Tíminn Sunnudagsblað - 05.04.1964, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 05.04.1964, Blaðsíða 5
góður, sé þcss gætt hve seint er far- ið af stað. —Mun ekki safnið, sjá um úr- vinnslu á þeim gögnum, sem safnast? — Það, sem fyrst og fremst liggur fyri'r, er að bjarga því, sem bjargað verður, af öllu efni um þjóðháttu og þjóðmenninguna almennt. Því er það efnissöfnunin, se«» verður að sitja i fyrirrúmi, enda rná segja, að hún sé nægilegt starf hálfum öðrum mannt, en við deildina vinnur auk mín Þórð- ui Tómasson að nokkru leyti. Hann er ósérhiífinn við þessi störf o.g hef- ur unnið mjög gott verk, en safn- varzla hans á Skógum og önnur störf leyfa ekki, að hann vinni hér nema í íhlaupum. Þórður hefur að mestu leyti samið þá lista, sem safnið hef- ur sent út til þessa, og hann hefur skrifað mikið upp eftir fólki, er hef- ur kunnað skil á ýmsu, sem nú er sem óðast að falla í gleymsku. Takmarkið er að fá sem gleggsta mynd af ís- lenzkum þjóðfélagsháttum eins og þeir voru fyrir þjóðféiagsbyltinguna, sem átti sér stað á fyrstu áratugum þessarar aidar. En styttist óðum sá tími, sem menn muna. Enn eru til inenn, sem muna allt fram til 1880, en eftir 10 ár man enginn lengur en til 1890. Það er af þessum sökum, sem söfnunin verður að sitja í fyrir- rúmi fyrir öllu öðru. — Hvað gerið þið við það efni, se.m ykkur berst? —• Við erum að byrja að skrásetja iþað. Ætlunin er að koma upp spjald- skrárkerfi, bæði yfir heimildarmenn, skiptingu efnisins á landshluta og síðast en ekki sízt atriðaskrá yfir þau svið, sem við höfum heimildir um. — Þetta safn verður byggt upp á svip- aðan hátt og sams konar söfn á Norð- urlöndum, þótt auðvitað verði að laga sig að aðstæðum hér á landi að einhverju leyti. Og safnið verður auð- vitað ekki byggt upp á spurningalist- unum eingöngu, heldur verður reynt að hitta fólk persönulega og skrifa upp eftir því. Eins viljum við gjarn- an fá þjóðháttalýsingar og frásagn- ir um einstök atriði úr þjóðmenning- unni, þótt ekki sé spurt um það sér- staklega á neinum listum. Allt slíkt efni er með þökkum þegið. Og að því er stefnt, að hér verði opið skjaln safn, sem fræðimenn, er vinna að rannsóknum á íslenzkri menningu eða einstökum þáttum hennar, geti haft aðgang að. Það væri vissulega æsk',- legt, að safnið sjálft gæti að eiu- hverju leyti staðið fyrir úrvinnslu, en það verður að fara eftir því, sem tími og aðstæður leyfa. Söfnunar- starfið og skrásetningin verða að ganga fyrir öllu öðru. — Hefur deildin nóg húsrými? — Það er svo með þetta hús sern fieiri, að þótt það sé stórt að utan, er það lítið að innan. Sérstaklega vantar hér allar vinnustofur og geymslur Safn þarf á miklu geymslurými að halda. Það er ekki ástæða til að hatn alía muni safns til sýnis, en öllu þarf að halda til haga. Fræðimenn þurfa einnig að hafa vinnuskilyrði i safninu, en eins og er, eru þau eng- in Hér er til bókasafn, sem að vísu er ekki stórt, en fer vaxandi. Það er í einu herbergi, sem er að verða oi lítið. Þjóðháttadeildinni hefur verið komið fyrir til bráðabirgða hér up.pi á loftinu, en hins vegar er ekki æt'.- unin, að það verði framtíðarhúsnæði liennar. Hér í húsinu hafa bæði Nát.t- úrugripasafnið og Eðlisfræðistofnun háskólans nokkurt húsnæði, og við vonumst til, að þessar stofnanir rými það einhvern tíma. Einnig er lista- safnið hér til húsa, en verður vænt- anlega ekki til eilífðar. En það er mikið fengið með því, að deildin skuli farin af stað, þótt í smáu sé- Það er alltaf auðveldara að bæta við síð- ar, eftir að á stað er komið. — Þurfið þið ekki líka að kanna prentaðar heimiidir um þjóðháttu? — Það væri vissulega nauðsynlegt að láta atriðaskrána ná líka til prent- aðra heimilda, ævisagna, þjóðhátta lýsinga og annarra slíkra rita. En það verður að bíða betri tíma. Að- alatriðið er nú að bjarga, en það. sem liggur -fyrir á prenti. geymist og er jafngott, þótt það bíði í áratug eða svo eftir úrvinnslu. Eins er geysimikið efni óprentað bæði a Framhald á 310. siðo. T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 293

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.