Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1963, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1963, Blaðsíða 11
Prestakali séra Ásmundar á Hvanneyri. árum, því aö skömmu íyrir ferming- una felldi liann yfir henni þann dóm í sóknarmannatali sínu, að hún þyrfti að siðast betur. Þetta fólk mun hafa verið efnalítið, enda hvort tveggja, að það kom ekki af höfuðbóli né heldur settist það á neina flutningsjörð, þar sem var háif lendan í Skarðdal Var landþröng þeim mun meiri þarna frammi í fjarð- arbotni, að þá var einnig búið í Skarð- dalskoti og Leyningi. Jón Avnfinnsson hafði ekki verið lengi í Skarðdal, er séra Ásmundur tók að festa augu á Guðrúnu, dóttur hans. Bar þó ekki til tíðinda um sinn, nema hvað Eiín, bústýra hans. átti stundum ströngu að mæta.. Haustið 1822 var prestur ráðskonu sinni sérlega ómildur. Þó segir ekki af viðsldptum þeirra fyrr en sunnu- daginn milli jóla og nýárs, og verður þá að miklu leyti að styðjast við það, er hún sagði sjálf á bæjum víðs veg- ar um Siglufjörð þótt síðar vildi hvorki hún né prestur við það kann ast. En það var apphaf þeirra stórtíð inda. er yfir vofðu að þehnan sunnu- dag kom prestur að máli við hana og bauð henni sættaj gerð. Skyldi hún hafa meðalgöngu um það, að prestur fengi Guðrúnu í Skarðdal í rúm til sín, en þar á móti vildi hann heita bústýru sinni því ,.að vera henni góður aftur í tíu vikur“ Það er ókunnugt, hvort þau ræddu þetta lengi sin á milli, en samningar tókust áður en margir dag- ar voru liðnir af nýja árinu. Var ráðagerð þeirra Elínar og prests sú, að hún skyldi fara fram að Skarðdal segja þar, að prestur væri að heim- an farinn yfir í Dali. og fara þess á leit, að Guðrún kæmi með sér út að Hvanneyri og yrði sér þar til skemmt- unar, unz klerkur kæmi heim úr ferð sinni. Þetta var að sönnu alllang* farið slíkra erinda og margir bæir nær. En Elín var ekki sérlega fátíður gestur í Skarðdal. Það var daginn eftir þrettándann, að látið var til skarar skríða. Erindi Elín- ar var vinsamlega tekið í Skarðdal, og héldu þær Guðrún bóndadóttir sam an sem leið lá út að Hvanneyri. Var orðið áliðið dags. er þær náðu þang að. Þegar á hlað kom bað Elín Guð- rúnu að staldra við á meðan hún liti í bæinn. Brá hún sér síðan inn. en kom út aftur að vörmu spori og bað Guðrúnu að ganga til baðstofu Skuggsýnt var þar inni, en þó varð Guðrún þess vör, að einhver var þar fyrir. Heilsaði hún og varð þess þá áskynja, að þetta var presturinn. Kvöldið leið, og var nú gengið til náða. Elín vísaði Guðrúnu til sængur hjá sér. Lagðist hún sjálf við stokk, en Guðrún skyldi hvíla við vegg. Sofn- aði hún skjótt, en vaknaði brátt aft- ur við annartegan andardrátt. Hélt hún, að Elín laígi andvaka og mælti: „Getur þú ekki sofið, Elín mín?“ Þá var svaraö lágum rómi: ,.Hafðu ekki hátt“. Guðrún heyrði þegar, að þetta var ekki rödd Elínar Varð henni það fyr- ir að þreifa á þeim, sem kominn var í rúm til hennar, og þóttist þegar finna, að það var höfuð prests og háls, er fyrir höndum hennar varö. Lét hann þreifingar hennar afskipta- lausar, en mælti á ný: „Hafðu ekki hátt.“ Nú varð hún þess líka áskynja, að Elín myndi komin í rúm prestsins, því að hún heyrði hana hósta inni i svefnhýsi hans. Ekki verður það rak- ið, hvað gerðist þessa nótt í rúmi bú- stýrunnar, nema hvað prestur lét, að sögn Guórúnar. orð liggja að því, að hann vildi eiga hana, því að hún væri væn stúlka og skyldi hann taka föður hennar að sér Bauð hann fram signet sitt til tryggingar því, að þetta væru ekki orðin ein Þá lagði hann stúlkunni og I'au ráð, að hún skyldi láta sem yfir sig liði í kirkjunni á messudögum, svo að hún gæti orðið eftir, þegar annað kirkjufólk héldi heimleiðis. Guðrún bjost til heimferðar að morgni, og fylgdi Elín henni á leið með leyfi prests Varð þeim þá rætt um það, er gerzt hafði um nóttina og lét Guðrún í ljós nokkrai áhyggj- ur um sinn hag En heima í Skarðdal lét hún einskis getið að sinni um næturævintýri sitt á Hvanneyri. en sagði þó að orestur hefði heima ver- ið Eftir þetta tór það að bera við alloft, að Guðrún yrði eftir á Hvann eyri, þegar annað fólk sneri heim- leiðis að lokinni messtt. en kom jafn aðarlega heim í rökkrinu. um g/afa .tímann, eða iaTnvel ekki fyrr en und- k háttatíma. neuta hvað hún gisti ytra eina nótt um veturinn Aldroi fór hún út að Hvannevri á rúmhelgum dögurn, en fylgdi Elínu setn nú átti margar ferðir inn að Skarðdal. iðu- lega á leið, er hún fór þaðan. Stund- um bað hún vinnukonu á hinu búinu í Skarðdal, Rósu Jónsdóttur. að verða eftir nteð sér, og varð hún þess áskynja, að prestur gaf henni að borða og sagði, að hún skyldi njóta föður síns, sem væri bezti vinur sinn. Ekki varð Rósa þess vör, að neinn samdráttur væri með þeim presti og Guðrúnu, nema hvað hún vissi einu sinni til þess, að þau fóru saman í einhýsi, og annað sinn brugðu þau sér snöggvast í 'lemmu. þar sem Framhald á 980. sí'ðu. T T M I N N - S|tNNUDAGSBLAl» 971

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.