDAGSBLAO

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.