Tíminn Sunnudagsblað - 05.04.1964, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 05.04.1964, Blaðsíða 16
Hinar tíu forsjálu meyjar í túlkun Indverskra skólastúlkna. Meglnáherzla er lögð á dans og látbragðsleik i samræmi við indverska leikhefð. upp á sína arma og beita henni í sína þágu og trúarinnar. Kristnir helgileikir eiga mikla og langa sögu og eru ekki ómerkur kapí- tuli í þróunarsögu leikbókmennta, jafnt veraldlegra sem andlegra. En helgileiklist heyrir síður en svo ein- göngu fortíðinni til. Hún stendur í blóma á vorum dögum ekki sízt í Englandi. Árið 1928 fékk George Bell, sem þá var dómprófastur í Kantaraborg, lárviðarskáld Greta, John Masefield, til að skrifa Jeikverk, sem setja skyldi á svið í dómkirkjunni í Kantaraborg um hvítasunnuna það ár. Þetta var djörf nýjung, því að heittrúarmenn af gamla skólanum voru þá enn öflug ir innan ensku kirkjunnar, og þeir töldu leiklist veraldlegt athæfi, ef ekki syndsamlegt, og ekki sæmandi kirkjunni að efla slíkan hégóma. Það voru því hreint ekki svo fáir, sem hófu upp raustir sínar í mótmæla- skyni. En hins vegar kom brátt í Ijós, að George Beli vissi, hvað hann va'- að fara. Hann hafði skynjað réttilega börf kristinna manna til að taka ): ina í sína þjónustu og tjá trú sina í búningi hennar. Kirkjan var þétt skipuð áhorfendum hverju sinni sem leikrit Masefields, Koma Krists, var sýnt. Laurence Irving, sem var með- al leikanda, hefur sagt um þennan- atburð: „Fegurð leiksins, tign tón- listarinnar og glæsileiki skrautsýning anna féll í góðan jarðveg. Þessa hvíta sunnuhelgi varð mönnum ljóst, að listamenn og leikhúsmenn hlýddu fegins hugar kalli kirkjunnar og fórn uðu henni störfum sínum. Árið eftir að Koma Krists var sýnd í Kantaraborg, var stofnað í Bretlandi félag áhugamanna um eflingu kirkju- legrar leiklistar. Félag trúarleikja í Stóra-Bretlandi (The Religious Drama Society) var það félag kall- að, og George Bell, sem þá var orð- inn biskup í Chichester, var kjörinn forseti félagsins. Þetta félag var ekki einskorðað við ensku þjóðkirkjuna, heldur opið mönnum úr öllum kristn- um trúflokkum, og foringjar-stærstu fríkirkjusafnaða Bretlands hafa alla tíð verið varaforsetar félagsins. Frí- kirkjurnar hafa hin síðari árin ekki haft minni hug á beitingu leiklist- ar í þágu trúarinnar en Englands- kirkja, og félagið hefur átt mikinn þátt í að auka einingu og samvinnu kirkjudeilda og sértrúarflokka í land- inu. Árið 1930 skipaði George Bell E. Martin Browne til að hafa yfirum- sjón með trúarleiklist í biskupsdæmi hans, og starfaði hann að því í ná- inni samvinnu við félagið. (Það, sem segir í þessari samantekt, er að mestu leyti byggt á grein, sem Browne ritaði í tilefni þrjátíu ára afmælis félagsins fyrir nokkrum ár- um). Aðalstarf hans í byrjun var að aðstoða og leiðbeina söfnuðum, skól- um og öðrum hópum, sem vildu kom- ast yfir og setja á svið góða trúar- leiki. Komið var á fót umferðarleik- flokki, sem tók að sér verk, er voru of veigamikil til að vera á færi lítilla hópa. Á þessum árum var hin árlega listahátíð í Kantaraborg einnig grund völluð. Árið 1935 var T. S. Eliot fal- ið að semja verk til að flytja á þeirri hátíð. Hann varð við þeim tilmæl- um, og skapaði meistaraverk sitt Morðið í dómkirkjunni, sem síðan 304 T t M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.