Tíminn Sunnudagsblað - 17.11.1963, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 17.11.1963, Blaðsíða 20
mig, kom snotur stúlka og rétti mér prentaðan pésa og sagði: „Hér er það nýjasta”. Þegar ég ætlaði að rétta henni blaðið aftur, vék hún sér undan: „Eigið þetta. Þetta er það nýjasta. Allir eiga að fá eintak af því. Við erum nýbúin að prenta sex þúsund eintök til að vera viss um að það dugi”. Hávaxin kona hafði staðið á sviðinu og haldið skörulega ræðu um uppbygg- ingu fátækrahverfisins i Watashaw. Efn ið síaðist smám saman inn í huga mér um leið og ég renndi augunum yfir pésann, sem ég hélt á. „Félagið til eflingar almennri velferð í Watashaw. Samband kirkjulegra og veraldlegra velgerðarfélaga”, stóð þar. í salnum var verið að skrifa inn nýja meðlimi. Ég ieit upp, konan i ræðustólnum Ihaíðr hvelia og einbeátna rödd og beitti höndunum á meðvitaðan hátt og nú var hún komin á troðnar slóðir í ræðu sinni. Hún skírskotaði til borg- ara stolts allra Watashawbúa. „Hversu björt og gtæsileg framtíð án fátæktar, án vanhirtra sjúklinga, án ljótleika — allt sem sést verður fagurt, — bezta fólkið í bezt skipu- lögðu borginni í öllu landinu, — perla Bandaríkjanna”. Hún þagnaði, laut eilítið áfram og sló hendinni i ræðustólinn til að leggja áherzlu á hvert einasta orð. „Það, sem við þörfnumst nú, eru nýir meðlimir Farið og fáið fólk til að koma með”. Loks þekkti ég, að þetta var frú Searles. Mannfjöl'dinn öskraði í saln- um af öllum lífs og sálar kröftum: — „Nýja meðlimi, nýja meðlimi”. Frú Searles stóð kyrr í ræðustóln- um og að baki hennar sat dálítill hópur, liklega framkvæmdastjórnin. Það voru aðallega konur, og þessar konur virt- ust vera eitthvað kunnuglegar, eins og þar væri kominn saumaklúbburinn gamli Ég hvíslaði að stúltunni um leið og ég fletti pésanum: „Hve lengi hefur þessi félagsskapur starfað?” Á baksíðu pésans voru félagslögin prentuð. Hún tók þátt í hrifningartáknunum og augu hennar tindruðu. „Ég veit það ekki”. svaraði hún milli hrópanna. „Ég gekk inn fyrir aðeins tveimur dögum. Er þetta ekki dásamlegt?” Ég fór út undir bert loft og settist inn i bílinn. Ég gat enn heyrt til þeirra, þegar ég ók 1 burtu. Þær voru að syngja einhvers konar félagssöng. Þótt ég hefði ekki nema rétt litið á lögin, sá ég, að þau voru nákvæmlega þau sömu og við höfðum látið sauma- klúbbinn fá. Þegar ég kom heim aftur, sagði ég Caswell ekki annað en það, að sauma- klúbburinn hefði breytt um nafn og meðlimum virtist fara fjölgandi. Eftir að hafa hringt í frú Searles dag inn eftir, limdi ég nokkrar rauðar stjörnur á línuritið fyrir ofan þrjá mán uðina. Kúrfan leit fallega út og reis brattar, þegar fór að koma fram 1 fjórða mánuðinn. Fyrsta félagaaúkning in hafði einfaldlega fengizt með því að slá saman öllum velgerðarfélögum í Watashaw og breyta nafninu við hvert tækifæri, en halda lögunum — þessum lögum, sem lofuðu félaginu bjartri framtíð, meðan félögum þess færi fjölg andi. Á fimmta mánuði hafði félagið tekið upp barnagæzlumiðlun, og hafði fengið fræðsluráðið í bænurn til að setja á fót hjúkrunarskóla. En um þetta leyti hef- ur verið búið að skipuleggja alla vel- gerðarstarfsemi í Watashaw, svo að út- þenslan varð að beinast í aðrar áttir. Nokkrir fasteignasalar drógust þá inn í hringiðuna, og áður en varði voru komnar upp ráðagerðir um uppbyggingu fátækrahverfanna. Á fyrsta degi sjötta mánaðar birtist löng grein í bæjarblað- inu, þar sem skýrt var frá fjöldafundi, er hafði samþykkt áætlun um uppbygg ingu margra hverfa, og þar að auki mælt með ráðstöfunum til að fá ný iðn- fyrirtæki til að flytjast til bæjarins, iðnfyrirtæki, sem haft hafði verið sam- band við 02 virtust ánægð með þau fríð- indi, sem í boði voru. Og öllu þessu fylgdi sú tilhögun, að félagsmenn einir sátu að mestöllum hagnaðinum, sem hlyti að fylgja í kjöl- far hækkaðs lóðaverðs og nýrra at- vinnugreina. Hagnaðinum skyldi dreift eftir sömu reglum og upphaflega höfðu verið settar í lög félagsins. Þátt- taka í velgerðarfélaginu var orðin tekju lind ,og meðlimunum fjölgaði sem aldrei fyrr. í annarri viku sjötta mánaðar birtust þær fréttir í bæjarblaðinu, að klúbbur inn hefði sótt um skráningu sem hluta félag, undir nafninu Hið sameiginlega verzlunar- og framfarafélag Watashaw- borgar, og allir fasteignasalar í bænum höfðu gengið í félagið Verzlunarhluti nafnsins fannst mér hljóma eins og fjármálaheimurinn væri allur genginn í félagið með peninga, hugmyndir og all't sitt. Það hlakkaði í mér, þegar ég las næstu frétt, en hún fjallaði um stjórn. málamann, sem hafði flutt ávarp til félagsins og lofað framtaksemi þess og framfaraanda. Hann hafði verið kjör inn heiðursfélagi. Ef hann fengist til að gerast fullur meðlimur með öllum sín- um samböndum, ef stjórnmálamennirn ir gengju i hreyfinguna líka . . . Ég hló, og lagði blaðið til hliðar hjá öðrum heimildum um tilraunina , Wata- shaw. Þessi tilraun myndi falla vel í kramið hjá kaupsýslumönnum, sem áttuðu sig á því, hvaðan vindurinn blés. Kaupsýslumenn eiga stöðugt í stríði við skipulagsheildir, þar á meðal sitt eigið félag, og reka sig stöðugt á vankanta þeirra. Með formúlu Cas- wells gætu þeir náð tökum í félögun- um. Þakkl'ætið eitt myndi færa háskólan um peninga í hrönnum. Sjötti mánuðurinn rann á enda. Til- rauninni var lokið og lokaskýrslan var stórkostleg. Formúlur Caswells höfðu hlotið fullnaðarsönnun. Þegar ég hafði lesið blaðaskráfin hringdi ég í hann. „Stórkostlegt, Villi, stórkostlegt. Ég get notað þetta Watashawmál til að út- 'vega þér svo marga styrki og svo mikið fé til deildarinnar, að þú haldir a'ð peningum sé farið að rigna.“ Hann svaraði, án þess að sýna neinn sérstakan áhuga. „Ég hef haft svo mikið að gera við kennsluna, að ég hef alls ekki fylgzt með Watasliawtilrauninni. Þér segið að hún liafi gengið vel, og þér séuð ánægður? Hann var greinilega að hefna sín. — Vinátta okkar var góð núna, en honum rann augljóslega í skap, þegar hann var minntur á að ég hafði efað rétt- mæti kenninga hans. Og hann notaði það, hve vel hafði tekizt til, til að benda mér á, að mér hefði skjátlast. Menn, sem hafa bókstafina fyrir aft- an nafnið sitt eru ekki síður mann- legir og aðrir. Ég hafði farið harkalega að honum í byrjun. „Ég er ánægður”, sagði ég. „Mér skjátlaðist. Kenningin stenzt fullkom- lega. Skrepptu yfir til mín og líttu á upplýsingarnar um tilraunina, ef þú vilt fá eitthvað til að gorta af. Og nú er bara að koma með formúluna til að stanza þetta”. Hann virtist hafa náð gleði sinni aftur. „Ég vildi ekki gera félagið flókn- ara með neikvæðum öflum. Ég vildi að það stækkaði. Það springur á eðli- legan hátt, þegar það hefur hætt að vaxa í tvo mánuði. Þetta er eins og verðbréfahækkun rétt fyrir kreppu. — Al'lir kauphallarbraskararnir græða með an bréfin eru á uppleið og nýir kaup- endur bætast stöðugt við, en þeir vita allir, hvað gerist, ef numið verður stað- ar. Þér munið, að við byggðum meðal annars inn í skipulagninguna, að með- limirnir vita að þeir muni tapa, ef aukningin hættir. Ef ég reyndi að stöðva skriðuna núna, myndu þær skera mlg á háls." Ég minntist ákafans og áhugans hjá konunum á fundinum, sem ég liafði komið á. Líklega myndu þær gera það. „Nei”, hélt hann áfram, „við skulum einfaldlega láta þetta halda áfram og deyja úr elli”. „Og hvenær verður það?” „Það getur ekki vaxið meir en kvenna fjöldinn f bænum leyfir. í Watashaw er ekki nema ákveðinn fjöldi kvenna og sumar þeirra eru ekki gefnar fyr- ir saumaskap”. Línuritið á skrifborðinu mínu var farið að líta illilega út. Caswell hlaut að hafa gert ráð fyrir þessu . . . „Þú vanmetur hæfileika þeirra”, sagði 956 T t M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.