Tíminn Sunnudagsblað - 17.11.1963, Side 7

Tíminn Sunnudagsblað - 17.11.1963, Side 7
huga, hvar hægt væri að komast með hestkerru yfir túnið heim að kirkju- garðinum. Það var ekki hægt hvar sem var. — Hafði ekki verið búið á jörð- unni? — Jú, en þar hafði verið prest- laust öðru hverju. Á undan mér í embættinu voru þrír Einarar. Það var fyrst Einar Vigfússon, sem var á Desjarmýri um aldamótin. Hann fór til Ameríku 1902, mest vegna þess, að því er talið var, að á'kveðið var þá að flytja kirkjuna niður á Bakka- gerði. Prestur var því mjög mótfall- inn, að kirkjan væri flutt, en varð að láta undan, og honum var meira að segja gert að fylgjast með og hafa yfirumsjón með kirkjusmíðinni niðri í þorpinu. En sama vorið og kirkjan þar var tilbúin, flutti hann til Vest- urheims. Þá var prestlaust í nokkur ár, en síðan kemur Einar Þórðarson frá Hofteigi í Jökuldal. Hann hafði rekið mikinn fjárbúskap í Hofteigi, en hann var heilsulaus orðinn, og læknar ráðlögðu honum að vera held- ur við.sjó. Hann flytur þá til Borgar- fjarðar og kaupir þar Bakka, ein- hverja stærstu jörðina í sveitinni, og býr þar. Séra Einar Þórðarson deyr 1909, og þá tekur séra Einar Jónsson prófastur á Kirkjubæ við brauðinu og hefur það til 1912, að hann fær Hof í Vopnafirði. Hann sat aðeins tvö ár á Desjarmýri og flutti þaðan sama vorið og ég kom austur, og hafði þá látið byggja þar baðstofu, búr og eldliús, sem hvort tveggja var þiljað innan í hólf og gólf. Annars voru húsakynni á Desjar- mýri ekki mikil þegar ég kom þang- að. Baðstofan var að vísu vel byggð, en hún reyndist þó ónóg, þegar fram í sótti og fjölskyldan stækkaði. Fljótlega eftir að ég fór að búa þar, sá ég, að ekki var komizt hjá að bæta húsin eitthvað, og þá var byggt nýtt framhús og l'ögð vatnsleiðsla, en löngu seinna, 1947—48, var svo byggt algerlega upp á jörðinni, reist þar vandað steinhús, sem nú er búið í, en synir mínir búa nú á Desjarmýri, en dóttirin er gift hér syðra.. Veturinn áður en ég flutti til Desj- armýrar, 1913—14, er mesti snjóavet- ur, sem komið hefur á Austurlandi á þessari öld. Snjó kyngdi nokkurn veginn stöðugt niður frá þorrakomu fram yfir páska. Víða i Borgarfirði fóru bæir alveg í kaf, svo að ganga þurfti eftir mörgum tröppum niður í þá. Ég man, að ég heyrði líka sagt, að þennan vetur hafi verið gengið á skíðum yfir Hjaltastaðarkirkju í Hjaltastaðarþinghá, hafði lagt á stykki snjóhaft yfir hana. Og á Bakka gerði kom það fyrir, að einsetukona, sem þar bjó, var lokuð inni í bæ sín- um í fönn á annan sólarhring. Á annan í páskum þetta vor, fór ég til Njarðvíkur til að embætta. Veðrið var frekar. gott, uppstytta, en venjulega leiðin yfir Njarðvíkur- skriður var talin ófær, svo að ég fór yfir fjall, sem annars var sjaldan farið og vond leið. í þessari ferð hafði ég með mér ágætan fylgdar- mann, Helga Björnsson, fæddan og uppalinn í Njarðvík. Þegar við vor- um komnir nokkuð út fyrir Bakka- gerðisþorp er komið sólskin, og þá sé ég glampa á margar snjóvörður. þar sem bæirnir í Geitavik áttu að vera, en þar var slétt hjarnið yfir öllu. Ég spyr fylgdarmanninn, hvaða vörður þetta séu, og hann svaraði, að þær væru til að marka, hvar gengið væri niður í fjárhúsin á tún- inu og niður i sjálf bæjarhúsin. Þennan sama dag og ég fór til Njai;ð- víkur, fóru átta Borgfirðingar til Húsavíkur til að leita fyrir Húsvík- inga að heyjum, sem þeir áttu inni í Vík, en höfðu týnzt í fannfergið. Þeir vissu þó mið á þeim og höfðu með sér langar stengur, sem þeir stungu niður í snjóinn, þar til þeir fundu heyin. Og í Njarðvík var bær- inn svo niðurgrafinn, að þegar ég kom þar um hádegið, varð að hafa ljós í baðstofunni. Upp úr páskum fór síðin batnandi. og þá hætti að kyngja niður, en snjór- inn lá yfir öllu langt fram á sumar. Ég fór þetta vor suður að sækja fólk mitt eins og ég sagði áðan. í Árnes- sýslu var þá auð jörð, en þó var vorið hart um allt Suðurland og heyleysi mikið. Ég átti tvær kýr, sem ég hafði leigt fyrir sunnan og ætlaði að flytja með mér austur, en mér tókst hverg. að fá íyrir þær hey, svo ég varö að selja þær. Það var hvergi hey að fá. Þórhallur biskup, sem alltaf var einstaklega góður og umhyggjusam- ur prestum sínum, gekk í lið með mér og reyndi að útvega mér hey, bæði uppi i Borgarfirði og víðar, en allt kom fyrir ekki. í sumum sveit- um höfðu verið sett ákvæði, sem bönnuðu að selja hey út úr hreppnum þetta vor. Ég átti líka tvo hesta og ekki gekk betur að fá hey fyrir þá. Það tókst þó á endanum, því að kaupkona, sem ég þekkti, fór í hlöðuna hjá sér og sópaði þar upp af gólfinu í tvo poka og lét mig fá. Þetta uppsóp var eina heyiö, sem fáanlegt var. — Og þú hefur farið austur við svo búið? — Ég var kominn með fólk mitt til Reykjavíkur og fór að svipast um eftir fari. í Reykjavík lágu þá mörg skip, sem áttu að fara til Austfjarða, en ekkert þeirra' átti þó að koma til Njarðvík í Borgarfjarðarhreppi. Ljósmyr.d: Þorsteinn Jósepsson). T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 943

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.