Tíminn Sunnudagsblað - 05.04.1964, Blaðsíða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 05.04.1964, Blaðsíða 19
er Eyjólfur var auðnarmáður og bjó sér hvor þeirra. Þá sá Hallur, að bú Eyjólfs mundi skamma stund stand- ast — og keypti við Þorgrím því, að Þorgrímur tók við búi hans, svt sem hann hefði við tekið í fardögum, og skyldi Þorgrímur hafa þurð oe vöxt og hafa svo margt manna, sem hann vildi um veturinn.“ Vorið eftir héldu þeir mágar aftur til Norður- lands. Um sumarið eftir fór Hallur prestur norður að Laugalandi í Eyja- firði og galt Þorgrímur honum þá það, sem eyðzt hafði um veturinn. Eyjólfur óði átti dóttur, er Álfdis hét. Hún var gift Lofti, syni Markús- ar Gíslasonar á Rauðasandi. Loftur var dæmdur útlægur úr Vestfjörðurn fyrir víg. Fór hann þá suður á land til Eyjólfs, tengdaföður síns, og var lengi síðan undir trausti Oddaverja Kirkja var í Skarði eystra. Hennar er getið í skrá Páls biskups Jónssonar yfir kirkjustaði þá, þar sem prestur skyldi vera. Elzti máldagi hennar, se,n varðveittur er, er frá árinu 1209, og er hann á þessa leið: „Sá er kirkju- máldagi í Skarði hinu eystra, að kirkja á hálft land að Skarði og há!f- an sjöunda tug ásauðar og eina kú. Kirkja á til fjögurra tuga hundraða álna vaðmáls í búnaði sínum og tjöldum og messufötum og klukkum og kaleik og öllu hennar skrúði, því sem þarf að hafa. Pund vax í öðru lagi, og var það eigi virt. — Sú er skyld á, að þar skal vera prestur og djákn. Sá, er í Skarði býr, skal ábyrgjast kirkju og hennar fé eftir slíku, sem biskup vill“. í Kristnisögu er frá því sagt, að i kirkjunni í Skarði eystra séu varð- veittir, þegar sagan er skráð, kross- ai tveir, sem notaðir voru við'hina fyrstu guðsþjónustu, sem haldin var á Þingvöllum árið 1000- Var annar jafnhár Ólafi konungi Tryggvasyni, en hinn Hjalta Skeggjasyni. í Ólaf;>- sögu Tryggvasonar og Flateyjarbók eru krossarnir sagðir geymdir í kirki- vnni í Skarði ytra, og er óvíst hvort er réttara. Eftir miðja þrettándu öld bjó i Skarði eystra bóndi sá, er Guðmund ur hér, Þorsteinsson. Hann var góður bóndi, segir Sturlunga. Kona Guð- mundar var Arnbjörg, dóttir Skeggja Njálssonar í Skógum undir Eyja- fjöllum. Dóttir Guðmundar hét Ást- ríður, hún var gift Svarti Loftssyni, bróður Helga í Skál á Síðu. Guðmund ur var síðasti bóndinn í Skarði eystra, sem unnt er að nafngreina. Árið 1300 varð mikið eldgos í Heklu. Um það segir í Lögmannsann fil: „Þaðan fló vikur svo mikill á bæ- lnn. Næfurholt, að brann þak af hús um. — Sjöttu nótt jóla varð land- skjálfti svo mikill fyrir sunnan land, að jörðin skalf víða. Féll bær í Skarði hlnu eystra. Þar í kirkjunni var mik- Heklugos 1947. ill málmpottur festur við brúnásinn. Honum barði við rjáfrið kirkjunnar af skjálftanum að braut pottinn. — Kistur tvær stóðu og í anddyrinu, þeim barði saman svo af landskjálft- anum, að báðar braut í smámola“. — Lárentíusarsaga, sem sami maður skráði, segir að kisturnar, sem brotu uðu, væru í anddyri í Nadurholti. Haustir 1332 var-vígður til prests i Skarði eystra af Jóni Halldórssyni Skálholtsbiskupi, Einar Hafliðason frá Breiðabólstað í Vesturhópi. Hann var fæddur árið 1307, sonur Hafliða Steinssonar prests á Breiðabólstað, og Rannveigar Gestsdóttur, fylgikonu hans. Þrjú tnissiri var Einar prestur í Skarði eystra, en fór vorið 1334 að Höskuldsstöðum á Skagaströnd. 1341 fékk hann Breiðabólstað í Vesturhópi og hélt til æviloka, 1393. Einar var einn af höfuðklerkum norðanlands um sína daga, oftsinnis Hólaráðsmað- ur og officialis. Hann- skráði Laur entinussögu Hólabiskups og Lög- mannsannál. Sonur séra Einars var Árni á Auðbrekku í Hörgárdal. Sama ár og Einar Hafliðason korn að Skarði eystra, skráði Jón biskup Halldórsson máldaga kirkjunnar þar. Máldaginn hljóðar svo: „Nikulás- kirkja í Skarði á hálft heimaland; ásauð sex tygi og tvær ær; þrjár kýr; Liósmynd: Páll Jónsson. þrenn messuklæði og umfram messu- serk; stóla; höfuðlín; fontur; tvær kantarakápur; tvær kertistikur og liin þriðja járnstika, tjöld umhverfis sig; glóðarker og eldbera; munnlaug- ar tvær og kirkjukolu; altarisklæði tvö; bríkarklæði sæmilegt; kertistikur fiórar; texta“. Árið 1367 er enn skráður máldagi kirkjunnar í Skarði eystra. Af hon- um er nú aðeins varðveitt þetta: — „Nikurlásarkirkja í Skarði eystra á hálft heimaland og sex tygi ásauðar og tvær ær, tvær kýr og þrenn messu klæði“. Árið 1389 hófst eldgos í Heklu, og stóð það fram á árið 1390. Um það segir séra Einar Hafliðason í Lög- mannsannál: „Eldsuppkoma í Heklu- felli með svo miklum undrum, að dun- ur og bresti heyrði um allt land. Tók af tvo bæi, Skarð og Tjaldastaði". — Flateyjarannáll segir um sama gos. „Eyddust Skarð og Tjaldastaðir af bruna. Var svo mikið vikurkast, að hest sló til bana. Öskufall svo mikið, að margur fénaður dó af. Færði sig rásin eldsuppkomunnar úr sjálfu fjaU inu og í skógana litlu fyrir ofan Skarð og kom þar upp með svo miklum býsnum, að þar urðu eftir tvö f jöll og gjá á milli“. Nú skyldu menn ætla, að sögil t T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 307

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.