Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1963, Blaðsíða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1963, Blaðsíða 9
I. Þessi saga hefst vorið 1820. Gamli presturinn á Hvanneyri í Siglufirði, séra Gamalíel Þorleifsson, hafði feng- ið nýtt brauð og haldið brott í far- dögum með búslóð sína alla. Nýja prestsins, séra Ásmundar Gunnlaugs- sonar, var elrki von fyrr en að nokkr- um vikum liSnum, enda átti hann um langan veg að sækja, og bæjarhúsin á Hvanneyri stóðu auð að sinni. Það var komið fram yfir Jónsmessu, er nýi presturinn vitjaði staðarins. Aðkoman var miður góð. og ekki sem þrifalegast innan bæjar eftir langt umhirðuleysi. Varð hann og ærið harður í kröfum um álag, þegar stað- urinn var tekinn út, og séra Gamalíel brá í brún, er hann komst að raun um, hve hátt álag var heimtað. Þótt- ist hann svo „stórlega neyddur og ofurliði borinn" í þessum efnum, að hann krafðist nýrrar úttektar. En þótt séra Ásmundur hefði gengið hart eftir ríflegu álagi, vildi séra Gamalf- el ekki kasta á hann þungum steini, heldur hugði það af því sprottið, að „einhver skelfilega yfirdrifinn máti sé tíðkaður við úttektir, þar sem hann hefur verið og vanizt“. Aftur á móti aftók hann með öllu. að nokkur Sigl- firðingur ætti hlut að nýrri úttekt. Vekur það grun um, að ekki hafi verið alls kostar ástúðlefft mpð hon- um og 'óknarbernunum um það bil, er hann fór þaðan. II. Nýi presturinn, sem kom að Hvann- eyri, var allmtkill maður á velli, en ekki glæsimenni. Honum er svo lýst, að hann væri hávaxinn og grannvax- inn, stóreygður og bereygður, andlit- ið firnastórt, munnurinn víður og varirnar svo þykkar, að hvor þeirra var sem tvær. Enginn skapdeildar- maður var hann, næsta drykkfelldui og ekki dæll viðureignar. Var honum gjarnt til ofbeldis drukknum og hafði tíðum uppi hinar verstu sakargiftir, þegar svo bar undir. Þess á milli gat hann verið blíðmáll mjög og jafnvel smjaðuryrtur. Hug og áræði skorti hann ekki, og mikill hestamaður var hann kallaður og ódeigur í ferðalög- um. Lét hann sér ekki allt fyrir brjósti brenna. þegar hann var kom- inn. á hestbak, og gat sumt af því, er hann þá lék, ekki kallazt annað en ófyrirleitni og fífldirfska. Yfirleitt lék það orð á, að hann væri óeirið hrottamenni, harðbýll við menn og skepnur, og var það eitt til marks með öðru, að hann vílaði ekki fyrir sér að sleppa hestum á gaddinn, er hann kom á þeim heim úr ferðalög- um að vetrarlagi. Aftur á móti var hann talinn allvel greindur, orðfær í bezta lagi í stólnum og kastaði stund- um fram stöku við bændur. Séra Ásmundur var tæplega þrí- tugur að aldri, er hann kom að Hvann- eyri. Þó hafði sitthvað drifið á daga hans, og fer ekki hjá því, að Sigl- firðingar hafi kunnað skil á sumu af því. Það er þeim mun vafalausara, þar sem hann var ættaður úr næsta héraði. sonur séra Gunnlaugs Magnús- sonar, sem prestur var í Skagafirði og bjó á Hafsteinsstöðúm, og alinn upp á Hólum hjá frænda sínum af Upsa- kyni, Páli rektor Hjálmarssyni. Barst hann svo vestur í Reykhólasveit að loknu skólanámi, enda var sumt af fólki hans þangað komið, og fóstri hans gerðist prestur á Stað á Reykja- nesi. Snemma var hann fyrir skakkaföll- um, enda var skapferli hans allt og háttalag með þeim hætti, að vart gat hjá því farið. Sú saga festist við hann ungan, sönn eða login, að hann hefði verið hýddur með kaðli fyrir grip- deildir í dönsku skipi, og brugðu orð< hákar, sem hann átti í deilum við, honum snemma um það. Tæplega hálf þrítugur að aldri gerðist hann að- stoðarprestur séra Páls Gunnarsson- ar í Saurbæjarþingum og fékk Staðar- hól til ábúðar. Þar var í almæli, að hann hefði átt tvö börn með giftri konu, Helgu Aradóttur, svonefndri Sýslu-Helgu, en hitt var þó víðfleyg- ara, að hann átti þar í margvíslegum illdeilum og útistöðum, „og var við búið, að hann myndi eins og Glámur eyða dalinn“ Var það margt. sem til sundurþykkju gat orðið: Slægjulönd, hrossakaup, vistarslit, kappræður, móðgunaryrði, jafnvel hræ í haganum. Lét bá prest- ur ýmist hendur skipta eða reisti af mál, nema hvort tveggja væri. Eitt vorið gengu öll hjú prests burt nema ráðskonan og kenndi hann það mest vinnukonu einni, er hét Sæunn Einarsdóttir. Um sumarið fann hún dauðan svartan höfuðsóttar- hrút, er prestur átti, og va’-ð það á krytja sér fáeina fita af úldnu og vargétnu hræinu. Þetta barst presti til eyrna og reisti hann af mál, sem hann sótti af miklu kappi og með margvíslegum sneiðyrðum í garð sóknarbænda. Því lauk þó svo, að Sæunn var sýknuð, en uppskeran varð megn fiandskapur manna á milli í héraði. Um svioað leyti lenti hann í miklum illindum við mann, er þóttist svikinn af hon- um í hestakaupum. og í ýmsum öðrum brösum af svipuðu tagi átti hann. Átti prestur þar við sinn líka, og í einni orrahríðinni skar maður þessi eyrun af öðrum hinna umdeildu hesta og tróð þeim blóðugum í barminn á hempu prests. Þegar séra Páll Gunnarsson lét af embætti, var prestsferli Ásmundar í Saurbænum lokið, og lét landsdrott- inn hans, séra Eggert Jónsson á Ball- Ásmundar saga prestlausa ! ÞAO VAR VÍGREIFUR PRESTUR, SEM SIGLFIRÐINGAR FENGU VORIÐ 1820, EN HITT VARÐ VARLA SAGT, AÐ HANN VÆRI GRANDVAR AÐ SAMA SKAP1 o _______ ~ o •_______ . T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 969

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.