Tíminn Sunnudagsblað - 17.11.1963, Page 11

Tíminn Sunnudagsblað - 17.11.1963, Page 11
Sé3 yfir Lifla-Hamar og nágrenni bæjarins. Þar er fagurt um a3 litast á sumardegi, þegar allt er í skrúSa. uðu það. Hann var enginn auðmaður og fékk engan styrk til starfs síns á fyrstu og erfiðustu árunum. Þess vegna var hann af ýmsum talinn meira en lítið „undarlegur“ þessi tannlæknir, sem safnaði „gömlu rusli''. Fyrsti hluturinn, sem Sand- vig aflaði sér, var útskorin trékrús, sem hann fékk hjá gamalli konu fyr- ir það að gera við tennur hennar. Og þegar hann hafði keypt sex hús og fyllt þau af margs konar minjurn, kom hann ekki nreiru fyrir á lóð'inni ' kringum húsið sitt. Þá voru líka bæjaryfirvöldin farin að veita starfi hans verðskuldaða athygli og keyptu nú allt af honum og komu því fyrir á hinum fagra stað, Maíhaugi. Fimmtíu árum eftir að Anders Sandvig hóf söfnunarstarf sitt, eða þegar hann var sjötíu og fimm ára gamall, var mikil hát'íð á Maíhaugi Trékrúsin gamla var þá orðin að meira en hundrað húsum og mörg þúsund munum. Margir forvígismenn. innlendir og útlendir, voru þar viðstaddir, til þess að hylla hann fyrir frábært starf. Stórþingið og ríkisstjórn Noregs sendu sína mikil- hæfustu menn, til þess að flytja hon- um þakkir sínar og þjóðarinnar í heild. Hátíðin stóð i þrjá sólarhringa og allir, sem vettlingi gátu valdið í Guðbrandsdal, sóttu hana einhvern þessara daga eða alla. Það er sagt, að merkur maður hafi kveðið svo að orði á þessari hátíð um Maíhaug og minjasafnið þar: „Hann er ekki aðeins minnismerki yfir þá látnu, heldur musteri handa þeim, sem lifa“. Þykir það sann- mæli. Það er vissulega mikils virði, að hljóta slík eftirmæli og Anders Sand- vig. En því miður veitast þau aðeins fáum útvöldum. Allur fjöldinn megn- ar aldrei að marka nein varanleg spor meðal samtíðarinnar. Þessi fáu brot úr sögu safnsins á Maíhaugi og stofnanda þess fréttum við hjá umsjónarmönnum á göngu okkar um hið merka safn. Hver sá, sem þarna kemur, getur ekki annað en undrazt og jafnframt hrifizt af því risastarfi, sem þar liggur að baki. En fyrst og fremst dvelur þó hugur- inn við allar hinar mörgu minjar frá lífi liðinna kynslóða. Frammi fyrir þeim mörgum stöndum við í orðvana hrifningu. Til þess að skoða til hlítar slík' safn sem þetta þarf mjög langan tíma, og tækifæri til þess höfðum við ekki. En þær klukkustundir, sem við gátum dvallið á þessum stað, verða okkur vissulega ógleymanleg- ar. Við göngum hijóð og hugsi upp að kirkjunni gömlu. Hún stendur hæst, og þaðan er útsýnið bezt frá Maihaugi yfir bæinn og umhverfið. Og hér verður okkur fyrst ljóst, í gullnu skini hnígandi sólar, hve fegurð þessa staðar er undursamleg. Útsýnið yfir bæinn til Mjösa, fjall- anna í kring og inn Gausdalinn, er næstum óviðjafnanlegt, enda víð- frægt og ógleymanlegt þeim, er njóta. Það er því fegurð og friðsæld þessa staðar, ásamt byggðarsafninu merka á Maíhaugi, sem gert hafa Litlahamar að einum víðkunnasta ferðamannabæ Noregs. í næsta fölublaði mun hefjast þáttur af einum Sigiu- fjarðarpresfa á nífjándu öld — séra Ásmundur Gunn- laugssyni. Hann sat að sönnu ekki lengí á friðstóli á Hvanneyri, en atferli hans allt var meö þeim hætfi, a9 það urðu allviöburóarík ár. Munu SiglfiAgar ekki hafa staðíð í meiri stórræðum, þar til síldarbær reis upp í byggðarlagi þeirra. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 947

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.