Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1963, Qupperneq 5
ljósa og segulbreytinganna. Þessar
athuganir eru gerðar í samvinnu við
vísindamenn í öðrum löndum. ísland
er ákaflega vel staðsett til norður-
Ijósarannsókna, því að norðurljósa-
beltið liggur u;n landið, en annars
liggur það víðast yfir sæ eða um
óbyggð svæði. Við stöndum því ó-
venju vel að vígi 1 þessu sambandi.
Nú eru norðurljósabeltin tvö. Á
suðurhveli jarðar liggur sams konar
belti umhverfis segulskautið eins og
það, sem er á norðurhveli. Suðurljós
ætti líklega að kalla þessi ljós. Ýmis-
legt bendir til þess, að þessi fyrir-
bæri, Ijósin og segultruflanirnar,
fylgi segullínum og hagi sér því eins
eða svipað á tilsvarandi stað á suður-
hveli og norðurhveli. Þess vegna er
okkur kappsmál að fá nákvæmar
skýrslur um suðurljósin til að bera
saman við athuganir okkar á norður-
Ijósunum, svo að hægt sé að sann-
reyna þessa kenningu. Og svo heppi-
lega vill til, að rannsóknarstöð, sem
Japanir reistu á Suðurskautslandinu
á jarðeðlisfræðiárinu, liggur nokk-
urn veginn í beinni seguilínu við ís-
land og segulmælingastöðina hér.
Þessar tvær stöðvar, stöðin hér og
japanska stöðin, eru þannig bezta
stöðvapar, sem til er í heiminum, og
vonir standa til, að með samvinnu
við Japani og alþjóðlegri samvinnu,
megi fá auknar upplýsingar um þetta
atriði, komast að því, hvort því sé
raunverúlega svo háttað, að norður-
og suðurljósin á sömu segullínu hagi
sér eins, jafnvel í smáatriðum.
— Hafa norðurljósaathuganir ver-
ið gerðar hér á landi lengi?
— Hér hafa verið gerðar ýmsar at-
huganir á norðurljósum, en aldrei
samfelldar um langan tíma. Á árun-
um 1952—54 fylgdist ég talsvert með
þeim, en þær athuganir voru þó
hvergi nærri ýtarlegar. Á jarð-
eðlisfræðiárinu 1957—58 gerði veður-
stofan svo athuganir á norðurljósum,
og hafði Eysteinn Tryggvason þar
forgöngu um. Þá var fengin hingað
norðurljósamyndavél, sem staðsett
var á Rjúpnahæð og myndir teknar
á heiðskírum nóttum í samvinnu við
starfsmenn Landsímans, sem þar eru
á vakt. Þetta var ágætt brautryðj-
endastarf, en eftir að jarðeðlisfræði-
árinu lauk, lögðust athuganir þessar
niður, og er skaði, að svo skyldi fara,
því að það, sem mest á ríður, er að
fá stöðugar athuganir, sem ná yfir
langt tímabil.
Nú eru norðurljósaathuganir að
hefjast á nýjan leik, og standa vonir
til, að þær geti orðið bæði yfirgrips-
meiri og ýtarlegri en áður. Segul-
mælingastöðin, sem komið var á fót
á jarðeðlisfræðiárinu, hefur starfað
óslitið síðan, og hefur stöðugt verið
fylgzt með breytingum á segulsviðinu
þar. Frumkvæðið að þessari stöð átti
prófessor Þmdv'ö-n Sigurgeirsson, og
hefur hann unuið þar mikið starf.
Stöðin krefst ákaflega mikils tíma;
tækin, sem þar eru notuð, eru mjög
nákvæm og má ekkert út af bera með
stillingu á þeim. Engir segulmagn-
aðir hlutir mega koma í stöðina, og
verða því allir naglar í sjálfum
stöðvarhúsunum að vera úr kopar eða
alúmíníum.
Nú eigum við von á að fá mjög
fullkomna myndatökuvél frá Ame-
ríku. Þessi vél á að taka mynd á
mínútufresti, þegar bjart er, og tíma
setning hennar verður mjög nákvæm.
Önnur vél svipaðrar gerðar er vænt-
anleg síðar. En þótt myndavélarnar
séu ómissandi til þessara rannsókna,
er mjög margt í fari norðurljósanno,
sem ekki er hægt að fá íram með
myndavél, og þvi þarf líka að fylgj-
ast með þeim með augunum. Norður-
ljósin breytast oft svo snöggt, að
engin leið er að festa það á mynd, og
sumar tegundir norðurljósa er mjog
erfitt að þekkja af myndum.
Litmyndir hafa verið teknar af
norðurljósum, en erfitt er að ná rétt-
um litum á mynd. í norðurljósum
ber mest á grænum lit og rauðum,
sem stafa af súrefnisatómum; eins
hafa þau stundum rauðan og rauð
fjólubláan lit, sem kemur af köfu
unarefni.
Til þess að athuganir yrðu sem
fyllstar, þyrftum við að koma okkur
Norðurljósin hafa heilN
að margan og hræit
suma. En þau þeytast
ekki um himinhvoifið af
tiiviljun einni saman,
heidur lúta þau sínum
sérstöku lögmáium, sem
vísindamenn um allan
heím leggja kapp á að
kanna til hlítar. Meðal
þeirra, sem taka þátf
í norðurljósarannsókn-
um, er Þorsteinn Sæ-
mundsson, og hér segir
hann frá ýmsu í fari
þessara fögru himin-
upp kerfi athuganamanna um allt
land, manna, sem vildu taka að sér
að fylgjast með norðurljósum og
gefa skýrslur um athuganir sínar.
Þetta er þolinmæðisvinna, ekki af þvi
að starfið sé leiðinlegt, því að það
er það ekki, heldur af hiuu, að það
Norðurljós yfir Riúpnahæð.
T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
965